Morgunblaðið - 20.12.2017, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 20.12.2017, Qupperneq 21
21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017 Þegar samningar náðust í byrjun sept- ember milli Press- unnar og DV annars vegar og Frjálsrar fjölmiðlunar hins veg- ar um kaup síðar- nefnda félagsins á fjöl- mörgum fjölmiðlum, t.d. DV, dv.is, Press- unni og Eyjunni, kom óvænt í ljós að félag þeirra Róberts Wessmans og Árna Harðarsonar, forstjóra og aðstoðarforstjóra lyfja- fyrirtækisins Alvogen, hafði látið þinglýsa 200 mkr tryggingarbréfi sem kom í veg fyrir að unnt væri að selja nokkuð af eigum Pressunnar og DV. Þetta höfðu þeir Árni og Róbert látið gera í algjöru umboðsleysi eft- ir að hafa svikið skrif- lega yfirlýsingu til Tollstjóra um að öll vanskil Pressu- samstæðunnar yrðu þurrkuð upp. Nú voru góð ráð dýr. Þess var eðlilega krafist að Dalurinn af- létti bréfunum. Árni Harðarson setti strax fyrir hönd Dalsins fram ýmis skilyrði fyr- ir því. Fór hann fram á greiðslu frá Frjálsri fjölmiðlun, svo og umtalsverða aug- lýsingainneign. Jafnframt krafðist hann þess að ég myndi gangast í persónulega ábyrgð afturvirkt fyrir 50 mkr láni sem félagið Kringlut- urninn hafði fengið nokkrum mán- uðum fyrr frá félaginu Aztic, sem tengist Alvogen sterkum böndum. Við bentum Árna á að þarna væri um hreina fjárkúgun að ræða sem kæmi umræddum trygging- arbréfum ekkert við, en hann gaf sig ekki. Ákvað ég því að skrifa upp á sjálfskuldarábyrgðina til að tryggja hagsmuni félaganna og starfsfólksins, svo afstýra mætti gjaldþroti sem ella hefði orðið nokkrum klukkustundum síðar. Í kjölfar þessarar ógeðfelldu fjár- kúgunar, sendu Róbert Wessman og Árni Harðarson frá sér yfirlýs- ingu, þar sem því var ranglega haldið fram að fjölmiðlarnir hefðu verið seldir að þeim forspurðum, þegar staðreyndin var sú að það hefði ekki verið hægt nema þeir af- léttu tryggingarbréfum sem hafði verið þinglýst í heimildaleysi. Af því tilefni sendi Jón Steinar Gunnlaugsson bréf til Árna Harð- arsonar hinn 28. september sl. þar sem sagði meðal annars: „Þvingun ykkar félaganna fólst í því að neita að aflétta tryggingar- bréfi frá 10. maí 2017 af útgáfurétti dagblaðsins DV og réttindum tengdum vörumerkinu DV, nema umbj. minn gengist í persónulega ábyrgð fyrir ofangreindu láni, þótt hann persónulega tengdist ekki með nokkrum hætti umræddu tryggingarbréfi. Er það líklega fá- heyrt að maður með lögfræði- menntun, sem virðist vilja vera tek- inn alvarlega, skuli viðhafa slíka háttsemi. Hún fer vafalaust í bága við ákvæði í almennum hegning- arlögum.“ Árni varð ekki við tilmælum Jóns Steinars. Í samskiptum við for- svarsmenn Pressunnar fór hann hins vegar ítrekað fram á að ásak- anir um refsivert athæfi yrðu dregnar til baka, að öðrum kosti yrði ekki um neinar sættir í málinu að ræða og krafa um hluthafafund og gjaldþrot Pressunnar látin standa. Var þar komin enn ein kúg- unartilraunin, þar sem neyta átti peningalegs aflsmunar. Óformlega var af okkar hálfu tekið jákvætt í slíka málaleitan, ef það gæti orðið til að bjarga Pressunni frá þroti, en svo fór að engar sættir náðust og ummælin því ekki