Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Side 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Side 12
Ég sprakk. Jólagleðin dvínaði svolít- ið, hátíðarljóminn fölnaði. Á sjálfu að- fangadagskvöldinu var ég jafnvel að hugsa um það að svona messuspjöll yrðu ekki liðin, allra síst í frægasta sönghéraði landsins sem fóstrað hafði tónskáld og stórsöngvara með öllum kynslóðum. Þar sem margradda söngurinn liggur í loftinu,“ segir Hjálmar. „Sjálfsagt brostu einhverjir að þessu atviki en vonandi spillti það ekki jólagleði nokkurs manns. En mér var þetta kennsla í auðmýkt.“ „En það var einn tónn sem ég réð ekki við, þegar prestur tónar „Önd mín lofar Drottin og minn andi gleður sig...“ Á sjálfum andanum er hæsti tónninn, E minnir mig, og Jón sagði: „Þú getur þetta vel, bara dregur djúpt andann og sprengir þetta fram.“ Svo voru jólin hringd inn og messan byrjaði. Fram eftir mess- unni var ég öðrum þræði með hugann við þennan háa tón. Þegar svo að honum kom dugðu góð ráð organist- ans ekki. Ég sprengdi engan tón fram. Fyrsta jólamessan mín á Sauðár-króki var 1980. Mér þótti að von- um mikið liggja við að messan yrði falleg og snerti þá strengi sem vera bæri við upphaf jólanna. Jólaboð- skapurinn myndi ná sínum helga hljómi í hverri sál,“ segir Hjálmar Jónsson prestur. „Á Þorláksmessu fórum við Jón Björnsson organisti yfir messuna í kirkjunni. Kirkjukórinn var þá full- æfður og allt klárt og kvitt hjá honum og hinum dug- og hugmikla organ- ista. Auðvitað kom ekki til mála að lækka hátíðatón séra Bjarna. „Við syngjum þetta allt og sláum ekki af neinu,“ sagði Jón,“ segir Hjálmar. HJÁLMAR JÓNSSON PRESTUR Sprakk á hæsta tóninum Séra Hjálmar náði ekki háum tóni í fyrstu jólamessu sinni árið 1980. Morgunblaðið/Kristinn „Þegar ég var í námi í Bretlandi komu foreldrar mínir og bræður út og við ákváðum að halda upp á jólin þar“ segir Salka Sól Eyfeld, söngkona, þáttastjórnandi og leikkona. „Pabbi var alveg staðráðinn í því að reyna að finna einhvers konar malt og appels- ínblöndu þarna úti og það gekk ekkert sérstaklega, en það endaði með því að hann keypti Fanta og Guinness,“ segir Salka og hlær. Það var ekki nálægt því eins gott og malt og appelsín, þannig að þau jól var engin blanda. Svo vor- um við að reyna að finna eitthvað eins og við vorum vön heima, en það gekk illa og þetta voru mikil diet-jól.“ SALKA SÓL EYFELD Breskt malt og appelsín Salka reyndi að halda í hefðirnar þegar hún bjó í Bretlandi. Morgunblaðið/Ásdís É g er rosalegt jólabarn og vil hafa allt eins á jólun-um,“ segir Haukur Holm, fréttamaður hjá RÚV. „Ég var alltaf hjá mömmu hér áður fyrr á aðfangadag og allt þurfti að vera í föstum skorðum. Það þurfti alltaf allt að vera eins. Yfirleitt kom ég frekar seint til mömmu og hún var oft komin með áhyggjur af að maturinn væri að skemmast og rjúpurnar að verða of þurrar. Einu sinni hafði mamma keypt nýtt matarstell. Og þegar ég kom inn á síðustu stundu og sá borðið þá rak mig í rogastans. Mér leist ekkert á það sem ég sá. Það voru komnir þarna einhverjir hvítir diskar sem ég kannaðist ekkert við í staðinn fyrir þá grænu með túlípönum og gyllingu. Ég spurði hvað þetta væri eiginlega og þá sagðist hún hafa keypt sér nýtt stell og að þetta væri miklu praktískara. Ég sagði bara: Þetta gengur ekki, þetta er ekki jóla- stell!