Morgunblaðið - 20.12.2017, Side 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017
✝ Leó EiríkurLöve hæsta-
réttarlögmaður
fæddist í Reykjavík
25. mars 1948. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Ísafold í
Garðabæ 10. desem-
ber 2017.
Foreldrar hans
voru hjónin Rann-
veig Ingveldur Ei-
ríksdóttir Löve, f.
29.6. 1920, kennari við Mela-
skóla og kennsluráðgjafi á
Fræðsluskrifstofu Reykjanes-
umdæmis, og Guðmundur Löve,
f. 13.2. 1919, kennari og fram-
kvæmdastjóri Öryrkjabandalags
Íslands. Systir Leós er Sigrún
Löve kennari, f. 9.1. 1942, maki
Jóhann Ólafsson kennari.
Leó kvæntist árið 1969 Eygló
Guðmundsdóttur, f. 3.12. 1949,
BA í stærðfræði, framhalds-
skólakennara og verkefnastjóra
á hagdeild Landspítala. Þau
skildu.
Börn Leós og Eyglóar eru 1)
Guðmundur Löve, f. 8.6. 1967,
MS í hagfræði, framkvæmda-
stjóri SÍBS, maki Hrefna Björg
Þorsteinsdóttir arkitekt. Börn
þeirra eru Matthías, f. 2001, og
Katrín, f. 2008. 2) Yrsa Björt
Löve, f. 13.8. 1971, sérfræði-
læknir, maki Hróðmar Helgason
fulltrúi bæjarfógetans í Kópa-
vogi 1973-82, aðalfulltrúi þar frá
1974. Leó var í Kaupmannahöfn
og kynnti sér starfshætti um-
boðsmanns danska þjóðþingsins
1977-78 á vegum stjórnvalda.
Leó kom að stofnun og rekstri
Nýja Kökuhússins og fleiri fyrir-
tækja. Hann átti og rak ásamt
fyrrv. eiginkonu sinni Ísafoldar-
prentsmiðju og Bókaverslun Ísa-
foldar 1982-1994. Eftir það
sinnti hann eignaumsýslu og
lögmennsku á meðan heilsan
leyfði.
Leó var formaður FUF í
Kópavogi 1968-70 og FUF í
Hafnarfirði 1970-72, var í mið-
stjórn Framsóknarflokksins
1971-82, varamaður í útvarps-
ráði 1971-78, í stjórn Félags ís-
lenskra bókaútgefenda 1983-94.
Hann var um tíma varamaður í
bankaráði Seðlabankans og í
stjórn Fjölíss 1986-94.
Leó sinnti einnig ritstörfum.
Skrifaði hann eftir frásögn móð-
ur sinnar, Rannveigar Löve,
ævisögu hennar, Myndir úr hug-
skoti, sem út kom árið 2000. Þá
liggja eftir hann nokkrar skáld-
sögur og uppvaxtarsagan Við í
Vesturbænum sem skrifuð var
undir dulnefni. Hann sat í rit-
stjórn og skrifaði grein í Ólafs-
bók, afmælisrit um dr. Ólaf Jó-
hannesson, fyrrverandi
forsætisráðherra.
Útför Leós fer fram frá Nes-
kirkju í dag, 20. desember 2017,
klukkan 13.
sérfræðilæknir.
Börn þeirra eru
Vífill Ari, f. 2000,
Eygló Sóley, f.
2001, og Oddur
Ari, f. 2010. Synir
Yrsu og fyrri maka
hennar, Stefáns Ei-
ríkssonar borg-
arritara, eru Hlyn-
ur Davíð f. 1989,
læknir, sambýlis-
kona Kristina Unn-
steinsdóttir sjúkraliði, og Birkir
Helgi, f. 1991, heimspekinemi. 3)
Áskell Löve, f. 12.11. 1977, sér-
fræðilæknir, maki Elva Rut
Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Dætur þeirra eru Sif, f. 2006, og
Saga, f. 2008.
