Morgunblaðið - 20.12.2017, Page 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017
Miðstöð íslenskra bókmennta bárust
30% fleiri umsóknir um styrki til
þýðinga á íslensku á þessu ári en í
fyrra, skv. tilkynningu frá miðstöð-
inni og fjölgaði umsóknum töluvert í
flokki barna- og ungmennabóka.
Tæpum átta milljónum króna var út-
hlutað í 23 styrki til þýðinga á ís-
lensku í seinni úthlutun ársins en
umsóknarfrestur rann út í nóv-
ember. 49 umsóknir bárust um
styrki í seinni úthlutun og var sótt
um tæpar 38 milljónir króna.
Alls bárust á árinu öllu 87 um-
sóknir um styrki til þýðinga á ís-
lensku en í fyrra voru þær 67. Er
það metfjöldi umsókna um styrki til
þýðinga á íslensku til Miðstöðvar ís-
lenskra bókmennta ef frá er talið ár-
ið 2008, en þá bárust 97 umsóknir í
þessum flokki, að því er segir í til-
kynningu. „Það kallast á við afger-
andi niðurstöðu könnunar sem Mið-
stöð íslenskra bókmennta lét gera
fyrir stuttu, en þar kemur fram að
80,7% landsmanna finnst mikilvægt
að þýða nýjar erlendar bækur á ís-
lensku,“ segir þar.
Meðal þeirra verka sem hlutu
þýðingastyrki í þessari úthlutun eru
skáldsagan Daha eftir Hakan
Günday í þýðingu Friðriks Rafns-
sonar, Book of Dust Vol. 1: La Belle
Sauvage eftir Philip Pullman í þýð-
ingu Guðna Kolbeinssonar, Dancing
in Odessa eftir Ilya Kaminsky í þýð-
ingu Sigurðar Pálssonar, Conversa-
tion with friends eftir Sally Rooney í
þýðingu Bjarna Jónssonar, Gilead
eftir Marilynne Robinson í þýðingu
Karls Sigurbjörnssonar og On Tyr-
anny: Twenty Lessons from the
Twentieth Century eftir Timothy D.
Snyder í þýðingu Guðmundar Andra
Thorssonar.
Alls var tæplega 18 milljónum
króna úthlutað til 44 þýðingaverk-
efna á árinu 2017. Auglýst er tvisvar
á ári eftir umsóknum, í mars og nóv-
ember.
Philip
Pullman
Sally
Rooney
Timothy
Snyder
Marylinne
Robinson
Umsóknir um þýð-
ingastyrki 30% fleiri
ROYAL
Tryggir
öruggan
bakstur
Hneturánið 2 Ævintýramynd um sérvitran
íkorna og vini hans.
Metacritic 37/100
IMDb 5,8/10
Smárabíó 15.00
Skrímslafjölskyldan
IMDb 5,1/10
Sambíóin Kringlunni 15.40
The Party
Janet heldur veislu til að
fagna stöðuhækkun en ekki
fer allt eins og hún bjóst við.
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 73/100
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 18.00, 20.00
The Killing of a
Sacred Deer
Skurðlæknirinn Steven flæk-
ist inn í erfiðar aðstæður
sem þarf að færa óhugsandi
fórn, eftir að ungur drengur
sem hann tekur undir
verndarvæng sinn fer að
haga sér undarlega.
Metacritic 73/100
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 17.45, 20.00
Listy do M3
Bíó Paradís 17.45
Justice League 12
Batman safnar liði af ofur-
hetjum; Wonder Woman,
Aquaman, Cyborg og The
Flash, til að sigrast á að-
steðjandi ógn.
Metacritic 49/100
IMDb 8,1/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Egilshöll 22.20
Murder on the Orient
Express 12
Einn af farþegum Austur-
landahraðlestarinnar er
myrtur í svefni og Hercule
Poirot fær tækifæri til að
leysa málið.
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 56/100
IMDb 6,7/10
Smárabíó 17.20, 20.00,
22.30
Háskólabíó 21.00
I, Tonya 12
Myndin segir frá þeim fræga
atburði þegar ráðist var á
bandarísku listskautadrottn-
inguna Nancy Kerrigan í árs-
byrjun 1994 og tilraun gerð
til að fótbrjóta hana.
