Morgunblaðið - 20.12.2017, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is - Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-16
Rúmfatnaður,
handklæði
og púðar
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fyrirtækið Akva Future ehf. hefur
lagt fram drög að matsáætlun fyrir
allt að 20 þúsund tonna laxeldi í lok-
uðum kvíum í innanverðum Eyja-
firði. Er þetta ný gerð af kvíum sem
verið er að þróa í Noregi. Málið er til
skoðunar hjá Skipulagsstofnun.
Á bak við þessi áform í Eyjafirði
er norska fyrirtækið AkvaDesign í
Brønnøysund í Norður-Noregi. Það
vinnur að þróun nýrrar gerðar lax-
eldiskvía eftir hugmyndum frum-
kvöðulsins, Anders Næss.
Poki laxeldiskvíanna hjá Akva-
Design er úr trefjaplastsdúki í stað
opins nets eins og er í hefðbundnum
kvíum. „Það gerir það að verkum að
við verðum að stýra lífríkinu í kvínni.
Dælum vatni af 25 metra dýpi og
setjum í pokann. Við dælum súrefni
inn á fjórum stöðum. Með því fáum
við stöðuga hringrás og straum og
getum stýrt straumnum eftir því á
hvaða vaxtarstigi fiskurinn er. Lax-
inn er því alinn við kjöraðstæður.
Hann verður sprækur og holdið þétt.
Sumir halda því fram að holdafar
laxins í okkar kvíum sé líkara því
sem er hjá villtum laxi en eldislaxi,“
segir Rögnvaldur Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Akva Future
ehf., sem er íslenskt dótturfyrirtæki
AkvaDesign og er með höfuðstöðvar
á Akureyri.
Með belti og axlabönd
Laxalús er helsta vandamál lax-
eldis í Noregi og verða mikil afföll í
eldinu. Allt að fimmti hver fiskur
drepst. Þótt hér sé kaldur sjór og
minna hafi verið um lúsavandamál til
þessa hafa komið upp einstök dæmi
um erfiðleika vegna lúsar svo nauð-
synlegt hefur verið að meðhöndla
fiskinn. Rögnvaldur telur að lúsin
geti vel náð sér á strik hér á landi,
eins og í Noregi. Einn helsti kostur
eldiskvía AkvaDesign er að lúsfríum
sjó er stöðugt dælt úr undirdjúpum.
Laxalúsin þrífst því ekki í kvínni.
Botnlægum úrgangi er safnað
saman og hann nýttur til endurnýj-
anlegra afurða. Rögnvaldur segir að
um botnlokann náist allt að 70% úr-
gangsins en í hefðbundnum kvíum
fellur hann til botns og mengar
fjörðinn. „Við ráðum ekki enn við
léttari úrganginn, þvag og það sem
kemur út um tálkn fisksins, en sá
hluti úrgangsins svífur um og dreif-
ist meira um sjóinn.“
Slysasleppingar eru taldar mesta
ógnunin í sjókvíaeldi hér á landi
vegna hættunnar á erfðablöndun við
villta stofna laxveiðiánna. Sérfræð-
ingar hafa bent á að lokaðar sjókvíar
útiloki ekki hættuna af slysaslepp-
ingum vegna þess að flytja þurfi
fiskinn í kvíar og úr þeim aftur til
slátrunar. Rögnvaldur tekur undir
þetta, segir að aldrei sé hægt að
koma í veg fyrir slys.
Hann fullyrðir þó að hættan á
slysum sé minni í lokaðri kví eins og
hans fyrirtæki mun nota. Ekki sé
nóg með að pokinn sé úr sterkum
trefjadúk sem festur er í hefðbund-
inn flothring heldur sé fiskeldisnót
sem virki sem nokkurs konar örygg-
isgirðing utan um pokann. Ef fisk-
urinn nær að komast yfir dúkinn
lendi hann ofan í nótinni. Þá þurfi
minna að tilfæra fiskinn vegna þess
að ekki þarf að meðhöndla hann
vegna lúsar og hægt sé að vinna
meira á kvínni sjálfri vegna þess að
steyptur hringur er utan um flot-
hringinn og þar er gott vinnusvæði.
„Við erum bæði með belti og axla-
bönd. Við höfum náð að koma í veg
fyrir að lax sleppi í stöðvum okkar í
Noregi,“ segir Rögnvaldur.
Samkeppnishæfir í kostnaði
Lokaðar eldiskvíar þola minni sjó-
gang en hefðbundnar kvíar og stofn-
og rekstrarkostnaður er meiri. „Við
ætlum okkur að vera samkeppnis-
hæfir í framleiðslukostnaði þrátt
fyrir meiri kostnað. Það gerum við
með því að halda afföllum í lágmarki.
Það munar um það ef hægt er að
halda afföllum í 5%, eins og hjá okk-
ur, ekki 15-20% eins og dæmi eru
um. Laxinn nýtir fóðrið betur í okk-
ar kvíum, 1,05 kíló fóðurs fara til
framleiðslu á hverju kílói af laxi á
meðan almenni iðnaðurinn þarf 1,15
til 1,2 kg. Það munar um það. Svo
losnum við undan kostnaðinum sem
felst í meðhöndlun við laxalús,“ segir
Rögnvaldur.
Spurður um áhrif sjógangs segir
hann að unnið sé að þróun öldudeyfa
svo kvíarnar þoli meiri sjó. Í Eyja-
firði er ætlunin að vera á skjólsælum
stað, innarlega í firðinum.
Háleit markmið
Tæknin er enn á þróunarstigi í
Noregi. Akva Design er þó komið
einna lengst þeirra fjölmörgu fyr-
irtækja sem eru að þróa lokaðar eld-
iskvíar. Það er með eldi í slíkum kví-
um á þremur stöðum í sveitar-
félögunum Vevelstad og Brønnøy
syðst í Norlandfylki. Í ár verður
slátrað um 2.000 tonnum af laxi upp
upp úr þessum kvíum og er það allt
fiskur sem eingöngu hefur verið al-
inn í þessari gerð sjókvía. Rögnvald-
ur tekur fram að þótt tæknin sé að
mestu klár sé endalaust hægt að fín-
stilla og laga.
Spurður um áformin í Eyjafirði
segir Rögnvaldur að farið sé af stað
með nokkuð háleit markmið. Fyr-
irtækið treysti sér til að framleiða
þar allt að 20 þúsund tonn. Þess
vegna sé sótt um það magn svo ekki
þurfi að sækja seinna um stækkun
leyfis þótt byrjað verði í smærri stíl.
Laxeldi hefur verið umdeilt í
Eyjafirði vegna laxveiðihagsmuna
og Hafrannsóknastofnun hefur ekki
gefið út mat á burðarþoli fjarðarins.
Rögnvaldur vonast til að það gerist
sem fyrst.
Áform um lokaðar eldiskvíar
Norskt fyrirtæki sækir um leyfi til að ala lax í innanverðum Eyjafirði Hyggst nota lokaðar
eldiskvíar sem verið er að þróa og reynst hafa vel í Noregi Lausir við laxalús í þessari gerð kvía
Ljósmynd/Akva Future
Brønnøysund Eldiskvíar Akva Future við Sæterosen í Velfjord. Framleiðsla er einnig á öðrum stað ekki langt und-
an og á næsta ári bætist sá þriðji við. Gert er ráð fyrir að slátrað verði um 5.500 tonnum af laxi á árinu 2019.
„Konan fékk vinnu hér í Brønn-
øysund haustið 2014 og ég flutti
hingað út. Þá kynntist ég mönn-
unum hjá AkvaDesign og fékk
áhuga á þessari aðferð. Ég vann
við annað en þeir höfðu sam-
band síðast-
liðið vor
vegna þess
að þeir voru
að velta fyrir
sér hvort
hægt væri að
gera eitthvað
á Íslandi,“
segir Rögn-
valdur Guð-
mundsson
um aðkomu
sína að AkvaDesign og dóttur-
félaginu Akva Future.
Hann aðstoðaði þá fyrst við
að koma á fundum við ýmsar
stofnanir hér heima. Þeir réðust
í að stofna dótturfélag hér á
landi nú í október og réðu Rögn-
vald til að fylgja verkefninu eftir.
Rögnvaldur nam sjávar-
útvegsfræði við Háskólann á Ak-
ureyri og bætti við sig viðskipta-
námi við Háskóla Íslands,
útskrifaðist með MBA-gráðu.
Hann hefur unnið við fram-
leiðslu og sölu sjávarafurða,
bæði hér á landi og í Bandaríkj-
unum, sem fjármálastjóri sjávar-
útvegsfyrirtækis og kennari í
sjávarútvegsfræðum, einnig
starfað í fjármálafyrirtækjum og
sem ráðgjafi.
Rögnvaldur er búsettur í Nor-
egi en er einnig með skrifstofu á
Akureyri.
Fylgir verk-
efninu eftir
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Teikning/AkvaDesign
Sjókví Sjó og súrefni er dælt inn að
ofan og út um botnloka.
Rögnvaldur
Guðmundsson