Morgunblaðið - 10.11.2017, Side 23

Morgunblaðið - 10.11.2017, Side 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017 Viljugir námshestar Nemendur Háskólans í Reykjavík lesa myrkranna á milli þessa dagana, enda er langt liðið á haustönnina og næsta próftímabil nálgast óðfluga með öllu sem því fylgir. Eggert Það er kunnara en frá þurfi að segja að það eru mannréttindi að vera svo heimskur sem maður vill. Það kann jafnvel að vera talið gott og gilt í réttarsal að bera fyrir sig óafsak- anlega vanþekkingu. Stundum er það svo þegar dómara rekur í vörður í dómagerð sinni, þá búa þeir til hugtök sem lög- gjafanum eru ætluð en löggjafinn hefur hvorki skapað í löggjöf né ætlað sér að skapa. Þar kemur greinarhöfundi í hug hugtakið „opinber persóna“. Til þess að verða opinber persóna þarf við- komandi annaðhvort að vera kjörinn til trúnaðarstarfa ellegar að hafa sést oft á síðum menningartímarita eins og „Séð og heyrt“ ellegar „Vikunn- ar“. Mannskepnan „opinber persóna“ er að flestu loðið og teygjanlegt hug- tak, svona eins og klám ellegar list. Fundur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Það er alvarlegur misskilningur í gangi hjá sumum þingmönnum um eftirlitshlutverk sitt. Til þess að sinna eftirliti á tilteknu sviði þarf sá er eftirlitinu sinnir að hafa heimildir, mannafla og jafnvel tæki. Í 13. gr. laga um þingsköp Alþing- is, tölulið 8, segir svo um stjórnskip- unar- og eftirlitsnefnd Alþingis: „Nefndin fjallar um stjórnar- skrármál, málefni forseta Íslands, Al- þingis og stofnana þess, kosningamál, málefni Stjórnarráðsins í heild og önnur mál sem varða æðstu stjórn ríkisins. Enn fremur fjallar nefndin um ársskýrslu og tilkynningar um- boðsmanns Alþingis, svo og um skýrslur Ríkisendurskoðunar. Meti nefndin það svo að einstakar skýrslur Ríkisendurskoðunar eigi eftir efni sínu fremur að fá athugun í annarri nefnd vísar hún þeim skýrslum þang- að. Nefnd sem tekur þannig við skýrslu Ríkisendurskoðunar skilar þá áliti til þingsins eftir athugun sína á skýrsl- unni en um aðrar skýrslur fjallar stjórn- skipunar- og eftirlits- nefnd og skilar áliti um þær. Nefndin skal einnig hafa frumkvæði að því að kanna ákvarðanir einstakra ráðherra eða verklag þeirra sem ástæða þykir til að at- huga á grundvelli þess eftirlitshlutverks sem Alþingi hefur gagnvart framkvæmd- arvaldinu. Komi beiðni um slíka at- hugun frá a.m.k. fjórðungi nefnd- armanna skal hún fara fram.“ Þann 19. október sl. var haldinn opinn fundur í stjórnskipunar- og eft- irlitsnefnd um „vernd tjáningar- frelsis“. Til fundarins voru boðaðir gestir til að kenna þingmönnum um vernd tjáningarfrelsis. Til fundarins var boðað af lögfræðingi og lögvitringi í þingflokki Pírata og sennilega full- trúa Vinstri grænna Allra Handa í þessari þingnefnd. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur aðeins eftirlit með fram- kvæmdavaldinu, þ.e. ráðherrum, en ekki með einstökum stofnunum og þaðan af síður dómstólum. Fullt tilefni til fræðslufundar fyrir lögvitring Þegar til fundarins kom reyndist fullt efni til að halda fræðslufund fyr- ir suma fulltrúa í nefndinni. Til fund- arins komu nokkrir þekkingarmenn og -konur. Það kom fram í upphafi fundarins að lögvitringur Pírata þekkti alls ekki muninn á lögfræðingi og lögmönnum. Þannig er að aðeins sumir lögfræðingar eru og verða lög- menn, og jafnvel hætta að vera lög- menn með því að leggja inn réttindi sín. Lögvitringurinn, sem er þingmað- ur og þar með einn af handhöfum lög- gjafarvaldsins, taldi eðlilegt að um lögbannsgerðir væri fjallað á grund- velli einhverra fréttatilkynninga Ör- yggis- og samvinnustofnunar Evr- ópu, en ekki á grundvelli þeirra laga sem Alþingi hefur sett. Sem kunnugt er, eru fréttatilkynningar ekki rétt- arheimildir og tæpast lögskýring- argögn í íslenskum rétti. Lögvitringnum var alls ókunnugt um að lögbann er lagt á samkvæmt málsmeðferðarreglum í lögum um kyrrsetningu og lögbann frá 1991. Lögvitringurinn greiddi ekki atkvæði um þá löggjöf, með lögmætri fjarvist. Þágufallssjúkur lögfræðingur Næstur til að fræðast af sýslu- manni og lögfræðingum hans var lög- fræðingur sem sagði „mér langar að spyrja“. Að öðru leyti voru spurning- arnar óskiljanlegar. Spurningarnar báru með sér að lögfræðingnum, sem er jafnframt einn af fulltrúum lög- gjafarvaldsins, var alls ókunnugt um allt er snerti lögbann. Það kom fram í spurningu lögfræð- ingsins að það kunni að vera ástæða til að taka tillit til ástands í stjórn- málum þegar lögbann er sett. Með góðum vilja mátti skilja