Morgunblaðið - 20.12.2017, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017
TRÉSMÍÐAVÉLAR
Vélar fyrir
atvinnumenn
og
handverksfólk
Yfir 40 ára frábær
reynsla á Íslandi
Rennibekkur Lata
Verð 139.800,-
Bandsög
Basa 1
Verð 45.115,-
Tifsög
Deco-flex
Verð 35.520,-
Lykilverslun við Laugaveg – Áratuga þekking og reynsla
Opið alla daga til jóla 9-22,
Þorláksmessu 10-23
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is
Bútsög HM80L
Verð 18.290,-
Hefill
HMS850
Verð 57.500,-
Tifsög SD1600V
Verð 19.700,-
Smabyggð vél
Combi 6
Verð 227.900,-
Bandsög
Basa 3
Verð99.600,-
Iðnaðarsuga
HA1000
Verð 21.100,-
Ný
vefverslun
brynja.is
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Kjörstjórn Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík kom saman til fundar í
fyrradag þar sem ákveðið var að
framboðsfrestur vegna þátttöku í
leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík sé til 10. janúar nk. Leið-
togaprófkjörið fer fram n 27. janúar
nk.
Halldór Frímannsson, formaður
kjörstjórnar, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að enn hefðu
engin framboð í prófkjörið borist.
Áslaug Friðriksdóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, staðfesti
í samtali við Morgunblaðið í gær að
hún hefði ákveðið að taka þátt í leið-
togaprófkjörinu og að hún ætlaði að
sækjast eftir oddvitasætinu.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, sagði í gær að
hann hefði, eftir vandlega íhugun,
tekið ákvörðun um að bjóða sig fram í
leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík.
Unnur Brá Konráðsdóttir sagði í
gær að hún væri ekki búin að ákveða
hvort hún tæki þátt í leiðtogapróf-
kjörinu og ekki náðist í Eyþór Arn-
alds sem einnig hefur verið orðaður
við framboð.
Framboðsfrestur til 10. janúar
Sjálfstæðismenn undirbúa leiðtogaprófkjör í Reykjavík
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta eru mjög óvenjulegar aðstæð-
ur, en eins og alltaf þegar félags-
menn okkar lenda í vandræðum för-
um við yfir málin með þeim og það
erum við að gera núna. Eitt af því
sem við skoðum er hvort uppsögnin
sé lögleg. Varðandi brottrekstrarsök
vísa ég alfarið á stjórnendur Borgar-
leikhússins,“ segir Birna Hafstein,
formaður Félags íslenskra leikara, í
samtali við Morgunblaðið.
Greint var frá því í fjölmiðlum í
gær að Atla Rafni Sigurðarsyni leik-
ara hefði verið sagt upp störfum í
Borgarleikhúsinu. Atli Rafn átti að
fara með eitt aðalhlutverkanna í
Medeu sem frumsýna átti 29. desem-
ber næstkomandi. Frumsýningunni
hefur verið frestað.
„Ákvörðun um uppsögnina var vel
ígrunduð og tekin að vandlega at-
huguðu máli. Stjórn Leikfélags
Reykjavíkur og leikhússtjóri voru
einhuga um ákvörðunina,“ sagði í yf-
irlýsingu Borgarleikhússins. Ástæða
uppsagnarinnar eru ásakanir í
tengslum við #Metoo-byltinguna.
Atli Rafn sagði í yfirlýsingu að um
væri að ræða nafnlausar ásakanir:
„Mér hefur ekki verið greint frá því
hvers eðlis þær ásakanir eru, frá
hvaða tíma, hverjir eiga í hlut, né
nokkuð annað sem getur gert það að
verkum að ég geti tjáð mig um þær.
Vegna þess mun ég ekki tjá mig
frekar um málið.“
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins átti Atli Rafn fund, ásamt
lögmanni sínum, með borgar-
leikhússtjóra og lögmanni leikhúss-
ins um síðastliðna helgi.
Atli Rafn er fastráðinn leikari við
Þjóðleikhúsið. Hann fékk launalaust
leyfi til eins árs í ágúst sl. Ari Matt-
híasson þjóðleikhússtjóri vildi ekki
tjá sig um stöðu Atla Rafns þegar
eftir því var leitað í gærkvöldi.
Kanna lögmæti uppsagnar
Atla Rafni Sigurðarsyni sagt upp í Borgarleikhúsinu
Átti ásamt lögmanni sínum fund með leikhússtjóranum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Borgarleikhús Atla Rafni Sigurðar-
syni var sagt upp störfum nýlega.
Dr. Ólafía Einarsdóttir
fornleifafræðingur lést
í Kaupmannahöfn í
gær, 19. desember.
Ólafía fæddist í
Reykjavík 28. júlí 1924,
dóttir Einars Þorkels-
sonar og Ólafíu Guð-
mundsdóttur. Hún
lauk stúdentsprófi frá
MR árið 1944 og hóf
eftir það nám í forn-
leifafræði við Lund-
únaháskóla og lauk því
árið 1948. Varð hún
fyrst Íslendinga til
þess að ljúka próf-
gráðu í greininni en leiðbeinandi
hennar var einn merkasti fornleifa-
fræðingur 20. aldar, dr. Gordon
Childe.
Að námi loknu starfaði Ólafía um
hríð við Þjóðminjasafn Íslands og
stjórnaði þá meðal annars uppgrefti
á merku kumli úr heiðnum sið við
bæinn Brennistaði í Eiðaþinghá.
Ólafía hélt aftur utan til náms og
lauk meistaragráðu í
miðaldasögu við Há-
skólann í Lundi í Sví-
þjóð árið 1951. Hún
lauk síðan fil.lic.-prófi
við sama skóla árið
1958 og loks dokt-
orsprófi 1964. Ólafía
var ráðin lektor við
Kaupmannahafnar-
háskóla árið 1963 og
gegndi hún því starfi
til starfsloka. Eigin-
maður Ólafíu er Bent
Fuglede stærðfræð-
ingur og eignuðust
þau soninn Einar árið
1966.
Dr. Ólafía Einarsdóttir var sæmd
heiðursdoktorsnafnbót við sagn-
fræði- og heimspekideild Háskóla
Íslands árið 2009. Eftir hana liggur
fjöldi ritverka og greina um tíma-
talsfræði og sögu kvenna á miðöld-
um. Frá árinu 2006 hefur Fornleifa-
fræðingafélagið gefið út tímaritið
Ólafíu, sem nefnt er eftir henni.
Andlát
Ólafía Einarsdóttir
Hæstiréttur Íslands hefur staðfest
úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur
þess efnis að karlmaður skuli sæta
brottvísun af heimili og nálgunar-
banni í þrjá mánuði. Maðurinn má
ekki koma nær heimili brotaþola,
konu sem hann átti í sambandi við,
en 50 metra. Hann má ekki nálgast
hana á almannafæri eða setja sig í
samband við hana með einhverjum
öðrum hætti.
Í niðurstöðu Hæstaréttar kemur
fram að maðurinn sé undir rök-
studdum grun um að hafa beitt
brotaþola líkamlegu ofbeldi sem
varði allt að eins árs fangelsi.
Konan lýsti langvarandi grófu
líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi
mannsins í sinn garð í skýrslutöku
25. júlí sl. Þar kom meðal annars
fram að maðurinn hefði áður hlotið
dóm fyrir líkamlegt ofbeldi gegn
henni auk þess sem honum var gert
að sæta nálgunarbanni.
Karlmaður sætir áfram nálgunarbanni