Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Síða 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Síða 26
VIÐTAL 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.12. 2017 lífsveginum. Unglingarnir eru oft eins og leir sem kennari getur að einhverju leyti reynt að móta og það eru nokkur atriði sem ég hef alla tíð lagt mikla áherslu á í mínu starfi. Fyrst er að nefna heiðarleika, einlægan og góðan vilja og tillitssemi við náungann. Þá eru það góð og nákvæm vinnubrögð, úthald og jákvæður agi. Allt þarf þetta að vera fyrir hendi eigi að slípa eitthvað með þeim hætti að það verði á end- anum fagurt og gott. Það er þrotlaus vinna að gera eitthvað vel. Sá sem getur ekki lagað sig að þessu nær ekki hreinum hljóm eða tóninum fagra. Það á ekki bara við um kórstarfið, held- ur öll mannleg samskipti.“ Þorgerður lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1963. Hún hóf nám í guðfræði við Háskóla Íslands ásamt því að stunda áfram nám við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hún lauk tónmenntakennaraprófi frá Tónlistarskólanum 1965 og nam í kjölfarið tónvísindi og kórstjórn á meistarastigi við Rík- isháskólann í Illinois í Bandaríkjunum frá 1965-1967. Þorgerður hefur síðan stundað nám á ýmsum stöðum m.a. í Vínarborg, Jerúsalem og Englandi. Svo lengi lærir sem lifir. Kom ekki upp orði í símann Fyrra námsár Þorgerðar í Bandaríkjunum heyrði hún íslensku aðeins tvisvar. „Við skrif- uðumst á einu sinni í viku, ég og mamma, og hún sagði mér í einu bréfinu að hún hefði pant- að símtal um jólin. Það var ekki hlaupið að því að hringjast á milli landa á þessum tíma. Ég hlakkaði að vonum mikið til símtalsins en þeg- ar á reyndi gat ég ekki stunið upp orði, ég var svo hrærð þegar ég heyrði í mömmu og tungu- málið mitt á aðfangadag.“ Hitt skiptið sem hún heyrði íslensku þetta ár var þegar prófessor frá Háskóla Íslands kom í fyrirlestraferð til skólans. Talið berst aftur að kórnum og að byrjun- inni. Hvernig kom það til að Þorgerður Ing- ólfsdóttir, þá rétt rúmlega tvítug, tók að sér að stjórna kór við skóla sem ekki hafði starfað nema í einn vetur. „Guðmundur Arnlaugsson, fyrsti rektor MH, sem varð einn af mínum nánustu vinum og mentorum í lífinu, ákvað að kór yrði stofn- aður við MH eftir að hafa fengið hvatningu frá öðrum velgjörðarmanni mínum, dr. Róbert A. Ottóssyni. Þeir leituðu til mín og ég féllst á að prófa þetta.“ Hún gerir hlé á máli sínu eins og til að færa sig öll þessi ár aftur í tímann. „Eigi ég að vera alveg hreinskilin var þetta þungur róður til að byrja með. Ég var ekki nema 23 ára, nýkomin heim úr námi í Bandaríkjunum og hálfgerð smástelpa í augum krakkanna í kórnum sem voru ekki mörgum árum yngri en ég. Það mættu rúmlega þrjátíu manns á fyrstu æf- inguna, þar af aðeins einn tenór.“ Viljinn hefur dugað En henni tókst að koma starfinu í gang með góðum, sameiginlegum vilja, bæði sínum og kórfélaganna. Sá vilji hefur dugað fram á þennan dag. „Ég átti líka góða að, ekki síst mömmu mína sem var vakin og sofin yfir starf- inu. Ég bjó líka að því að hafa starfað með pabba sem var einn af brautryðjendunum í kórstarfi á Íslandi. Dr. Róbert var „músík- pabbinn minn“; ég bar öll mín verkefni í kór- starfinu undir hann meðan hann lifði og ekkert var gert án hans samþykkis. Þá er það Jón Nordal tónskáld, sem hefur alla tíð borið hag minn og kórsins fyrir brjósti. Sem unglingur var ég nemandi hans og síðar kenndi ég í ára- tugi við Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hann var skólastjóri. Þannig var ég leidd áfram í starfi.“ Síðar fól Jón Þorgerði listaverkin sín, kór- verkin. „Þá áttaði ég mig á því hvað það skiptir miklu máli að vera treyst í lífinu – ekki síst þegar maður er svona ungur. Þetta traust færði ég yfir á kórfólkið mitt og hefur það alla tíð verið lykilatriði í starfi mínu, að treysta ungu fólki. Við vöxum af því að vera treyst fyr- ir verkefnum sem við trúum jafnvel ekki sjálf að við ráðum við.“ Tíðarandinn var annar árið 1967. „Það var hippastimpill á hinum nýja menntaskóla og ég passaði kannski ekki alveg inn í það.“ Hún brosir. „En samt tókst þetta allt saman og hefur verið ótrúlega gaman. Fimmtíu ár eru langur tími, þótt hann sé stuttur á eilífðarmælikvarð- anum. Heimurinn var einfaldari á þessum tíma en hann er í dag, alla vega hjá unglingum.