Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Qupperneq 8
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.12. 2017
Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum
Mystical Paris
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
BORÐ
140.000 kr.
AÐVENTU-
KERTASTJAKI
4.800 kr.
PAPPASTJARNA
1.895 kr.
STÓLL
17.900 kr.
Prestar heyra undir kjararáðog þar með biskup. Presta-félagið færir rök fyrir launa-
kröfum. Biskupsstofa er beðin um
greinargerð um störf biskups. Nú
heitir það að biskup hafi skrifað og
beðið um launahækkun, en þetta er
samhengið og ómaklegt að leggja í
það annarlegan skilning. En biskup
þykir liggja vel við höggi, jafnvel
betur en allir forstöðumennirnir,
dómarar, alþingismenn og ráð-
herrar, sem heyra undir kjararáð.
Mér sýnist biskup Íslands, séra
Agnes M. Sigurðardóttir, ætla að
verða ýmsum sannkölluð himna-
sending inn í kjaramálaumræðuna.
Það sem síðan gerist er að kjara-
ráð kemst að niðurstöðu í samræmi
við þau lög sem því er gert að starfa
samkvæmt. Kjararáði er ætlað að
leita samsvörunar í sambærilegum
störfum á almennum markaði.
Kjaramyndin hjá hinu opinbera á
með öðrum orðum að spegla al-
menna markaðinn eftir því sem
kostur er. Það gerir hún náttúrlega
ekki. Á almennum markaði eru stór-
ir hópar fjármálafólks og alls kyns
stjóra með miklu betri kjör en skjól-
stæðingar kjararáðs. En kjararáð
reynir eftir bestu getu að innleiða
samsvarandi misrétti hjá hinu opin-
bera og er í þjóðfélaginu almennt.
Það er lögbundin skylda þess.
En er það þá þannig að kjara-elíta
Íslands vilji ekki
skjólstæðinga
kjararáðs í sinn
klúbb? Sennilega
er það svo og segir
hún þá gjarnan –
og byrjar að berja
sér – að það séum
jú „við“, skatt-
greiðendur, sem
borgum brúsann.
En nú byrjar
velgjan að leita upp eftir vélindanu
því auðvitað erum það við öll, þegnar
samfélagsins, sem borgum líka kjör
markaðselítunnar. Það gerum við í
gegnum vexti, álagningu í verðlagi,
leigu og reyndar einnig með beinum
stuðningi í vildarkjörum og kvóta-
kerfum. Þannig verða ofurkjörin til.
En þegar allt kemur til alls snýst
þetta ekkert um kjör og þeim mun
síður um kjararéttlæti. Bara vald.
Það er valdið sem þröngur hópur
ætlar sjálfum sér með því að fá í sín-
ar hendur yfirráð yfir allri launaþró-
un. Þau kalla það SALEK. Það þýð-
ir að þau sem sitja við
SALEK-borðið megi ein ráða launa-
breytingum í landinu. Jöfnuður
skiptir þar engu máli. Enda sjálf á
sömu og í sumum tilvikum miklu
hærri launum en það fólk sem bak-
föllin eru nú tekin yfir. Ef SALEK-
valdinu væri í alvöru beitt til að
jafna kjörin í landinu myndi ég ekki
skrifa þessa grein.
En nú kemur að rúsínunni í pylsu-
endanum. Í lögunum um kjararáð
segir að ráðið skuli gæta þess að
með ákvörðunum sínum verði stöð-
ugleika ekki stefnt í hættu.
Þetta hefur verið gripið á lofti.
Frægt að endemum var þegar for-
seti ASÍ sagði síðastliðið vor, að
kjarasamningar við kennara á liðnu
ári hefðu verið umfram leyfileg
mörk, en yrðu látnir átölulausir að
þessu sinni „en ekki til frambúðar
þó“. En bætti síðan við, að „félags-
pólitískt vega úrskurðir kjararáðs
mun þyngra en hinir samningarnir“!