Fyrrverandi sambýliskona
Leós er Anna Lísa Kristjáns-
dóttir, f. 10.3. 1959, starfsmaður
Sýslumannsins á höfuðborgar-
svæðinu. Dóttir þeirra er 4)
Anna Margrét Leósdóttir, f.
29.12. 1998, stúdent.
Leó ólst upp í Vesturbæ
Reykjavíkur og gekk í Mela-
skóla og Hagaskóla. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR 1968 og
embættisprófi í lögfræði frá HÍ
1973. Hann öðlaðist héraðs-
dómslögmannsréttindi árið 1986
og var hæstaréttarlögmaður frá
1998.
Eftir að námi lauk var hann
Ég get verið þíðan þín
þegar allt er frosið,
því sólin hún er systir mín
sagði litla brosið.
(R. Gröndal)
Þessa vísu kenndi ég pabba
þegar ég var fimm ára gömul.
Hún varð okkar vísa í rúm 40 ár
og hún var það síðasta sem ég
hvíslaði í eyra hans áður en hann
hélt í sólarátt.
Pabbi var blíður maður enda
leitaði barnið ég í hlýja nærveru
hans. Bernskuár mín liðu við
samfelldan undirleik Bítlanna og
varla er til sú minning um pabba
úr bernskunni þar sem ekki heyr-
ist ómurinn af lögum þeirra í
huga mér. Við gengum saman um
gólfin heima og sungum með Bítl-
unum, hann með kók og oftar en
ekki Prins Póló í hönd. Hann
kenndi mér að leika Bítlalög á
píanóið. Honum fannst Paul best-
ur. Mér fannst „Here Comes the
Sun“ best. Evrópuferðin 1977 á
nýja Benzinum og Bítlarnir
hljómuðu undir, í Þýskalandi, í
Sviss, á Ítalíu, í Danmörku. Alls
staðar voru þeir með í för. Hann
sagði mér ótal sögur úr bernsku
sinni og elskaði hvers kyns orða-
leiki. Ef við sátum og horfðum á
sjónvarpið sat ég iðulega í fang-
inu á honum, það þótti honum
sjálfsagt.
En einhverju sinni var hann
óvenju þreyttur og bað mig að
setjast annars staðar. Svar mitt
við bóninni var einfalt: „Það er
ekkert annað sæti laust!“ sem lýs-
ir því hve sjálfsagt mér þótti að
sitja í fangi pabba og hversu vel-
komið það alltaf var.
Það var því erfitt að missa
hann af heimilinu við skilnað for-
eldra minna og samverustundun-
um fækkaði mikið. Síðar nutu
umhyggju hans elstu barnabörn-
in meðan heilsan leyfði. Þær voru
ófáar stundirnar sem synir mínir
elstu áttu með afa sínum niðri við
Tjörn og í Kökuhúsinu um helgar
í desember og maí ár hvert með-
an ég var í háskólanum. Hann
kenndi þeim líka að vera KR-ing-
ar. Þá var gott að eiga hann að.
Ég held að stóru strákarnir mínir
kunni engu færri Bítlalög en ég.
Heilsan brást honum allt of
fljótt og tók af honum færni.
Hann tókst á við vaxandi fötlun af
einstöku æðruleysi og aldrei
heyrðist á honum að honum
þættu örlög sín á einhvern hátt
ósanngjörn. Það var frekar hitt
að hann kenndi sér um hvernig
komið væri. Sífellt meira var af
honum tekið og síðustu árin urðu
honum sérlega erfið við vaxandi
einangrun þegar færnin tapaðist
hratt og jafnvel minnið fór að
svíkja hann á stundum.
„Little darling, it’s been a long,
cold, lonely winter.“
Baráttan við sífellt erfiðari
sjúkdóm sem ljóst var að myndi
sigra hann að lokum var orðin
löng. Hann stóð á meðan stætt
var. Hann kvaddi okkur þegar
sólin var hvað lægst á lofti og
hvarf út í eilífðina meðan Bítlarn-
ir sungu hann í svefn.
Ég held hann hafi hugsað: „I’ll
follow the sun“.