Metacritic 73/100
IMDb 7,6/10
Háskólabíó 17.50, 21.00
Reynir sterki 16
Sagan af Reyni Erni Leós-
syni, sem gerði garðinn
frægan á áttunda áratugn-
um sem sterkasti maður í
heimi.
Smárabíó 19.00
Undir trénu 12
Atli flytur inn á foreldra sína
sem eiga í deilu við fólkið í
næsta húsi. Stórt og fagurt
tré sem stendur í garði for-
eldranna skyggir á garð ná-
grannanna, sem eru þreyttir
á að fá ekki sól á pallinn.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 6,9/10
Laugarásbíó 18.00
Smárabíó 16.40
Háskólabíó 18.00
Wonder
Saga um ungan dreng með
afmyndað andlit, sem tekst
að fá fólk til að skilja að feg-
urð er ekki á yfirborðinu.
Metacritic68/100
IMDb 8,1/10
Laugarásbíó 17.00, 20.00
Háskólabíó 18.00, 20.50
Jigsaw 16
Lík finnast hér og þar í borg-
inni og þau benda til þess að
hryllileg morð hafa verið
framin að undanförnu.
Metacritic 39/100
IMDb6,1/10
Laugarásbíó 22.15
Blade Runner 2 16
Nýr hausaveiðari kemst að
gömlu leyndarmáli sem gæti
valdið miklu umróti í sam-
félaginu.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 82/100
IMDb 8,8/10
Smárabíó 18.30, 21.10
A Bad Mom’s
Christmas 12
Vanvirtu og yfirkeyrðu mæð-
urnar Amy, Kiki og Carla
ákveða að gera uppreisn
gegn því ofurverki sem allar
mæður verða að kljást við:
Jólunum. Eins og það sé ekki
nóg að skapa hina fullkomnu
hátíð, þá þurfa þær að stjana
við mæður sínar þegar þær
koma í heimsókn um jólin.
Metacritic 42/100
IMDb 5,7/10
Laugarásbíó 20.00
Háskólabíó 18.10, 20.50
Thor: Ragnarok 12
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 72/100
IMDb 8,4/10
Sambíóin Álfabakka 22.40
Coco
Röð atburða, sem tengjast
aldagamalli ráðgátu, fer af
stað. Það leiðir til óvenju-
legra fjölskylduendurfunda.
Metacritic 80/100
IMDb 8,9/10
Sambíóin Álfabakka 15.20,
17.40
Sambíóin Egilshöll 17.40
Sambíóin Kringlunni 15.40
Sambíóin Akureyri 17.40
Litla vampíran Tony langar að eignast vin til
að hleypa smá ævintýrum
inn í líf sitt.
Metacritic 45/100
IMDb 5,9/10
Smárabíó 16.20
Laugarásbíó 14.00, 16.00
Myndin byrjar strax og sú síðasta endaði. Rey
heldur áfram ferðalagi sínu með Finn, Poe og
Luke Skywalker.
Metacritic 85/100
IMDb 8,4/10
Laugarásbíó 14.00, 15.00, 18.00, 21.00, 22.20
Sambíóin Álfabakka 15.50, 16.50, 19.00, 20.00, 22.10,
23.10
Sambíóin Egilshöll 16.00, 19.30, 21.00, 22.40
Sambíóin Kringlunni 16.20, 18.00, 19.30, 21.10, 22.40
Sambíóin Akureyri 16.20, 19.30, 22.20, 22.40
Sambíóin Keflavík 17.40, 20.40, 22.20
Smárabíó 15.50, 16.40, 19.00, 20.00, 22.00, 22.10
Star Wars VIII - The Last Jedi 12
Daddy’s Home 2
Í myndinni hafa þeir Dusty og
Brad ákveðið að taka höndum
saman um að halda hin full-
komnu jól fyrir börnin.
Metacritic 30/100
IMDb 6,2/10
Sambíóin Álfabakka 15.20,
17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 17.40
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
The Disaster Artist 12
Mynd sem skyggnist bakvið tjöldin þegar verið var að gera
myndina The Room, sem hefur fengið stimpilinn versta kvik-
mynd allra tíma.
Metacritic 76/100
IMDb 8,2/10
Sambíóin Álfabakka 15.20,
17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 20.00
Sambíóin Kringlunni
17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Akureyri 20.00
Sambíóin Keflavík 20.00
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna