Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Page 32
MATUR Til að nýta matinn yfir hátíðirnar er gott ráð að eiga tartalettur. Gott erað fylla þær með ýmsu góðgæti; kjöti og grænmeti blönduðu í sósu. Það
er sett í tartalettur og inn í ofn. Jólamaturinn í nýjum búningi!
Afgangana í tartalettur
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.12. 2017
Ljósmynd/Björn Árnason
Ég er mjög hrifin af svonaléttum kökubotnum í de-sert eftir þunga hátíðar-
máltíð. Kampavínið gerir líka
rosalega mikið fyrir kremið en
að sjálfsögðu er hægt að nota
freyðivín eða cider í staðinn.
Með fyllinguna þá má að sjálf-
sögðu sleppa því að lita kremið
en mér finnst dálítið skemmti-
legt að fá svona bleika miðju í
hvítri og gylltri köku. Svo
skreytti ég hana með jarðar-
berjum sem ég hjúpaði með
hvítu súkkulaði og dýfði ofan í
gulllitað kökuskraut. Þessi slær
alltaf í gegn hjá mínum gestum,“
segir matreiðslumeistarinn
Hrefna Rósa Sætran.
SVAMPBOTNAR
4 stk egg
120 g sykur
120 g hveiti
1 tsk lyftiduft
3 msk kökuskraut (ég notaði
gullitað)
Þeytið saman eggin og sykurinn
þar til létt og ljóst. Sigtið svo
hveitið saman við og lyftiduftið
og blandið saman. Skiptið deig-
inu í tvennt og bætið kökuskraut-
inu út í annað deigið. Smyrjið tvö
kökuform og klæðið botninn
með smjörpappír. Bakið botnana
við 180°C í 20 mínútur.
SMJÖRKREM
250 g smjör við stofuhita (ósaltað)
500 g flórsykur
6-8 msk kampavín eða freyðivín
(má líka nota eplacider ef þú vilt
sleppa áfengi)
½ tsk vanillufræ (eða fræ innan úr
½ vanillustöng)
Skerið smjörið í bita og þeytið
það á fullri ferð í hrærivél. Bætið
flórsykrinum saman við í
skömmtum. Þynnið svo kremið
með kampavíninu. Ef kremið er
of þykkt þá bætirðu við meira
kampavíni. Setjið svo vanillu-
kornin út í í lokin.
JARÐARBERJAFYLLING
1/3 af smjörkreminu
8-10 stk jarðarber
1 tsk bleikur matarlitur
Skerið jarðarberin niður í litla
bita. Blandið þeim við smjör-
kremið og litið með bleika litn-
um. Má alveg sleppa að lita
kremið en það er skemmtilegt
að hafa bleika miðju.
KAKAN SETT SAMAN
Setjið annan botninn á kökudisk.
Smyrjið jarðarberjafyllingunni á
botninn og dreifið henni vel yfir.
Leggið hinn botninn ofan á og
þrýstið vel ofan á. Setjið smjör-
kremið í sprautupoka og spraut-
ið vel ofan á og allan hringinn.
Sléttið svo úr kreminu með
pönnukökuspaða. Trikkið er að
setja fullt af kremi og svo eyða
bara miklum tíma í að slétta úr
því. Skreytið svo með súkklaði-
húðuðum jarðarberjum og gull-
lituðu kökuskrauti eða því sem
höfðar til þín.
Jarðarberja- og
kampavínskaka
Hrefna Rósa Sætran
er hrifin af léttri
svampbotnaköku eftir
þunga jólamáltíð.
Fyrir 6-8
KARAMELLUBOTN
150 g sykur
50 g möndlur
100 g haframjöl
50 g möndlumjöl
FYLLING
250 g Philadelphia rjómaostur
250 ml 18 % sýrður rjómi
250 ml rjómi
3 msk flórsykur
1 vanillustöng
2 msk ljóst síróp
TOPPUR
kirsuberjasósa
hvítt súkkulaði
Setjið sykur á pönnu og
bræðið þar til hann er orðinn
gylltur á lit.
Saxið möndlur gróflega á
meðan. Þegar sykurinn er
tilbúinn, takið þá af pönnunni
og bætið söxuðum möndlum,
haframjöli og möndlumjöli út
í.
Blandið vel saman á pönn-
unni. Hellið á bökunarpappír
og dreifið vel úr blöndunni.
Kælið. Brjótið niður og setjið
í eftirréttaglösin.
Gerið því næst fyllinguna.
Hrærið rjómaost og sýrðan
rjóma saman. Best er að
nota sýrðan rjóma með háa
fituprósentu og ég mæli með
18% sýrðum rjóma frá
Mjólku.
Bætið fræjum úr vanillu-
stöng saman við ásamt flór-
sykri og sírópi og hrærið sam-
an.
Hrærið rjóma í annarri
skál. Blandið síðan varlega
saman við með sleif. Deilið
fyllingunni á glösin yfir kara-
mellubotninn.
Hellið að lokum kirsuberja-
sósu yfir fyllinguna og skreyt-
ið með rifnu hvítu súkkulaði.
Geymið í kæli þar til eft-
irrétturinn er borinn fram.
Frá grgs.is.
Vanillubúðingur með karamellubotni og hvítu súkkulaði
Jólalegir eftirréttir
Eftir hangikjötið, rjúpuna, hnetusteikina, kalkúninn eða nautið þarf eitthvað sætt í munninn.
Kaka, ís, búðingur eða frómas gæti verið málið!
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is