Yrsa Löve.
Pabbi minn.
Þú kenndir mér hvað það er
mikilvægt að vera til staðar fyrir
börnin sín. Hvað það er mikil-
vægt að taka þeim alltaf eins og
þau eru, án skilyrða. Þú kenndir
mér að börnin eru verðmæt
vegna þess að þau eru þau sjálf,
og að þau þurfa ekki að vera á til-
tekinn hátt til að fá ást og við-
urkenningu.
Þú kenndir mér að hafa heil-
brigða sjálfsvirðingu sem kemur
ekki til af áliti annarra, stétt eða
stöðu, hæfileikum eða verkum,
heldur frá innsta kjarna. Þú
kenndir mér hvað það er mikil-
vægt að hvíla vel í sjálfum sér til
þess að geta verið traustur og
hlýr og fjölskyldu sinni náinn.
Þú kenndir mér líka hvað það
er mikilvægt að taka öllum þeim
sem maður hittir á lífsleiðinni án
þess að dæma. Þú kenndir mér að
draga ekki fólk í dilka og þú
kenndir mér hvernig umburðar-
lyndi og virðing eru lykillinn að
því að lifa hamingjusamlega í
samfélagi við aðra.
Og þú kenndir mér að maður á
ekkert nema það sem maður get-
ur gefið. Og hvernig það sem
maður gefur af sér skilar sér til
baka og gerir manni kleift að gefa
enn meira. Og líka að peninga á
að nota til þess að kaupa tíma
með þeim sem maður elskar, því
enginn elskar peninga.
Loks kenndir þú mér að reyna
það umfram allt í jarðlífinu að
vera heill. Heill maður nýtur
trausts og virðingar. Ekki með
því að vera eins og hann heldur að
aðrir vilji, heldur með því að vera
hann sjálfur og setja sig ekki á
stall. Heill maður þarf ekki fyr-
irvara gagnvart lífinu og getur
dáið sáttur.
Takk fyrir að kenna mér þetta,
pabbi minn.
Guðmundur Löve.
Elsku elsku pabbi minn.
Það er sárt að sakna og horfast
í augu við raunveruleikann.
Takk fyrir að gefa mér bestu
gjöf sem nokkur getur gefið, þú
hafðir trú á mér.
Það er þér að þakka að mér
hefur gengið svona vel í náminu.
Þú sem varst alltaf tilbúinn að
gera hvað sem er og leggja allt
annað til hliðar til þess að hjálpa
mér.
Þú hafðir ómælda þolinmæði
og reiddist mér aldrei. Ef ég var í
vafa með einhverja spurningu,
sama hverju hún tengdist, gat ég
alltaf treyst á það að spyrja þig,
því þú vissir svarið við öllu. Þú
varst mikill viskubrunnur og
hvattir mig áfram í öllu sem ég
tók mér fyrir hendur.
Við eigum óteljandi góðar
minningar saman, milljón
hlátursköst og fjölmargar
kennslustundir.
Þú hefur kennt mér svo ótal
ótal margt, m.a. reyndir þú að
kenna mér latínu þegar ég var sjö
ára og man ég eftir einum frasa,
þar sem hann var einn af þeim
fyrstu sem þú kenndir mér. Sunt
pueri pueri, pueri puerilia
tractant.
Þú vaktir minn mikla áhuga á
tónlist, kenndir mér að hlusta á
Bítlana, þar sem þeir voru alltaf í
uppáhaldi hjá þér, kenndir mér
fyrstu gripin á gítar og hvattir
mig áfram með píanóleikinn og
sönginn.
Þú studdir alltaf við bakið á
mér, sama hvað, og varst alltaf
tilbúinn að gera hvað sem er fyrir
mig og alla í kringum mig sem
þér þótti vænt um.
Ég sakna þín sárt og hugsa til
þín á hverjum degi.
Þú varst, ert og munt alltaf
vera fyrirmynd mín í öllu sem ég
tek mér fyrir hendur.
Áður var ég engillinn þinn,
Nú ert þú minn.
