Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.12. 2017
LESBÓK Jólin eru að renna upp og þá ættu lesendur að gleyma sér við lesturáhugaverðra bóka og hlýða með á metnaðarfulla og fagra tónlist;
framboðið af hvoru tveggja er svo sannarlega gott um þessar mundir.
Góð tónlist og bækur
Ég tók upp fiðluna sem krakki í suzuki-námi og svo svona um fermingaraldurfærðist full alvara í þetta, ég fór að
spila á píanó og var fljótlega búinn að taka
ákvörðun um að verða tónlistarstjóri,“ segir
Bjarni Frímann Bjarnasson, nýskipaður tón-
listarstjóri Íslensku óperunnar. „Ég hef alltaf
haft þetta bak við eyrað, ég ætla ekki að
segja að ég hafi ekki skoðað aðra möguleika
en þetta hafði blundað mjög lengi í mér,“ seg-
ir hann um nýju stöðuna.
Bjarni Frímann tekur við starfinu frá og
með 1. janúar 2018 og mun stjórna upp-
færslum Íslensku óperunnar á næstu starfs-
árum, auk þess að annast ýmsa aðra þætti
fyrir Íslensku óperuna sem varða tónlistar-
starfsemina.
Óperustjóri Íslensku óperunnar var afar
ánægð með ráðningu Bjarna Frímanns. „Það
er mikill fengur að því að fá Bjarna Frímann
til liðs við Íslensku óperuna, við leggjum sér-
stakan metnað í að styðja við ungt listafólk
eins og frekast er kostur og gefa þeim verðug
tækifæri,“ segir Steinunn Birna Ragnars-
dóttir óperustjóri í tilkynningu frá óperunni.
Bjarni Frímann var tónlistarstjóri nýlegrar
uppsetningar Íslensku óperunnar á verkinu
Toscu og hlaut mikið lof gagnrýnenda fyrir
störf sín þar, meðal annars í Morgunblaðinu.
„Bjarni Frímann Bjarnason var stjarna
kvöldsins! Tónlistarkreðsan íslenska hafði
beðið lengi eftir frumraun þessa ótrúlega
hæfileikaríka tónlistarmanns á óperusviðinu.
Og hann stökk ekki yfir garðinn þar sem
hann er lægstur; Tosca Puccinis er stráð
hindrunum, erfiðum og flóknum skiptingum
þar sem engu má skeika svo samhæfing leiks
og tónlistar gangi eðlilega upp. Hljómsveitin
fylgdi ástríðufullum stjórnanda sínum út í eitt
og flutti tónlist sem maður skynjaði loks að á
sér fáa hliðstæðu,“ segir í gagnrýni Ingvars
Bates fyrir Morgunblaðið.
„Jújú, þetta var dálítil vinna,“ segir Bjarni
spurður um Toscuverkefnið. „Við byrjuðum
æfingar um mánaðamótin ágúst/september.
Ég var búinn að læra stykkið áður og við vor-
um búin að setjast á rökstóla um hvaða
söngvara við ætluðum að hafa í þessu og ég
var búinn að hitta þau og fara yfir rullurnar
með þeim,“ segir Bjarni en hann ferðaðist
sem víðast yfir sumarið til að sjá stykkið og
læra fyrir haustið.
Bjarni Frímann á langan feril í tónlist
þrátt fyrir ungan aldur. Hann lauk prófi í
lágfiðluleik frá Listaháskóla Íslands og sigr-
aði í einleikarakeppni Listaháskóla Íslands og
Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 2009 og lék
einleik í lágfiðlukonsert Bartóks með hljóm-
sveitinni. Eftir útskrift úr Listaháskóla Ís-
lands stundaði hann nám í hljómsveitarstjórn
undir handleiðslu Freds Buttkewitz við
Hanns Eisler-tónlistarháskólann í Berlín og
hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands,
Kammersveit Reykjavíkur, CAPUT og Sin-
fóníuhljómsveit unga fólksins. Hann stjórnaði
flutningi á óperunni UR eftir Önnu Þorvalds-
dóttur við óperuna í Osló, í Chur og Basel og
einnig á Listahátíð í Reykjavík, og hefur
einnig samið tónlist fyrir leikhús og kvik-
myndir bæði hérlendis og erlendis. Hann hef-
ur komið víða fram með söngvurum sem pí-
anóleikari og kammertónlistarmaður, m.a.
með Berlínarfílharmóníunni í Konzerthaus í
Vín. Árið 2012 vann hann fyrstu verðlaun í
Hanns Eisler-keppninni í Berlín fyrir frum-
flutning á píanótilbrigðum eftir Viktor Orra
Árnason.