“ Jólin byrja á Kleppi Fyrsti söngurinn utan skólans fór fram á Kleppi jólin 1967 og þangað hefur Þorgerður mætt með kórinn allar götur síðan og var eng- in undantekning á því nú. „Jólin byrja alltaf á Kleppi,“ segir Þorgerður en einnig er hefð fyr- ir því að kórinn syngi á fleiri líknarstofnunum á þessum árstíma. Kórarnir tveir skipta því með sér í seinni tíð. Hefðirnar eru fleiri og nú um jólin verða fimmtíu ár frá því kór undir stjórn Þorgerðar söng fyrst við messu hjá Sigurbirni Einarssyni biskup. Seinni árin hefur þessi hefð flust yfir á messur sonar hans, Karls Sigurbjörnssonar biskups. Allt hefur þetta verið utan hefðbundins vinnutíma. „Þetta hefur allt verið „con amore“, eða „gefið af ást“, eins og ég segi, og þannig á það líka að vera. Um leið og „con amore“ hætt- ir að vera til fer ákveðinn ljómi af listinni. Sjálf ólst ég upp við þennan hugsunarhátt og í mín- um huga eru lífsgæðin ekki fólgin í því að eign- ast heimsins auð, heldur að eignast ríkt hjarta!“ Öll þessi fimmtíu ár hefur kórinn sungið við skólaslit í MH en stúdentar voru ekki braut- skráðir fyrr en 1970. „Kórnum óx jafnt og þétt ásmegin, tenórunum fjölgaði, og starfið varð alltaf meira og meira spennandi. Inn fór að koma fólk sem í dag hefur sungið fyrir allan heiminn, eins og Kristinn minn Sigmundsson. Þá var fyrstu tónsmíðinni sem ætluð var kórn- um laumað inn um lúguna á þessu húsi hér á Hofteigi. Þar var á ferðinni Þorkell Sigur- björnsson tónskáld. Við frumfluttum tónverkið vorið 1970 þegar fyrstu stúdentar MH braut- skráðust frá skólanum.“ Alsæl með tónverkin Þorkell var Þorgerði afar kær og náinn vinur. „Hann var kennari minn í Tónlistarskólanum í Reykjavík og ég fór í námið til Bandaríkjanna fyrir hans orð. Það hefur ekkert tónskáld sam- ið fleiri tónverk fyrir mig og kórana en hann. Þau telja tugi.“ Annar kennari Þorgerðar, Atli Heimir Sveinsson, byrjaði líka snemma að semja fyrir kórinn, eins Jón Ásgeirsson, Gunnar Reynir Sveinsson, Hafliði Hallgrímsson, Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson og síðan hafa flest máls- metandi tónskáld landsins komið í kjölfarið, þar á meðal gamlir nemendur Þorgerðar, eins og Snorri Sigfús Birgisson, Haukur Tómasson, Hugi Guðmundsson, Mist Þorkelsdóttir og Gunnar Andreas Kristinsson. Listinn er lang- ur og tónverkin yfir hundrað talsins. „Sumar konur fá skartgripi að gjöf, aðrar ilmvötn, ég fæ tónsmíðar.“ Hún skellihlær. Þegar þau Knut gengu í hjónaband komu til að mynda nokkur tónverk í brúðargjöf. Og brúðhjónin voru alsæl. Arvo Pärt og Raddir Evrópu Það eru ekki bara innlend tónskáld sem hafa skrifað fyrir Þorgerði heldur líka erlend; má þar nefna hið mikilsmetna eistneska tónskáld Arvo Pärt. Það má segja að þátttaka Hamra- hlíðarkóranna í tónleikum Kammersveitar Reykjavíkur í janúar 1998 sé forsagan. Kamm- ersveit Reykjavíkur, undir forystu Rutar, systur Þorgerðar, efndi til tónleika með úrvali verka eftir Pärt. Rut fékk Þorgerði og hennar fólk til liðs við sig í því rómaða verki Te Deum og þar sem kórinn var að æfa verkið í Lang- holtskirkju á köldu og dimmu janúarkvöldi sá Þorgerður skyndilega skugga bregða fyrir úti í myrkrinu. Þá hafði hún aldrei hitt manninn en bar kennsl á hann af ljósmyndum – Arvo Pärt. Hann var þá staddur á landinu, hafði þekkst boð um að koma vegna tónleikanna, sem sætti tíðindum þar sem Pärt er maður hlédrægur. Tónskáldið nálgaðist kórinn og stundi upp, eins og í leiðslu, þegar flutningi var lokið: „Mikið var þetta fallegt!“ Upp frá þessu segir Þorgerður hann hafa tekið ástfóstri við tón kórsins. „Hann hefur oft haft um okkur fal- leg orð,“ segir Þorgerður. „Við vorum lengi að jafna okkur eftir þessa óvæntu heimsókn. Þorgerður og Kristinn Sigmundsson á tuttugu ára afmælistónleikum Kórs Menntaskólans við Hamrahlíð árið 1987. Morgunblaðið/BJE Þorgerður hlaut ridd- arakross hinnar ís- lensku Fálkaorðu árið 1985. Hér er hún ásamt Vigdísi Finn- bogadóttir forseta og Kristjáni Albertssyni. Þorgerður stjórnar útiæfingu hjá Kór Mennta- skólans við Hamrahlíð í blíðunni vorið 2000. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Þorgerður ásamt systrum sínum, Ingu Rós, Unni Maríu, Vilborgu og Rut, á sjöunda áratugnum. Þorgerður, Arvo Pärt og Andreas Peer Kahler eftir flutning á Te Deum í Langholtskikrju 1998. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.