Þín dóttir,
Anna Margrét Leósdóttir.
Það var á skírdag árið 1948
sem Leó bróðir minn kom í heim-
inn. Það ríkti því mikill fögnuður í
stóra húsinu við Hraunteig 16 þar
sem fjölskyldan bjó öll saman: Afi
og amma, Áskell föðurbróðir,
kona hans og tvær dætur og þrjú
yngri systkini pabba og svo ég,
pabbi og mamma. Og nú bættist
lítill sólargeisli í hópinn. Hann var
skírður Leó eftir föðurbróður
okkar sem hafði dáið 17 ára gam-
all og Eiríkur í höfuðið á móður-
afa okkar. Um haustið fluttum við
fjögur í Vesturbæinn, á Ásvalla-
götu 6. Þá var alltaf gott veður,
sól á sumrin og snjór á veturna,
sandkassi og dúkkuhús í garðin-
um og fullt af krökkum til að leika
við sem eru enn vinir okkar. Það
kom auðvitað í minn hlut að passa
litla bróður og Ólöf vinkona mín
átti tvær yngri systur svo við gát-
um sinnt barnagæslunni saman
og þvældumst með litlu krakkana
út um allt.
Þegar styttist í að Leó ætti að
byrja í skóla varð hann áhyggju-
fullur. Hann var ekki læs. Hann
bað pabba að kenna sér að lesa í
hvelli og það gerði pabbi. Og Leó
kom læs í skólann. Í móðurfjöl-
skyldu okkar var algjört kvenna-
ríki og karlmenn sjaldgæfir. Þess
vegna mættu læti sem fylgja
drengjum litlum skilningi. Þegar
Leó fæddist voru afkomendur afa
og ömmu í Réttarholti á þriðja
tug, þar af þrír strákar. Þeir tóku
það til bragðs að útkljá sín deilu-
mál með því að slást undir skrif-
borðinu hans afa, steinþegjandi,
til að fá að vera í friði með sinn
ófrið.
Við fluttum á Hjarðarhagann í
„kennarablokkina“ sem kemur
við sögu í „Djöflaeyjunni“, sögu
Einars Kárasonar. Blokkin var í
miðjum „Trípolíkamp“. Leó var
átta ára þegar hér var komið sögu
og eignaðist góða vini í barn-
margri blokkinni, braggahverfinu
og prófessorabústöðunum. Fljót-
lega kom fram áhugi hans á „bix-
nix“ eins og hann kallaði það.
Hann fann lengjur af plaströrum
og bjó til húlahringi sem hann
seldi og hafði vel upp úr. Hann
fékk vinnu hjá Árna í Árnabúð,
keypti sér skellinöðru þegar hann
fékk sumarvinnu í Árbæjarsafni
og fór á milli, glaðbeittur og
hjálmlaus. Leó stofnaði ungur
fjölskyldu og vann hörðum hönd-
um til þess að geta keypt íbúð.
Hann var alltaf með eitthvað á
prjónunum, sumt komst í fram-
kvæmd, annað ekki eins og geng-
ur.
Leó bjó ásamt fjölskyldu sinni í
Kaupmannahöfn árin 1977-1978
þar sem hann kynnti sér störf
umboðsmanns danska þjóðþings-
ins á vegum íslenska ríkisins.
Faðir okkar þurfti að fara á ráð-
stefnu í Kaupmannahöfn og
dvaldi hjá litlu fjölskyldunni. Þá
kom reiðarslagið, hann fékk
hjartaáfall og lést í örmum Leós
aðeins 59 ára að aldri. Þetta hafði
djúpstæð áhrif á Leó. Nokkrum
árum síðar greindist hann með
MS sjúkdóminn, sem lék hann
grátt og svipti hann líkamlegri og
andlegri færni á besta aldri
Mikill kærleikur hefur alla tíð
ríkt á milli okkar systkinanna. Ég
finn það svo vel núna hvað ég var
rík á meðan ég átti hann.