Bjarni Frímann var útnefndur bjartasta
vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2016.
Árið 2016-2017 stjórnaði hann hljómsveitar-
tónleikum með Björk Guðmundsdóttur í
Mexíkóborg, Fílharmóníunni í LA og í Hörpu
en Bjarni vinnur reglulega með Björk sem
hljómsveitarstjóri.
Orðspor óperunnar batnar
Íslenska óperan mun í vor setja á svið
verkið Brothers eftir Daníel Bjarnason og er
undirbúningur þegar hafinn. Bjarni segist
vera byrjaður að læra stykkið og pæla mikið í
því en tónskáldið sjálft mun stjórna verkinu í
vor og verður Bjarni honum til aðstoðar að
þessu sinni.
Spurður um stöðu óperunnar í dag segir
Bjarni ekki hægt að neita því að síðustu sýn-
ingar hafi gengið vel. „Það þýðir ekkert að
neita því að síðustu sýningar í Eldborg hafa
gengið alveg óskaplega vel og fengið einróma
lof gagnrýnenda bæði í ár og í fyrra. Það
hlýtur nú að segja sína sögu.“ Hann bætir við
að framtíð óperunnar sé björt vegna þess
hversu mikið af hæfileikaríkum ungum
söngvurum við Íslendingar eigum. „Það er
svo mikið af ungu fólki að læra óperusöng í
útlöndum og mikið af ungu fólki að koma
heim. Svo er alltaf spurning hvernig hlutföllin
eru miðað við áhuga fólks á óperunni en ég
hef á tilfinningunni að það hljóti nú að fara að
þokast í þá átt að áhorfendahópur óperunnar
breikki.“
Uppsetning á óperum getur verið kostn-
aðarsöm og tímafrek en Bjarni segist ekki
finna fyrir of mikilli pressu vegna þess.
„Þetta er auðvitað mikil ábyrgð en maður
verður bara að treysta því að maður sé ráð-
inn þarna af einhverri ástæðu. Maður verður
að treysta því og treysta fólkinu sem ræður
mann, að það hafi rétt fyrir sér,“ segir Bjarni
og hlær við. „Svo bara gerir maður sitt besta,
maður mætir í vinnuna og reynir að hafa allt
sitt á hreinu og gera eins vel og maður getur
og þá held ég að það komi eitthvað gott út úr
því.“ Starf tónlistarstjóra á einnig að vera
stefnumarkandi fyrir óperuna og segir Bjarni
sínar skyldur víðtækar en tengjast tónlistinni
hverju sinni. „Mínar skyldur verða að stjórna
uppfærslum þarna og hafa umsjón með
hljómsveitinni og vera óperustjóra innan
handar við val á söngvurum. Það er mikið um
tónlist í óperum þannig að það er ágætt að
einhver hafi umsjón með því.“
Bjarni Frímann Bjarnason
þakkar hljómsveitinni með-
an hann hlýtur lófaklapp
áhorfenda fyrir tónlistar-
stjórnun sína í Toscu
Ljósmynd/Gunnar Freyr Steinsson
Stefnt á starfið síðan í æsku
Bjarni Frímann Bjarnasson hefur verið skipaður tónlistarstjóri Íslensku óperunnar. Hann var tónlistarstjóri í
óperunni Toscu núna í haust og hlaut einróma lof gagnrýnenda fyrir.
Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is
’Það er svo mikið af ungu fólkiað læra óperusöng í útlöndumog mikið af ungu fólki að komaheim. Svo er alltaf spurning
hvernig hlutföllin eru miðað við
áhuga fólks á óperunni en ég hef á
tilfinningunni að það hljóti nú að
fara að þokast í þá átt að áhorf-
endahópur óperunnar breikki.