Morgunblaðið - 20.12.2017, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017
Mason Cash skál, 29 cm
Verð 5.900 kr.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Vinsælu heima- og velúrgallarnir
Alltaf til í mörgum litum og stærðum
Gjafaöskjur | Ilmir | Leðurtöskur Hanskar | Sjöl
Treflar | Húfur | Loðkragar | Ponsjó | Silkislæður
Seðlaveski | Skart | Peysur | Bolir
GLÆSILEGAR JÓLAGJAFIR
JÓLAGJÖFIN
HENNAR
DRAUMAYFIRHÖFNIN
Skoðið laxdal.is/yfirhafnir
Skipholti 29b • S. 551 4422
Opið
laugardag
10-20
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
ASÍ gagnrýnir fjölmörg atriði í fjár-
lagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar í
nýrri umsögn til þingsins og minnir
á kröfur hreyfingarinnar um að
skattkerfisbreytingar verði endur-
skoðaðar til fjármögnunar á nauð-
synlegum velferðarumbótum.
Endurskoðun kjarasamninga á
almenna vinnumarkaðnum blasir
við í febrúar og endurnýjun samn-
inga á næsta ári og beinir ASÍ því
til stjórnvalda að tryggja þurfi bæði
efnahagslegan stöðugleika sem
verji kaupmátt launafólks og fé-
lagslegan stöðugleika sem tryggi
velferð og lífskjör. Samspil þessara
tveggja þátta sé lykilatriði til að
skapa grundvöll að sátt og stöð-
ugleika á vinnumarkaði.
Gagnrýnt er í umsögninni, sem
Henný Hinz, hagfræðingur ASÍ,
skrifar, að þrátt fyrir að í frumvarp-
inu sé gert ráð fyrir að viðmiðunar-
fjárhæðir barnabóta hækki um 8,5%
og tekjuskerðingarmörk um 7,4% sé
áætlað að útgjöld til barnabóta
lækki um ríflega 200 milljónir frá
yfirstandandi ári. „Í því samhengi
má benda á að tekjuskerðingar-
mörk barnabóta hafa lækkað veru-
lega að raungildi en þau hafa verið
óbreytt frá árinu 2013 á sama tíma
og launavísitala hefur hækkað um
tæplega 40%. Útgjöld til barnabóta
halda því áfram að dragast saman
að raungildi líkt og undanfarin ár
og fjölskyldum sem fá greiddar
barnabætur að fækka,“ segir í um-
sögninni.
Tekjuskerðing við 241 þús.
langt undir lágmarkslaunum
Einnig segir að nú sé svo komið
að tekjuskerðing barnabóta muni á
næsta ári miðað við áform frum-
varpsins hefjast við tæplega 241.000
kr. mánaðartekjur foreldris, sem sé
langt undir lágmarkslaunum fyrir
fullt starf á vinnumarkaði sem eru
nú 280.000 kr. og verða frá og með
1. maí 2018 kr. 300.000. ,,Gera má
ráð fyrir að hjón með tvö börn, sem
bæði hafa tekjur við neðri fjórð-
ungsmörk, fái saman um 3.000
krónur í barnabætur á mánuði.“
Ennfremur gagnrýnir ASÍ þá
raunlækkun sem hafi orðið á vaxta-
bótum. Framlög til þeirra lækki um
tvo milljarða króna frá fyrra ári og
hefur húsnæðisstuðningur í gegnum
vaxtabótakerfið lækkað um 67% að
raungildi frá árinu 2013 og heim-
ilum sem fengu greiddar vaxtabæt-
ur fækkaði um tæplega 16.000 milli
áranna 2013 og 2016 að því er fram
kemur í umsögn ASÍ.
Í umfjöllun um húsnæðisbætur til
leigjenda segir: „Ekki er að sjá að
gert sé ráð fyrir framlögum til
hækkunar á bótafjárhæðum hús-
næðisbóta né skerðingarmarka
vegna tekna sem þýðir að dregið er
úr stuðningi við leigjendur að raun-
virði og fækka mun í hópi þeirra
sem rétt eiga á stuðningi. Sam-
kvæmt frumvarpinu er gert ráð fyr-
ir að framlög til húsnæðisbóta fari
lækkandi til ársins 2020.“
Stofnframlag dugar ekki til
Þá kemur fram að þriggja millj-
arða stofnframlag ríkisins til al-
menna íbúðakerfisins skv. loforði
sem gefið var við gerð kjarasamn-
inga vorið 2015 dugi ekki til bygg-
ingar á þeim fjölda íbúða sem lofað
var, þ.e. um 600 íbúða á ári, vegna
mikillar hækkunar á byggingar-
kostnaði.
Í fjárlagafrumvarpinu er ekki
tekið á þeim alvarlega veikleika í ís-
lenska heilbrigðiskerfinu að mati
ASÍ sem er sagður vera sá að
einkarekinn hluti þjónustunnar hafi
vaxið á kostnað opinberu þjónust-
unnar. „Ekki er að sjá í frumvarp-
inu að gert sé ráð fyrir framlagi til
að draga úr greiðsluþátttöku sjúkl-
inga í heilbrigðiskerfinu eins og fyr-
irheit hafa verið gefin um. Nýtt
greiðsluþátttökukerfi tók gildi hinn
1. maí sl. en skv. því greiða almenn-
ir notendur að hámarki 69.700 krón-
ur á ári fyrir heilbrigðisþjónustu
sem er umtalsvert meira en það
50.000 kr. hámark sem fyrirheit
voru gefin um við afgreiðslu breyt-
inganna á Alþingi vorið 2016,“ segir
ennfremur í umsögninni.
Skerðingar enn auknar
Bent er á að bætur almanna-
trygginga til öryrkja hækka um
4,7% um áramót en framfærslu-
uppbót sem skerðist krónu á móti
krónu hækki um 16% og hámarks-
bætur til örorkulífeyrisþega sem
búa einir hækka þannig um 7,1% og
verða 300.000. „Með þessu eru enn
auknar skerðingar á tekjulægstu líf-
eyrisþegana og munurinn á þeim
sem búa einir og með öðrum eykst
enn,“ segir í umsögninni og einnig
kemur þar fram að ellilífeyrir al-
mannatrygginga hækki um 4,7%
um áramót en heimilisuppbót til
þeirra sem búa einir hækki um tæp-
lega 16% og verða hámarksbætur
til þeirra sem búa einir þá 300.000.
„Sú leið að hækka heimilisuppbót
umfram almennar bætur eykur
þannig enn muninn á bótum þeirra
ellilífeyrisþega sem búa einir og
þeirra sem eru í sambúð. Segja má
að með þessu séu teknar upp tekju-
tengingar vegna maka að nýju í
breyttu formi.“
ASÍ gagnrýnir lægri
bætur og framlög
Fjölmargar athugasemdir í umsögn við fjárlagafrumvarpið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í þingsal Fáir starfsdagar eru til
stefnu á Alþingi til áramóta.