Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Side 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Side 8
VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.12. 2017 Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Mystical Paris Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is BORÐ 140.000 kr. AÐVENTU- KERTASTJAKI 4.800 kr. PAPPASTJARNA 1.895 kr. STÓLL 17.900 kr. Prestar heyra undir kjararáðog þar með biskup. Presta-félagið færir rök fyrir launa- kröfum. Biskupsstofa er beðin um greinargerð um störf biskups. Nú heitir það að biskup hafi skrifað og beðið um launahækkun, en þetta er samhengið og ómaklegt að leggja í það annarlegan skilning. En biskup þykir liggja vel við höggi, jafnvel betur en allir forstöðumennirnir, dómarar, alþingismenn og ráð- herrar, sem heyra undir kjararáð. Mér sýnist biskup Íslands, séra Agnes M. Sigurðardóttir, ætla að verða ýmsum sannkölluð himna- sending inn í kjaramálaumræðuna. Það sem síðan gerist er að kjara- ráð kemst að niðurstöðu í samræmi við þau lög sem því er gert að starfa samkvæmt. Kjararáði er ætlað að leita samsvörunar í sambærilegum störfum á almennum markaði. Kjaramyndin hjá hinu opinbera á með öðrum orðum að spegla al- menna markaðinn eftir því sem kostur er. Það gerir hún náttúrlega ekki. Á almennum markaði eru stór- ir hópar fjármálafólks og alls kyns stjóra með miklu betri kjör en skjól- stæðingar kjararáðs. En kjararáð reynir eftir bestu getu að innleiða samsvarandi misrétti hjá hinu opin- bera og er í þjóðfélaginu almennt. Það er lögbundin skylda þess. En er það þá þannig að kjara-elíta Íslands vilji ekki skjólstæðinga kjararáðs í sinn klúbb? Sennilega er það svo og segir hún þá gjarnan – og byrjar að berja sér – að það séum jú „við“, skatt- greiðendur, sem borgum brúsann. En nú byrjar velgjan að leita upp eftir vélindanu því auðvitað erum það við öll, þegnar samfélagsins, sem borgum líka kjör markaðselítunnar. Það gerum við í gegnum vexti, álagningu í verðlagi, leigu og reyndar einnig með beinum stuðningi í vildarkjörum og kvóta- kerfum. Þannig verða ofurkjörin til. En þegar allt kemur til alls snýst þetta ekkert um kjör og þeim mun síður um kjararéttlæti. Bara vald. Það er valdið sem þröngur hópur ætlar sjálfum sér með því að fá í sín- ar hendur yfirráð yfir allri launaþró- un. Þau kalla það SALEK. Það þýð- ir að þau sem sitja við SALEK-borðið megi ein ráða launa- breytingum í landinu. Jöfnuður skiptir þar engu máli. Enda sjálf á sömu og í sumum tilvikum miklu hærri launum en það fólk sem bak- föllin eru nú tekin yfir. Ef SALEK- valdinu væri í alvöru beitt til að jafna kjörin í landinu myndi ég ekki skrifa þessa grein. En nú kemur að rúsínunni í pylsu- endanum. Í lögunum um kjararáð segir að ráðið skuli gæta þess að með ákvörðunum sínum verði stöð- ugleika ekki stefnt í hættu. Þetta hefur verið gripið á lofti. Frægt að endemum var þegar for- seti ASÍ sagði síðastliðið vor, að kjarasamningar við kennara á liðnu ári hefðu verið umfram leyfileg mörk, en yrðu látnir átölulausir að þessu sinni „en ekki til frambúðar þó“. En bætti síðan við, að „félags- pólitískt vega úrskurðir kjararáðs mun þyngra en hinir samningarnir“! Myndin verður sífellt skýrari: Mál málanna er stöðugleiki sem fæst með því að róa fólk innan verkalýðs- hreyfingarinnar. Það verði best gert með því að „barátta forsvarsfólksins skili árangri, topparnir hjá ríkinu verði lækkaðir“. Þannig megi sefa láglaunafólkið og gera það þannig fráhverft baráttu. Og undir þetta taka allir sem sæti eiga við SALEK- borðið, „óheppi- legt“ segir fjármálaráðherra um ákvarðanir kjararáðs án þess þó að sýna nokk- urn vilja til ráð- stafana til að draga úr kjaram- un með ríflegri hækkun til ör- yrkja og láglauna- og millitekjufólks. Það er þó í hans valdi að gera. Ekki harmaði ég að kjarasamn- ingum yrði sagt upp en þá á réttum forsendum. Hvernig væri krafa um að enginn yrði á lakari kjörum en sem næmi þriðjungi af meðaltali framkvæmdastjórnar SA og hjá rík- inu þriðjungi af kjörum forseta Ís- lands? Vandinn er ekki að ákvörðun kjar- aráðs valdi uppnámi – uppnámið er meira að segja gott. Það er misréttið sem er slæmt! Marg-milljón króna fólkinu þykir nú gott að geta látið sig hverfa í skuggann af biskupi Íslands. Kannski væri rétt að líta á þetta sem góðverk biskupsins á jólum; að ger- ast haldreipi forkólfa á vinnumark- aði svo þeir fái frið til að handleika reglustikuna í stað þess að þurfa að velkjast um í ólgusjó verkalýðsbar- áttunnar. Við getum þó varla ætlast til þess að Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, líti þannig á skeytin sem henni eru send. Hún er nefnilega ekki bara biskup. Hún er líka mann- eskja eins og við öll. Vilja ekki biskup í klúbbinn ’Hvernig væri krafaum að enginn yrði álakari kjörum en semnæmi þriðjungi af meðaltali fram- kvæmdastjórnar SA og hjá ríkinu þriðjungi af kjörum forseta Íslands? Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is Morgunblaðiðið/Árni Sæberg Svanhildur Hólm Valsdóttir bendir á villu hjá Vísi á facebook- síðu sinni: Takk, Vísir. Ég er sem sagt bara eiginkona mannsins míns og „aðstoðarkona“ (starfsheitið er, í hundraðasta sinn, aðstoðar- maður) Bjarna Ben. Kona er nátt- úrlega ekkert upp á sitt eindæmi. Dagur Gunnarsson ljósmynd- ari gafst ekki upp þótt lakkrísrörið sem hann keypti í lúgusjoppu hafi verið örlítið í harðari kantinum og ritar á Face- book: Ég borðaði lakkrísrör sem rann út 2010. Það var grjóthart en ég hafði sigur að lokum. Guðrún Sess- elja Arnardóttir lögmaður er ekki að stressa sig fyrir jólin og ritar á Facebook í vik- unni: Fyrir þá sem eru orðnir eitt- hvað stressaðir fyrir jólin skal það upplýst að ég er ekki búin að kaupa neina jólagjöf og ligg í flensu … og er alveg róleg. Þau koma hvort eð er alltaf. Karl Sigurðsson Baggalútur tjáir tilfinningar sínar á Facebook: Jólatréð komið upp. Blendnar til- finningar. Það minnir á partígest- inn sem mætir alltaf jafn snyrti- legur á staðinn en verður síðan þaulsætinn og drepst þegar líður á. Það lúkkar vel núna og lofar góðu en ég veit að á fjórtándanum á ég eftir að þurfa að drösla því hálf- dauðu út. AF NETINU

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.