Morgunblaðið - 20.12.2017, Blaðsíða 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017
Bandaríska leik-
konan Meryl
Streep hefur var-
ist ásökunum
starfssystur sinn-
ar Rose McGow-
an þess efnis að
Streep hafi vitað
af brotum kvik-
myndaframleið-
andans Harvey
Weinstein en kosið að þegja yfir
þeim. McGowan sakaði Weinstein
um nauðgun fyrir tveimur mán-
uðum og lýsti í vikunni yfir van-
þóknun sinni á þeirri ákvörðun
kvikmyndastjarna að vera svart-
klæddar við afhendingu Golden
Globe-verðlaunanna á næsta ári, til
að mótmæla kynferðislegri áreitni
og kynferðisbrotum. „Leikkonur
eins og Meryl Streep ... ÞÖGN
YKKAR er VANDAMÁLIÐ,“ skrif-
aði McGowan á Twitter en hefur nú
fjarlægt þau ummæli. Streep svar-
aði því til að hún hefði ekki vitað af
brotum Weinstein.
Streep verst ásök-
unum McGowan
Meryl Streep
Bragi Árnason stendur
ásamt hópi tónlistar-
fólks frá Íslandi,
Georgíu, Marokkó, Líb-
anon og Þýskalandi fyr-
ir jólatónleikum í hús-
næði Hjálpræðishersins
í Mjódd annað kvöld,
fimmtudag, kl. 20. Að-
gangur er ókeypis en
tekið er við frjálsum
framlögum til styrktar
starfsemi Hjálpræð-
ishersins.
„Starfsemi hersins er
víðfeðm en hann stend-
ur fyrir opnum dögum á þriðjudögum og fimmtudögum þar sem fólki er
boðið að koma og fá mat og, ef það vill, sækja sér margvíslega félagsþjón-
ustu, ýmiss konar ráðgjöf, hælisleitendur hafa til dæmis sótt sér ráðgjöf
um lögfræðiaðstoð. Hugmyndin er að ágóði tónleikanna renni til þessara
opnu daga,“ segir í tilkynningu frá Braga, en allar nánari upplýsingar um
starfsemi Hjálpræðishersins má finna á vefnum herinn.is.
Hljómsveitina skipa auk Braga þau Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, Rusa
Petriashvili, Imad, Thabit Lakh, Salome Onashvili, Valentin Valle Domr-
ing og Martin Tornow. Á efnisskránni verða jóla-, vetrar- og stemningslög
sem hljómsveitin hyggst móta eftir eigin höfði. „Við lofum frábærri
skemmtun og vonumst til að sjá sem flesta,“ segir Bragi og tekur fram að
þar sem hann starfi líka sem leikari og hafi fengist við uppistand sé aldrei
að vita nema það verði einhver skemmtiatriði í bland við tónlistina.
Tónleikar til styrktar Hjálpræðishernum
Músík Salome Onashvili, Thabit Lakh, Valentin Valle
Domring, Sigrún Kristbjörg Jónsd., Bragi Árnason, Rusa
Petriashvili og Martin Tornow koma fram á tónleikunum.
Það er sérkennilegt að tímavarla að opna nýja bók semberst en þannig var því þófarið með smásagnasafn
Ragnars Helga Ólafssonar, Hand-
bók um minni og gleymsku. Höfund-
urinn er fjölhæfur listamaður, og
einn snjallasti bókahönnuður okkar
– og nýtur þess augsýnilega að
klæða sínar eigin bækur í ein-
staklega fínan
búning. Kápan er
eins og brúnleitt
umslag og utan
um það er hnýtt
snæri og á mínu
eintaki er það fest
niður með stóru
rauðu innsigli
með flónshúfu á.
Og fallegt er það
en þó engin flónska í sögunum, eins
og kemur í ljós þegar hnúturinn hef-
ur verið leystur og byrjað að lesa.
Þrettán sögur eru í safninu og hef-
ur ein þeirra, „Fundur útvarpsráðs
þann 14. mars 1984 og áhrif hans á
kynverund drengsins“ áður birst í
samnefndu sagnasafni, því fyrsta
eftir Ragnar Helga en það var hluti
þriðja bindis tímaritraðarinnar 1005
sem kom út árið 2015.