spurningu lögfræðingsins á þann veg að sýslu- maður ætti að kveða upp úrskurð með pólitískri niðurstöðu. Með öðrum orðum pólitísk réttarhöld! Það kom einnig fram hjá öðrum nefndar- mönnum að tillit skyldi tekið til stjórnmálaástands í gjörðum sýslu- manns. Þá kom einnig fram hjá lögfræð- ingnum, án þess að réttarheimildar væri getið, að blaðamenn og ritsóðar hefðu meiri rétt til tjáningarfrelsis en aðrir þegnar þessa lands, og þar með að skerða persónuvernd og æru fólks án nokkurrar ábyrgðar á gjörðum sínum. Lögmaður Blaðamannafélagsins Meðal þeirra sem til þessa fræðslu- fundar komu var lögmaður Blaða- mannafélags Íslands. Fávís þingmað- ur spurði lögmanninn einnar spurningar; hvort það væri svo að málefni sem vörðuðu þagnarskyldu í ótilgreindum 142 lagabálkum væru ekki háð þagnarskyldu ef þau kæm- ust í hendur blaðamanna. Svar lög- mannsins var stutt og laggott: „Já.“ Það var án nokkurra útskýringa ell- egar tilvísunar í réttarheimildir sem afléttu slíkri þagnarskyldu. Með öðr- um orðum þá er það skilningur þessa lögmanns að blaðamönnum sé frjálst að valsa um og birta þjófstolin trún- aðargögn. Eina viðmiðunin er að „gögnin eigi erindi við almenning“ og um „opinbera persónu“ sé að ræða. Hvort tveggja að mati viðkomandi blaðamanns. Tekið skal fram fyrir lesanda að meðal þeirra lagabálka um þagnarskyldu sem um ræðir er öll löggjöf um heilbrigðismál, þar með sjúkraskýrslur einstaklinga. Þegar svar þessa mikilsvirta lög- manns var komið fram taldi fávísi þingmaðurinn að fundur í stjórnskip- unar- og eftirlitsnefnd væri kominn út fyrir öll mörk þess sem lög um þingsköp kvæðu á um. Fundurinn var ekki lengur til upplýsingar eða eft- irlits. Fávísi þingmaðurinn sagðist ekki sitja undir svona bulli og gekk af fundi. Viðtal við dósent í fjölmiðla- fræði og álitsgjafa Fyrir nokkru var viðtal í sjónvarpi við dósent í fjölmiðlafræði við Há- skólann á Akureyri. Formáli fréttamanns sjónvarps og spurning var þessi: Í 58. grein laga um fjármálafyrir- tæki segir að starfsmenn fjármála- fyrirtækja, endurskoðendur og aðrir sem taki að sér verk í þágu fyrirtæk- isins séu bundnir þagnarskyldu um allt sem þeir fá vitneskju um og varð- ar viðskipta- og einkamálefni við- skiptamanna. Þá segir í annarri máls- grein lagagreinarinnar að sá sem veiti slíkum upplýsingum viðtöku sé sömuleiðis bundinn þagnarskyldu. Ólíkar skoðanir eru uppi um hvernig skuli túlka seinni málsgreinina, það er hvort bankaleyndin eigi aðeins við um starfsmenn fjármálafyrirtækja. Dósent í fjölmiðlafræði segir að það hafi verið mat Fjármálaeftirlitsins ár- ið 2009 að bankaleyndin næði líka yfir blaðamenn í tilfelli lánabókar Kaup- þings, en aldrei hafi verið tekist á um lagatúlkunina fyrir dómstólum. Svar dósentsins var eftirfarandi: Og um þetta var nú bara skrifuð heil greinargerð um svipað leyti þar sem þessi íslensku lög voru borin saman við lög erlendis og þetta ákvæði á Íslandi stendur svolítið út úr og er einna svipaðast, samkvæmt þessari greinargerð Dóru Guð- mundsdóttur, ákvæðinu í Danmörku. Niðurstaða greinargerðarinnar var hins vegar sú að þetta ákvæði myndi trúlega verða túlkað eins og það hef- ur verið túlkað í Danmörku, það er að segja að þessi bankaleynd næði ekki til fólks úti í bæ, næði ekki til blaða- manna. Seint trúi ég að Dóra frænka mín sé svo skapandi í lagatúlkun sem dós- entinn ætlar henni. Þagnarskylda verður einungis af- numin með lagaákvæðum ellegar úr- skurði dómstóla á grundvelli laga- ákvæða sem löggjafarvaldið ákveður. Skapandi lagatúlkun Sú skapandi lagatúlkun sem lög- fræðingur og lögvitringur pírata og lögmaður Blaðamannafélagsins bjóða í heyranda hljóði er dæmi um siðrof. Það er skelfileg tilhugsun að mega eiga von á að dómar og úrskurðir verði kveðnir upp á pólitískum for- sendum eins og væntingar þing- manna hljóðuðu á þessum undarlega fundi í stjórnskipunar- og eftirlits- nefnd þann 19. október sl. Fundurinn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd var haldinn á grundvelli óafsakanlegrar vanþekkingar. Þessi grein er skrifuð til verndar tjáningar- og persónu- frelsi sem kann að felast í persónu- vernd. Verð íslenskri þjóð að góðu. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Það eru mannrétt- indi að vera svo heimskur sem maður vill. Það kann jafnvel að vera talið gott og gilt í réttarsal að bera fyrir sig óafsakanlega vanþekkingu. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur er fyrrverandi alþingismaður. Frásögn af fundi í þingnefnd

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.