Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.12. 2017
Um það bil 800 barir og veit-
ingastaðir eru nú í hverfinu
sem um ræðir, tvöfalt fleiri en
fyrir fimm árum. Stanslaust
áreiti er vegna leigubíla og
annarra farartækja sem flytja
túrista, hvort sem er sumar
eða vetur. „Fólk getur bara
flutt burt ef þetta truflar
það,“ segir ungur leiðsögu-
maður við AFP, þar sem hann
var með hóp útlendinga á
pöbbarölti, og kærði sig koll-
óttan. Íbúar hverfisins, þar
sem djammtúristarnir
halda sig aðallega, eru um
15.000. Af þeim hafa um
300 velt fyrir sér að
flytja, skv. könnun há-
skólanema í borg-
inni.
Ferðafólki fjölgar stöðugt í ver-öldinni, mörgum til gleði enöðrum þykir fjölgunin miður
af ýmsum ástæðum. Íbúar Búda-
pest, höfuðborgar Ungverjalands,
hafa nú til dæmis sumir fengið sig
fullsadda af ferðamönnum sem
koma gagngert til þess að sletta úr
klaufunum. AFP fréttastofan fjallaði
um málið.
Borgin við Dóná á sér langa sögu
fyrir fegurð og gott mannlíf, breið
stræti, góð kaffihús og rómaða bað-
menningu. Eitt af einkennum borg-
arinnar hefur t.d. lengi verið heima-
menn sitjandi að tafli í lauginni!
Mjög algengt er orðið að ungt
fólk, sérstaklega norðar úr álfunni,
skreppi yfir helgi til Parísar austurs-
ins, eins og Búdapest hefur gjarnan
verið kölluð, til þess að djamma
rækilega. „Veggirnir nötra á nótt-
unni vegna þess hve tónlistin er há-
vær, það er nær útilokað að festa
svefn,“ segir Dora Garai, íbúi í 7.
hverfi, í miðborg Búdapest, í samtali
við AFP. Borgarhlutinn er gjarnan
kallaður partíhverfið í seinni tíð.
„Að morgni þarf ég oft að hreinsa
ælu af bílnum mínum,“ segir hún, en
húsið þar sem Garai hefur búið alla
sína tíð, er aðeins steinsnar frá
byggingu þar sem finna má fjölda
skemmtistaða sem opnir eru nætur-
langt og rúma alls um 2.000 gesti.
Garai, sem er 32 ára, fer fyrir hópi
íbúa sem mótmælt hafa ástandinu
kröftuglega og enduróma í raun há-
værar raddir sumra annarra borga
álfunnar. Einkum og sérílagi hafa
íbúar Barcelona á Spáni og Amst-
erdam í Hollandi látið í sér heyra
vegna þessa.
Helsta ástæða þess að ungt fólk
sækir til borgarinnar er að þar fæst
meira fyrir peninginn en víða annars
staðar. Nemendur við Corvinus há-
skólann í Búdapest vinna að skýrslu
um málið og hafa af því tilefni rætt
við hundruð erlendra ferðalanga og
niðurstaðan er einföld: fjöldinn valdi
að skreppa til Búdapest, frekar en
annarra staða, vegna þess að þangað
eru margar ódýrar flugferðir í boði
daglega, áfengi fæst gegn mjög
vægu gjaldi í borginni og hún er orð-
in þekkt sem afbragðs góður staður
til þess að djamma.
Ferðamönnum hefur
fjölgað gríðarlega í Búda-
pest síðustu ár; þeir voru 3,5
milljónir á síðasta ári, nærri
tvöfalt fleiri en 2009. „Við
fáum mjög mikið fyrir mjög
lítið,“ hefur AFP eftir ungum
Dönum í skemmtiferð í Búda-
pest. Tekið er fram að þeir hafi
skemmt sér konunglega.
Nefnt er, sem dæmi, að „stór
bjór“ kosti sjaldnast meira en
hálfa aðra evru, andvirði um 190 ís-
lenskra króna. Íslenskir drykkju-
menn vita að slíkur af krana kostar
alla jafna ekki undir 1.100 krónum
veitingastað. Þá er fjöldi íbúða í mið-
borg Búdapest sagður til leigu á
Airbnb á um það bil 30 evrur nóttin;
andvirði um 3.800 króna. Það er ekki
mikið miðað við sumar ónefndar
borgir ...
Þrátt fyrir að íbúðaverð hafi
hækkað upp úr öllu valdi, vegna
mikillar eftirspurnar frá fjárfestum í
kjölfar fjölgunar ferðamanna, eru
ekki allir sem eiga þess kost að selja;
sumir búa í húsnæði á vegum hins
opinbera og aðrir vilja hreint ekki
gefast upp þrátt fyrir ástandið.