dregin formlega til baka. Þannig er staðan nú og því ekki annað að gera, en láta lögreglu og dómstóla um að knýja fram réttlæti í máli þessu. Sannast hér hið forn- kveðna, að jafnvel þeir sem á hátíð- arstundum kalla sig lyfjarisa eru samt í reynd ekkert annað en pínu- litlir karlar. Eftir Björn Inga Hrafnsson » Var þar komin enn ein kúgunartilraun- in, þar sem neyta átti peningalegs aflsmunar. Björn Ingi Hrafnsson Höfundur er fv. stjórnarformaður Pressunnar. Fjárkúgun á ögurstundu Það þætti hreint magnað í hvaða landi sem væri, (nema kannski á Íslandi) að auka útgjöld ríkissjóðs á milli ára um 8-9%. Fjárlagafrumvarp nýrrar ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur gerir ráð fyrir að út- gjöld A-hluta ríkis- sjóðs, án fjármagns- kostnaðar, verði liðlega 64 milljörðum hærri á komandi ári en fjárlög yfirstandandi árs og tæp- lega 53 milljörðum hærri en áætlun gerir ráð fyrir. Útgjöld til nær allra málasviða aukast samkvæmt frumvarpinu fyr- ir utan fjármagnskostnað sem lækk- ar enda hefur verulegar árangur náðst við lækkun skulda á síðustu árum og ríkissjóður nýtur hagstæð- ari lánskjara. Heildarhækkun fram- laga til heilbrigðismála nemur ríf- lega 21 milljarði króna. Framlög til mennta-, menningar- og íþrótta- mála aukast um 5,5 milljarða, til samgöngu- og fjarskiptamála um 3,6 milljarða og til umhverfismála hækka framlög ríkissjóðs um 1,7 milljarða frá fjárlögum 2017 til 2018. Þannig má lengi telja. Á alla eðli- lega (og sanngjarna) mælikvarða er illa hægt að komast að annarri nið- urstöðu en að fjárlagafrumvarp rík- isstjórnarinnar sé sannkallað út- gjaldafrumvarp. En stjórnar- andstaðan styðst við önnur viðmið ef marka má fyrstu umræðu um frumvarpið síðastliðinn föstudag. Það er eiginlega allt ómögulegt og sagt nauðsynlegt að auka útgjöld ríkisins miklu meira en lagt hefur verið til. Áhyggjur af umræðunni Dr. Ásgeir Jónsson, dósent og deildarforseti hagfræðideildar Há- skóla Íslands, er áhyggjufullur. Hann var í fróðlegu viðtali við Krist- ján Kristjánsson á Sprengisandi Bylgjunnar á sunnudaginn og sagði um orðræðuna: „Það sem maður hefur aðallega áhyggjur af í umræðunni er að það virðist – eins og stjórnarandstaðan talar á þinginu – að hún átti sig ekki á hvernig ríkisfjármál virka. Að það þurfi að eyða meiri peningum. Ef við förum að þenja út ríkissjóð á þessum tímapunkti í hagsveiflunni, þá erum við að fá þenslu, vaxta- hækkanir frá Seðlabankanum og verðbólgu. Það skiptir mjög miklu máli að ríkið vinni á móti hagsveifl- unni.“ Ásgeir Jónsson gagnrýndi skort á forgangsröðun þegar kæmi að út- gjöldum ríkisins og að ekki væru til mælikvarðar á árangur og gæði opinberrar þjónustu. Hvernig skilgreinum við t.d. gott heilbrigðis- kerfi? Við styðjumst ekki við góða mæli- kvarða, eins og Ásgeir benti á: „Það sem er alltaf talað um er hvað við eyðum miklum pen- ingum í heilbrigðismál. Það er ömurlegur mælikvarði, vegna þess að það eru til lönd sem eyða miklum pen- ingum í sín heilbrigðis- kerfi, eins og Bandaríkin, en eru samt með ömurlegt kerfi.“ Vondur mælikvarði Svo virðist sem eini mælikvarðinn á opinbera þjónustu sem margir þingmenn og þrýstihópar styðjast við sé hversu miklum peningum var- ið er í hana. Með slíkan mælikvarða að vopni er stöðugt krafist hærri út- gjalda – því hærri því betra. Gæði þjónustunnar verða aukaatriði. Fyrr eða síðar lendum við í ógöngum og þess vegna er mikil- vægt að taka upp ný vinnubrögð – innleiða árangursmælikvarða á öll- um málefnasviðum ríkisútgjalda. Ríkið – fyrir hönd skattgreiðenda – þarf að gera skýrari og meiri kröfur til að tryggja gæði menntunar, heil- brigðisþjónustu og annarrar opin- berrar þjónustu. Ég hef oft reynt að vekja athygli á því hve mælikvarðinn sem er not- aður sé vitlaus. Í umræðum um fjár- lagafrumvarp ríkisstjórnar sem sprakk með nokkrum hvelli um miðjan september síðastliðnum, hélt ég því fram að ákvörðun um útgjöld ríkisins snerist ekki síst um að nýta fjármuni með skynsamlegum hætti, hvernig við forgangsröðum, byggj- um upp kerfi og skipuleggjum þjón- ustuna. Þar sagði ég að lítt væri hugað að því hvernig tekjur ríkisins og sameiginlegar eignir nýtast í hin sameiginlegu verkefni. „Afleiðingin er sú að ríkisreksturinn þenst út og verður óhagkvæmari með hverju árinu sem líður. Til að leysa vand- ann er þægilegra að grípa til ráð- stafana til að auka tekjur, hækka skatta og finna nýja tekjustofna.“ Líkt og hrópandinn í eyðimörkinni Röksemdir mínar í umræðum um frumvarp til fjárlaga, sem aldrei náði fram að ganga, eru í takt við það sem ég hef skrifað hér á síður Morgunblaðsins. Í október á liðnu ári fullyrti ég að flestir viðurkenndu að auka yrði útgjöld til heilbrigðis- mála. En um leið og framlögin yrðu aukin væri nauðsynlegt að viður- kenna að fjármunum væri víða sóað: „Eitt stærsta verkefni á sviði heil- brigðismála á komandi árum verður að tryggja góða nýtingu fjármuna – að skattgreiðendur fái það sem greitt er fyrir; öfluga og góða heil- brigðisþjónustu. Þar skiptir skipu- lag kerfisins mestu og um það er deilt.“ Síðar í sömu grein sagði: „Almenningur treystir því að kjörnir fulltrúar standi vörð um hornsteina samfélagsins, en gerir þá eðlilegu kröfu að ríki og sveitarfélög fari vel með sameiginlega fjármuni.“ Það skal játað að í þessum efnum hefur mér oft liðið eins og hrópand- anum í eyðimörkinni. Krafan um stöðugt aukin útgjöld er hávær. Trú- in á að hægt sé að leysa flest vanda- mál með því að auka útgjöldin er sterk. Og hvernig má annað vera þegar stuðst er við mælikvarða þar sem allt er metið út frá því hversu miklir fjármunir settir eru í mála- flokka? Afleiðingin er ekki aðeins sú að gæði þjónustunnar sem við greiðum sameiginlega fyrir, er verri en hún gæti verið, heldur einnig að stöðugt er farið dýpra í vasa launafólks. Auðvitað er eitthvað sérkennilegt og öfugsnúið við það að þingmenn leiði hugann að því að þyngja byrðar sem launafólk og fyrirtæki þurfa að bera, áður en þeir eru búnir að tryggja að þeir fjármunir sem þegar eru greiddir í ríkiskassann nýtist með hagkvæmum hætti. Það er sanngjörn krafa frá skattgreið- endum að framkvæmda- og löggjaf- arvaldið gangi úr skugga um að þeir gríðarlegu fjármunir sem renna til sameiginlegra verkefna – í heil- brigðiskerfið, menntakerfið, stjórn- sýsluna o.s.frv. – séu nýttir af skyn- semi