Myndin verður sífellt skýrari: Mál
málanna er stöðugleiki sem fæst
með því að róa fólk innan verkalýðs-
hreyfingarinnar. Það verði best gert
með því að „barátta forsvarsfólksins
skili árangri, topparnir hjá ríkinu
verði lækkaðir“. Þannig megi sefa
láglaunafólkið og gera það þannig
fráhverft baráttu. Og undir þetta
taka allir sem sæti eiga við SALEK-
borðið, „óheppi-
legt“ segir
fjármálaráðherra
um ákvarðanir
kjararáðs án þess
þó að sýna nokk-
urn vilja til ráð-
stafana til að
draga úr kjaram-
un með ríflegri
hækkun til ör-
yrkja og láglauna-
og millitekjufólks. Það er þó í hans
valdi að gera.
Ekki harmaði ég að kjarasamn-
ingum yrði sagt upp en þá á réttum
forsendum. Hvernig væri krafa um
að enginn yrði á lakari kjörum en
sem næmi þriðjungi af meðaltali
framkvæmdastjórnar SA og hjá rík-
inu þriðjungi af kjörum forseta Ís-
lands?
Vandinn er ekki að ákvörðun kjar-
aráðs valdi uppnámi – uppnámið er
meira að segja gott. Það er misréttið
sem er slæmt!
Marg-milljón króna fólkinu þykir
nú gott að geta látið sig hverfa í
skuggann af biskupi Íslands.
Kannski væri rétt að líta á þetta sem
góðverk biskupsins á jólum; að ger-
ast haldreipi forkólfa á vinnumark-
aði svo þeir fái frið til að handleika
reglustikuna í stað þess að þurfa að
velkjast um í ólgusjó verkalýðsbar-
áttunnar.
Við getum þó varla ætlast til þess
að Agnes M. Sigurðardóttir, biskup
Íslands, líti þannig á skeytin sem
henni eru send. Hún er nefnilega
ekki bara biskup. Hún er líka mann-
eskja eins og við öll.
Vilja ekki biskup í klúbbinn
’Hvernig væri krafaum að enginn yrði álakari kjörum en semnæmi þriðjungi af
meðaltali fram-
kvæmdastjórnar SA og
hjá ríkinu þriðjungi af
kjörum forseta Íslands?
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Morgunblaðiðið/Árni Sæberg
Svanhildur Hólm Valsdóttir
bendir á villu hjá Vísi á facebook-
síðu sinni: Takk, Vísir. Ég er sem
sagt bara eiginkona mannsins míns
og „aðstoðarkona“ (starfsheitið er,
í hundraðasta sinn, aðstoðar-
maður) Bjarna Ben. Kona er nátt-
úrlega ekkert upp á sitt eindæmi.
Dagur Gunnarsson ljósmynd-
ari gafst ekki upp þótt lakkrísrörið
sem hann keypti í
lúgusjoppu hafi
verið örlítið í
harðari kantinum
og ritar á Face-
book: Ég borðaði
lakkrísrör sem rann út 2010. Það
var grjóthart en ég hafði sigur að
lokum.
Guðrún Sess-
elja Arnardóttir
lögmaður er ekki
að stressa sig fyrir
jólin og ritar á
Facebook í vik-
unni: Fyrir þá sem eru orðnir eitt-
hvað stressaðir fyrir jólin skal það
upplýst að ég er ekki búin að kaupa
neina jólagjöf og ligg í flensu … og
er alveg róleg. Þau koma hvort eð
er alltaf.
Karl Sigurðsson Baggalútur
tjáir tilfinningar sínar á Facebook:
Jólatréð komið
upp. Blendnar til-
finningar. Það
minnir á partígest-
inn sem mætir
alltaf jafn snyrti-
legur á staðinn en verður síðan
þaulsætinn og drepst þegar líður á.
Það lúkkar vel núna og lofar góðu
en ég veit að á fjórtándanum á ég
eftir að þurfa að drösla því hálf-
dauðu út.
AF NETINU