„Hvers vegna ætti ég að flytja
burt bara vegna þess að fólk kemur
hingað í fáeina daga og leyfir sér að
koma svona fram?“ spyr Garai. Til
hóps hennar teljast nú um 1.000
manns sem skiptast á reynslusögum
á Facebook.
„Í gærkvöldi var hér drukkinn
Englendingur á ferð, leitaði að
Airbnb íbúð sinni og hringdi öllum
dyrabjöllum í húsinu,“ sagði einn á
síðu hópsins. Barir í miðbænum eru
nú margir opnir til klukkan sex að
morgni. Hópurinn hefur krafist þess
að þeim verði gert að loka á mið-
nætti og borgaryfirvöld gætu komið
upp einhvers konar djammsvæði ut-
an miðborgarinnar í staðinn.
Vertar í borginni hafna slíkum til-
lögum, eins og nærri má geta. Mið-
næturlokun yrði dauðadómur yfir
rekstrinum, segir eigandi vinsæls
staðar sem var sagður ein besta krá í
heimi árið 2014 í ferðahandbókinni
Lonely Planet.
Hann viðurkennir að ástandið sé
ekki ákjósanlegt í augnablikinu en
hvetur til þess að fólk verði sektað
fyrir andfélagslega hegðun á al-
mannafæri, að lögreglumönnum á
vakt verði fjölgað, svo og þeim sem
hreinsa götur auk þess sem bætt
verði við almenningsklósettum í
miðborginni.
Melanie Smith, leiðbeinandi há-
skólanemanna sem áður voru nefnd-
ir, segir í raun aðeins eina lausn á
vandanum. „Verð þarf að hækka.“
Fullir og
fullsaddir í
Búdapest
Búdapest er falleg og borgin vinsæll ferðamanna-
staður. Mörgum borgarbúum finnst þó nóg komið
sakir þess hve „partíferðafólki“ hefur fjölgað
Fólk getur
flutt burt
AFP
Oft er fjör í Eyjum, var oft sungið hástöfum. Ekki er það síður í Búdapest þessi dægrin. Myndin er tekin í september.
’
Veggirnir nötra á nóttunni vegna þess hve tónlistin
er hávær, það er nær útilokað að festa svefn ... Að
morgni þarf ég oft að hreinsa ælu af bílnum mínum.
Dora Garai, sem fer fyrir hópi ósáttra íbúa í miðborg Búdapest
ERLENT
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
ÍSRAEL
GAZA Eigandi veitingahúss á Gazaströndinni bauð í vikunni öllum
Norður-Kóreumönnum 80% afslátt í tilefni þess að Kim Jong-Un, leiðtogi
landsins, fordæmdi þá ákvörðun Trumps Bandaríkjaforseta að viðurkenna
Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels. Vertinn, Salim Rabaa, hefur hlotið lof
fyrir að bjóða Ísraelsmönnum byrginn með þessum hætti en þarf ekki að
óttast örtröð á veitingastað sínum í Jabalia-fl óttamannabúðunum vegna
tilboðsins; engir Norður-Kóreubúar eru á svæðinu að sögn yfi rvalda.
VENESÚELA
CARACAS Efnahagsástand er afar slæmt í
Venesúela og íbúar í verkamannahverfi sem
kennt er við 23. janúar, í norðurhluta höfuð-
borgarinnar, hafa gripið til þess ráðs að gefa
út sína eigin mynt – panal – sem tilraun til að
bæta ástandið í þeirri gífurlegu verðbólgu sem
hrjáir landsmenn. Með panalnum er hægt að
eiga viðskipti
innan hverfi sins,
m.a. til að kaupa
sykur, brauð og
hrísgrjón, sem
ræktuð eru á
svæðinu.
RÚSSLAND
PÉTURSBORG Nýlega var opnuð ný deild
í Hermitage-safninu stórkostlega í Vetrarhöll-
inni, þar sem sýnt er gífurlegt magn ýmiskonar
sögulegs rússnesks fatnaðar. Þar er t.d. jakki sem
var í eigu Péturs mikla og brúðarkjóll Alexöndru
keisaraynju, eiginkonu Nikulásar II., síðasta
keisara Rússlands. Fjölskylda hans var tekin af lífi
sumarið 1918 í kjölfar febrúarbyltingarinnar.
ÍRAN
TEHERAN Skólum
í höfuðborginni og
næsta nágrenni var
lokað í byrjun vikunn-
ar vegna gríðarlegrar
mengunar og íþrótta-
viðburðum var afl ýst.
Hömlur höfðu verið
settar á akstur bifreiða til að reyna að draga úr menguninni
en það dugði ekki til. Í kjölfarið voru enn frekari takmarkanir
settar á akstur og dregið úr iðnaðarstarfsemi.