Morgunblaðið - 20.12.2017, Side 18
18 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017
Gæðafiskur
Kæliþurrkaður
harðfiskur sem
hámarkar ferskleika,
gæði og endingu.
Inniheldur
84%prótein.
Einfaldlega hollt og
gott snakk
84%prótein - 100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
20. desember 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 105.15 105.65 105.4
Sterlingspund 140.21 140.89 140.55
Kanadadalur 81.6 82.08 81.84
Dönsk króna 16.639 16.737 16.688
Norsk króna 12.56 12.634 12.597
Sænsk króna 12.426 12.498 12.462
Svissn. franki 106.28 106.88 106.58
Japanskt jen 0.9328 0.9382 0.9355
SDR 148.41 149.29 148.85
Evra 123.88 124.58 124.23
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.3622
Hrávöruverð
Gull 1263.1 ($/únsa)
Ál 2046.5 ($/tonn) LME
Hráolía 63.36 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Sjóðir í stýringu
hjá GAMMA hafa
keypt 15% hlut í
Arctic Adventures.
Fyrirtækið er hið
stærsta hér á landi
á sviði afþreyingar
fyrir ferðamenn
með 250 starfs-
menn og 5,6 millj-
arða króna veltu,
eftir nýlegan sam-
runa við Extreme Iceland. Haft er eftir
Jóni Þór Gunnarssyni framkvæmdastjóra
í tilkynningu að stefnt sé að skráningu
félagsins á markað á árinu 2019.
Eftir kaupin eiga þeir Davíð Másson og
Halldór Hafsteinsson saman tæplega
28% hlut í félaginu, fyrrverandi eigendur
Extreme Iceland eiga samtals 27%, sjóðir
á vegum GAMMA 15% og Jón Þór Gunn-
arsson og Styrmir Þór Bragason tæplega
14% hvor.
Sjóðir GAMMA kaupa
15% í Arctic Adventures
Jón Þór
Gunnarsson
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Fjárlaganefnd kallaði eftir viðbót-
argögnum frá Viðskiptaráði Íslands
á fundi sem haldinn var í gær.
Nefndin kallaði ráðið á sinn fund
eftir að Viðskiptaráð sendi frá sér
umsögn um fjárlagafrumvarpið, þar
sem áhersla var
lögð á fimm atriði
sérstaklega.
„Þetta var
mjög góður fund-
ur og mikilvæg
yfirferð. Við fögn-
um því að hags-
munasamtök á
borð við Við-
skiptaráð séu
kölluð á fund
nefndarinnar, enda er stór og fjöl-
breyttur hópur fyrirtækja innan
okkar vébanda,“ segir Ásta Sigríður
Fjeldsted, framkvæmdastjóri Við-
skiptaráðs, í samtali við Morgun-
blaðið.
Hún segir að enn sé margt óljóst
eftir yfirferð á fjárlagafrumvarpinu,
t.a.m. hafi ekkert verið að finna þar
um lækkun tryggingagjaldsins þó
að í sáttmálanum hafi staðið að það
ætti að vera í forgangi, en í því sé
þó margt gott að finna. „En það
kom fram á fundi okkar að það voru
ákveðin atriði sem nefndin vildi fá
nánari skýringar á.“
Ásta segir að eitt þessara atriða
hafi verið afnám þaks á endur-
greiðslu rannsóknar- og þróunar-
kostnaðar hjá fyrirtækjum, en í dag
er hámark endurgreiðslu 300 millj-
ónir króna. „Þakið var hækkað árið
2016 úr 100 í 300 milljónir. 20% af
þeirri fjárhæð sem varið er í rann-
sóknir og þróun hjá fyrirtækjum
eru endurgreidd upp að hámarkinu
en í löndum á borð við Bretland, Ír-
land og Kanada er ekkert hámark.“
Eins og Viðskiptaráð hefur áður
bent á er Ísland meðal neðstu ríkja
á lista þeirra OECD-þjóða sem
beita endurgreiðsluaðferð til að
styðja við rannsóknar- og þróun-
arverkefni. „Afleiðing þessarar
slöku samkeppnisstöðu er brott-
flutningur alþjóðlegra samkeppnis-
hæfra fyrirtækja frá Íslandi.