“ segir Haukur. „Við verðum að skipta, sagði ég, og nýja stellið var rif- ið af borðinu og það gamla sett á. Þá var ég ánægður. Svo þegar ég byrjaði að borða þá áttaði ég mig á því að hitt væri auðvitað miklu hentugra matarstell því í hinu gamla eru matardiskarnir svo litlir. Maður kemur ekki öllu fyrir á diskinum. En maður fær sér bara oftar. Það er bara stemningin sem fylgir þessu gamla stelli,“ segir Haukur. „Svo þegar mamma fór að koma til mín frekar þá gaf hún mér stellið og við borðum bara af því einu sinni á ári, á aðfangadag. Þetta er stórt og mikið stell, frá konunglegu dönsku postulínsverksmiðjunni og var keypt í Kaupmannahöfn þegar mamma gifti sig í fyrra skiptið, fyrir um það bil áttatíu árum. Hún mátti velja sér eitt- hvað í brúðargjöf og valdi þetta stell. Það er löngu hætt að framleiða þetta enda er farið með þetta eins og gull, þetta eina kvöld sem það er notað. Allt handþvegið upp, ekkert sett í uppþvottavél, og svo er því pakkað varlega niður og sést ekki næst fyrr en ári seinna.“ HAUKUR HOLM FRÉTTAMAÐUR Bara stellið með túlípönum og gyllingu Haukur er ákaflega íhaldssamur og vill ekki borða af neinu öðru matarstelli en því sem móðir hans notaði alla tíð. Morgunblaðið/Ásdís Eftirminnilegustu jólin mín eru þegar ég varað vinna á BUGL (Barna- og unglingageð- deild Landspítalans) tvenn jól í röð, það var svolítið gaman og mjög sérstakt,“ segir Halldór Gylfason leikari. „Það var barn þar sem komst ekki heim til sín yfir hátíðirnar og við vorum hjá honum, ég og annar maður sem vann þarna. Við gáfum hvor öðrum jólagjafir og borðuðum Landspít- alamat. Vaktinni lauk klukkan ellefu og þá fór ég heim og opnaði pakkana mína þar. Það var svolítið skrítið að eyða jól- unum á stofnun með barni. Það var sama barn þarna jólin á eftir og við vorum aftur þarna þrír. Þetta var í senn sorglegt, skrítið og fallegt,“ segir hann. „Svo man ég eftir einu skondnu. Ég fór fyrir ein jól á rjúpu með bróð- ur mínum sem býr út á landi og ég tók með í bæinn fimm til sjö rjúpur sem áttu að nægja ofan í fjölskylduna. Það var svo mikið frost þegar ég kom heim að ég skildi þær eftir í skottinu. Síðan steingleymdi ég þeim og það kom þíða í millitíðinni. Þær voru ónýtar þeg- ar ég tók þær úr skottinu á hádegi á að- fangadag. Bíllinn lyktaði mjög illa og ég þurfti að hlaupa út í búð og kaupa hamborgar- hrygg.“ HALLDÓR GYLFASON LEIKARI Landspítalamatur og ónýtar rjúpur Halldór gleymdi jólamatnum í skottinu. Morgunblaðið/Frikki Ég kann eina sögu. Hún er ekkiskondin heldur svolítið trag- ísk,“ segir Vala Matthíasdóttir, arkitekt og fjölmiðlakona. „Stuttu eftir að pabbi minn dó héldum við jólin hjá mömmu, allir krakkarnir en við erum sex systk- inin. Mamma er mjög mikil lista- kona og ofboðslega dugleg og gerði alltaf margar fallegar jólaskreyt- ingar. Ein skreytingin var ofan á sjónvarpinu og var með kerti og alls konar fallegu og ýmsum eld- fimu efnum. Svo þegar við höfðum haldið hátíðina fóru allir að sofa en við vorum í húsinu hennar mömmu sem var á tveimur hæðum og sváf- um við á efri hæð,“ segir Vala. „Svo vakna ég um nóttina við það að það er kallað: „Vala, Vala.“ Ég vaknaði ekki af draumi held- ur af því að ég heyrði nafnið mitt. Það var kolniðamyrkur og fór ég strax út í glugga að athuga hvort einhver væri úti í garði. Þar var enginn. Þannig að ég geng niður á jarðhæðina og inn í stofu til að kíkja út um stofugluggann. Og þeg- ar ég kem inn í stofuna sé ég að jólaskreytingin ofan á sjónvarpinu er alveg við það að fuðra upp. Það var að byrja að loga. Ég slökkti í þessu og fór aftur upp að sofa. Við vorum þarna sjö í húsinu og húsið úr timbri. Þarna var pabbi að vara mig við. Ekki spurning. Ég hef aldrei lent í þessu, hvorki fyrr né síðar. Pabbi vakti mig með því að kalla nafnið mitt. Þetta er magnaðasta og fal- legasta jólasaga sem ég hef upp- lifað. Af því að ég veit að hann kall- aði á mig.“ VALGERÐUR MATTHÍASDÓTTIR ARKITEKT Björgun að handan Vala segir látinn föður hafa bjargað fjölskyldunni með því að vekja sig. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson JÓLASÖGUR 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.12. 2017

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.