Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Side 2
Hvað ætlar þú að gera á aðfangadag?
Nú, ætli ég hangi ekki bara í hellinum mínum eins og vanalega og
bíði eftir að Grýla færi mér einhvern mat, kannski væna flís af
feitum sauð!
Er Grýla ekki löngu dauð?
Nei, biddu fyrir þér, hún er sprelllifandi. Hún var það
að minnsta kosti rétt áðan þegar hún gaf mér graut
í morgunmat. Ég er nefnilega svo mikið letiblóð
að ég geri aldrei neitt á heimilinu.
Er ekkert jafnrétti á þínu heimili?
Hvað er það? Þú verður að athuga að við er-
um frá þrettándu öld. Eða mig minnir það
alla vega. Er aðeins farinn að kalka með
árunum.
Segðu mér, hver er uppáhalds-
sonurinn?
Það er augljóslega Bjúgnakrækir.
Hann færir mér stundum væn
bjúgu hingað í hellinn. Hinir eru
bölvaðir ónytjungar.
Hefurðu lent í einelti fyrir
að vera svona mikill lúði?
Bara frá Grýlu, hún er óttalegt
skass. En ég elska hana samt voða
mikið.
Hvað gefur þú Grýlu og
jólasveinunum í jólagjöf?
Grýla fær nýja skuplu sem ég lét
Kertasníki hnupla af næsta bæ. Jóla-
sveinarnir fá ekkert, þeir eru of marg-
ir og ég er of latur til að nenna að
standa í þessu gjafastússi.
Er Grýla hætt að éta
óþekk börn?
Já, hún hætti því fyrir hálfri öld
eða svo. Það var kvartað svo
mikið.
Hvað er að frétta af
jólakettinum?
Hann malar hér í horninu. Ljóta
greyið. Við erum annars að spá í
að fá okkur hund næst. Breyta
til.
LEPPALÚÐI
SITUR FYRIR SVÖRUM
Grýla hætt að
éta börn
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.12. 2017
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Hátíðarmánuðurinn desember er senn á enda en sjálfir jóladagarnireru þó enn eftir. Jólin fara í hönd með tilheyrandi gleði. Gleðin erauðvitað ekki algild og því miður ekki öllum ætluð. Sorgin bankar
uppá á öllum árstímum en hún er sérlega sár um jólin, mitt í ljósadýrðinni.
Margir hafa upplifað missi á árinu eða glímt við erfiðleika. Jafnvel þótt
engir ástvinir hafi fallið frá á árinu,
eða einu sinni nýlega, þá hafa gömul
sár og sorgir liðinna tíma lag á að
rifna upp að nýju á þessum árstíma.
Sorg yfir gömlum missi eða ein-
hverju sem aldrei varð getur hellst
yfir í hátíðleikanum.
Það er gott að tala um hlutina, nú-
orðið vitum við það, þótt áður hafi
þótt hálfpartinn dyggð að taka sárs-
auka þegjandi.
Sorg á ekki endilega bara við um
það þegar einhver deyr. Átak gegn
kynbundnu ofbeldi og kynferðislegri
áreitni undir merkjum #metoo hef-
ur ýft upp ótal sár. Sorg sem kannski var einhvern tímann búið að vinna úr
lætur á sér kræla að nýju og sársaukinn stingur alveg uppá nýtt, jafnvel yfir
löngu liðnum áföllum.
Mörgum líður illa á tímum hátíðar ljóss og friðar og á þessum árstíma
þurfum við einfaldlega að passa sérstaklega vel hvert uppá annað. Við höfum
lært það á árinu að það að segja frá raunum okkar hjálpar. Frásagnir af og
samtal um misbeitingu valds, ofbeldi og áreitni er af hinu góða þótt það geti
verið erfitt. Við skulum styðja hvert annað og muna líka að stundum þarf
ekki annað en nærveru og hlýju. Gleðilega hátíð.
Morgunblaðið/Eggert
Sorg og hlýja
í ljósadýrð
Pistill
Eyrún
Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
’Sorg sem kannski varbúið að vinna úr læt-ur á sér kræla að nýju ogsársaukinn stingur alveg
uppá nýtt, jafnvel yfir
löngu liðnum áföllum.
Anna Gunnlaugsdóttir
Þegar börnin fara í jólafrí.
SPURNING
DAGSINS
Hvenær
byrja jólin
þín?
Sigurgeir Guðlaugsson
Þau byrja þegar við skreytum jóla-
tréð. Það er þó engin föst regla hve-
nær það er gert.
Morgunblaðið/Ásdís
Hrefna Hrund Eronsdóttir
Á Þorláksmessu, þá nær maður að-
eins að setjast niður og slaka á og þá
eru jólin komin.
Aron Ingi Sævarsson
Þegar klukkan er orðin sex.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Haraldur Jónasson
Leppalúði er þriðji eiginmaður Grýlu og er sagt að þau skötuhjú hafi eignast tuttugu
börn, þar af þrettán jólasveina sem við þekkjum. Þess má geta að von er á Kertasníki
í Þjóðminjasafnið á aðfangadag klukkan ellefu en Leppalúði er vant við látinn.