Sögurnar í bókinni eru fjölbreyti-
legar, bæði hvað efni og úrvinnslu
varðar. Safnið er rammað inn með
sögum um drengi í sveit. Í þeirri
fyrstu, „Meðan á flóttatilrauninni
stendur“, er fallega dregin upp
mynd af strák sem hyggst strjúka úr
sveitinni en þarf að taka afstöðu til
þess hvort þær krónur sem hann á
fari í rútumiða eða lakkrís. Höfund-
urinn leikur sér þar með endurlit og
minningar, þar sem sögumaður rifj-
ar atburðina upp löngu síðar, með-
vitaður um það hvernig tíminn
breytir frásögnum svo að í „framtíð-
inni mun ég reyna að finna mér leið
inn í huga minn á þessu andataki,
reyna að vita hvernig mér leið,“ seg-
ir hann um mininguna um það þegar
ákvörðun hafði verið tekin. Í síðustu
sögunni, „Í kerru“, segir hins vegar
af dreng sem liggur á bakinu á titr-
andi gólfi traktorskerru og gleymir
sér og fer að hugsa um eitthvað sem
honum hefur verið sagt. Dregin er
upp tær og fín mynd af upplifuninni
sem er rofin þegar kerruhjólið lendir
á steini og drengurinn man þá hver
og hvar hann er „– rétt eins og mað-
ur sem lýkur við að lesa bók“. Það er
lokasetning bókarinnar og útskýrir
að vissu leyti aðferð höfundarins,
sem leikur sér með skrifin og bók-
arformið á meðvitaðan hátt; og það
kemur alls ekki á óvart að í nokkrum
sagnanna kallast hann á við sögur og
aðferðir argentíska sagnaskáldsins
Jorge Luis Borgesar. Sagan „Funes
yngri“ er hreinlega sögð „fyrir
J.L.B.“ og þar er aftur fjallað um
minningar og það á heimspekilegan
hátt – sjálfsagt er að geta þess að
höfundurinn er heimspekimennt-
aður og leikur sér með slíkar pæl-
ingar í nokkrum sagnanna – og hefst
þessi á bókasafni þar sem Borges
sjálfur starfaði.
Í hinni örstuttu „Kortið“ segir síð-
an af kortagerðarmanni sem kon-
ungur einn fær það verkefni að
„draga upp landabréf af hnettinum í
raunstærð“ þar sem fótspor í sandi
eiga að vera nákvæmlega á stærð við
fót á manni. Og kortagerðarmað-
urinn tók til starfa og merkti inn á
örkina „nákvæma staðsetningu út-
og innhafa, eyðimarka, fjalla, hóla,
manna, dýra, skordýra, trjáa, stráa,
steina, sandkorna. Í sömu mund hóf-
ust hirðmenn konungsins handa við
að vefja kortinu utan um hnattlaga
tóm.“
Sögumaður einnar sögunnar
kveðst vera dramatúrg og útskýrir
hvernig það hefur orðið hans hlut-
verk en líka hvernig hann setur sér
ramma í nálgun sinni, þar sem
grunnþættirnir eru vald og vitneskja
en hann má þó ekki fara of nálægt
sínum nánustu eftir að hafa orðið
valdur að skilnaði foreldra sinna.
Titilsaga bókarinnar, og sú lengsta,
er síðan sett upp sem hefðbundið
sendibréf frá manni til konu sem
kveðst vilja vinda sér beint að er-
indinu en hann veit ekki hvar hann á
að byrja og lesandinn fær þá að
ferðast með honum og minningunum
aftur í tímann, meðan maðurinn
finnur sér leið að efninu og segir frá
upplifunum í hópi fólks sem vinnur
að húsbyggingu á eyju við Ítalíu.
Ein af bestu sögunum er fyrr-
nefnd „Fundur útvarpsráðs þann 14.
mars 1984 og áhrif hans á kynver-
und drengsins“ þar sem segir á fal-
legan og vel mótaðan hátt af ótta
drengs í sveit við kjarnorkuárás á
Keflavík.
Sögurnar í Handbók um minni og
gleymsku eru mis-áhrifaríkar en
þetta er samt heildstætt og gott
safn. Og sögurnar sýna að Ragnar
Helgi hefur traust tök á forminu og
nær að gera það að sínu, um leið og
hann leikur sér með vísanir í verk
annarra höfunda og á jafnvel samtöl
við þau. Þrátt fyrir fjölbreytilegan
frásagnarhátt og efnistök birtast
ákveðin viðfangsefni endurtekið og á
markvissan hátt, eins og tíminn og
minningar, ábyggileiki frásagna og
hinn tæri og bernski hugur.
Vert er að geta þess að ekki er
kápa bókarinnar bara vel hönnuð
heldur er umbrotið ekki síður vand-
að. Textinn situr vel á síðunum, letr-
ið fallegt og spássíur eru rúmar og
einhvernveginn hárréttar. Allt styð-
ur þetta við ánægjulega lestrarupp-
lifun þar sem maður gleymir sér yfir
sögunum – áður en snærið er hnýtt
aftur utan um bókina.
Morgunblaðið/Ófeigur
Höfundurinn „Ragnar Helgi hefur traust tök á forminu og nær að gera það
að sínu,“ skrifar rýnir um áhugavert smásagnasafn höfundarins.
Landabréf af hnettinum
dregið upp í raunstærð
Smásögur
Handbók um minni og gleymsku
bbbbn
Eftir Ragnar Helga Ólafsson.
Bjartur, 2017. Innbundin, 170 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Þri 26/12 kl. 20:00 41. s Sun 7/1 kl. 20:00 55. s Lau 27/1 kl. 20:00 61. s
Mið 27/12 kl. 20:00 42. s Fös 12/1 kl. 20:00 56. s Lau 3/2 kl. 20:00 64. s
Fim 28/12 kl. 20:00 43. s Fös 19/1 kl. 20:00 57. s Sun 4/2 kl. 20:00 65. s
Fös 29/12 kl. 20:00 44. s Lau 20/1 kl. 20:00 58. s Fös 9/2 kl. 20:00 66. s
Lau 30/12 kl. 20:00 aukas. Þri 23/1 kl. 20:00 aukas. Lau 10/2 kl. 20:00 67. s
Fös 5/1 kl. 20:00 53. s Fim 25/1 kl. 20:00 59. s Lau 17/2 kl. 20:00 68. s
Lau 6/1 kl. 20:00 54. s Fös 26/1 kl. 20:00 60. s Sun 18/2 kl. 20:00 69. s
Stjarna er fædd!
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Mið 27/12 kl. 20:00 20. s Fös 5/1 kl. 20:00 aukas.
Fös 29/12 kl. 20:00 22. s Lau 6/1 kl. 20:00 aukas.
Draumur um eilífa ást
Medea (Nýja sviðið)
Fös 29/12 kl. 20:00 Frums. Fim 4/1 kl. 20:00 3. s Lau 6/1 kl. 20:00 5. s
Mið 3/1 kl. 20:00 2. s Fös 5/1 kl. 20:00 4. s Fim 11/1 kl. 20:00 6. s
Ástir, svik og hefndarþorsti.
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Þri 26/12 kl. 13:00 56. s Sun 14/1 kl. 13:00 aukas. Sun 28/1 kl. 13:00 aukas.
Sun 7/1 kl. 13:00 aukas. Sun 21/1 kl. 13:00 aukas.
Sigurvegari Grímuverðlaunanna síðastliðið vor.
Jólaflækja (Litla sviðið)
Þri 26/12 kl. 13:00 aukas.
Tilnefnd sem Barnasýning ársins á Grímunni. Eingöngu sýnd á aðventunni.
Skúmaskot (Litla sviðið)
Lau 6/1 kl. 13:00 Frums. Sun 7/1 kl. 13:00 2. s Lau 13/1 kl. 13:00 3. s
Búðu þig undir dularfullt ferðalag!
Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið)
Fim 11/1 kl. 20:00 Frums. Þri 16/1 kl. 20:00 4. s Sun 21/1 kl. 20:00 7. s
Lau 13/1 kl. 20:00 2. s Mið 17/1 kl. 20:00 5. s Mið 24/1 kl. 20:00 8. s
Sun 14/1 kl. 20:00 3. s Fim 18/1 kl. 20:00 6. s Sun 28/1 kl. 20:00 9. s
Saga íslensku þjóðarsálarinnar.
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Lau 30/12 kl. 13:00 Lau 13/1 kl. 13:00 Sun 28/1 kl. 13:00
Sun 7/1 kl. 13:00 Sun 21/1 kl. 13:00
Fjölskyldusöngleikur eftir Góa!
Faðirinn (Kassinn)
Lau 30/12 kl. 19:30 18.sýn Sun 28/1 kl. 19:30 20.sýn Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn
Lau 6/1 kl. 19:30 Auka Mið 31/1 kl. 19:30 21.sýn
Lau 20/1 kl. 19:30 19.sýn Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Hafið (Stóra sviðið)
Þri 26/12 kl. 19:30 Frum Fös 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 19/1 kl. 19:30 7.sýn
Mið 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 13/1 kl. 19:30 5.sýn Sun 21/1 kl. 19:30 8.sýn
Fim 4/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 14/1 kl. 19:30 6.sýn
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Fös 29/12 kl. 19:30 14.sýn Fös 12/1 kl. 19:30 16.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 18.sýn
Lau 6/1 kl. 19:30 15.sýn Lau 20/1 kl. 19:30 17.sýn
Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi .
Mið-Ísland að - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 4/1 kl. 20:00 Lau 6/1 kl. 22:30 Lau 13/1 kl. 20:00
Fös 5/1 kl. 20:00 Fim 11/1 kl. 20:00 Lau 13/1 kl. 22:30
Fös 5/1 kl. 22:30 Fös 12/1 kl. 20:00 Sun 14/1 kl. 20:00
Lau 6/1 kl. 20:00 Fös 12/1 kl. 22:30
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Efi (Kassinn)
Lau 13/1 kl. 19:30 Frum Fös 26/1 kl. 19:30 6.sýn Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn
Sun 14/1 kl. 19:30 2.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 15/2 kl. 19:30 Auka
Mið 17/1 kl. 19:30 Auka Fim 1/2 kl. 19:30 Auka Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn
Fim 18/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 4/2 kl. 19:30 8.sýn Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn
Sun 21/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 8/2 kl. 19:30 Auka Mið 28/2 kl. 19:30 Auka
Fim 25/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 9/2 kl. 19:30 Auka
Margverðlaunað og spennandi verk !
Ég get (Kúlan)
Sun 7/1 kl. 15:00 Frums Sun 14/1 kl. 15:00 2.sýn Lau 20/1 kl. 15:00 3.sýn
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Íslensku þjónustufyrirtækin
eru á finna.is
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?