Anna Lísa, seinni kona Leós, á
þakkir skilið fyrir umhyggju þá
og hlýju sem hún sýndi honum
allt til loka.
Ég kveð bróður minn með
söknuði og þakka honum sam-
fylgdina. Börnum hans og barna-
börnum votta ég dýpstu samúð.
Sigrún.
„Það eru ekki allir bornir inn á
gullstól“ sagði Leó þegar nokkrir
frændur okkar héldu á honum inn
í kaffiboð á síðasta ári með Löve-
fjölskyldunni í tilefni aldarafmæl-
is Áskels Löve. Kannski ekki
skrýtið fyrir mann sem var fædd-
ur á boðunardegi Maríu og var
þar að auki einn af fyrstu piltun-
um í sannkallaðri kvennafjöl-
skyldu með móður sína Rann-
veigu í fararbroddi fimmtán
systra og Sigrúnar stóru systur
sinnar. Það var samt önnur
ástæða fyrir gullstólnum í þetta
sinn, en þannig gat Leó slegið á
létta strengi þrátt fyrir erfiðan
sjúkdóm, sem hafði m.a. í för með
sér að hann gat ekki lengur geng-
ið einn og óstuddur og notaði því
hjólastól til að komast ferða
sinna. Hann lét fötlun sína ekki
koma í veg fyrir að vera viðstadd-
ur athöfn í Þjóðarbókhlöðunni
þennan sama dag þar sem dag-
bækur Áskels voru gefnar safn-
inu og í framhaldinu að hitta okk-
ur nokkur úr fjölskyldunni á
Hraunteignum; í húsinu sem svo
margir í Löve-fjölskyldunni hafa
búið í gegnum tíðina. Það er það-
an sem ég á flestar minningar um
Leó, þegar fjölskyldan hittist í
kringum jól og afmæli; sérstak-
lega Þóru ömmu okkar á meðan
hún lifði. Í einu þessara jólaboða
man ég eftir að Leó kom með
myndatökuvél sem var með rosa-
lega sterkt ljós og tók upp þegar
við gengum í kringum jólatréð.
Leó tók myndir af fleiri viðburð-
um, sem enn eru til og ómetanlegt
og gaman að skoða þökk sé Leó
og útsjónarsemi annarra frænda
og nútímatækni sem netið býður
upp á. Sama er hægt að segja um
bókina sem Leó skráði um ævi
Rannveigar móður sinnar, en þar
sýndi hann svo sannarlega rithöf-
undarhæfileika sína ásamt nokkr-
um glæpasögum sem hann samdi.
Margar aðrar minningar um
Leó fara um hugann nú þegar
hann hefur kvatt; ég man þegar
hann hafði kynnst Eygló og þegar
tvö eldri börnin fæddust; Guð-
mundur og Yrsa. Ég man líka
þegar þau eignuðust yngsta son-
inn, Áskel, en þá voru þau í Dan-
mörku. Það var þaðan sem okkur
bárust hinar sorglegu fréttir að
Guðmundur pabbi Leós hefði orð-
ið bráðkvaddur og dáið í fanginu á
Leó. Ég hef oft hugsað hvað það
hlýtur að hafa verið hræðileg
stund, en samt á einhvern hátt
dýrmæt fyrst Guðmundi var ekki
ætluð lengri jarðarvist en raun
bar vitni að Leó var þar til staðar
fyrir hann. Ég man líka vel eftir
gleðistundum eins og þegar Leó
gaf Denna bróður og Goggu sam-
an á bæjarskrifstofum Kópavogs,
fimmtugsafmæli Leós þar sem
Sigrún systir hans flutti honum
fallega og skemmtilega ræðu og
þar sást að Leó þótti afar vænt
um frændfólkið sitt og átti svo
sannarlega nóg af því bæði föður-
og móðurmegin. Leó eignaðist
eina dóttur í viðbót með Önnu
Lísu, sem hann bjó með áður en
hann, veikindanna vegna, flutti á
hjúkrunarheimilið Ísafold þar
sem hann lést á afmælisdegi Þóru
ömmu okkar – að hann hafi bara
farið beint í afmælisveislu til
hennar, eins og Yrsa orðaði það
svo skemmtilega þegar ég hafði
samband við hana um daginn.
Með þeirri hugsun kveð ég
frænda minn og votta börnum
hans og þeirra fjölskyldum, Sig-
rúnu og hennar fjölskyldu ásamt
Önnu Lísu innilega samúð mína.
Vigdís Löve Jónsdóttir.
Það var um haustið 1955 sem
ég hóf nám í sjö ára bekk í Mela-
skólanum. Meðal bekkjarbræðra
minna var strákur sem var ófeim-
inn og vingjarnlegur og urðum
við strax góðir vinir. Það voru mín
fyrstu kynni af Leó og eftir að ég
flutti á Hjarðarhagann tveir ár-
um síðar tengdumst við enn frek-
ar og urðum heimagangar hvor
hjá öðrum. Á hverjum morgni var
dyrabjöllunni hringt og Leó var
mættur til að verða samferða í
skólann og veitti ekki af að ýta að-
eins við mér, sem alltaf var á síð-
ustu stundu. Árin sem við voru
saman í bekk urðu 13 talsins í
barna-, gagnfræða- og mennta-
skóla. Þegar ég, eftir smá hlið-
arspor til Akureyrar í nám einn
vetur, kom aftur var Leó sá fyrsti
sem bauð mig velkominn í MR,
þaðan sem við útskrifuðumst árið
1968.
Skapgerðareinkenni Leós voru
jákvæðni, athafnasemi og áræðni.
Þegar á barnaskólaárunum var
hann duglegur við að afla sér
vasapeninga, t.d. þegar við bárum
út Moggann einn vetur, þegar
hann tók að sér starf aðstoðar-
manns í Árnabúð og við flösku-
söfnun svo fátt eitt sé nefnt. Hann
var öflugur liðsmaður í Rimmu-
gýgi, sem var fótboltafélag okkar
strákanna á Hjarðarhaganum og
Prófessorabústöðunum. Eitt sinn
var hann ákveðinn í því að vilja
stofna hljómsveit og settumst við
niður í stofunni heima hjá honum
til þess að hefja æfingar en fljót-
lega kom í ljós að kunnáttu og
tækjabúnað vantaði til að gera
það að veruleika.
Á fullorðinsárum komu skap-
gerðareiginleikar Leós honum til
góða í starfi sem lögmaður og við-
skiptafrömuður. Hann eignaðist
og rak Ísafoldarprentsmiðju og
Kökuhúsið, sem gerði út bakarí á
nokkrum stöðum í Reykjavík. Ég
minnist þess þegar bókin „Við í
Vesturbænum“ var kynnt í Köku-
húsinu við Austuröell en Leó ann-
aðist útgáfu á bókinni en höfund-
ur var óþekktur! Þar mættum við
allir félagarnir úr Vesturbænum
sem tengdumst atburðarás bók-
arinnar, m.a. Vilmundur Gylfason
sem þá var nýbúinn að stofna
Bandalag jafnaðarmanna. Þeir
sem þar komu við sögu eru marg-
ir fallnir frá og mun fleiri en töl-
fræðin segir til um.
Leó ólst upp í Kennarablokk-
inni hjá foreldrum sínum Guð-
mundi og Rannveigu. Þar var öll-
um tekið af miklum hlýhug og ég
á margar góðar minningar frá
þeim tíma. Oft hittist allur vina-
hópurinn þar og aldrei var kvart-
að yfir ónæði þótt hópur ungra
drengja hafi ekki verið mjög
hljóðlátur.
Ég minnist Leós fyrir vináttu
og hlýhug alla tíð og votta fjöl-
skyldu hans innilega samúð.
Egill Einarsson.
Leó Eiríkur Löve
Fleiri minningargreinar
um Leó Eirík Löve bíða birt-
ingar og munu birtast í blað-
inu næstu daga.
Smáauglýsingar
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
mbl.is
alltaf - allstaðar