Tengist beint menntamálum
Ástæðan fyrir því að við fórum
að tala um þetta á fundinum með
nefndinni var að það stendur í
stjórnarsáttmálanum að stjórnin
ætli að afnema þakið, en við sökn-
um þess að það er ekki minnst á
þetta í fjárlögunum.“
Ásta segir að þetta sé mjög
mikilvægt því um sé að ræða beina
tengingu við menntamálin. „Í
menntamálum er verið að boða til
mikilla fjárútláta, sérstaklega á há-
skólastiginu, en ekki er talað um í
hvað þessir peningar eigi að fara.
Það þarf að fara í heildarstefnu-
mótun fyrir framtíðina og gera
færnigreiningu, og sjá hvaða störf
við þurfum að skapa fyrir unga
fólkið okkar.“
Ásta bendir á að háskólamennt-
uðum hafi fjölgað hér á landi um
184% frá árinu 2000 en störfum
fyrir þetta fólk hafi ekki fjölgað í
sama takti. „Eftirspurnin er þarna
mun meiri en framboðið. Við eigum
að einbeita okkur að háframleiðni-
og hátekjugreinum sem skila sjálf-
bærum hagvexti til langs tíma –
„alþjóðlega geiranum“ eins og við
köllum hann,“ segir Ásta og bætir
við að Íslendingar þurfi að hlúa að
umhverfi frumkvöðla- og vaxtarfyr-
irtækja sem eigi að vera líftaug
milli háskólaumhverfisins og at-
vinnulífsins. „Stefna yfirvalda í
þessum málum verður að vera
skýrari.“
Afnám þaks endurgreiðslu
ekki í fjárlagafrumvarpinu
Morgunblaðið/Eggert
Menntun Ásta segir að háskólamenntuðum hafi fjölgað um 184% frá 2000 en störfum hafi ekki fjölgað í sama takti.
Fimm meginatriði
» Forgangsraða í þágu fjár-
festingarverkefna sem spara
munu rekstrarkostnað.
» Ráðast í faglegar greiningar
á eftirspurnaráhrifum verkefna
á vegum ríkissjóðs.
» Setja þarf stofnunum ríkis-
ins fastari skorður.
» Auknum fjárveitingum í
mennta- og heilbrigðiskerfinu
þarf að fylgja heildarstefna.
» Endurskoða stofn fyrir fjár-
magnstekjuskatt og lækka
tryggingagjald.
Viðskiptaráð kallað á fund fjárlaganefndar eftir umsögn um fjárlagafrumvarpið
Ásta Fjeldsted
Stjórn Tækniþróunarsjóðs hefur
samþykkt að bjóða fulltrúum 32
fyrirtækja að ganga til samninga
um verkefnisstyrki fyrir samtals
allt að 510 milljónir króna. Verk-
efnin sem fá úthlutun eru af öllum
sviðum atvinnulífsins og eru mörg
þeirra þverfagleg. Konur eru verk-
efnisstjórar tæplega 45% verkefn-
anna. Yfir 90% þeirra eru á höf-
uðborgarsvæðinu.
Tækniþróunarsjóður býður upp á
sex styrktarflokka sem þjóna allri
nýsköpunarkeðjunni, frá rannsókn-
um og vöruþróun til markaðsstarfs.
Að þessu sinni er úthlutað er úr
þremur styrktarflokkum, „sprot-
um“, sem er fyrir ung nýsköpunar-
fyrirtæki og frumkvöðla með verk-
efni á byrjunarstigi, „vexti“, sem er
fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki
sem eru komin af frumstigi hug-
myndar, og „markaðsstyrk“, sem er
til að styrkja markaðslega innviði
fyrirtækja sem tengjast sókn á
markaði. Alls fá 11 sprotafyrirtæki
styrk í þessari úthlutun, 13
vaxtarfyrirtæki og markaðsstyrkir
eru 6.
Tækniþróunarsjóður heyrir und-
ir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköp-
unarráðherra. Sjóðurinn starfar
samkvæmt lögum um opinberan
stuðning við tæknirannsóknir, ný-
sköpun og atvinnuþróun. Á fyrri
helmingi ársins úthlutaði Tækni-
þróunarsjóður 800 milljónum króna
til nýrra verkefna.
Hálfum milljarði út-
hlutað til frumkvöðla
Tækniþróunarsjóður styrkir verkefni