Morgunblaðið - 20.12.2017, Side 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
Framtak-Blossi er umboðsaðili
fyrirVOLVO PENTA á Íslandi
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
Framtak-Blossi
kappkostar að bjóða
góða þjónustu og
sanngjarnt verð á
varahlutum.
Hafið samband við
Hafþór í síma 895-3144
eða hafthor@blossi.is
Flugmóðurskipið HMS Queen
Elizabeth, stærsta herskip sem
Bretar hafa smíðað, lekur. Breskir
embættismenn viðurkenndu það í
gær en lögðu áherslu á að ekki væri
um að ræða alvarlegt vandamál.
Skipið hefur verið í prófunum síð-
an Elísabet Englandsdrottning af-
henti það breska sjóhernum form-
lega fyrir hálfum mánuði. Áformað
er að það verði komið í fulla notkun
árið 2020. Við þessar prófanir kom í
ljós leki með skrúfuöxli. Skipið verð-
ur tekið í slipp í Portsmouth innan
tíðar og þá á að stoppa lekann.
Queen Elizabeth, sem heitir bæði
eftir núverandi Englandsdrottningu
og Elísabetu 1. sem ríkti frá 1558 til
1603, kostaði 3,1 milljarð punda,
jafnvirði nærri 440 milljarða króna.
Skipið er 280 metra langt, vegur 65
þúsund tonn og 40 flugvélar komast
fyrir á þilfarinu. Áhöfnin er um eitt
þúsund manns. Systurskipið HMS
Prince of Wales er enn í smíðum.
Deilt hefur verið um það hvort
breski sjóherinn þurfi að ráða yfir
svona stórum flugmóðurskipum í
ljósi þess að alþjóðleg hernaðar-
umsvif landsins hafa minnkað.
Nýja flugmóðurskipið lekur
AFP
Risaskip Fólk fylgist með þegar dráttarbátar draga flugmóðurskipið HMS
Queen Elizabeth inn í höfnina í Portsmouth. Komið hefur í ljós leki í skipinu.
Stærsta herskip
í sögu Bretlands
Kosningabaráttu fyrir héraðsþing-
kosningar í Katalóníu á Spáni lauk í
gær en kosið verður á morgun. Búist
er við mikilli kjörsókn en skoðana-
kannanir benda til þess að afar mjótt
verði á mununum milli þeirrar fylk-
ingar sem vill að Katalónía fái sjálf-
stæði frá Spáni og hinnar sem vill að
héraðið verði áfram hluti af spænska
ríkinu.
„Þessar kosningar munu skera úr
um það hvort ástandið verði aftur
eðlilegt, í samræmi við stjórnar-
skrána og heilbrigða skynsemi,“
sagði Manuel Rajoy, forsætisráð-
herra Spánar, á kosningafundi í
Barcelona. Spænska ríkisstjórnin
svipti Katalóníu sjálfsstjórn eftir að
þing héraðsins lýsti yfir sjálfstæði 27.
október sl.
Óvenjuleg kosningabarátta
Kosningabaráttan hefur verið
óvenjuleg þar sem Carles Puigde-
mont, fyrrverandi forseti heima-
stjórnar Katalóníu, dvelur í Belgíu
þar sem hann á yfir höfði sér hand-
töku snúi hann aftur til Spánar. Þá er
Oriol Junqueras, leiðtogi ERC, helsta
flokks sjálfstæðissinna, í fangelsi á
Spáni fyrir aðild sína að sjálfstæðis-
yfirlýsingu Katalóníu í haust, en hef-
ur tekið virkan þátt í kosningabarátt-
unni með því að veita fjölmiðlum
viðtöl og skrifa greinar, bréf og jafn-
vel ljóð.
Tvær konur hafa verið einna mest
áberandi í kosningabaráttunni. Marta
Rovira hefur axlað hlutverk leiðtoga
ERC þótt óvíst sé hvort hún muni
stýra heimastjórn ef flokkur hennar
sigrar. Rovira, sem er fertug að aldri,
sat í nefnd sem undirbjó atkvæða-
greiðslu í Katalóníu í október þar sem
meirihluti kjósenda samþykkti að
lýsa yfir sjálfstæði. Hugsanlegt er að
hún verði sótt til saka fyrir aðild sína
að sjálfstæðisyfirlýsingunni.
Ines Arrimadas, sem er 36 ára, er
leiðtogi hægriflokksins Ciudadanos
sem er andvígur sjálfstæði Katalóníu.
Hún segist ætla að einbeita sér að því
að bæta félagslega þjónustu í Kata-
lóníu, sem Puigdemont hafi vanrækt,
ef flokkur hennar sigrar í kosningun-
um á morgun.
Kosið í Kata-
lóníu á morgun
Tvær konur berjast um sigurinn
Ines
Arrimadas
Marta
Rovira
Bandarísk
stjórnvöld sögð-
ust í vikunni geta
staðfest, að
Norður-Kórea
bæri ábyrgð á
tölvuorminum
WannaCry, sem
smitaði yfir 230
þúsund tölvur í
yfir 150 löndum
fyrr á þessu ári.
Bandaríska blaðið Washington
Post sagði í gær, að Bandaríkja-
stjórn hvetti nú „öll ábyrg ríki“ til
að koma í veg fyrir að Norður-
Kóreumenn gæti stundað tölvu-
árásir af þessu tagi.
Haustið 2014 gerðu norður-
kóresk stjórnvöld árás á tölvukerfi
bandaríska kvikmyndaversins Sony
Pictures og birtu m.a. tölvupósta
sem stjórmendur fyrirtækisins
höfðu sent sín á milli. Var þess jafn-
framt krafist að Sony hætti við að
dreifa kvikmynd sem Norður-
Kóreustjórn þótti móðgandi við
leiðtoga landsins.
Segja tölvuorm
norður-kóreskan
Kim Jong Un, leið-
togi Norður-Kóreu.
Það var jólalegt í uShaka-sædýrasafninu í Durban í
Suður-Afríku í gær. Gestir fylgdust meðal annars með
því þegar tveir kafarar, klæddir í jólasveinabúninga,
syntu í fiskabúri og gáfu skötunum jólamáltíð. uShaka-
sædýrasafnið var opnað árið 20054 og eitt það stærsta í
heimi. Í safninu er meðal annars að finna fjölda há-
karlategunda, hitabeltisfiska, höfrunga, skriðdýra og
skordýra.
Suður-Afríka
AFP
Fiskarnir fengu jólamáltíð