þannig að þjónustan sé í samræmi við það sem greitt er fyrir og sanngjarnt er að krefjast. Eftir Óla Björn Kárason » Það skal játað að í þessum efnum hefur mér oft liðið eins og hrópandanum í eyði- mörkinni. Krafan um stöðugt aukin útgjöld er hávær. Óli Björn Kárason Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Ekki verða öll vandamál leyst með auknum útgjöldum Útgjöld A-hluta ríkissjóðs eftir málefnasviðum* Fjárlög 2017 Áætlun 2017 Frumvarp 2018 Breyting frá fjárlögum 2017 Breyting frá áætlun 2017 Rekstrargrunnur, m.kr. m. kr. % m. kr % Alþingi og eftirlitsstofnanir þess 5.140 5.140 5.840 700 14 700 14 Dómstólar 2.384 2.384 3.144 760 32 760 32 Æðsta stjórnsýsla 1.778 1.952 2.387 608 34 434 22 Utanríkismál 13.697 13.697 14.939 1.242 9 1.242 9 Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla 20.891 20.891 21.860 970 5 970 5 Hagskýrslugerð, grunnskrár og upplýsingamál 3.601 3.601 3.941 340 9 340 9 Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar 13.595 13.595 13.590 -5 0 -5 0 Sveitarfélög og byggðamál 20.269 20.269 21.694 1.425 7 1.425 7 Almanna- og réttaröryggi 23.422 23.492 25.136 1.714 7 1.644 7 Rétt. einstakl., trúmál og stjórnsýsla dómsmála 12.442 15.760 14.244 1.802 14 -1.515 -10 Samgöngu- og fjarskiptamál 34.754 36.329 38.324 3.570 10 1.995 5 Landbúnaður 15.771 15.771 16.040 269 2 269 2 Sjávarútvegur og fiskeldi 6.307 6.307 6.724 418 7 418 7 Ferðaþjónusta 1.711 1.711 2.131 420 25 420 25 Orkumál 3.725 3.725 4.060 336 9 336 9 Markaðseftirlit, neytendamál og stj.sýsla atv.mála 4.362 4.362 4.623 261 6 261 6 Umhverfismál 15.597 15.757 17.259 1.662 11 1.502 10 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál 12.216 12.459 13.831 1.615 13 1.372 11 Fjölmiðlun 3.955 3.955 4.165 209 5 209 5 Framhaldsskólastig 30.298 30.298 31.339 1.040 3 1.040 3 Háskólastig 41.592 41.592 44.335 2.742 7 2.742 7 Önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og menn.mála 5.250 5.250 5.341 91 2 91 2 Sjúkrahúsþjónusta 82.999 83.676 91.554 8.555 10 7.878 9 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa 42.037 42.637 47.901 5.865 14 5.265 12 Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta 45.472 45.472 46.837 1.365 3 1.365 3 Lyf og lækningavörur 17.125 21.313 22.509 5.384 31 1.196 6 Örorka og málefni fatlaðs fólks 54.463 56.993 61.641 7.178 13 4.648 8 Málefni aldraðra 67.333 67.333 76.249 8.916 13 8.916 13 Fjölskyldumál 30.071 29.428 32.002 1.931 6 2.574 9 Vinnumarkaður og atvinnuleysi 16.880 16.880 19.161 2.282 14 2.282 14 Húsnæðisstuðningur 14.350 13.312 13.393 -957 -7 81 1 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála 8.303 8.303 8.789 486 6 486 6 Fjármagnskostn., ábyrgðir og lífeyrisskuldbindingar 84.823 89.416 73.914 -10.910 -13 -15.503 -17 Almennur varasjóður og sértækar fjárráðstafanir 8.327 7.676 9.321 994 12 1.645 21 Samtals 764.938 780.733 818.215 53.277 7 37.482 5 Samtals án fjármagnskostnaðar 680.114 691.317 744.301 64.187 9 52.985 8 *Útgjöldin eru hér sett fram samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastaðli. Heimild: Fjárlagafrumvarp 2018 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.