Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Page 47

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Page 47
24.12. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47 Bubbi er að keyra þegar blaða-maður slær á þráðinn til hansfjórum dögum fyrir jól. Hann er að fara á lyftingaæfingu, nema hvað. Tilefni símtalsins er jólalegt, ár- vissir Þorláksmessutónleikar Bubba og tónleikar hans á aðfangadag fyrir fanga á Litla-Hrauni. Þorláksmessutónleika hefur Bubbi haldið allt frá árinu 1985 og fyrstu að- fangadagstónleikana á Litla-Hrauni hélt hann þremur árum fyrr. Blaða- maður spyr Bubba hvers vegna hann hafi ákveðið á sínum tíma að halda sína fyrstu Þorláksmessutónleika en þeir fóru fram á Hótel Borg. „Yfir- þjónninn á Hótel Borg var svo sæt- ur,“ svarar Bubbi glettinn og á þar við fyrrverandi eiginkonu sína. – Og upp frá því hafa þessir tón- leikar verið ómissandi hluti af þínum jólaundirbúningi, ekki satt? „Jú, það má alveg segja að Þor- láksmessutónleikarnir séu partur af þessu en ég veit ekki hvað olli því að þetta var allt í einu orðin hefð, ekki frekar en ferð mín á Litla-Hraun á aðfangadag,“ svarar Bubbi. – Tilgangurinn væntanlega að láta gott af sér leiða í anda jólanna? „Já, alla vega þegar ég heimsæki Litla-Hraun og ég held að það megi heimfæra upp á nánast allar listir, listin lætur gott af sér leiða.“ Vinsæl lög meira áberandi Uppselt er á Þorláksmessutónleika Bubba í Eldborg og eflaust komast færri en vildu. Bubbi er spurður að hvaða leyti þessir tónleikar séu frá- brugðnir öðrum sem hann haldi yfir árið. „Ég spila meira af lögum sem hafa orðið vinsælli en önnur, það má kannski súmma það upp þannig. Það er ákveðin stemning sem myndast á tónleikunum en samt eru þetta mjög hefðbundnir tónleikar. Ég spila nýtt efni og kem til með að segja ein- hverjar sögur af tilurð laga og mjög líklega mun ég lesa eitt eða tvö ljóð,“ svarar Bubbi. Hann er spurður hvort búast megi við hugvekjum milli laga og segir hann að vissulega verði nokkrar slíkar og þá hugvekjur sem tengist því að vera manneskja og rétt innréttaður. „Það er auðvitað margt sem vekur manni furðu, nýjasta nýtt er þessi uppákoma í sambandi við æðsta mann kirkjunnar á Íslandi. Svona hlutir fá mann til að hugsa á annan máta en ella, þetta er einhvers konar uppákoma sem manni hugnast ekki en svo er spurning hvort ég nenni að fjalla um svona lagað. Það er svo margt annað sem maður getur tekið fyrir. Svo er ég mikill spunakarl, allt getur gerst á tónleikum hjá mér.“ Á aðfangadag er það svo Litla- Hraun. „Þetta er áminning um það sem hefði mögulega getað orðið hlut- skipti mitt og áminning um að vera þakklátur fyrir fólkið sitt og lífið. Um leið er þetta ferð til að stytta föngum stundir á erfiðasta degi þeirra á árinu, einhvers konar tilfinningalegt bland í poka,“ segir Bubbi um aðfangadags- tónleikana. Með í för verða hljóm- sveitin Dimma og skáldin Kristín Ei- ríksdóttir og Dóri DNA sem munu lesa upp úr nýjustu bókum sínum. „Ég hef alltaf lagt mig í líma við að kynna ljóðskáld og rithöfunda fyrir föngum því ég hef þá trú að á meðan manneskja hlustar á tónlist eða les ljóð eða góða skáldsögu sé hún frjáls,“ segir Bubbi. – Nú ert þú sjálfur með ljóðabók í jólabókaflóðinu, Hreistur. Hvernig gengur að kynna bókina og fylgja henni eftir? „Hún hefur rokselst og ég er óend- anlega þakklátur fyrir það að fólk kaupi bókina mína. Ég er með hana til sölu á öllum tónleikum og það er gam- an að sjá hversu margt ungt fólk kaup- ir hana. Ég held að áratugur ljóðsins sé runninn upp og það megi að einhverju leyti þakka Twitter og Snapchat. Þetta er ljóðrænt form, knappt og stutt og krakkarnir þekkja það og skilja. Það er mín tilfinning,“ svarar Bubbi. Einhvers konar kraftaverk En hvernig er aðfangadagur hjá Bubba Morthens eftir að tónleika- haldi lýkur á Litla-Hrauni? „Ég kem heim um hálfþrjú eða þar um bil. Þá er konan mín búin að leggja drög að kvöldverðinum. Þessi hluti jólahalds- ins seinustu vikurnar fyrir jól lendir dálítið á hennar herðum,“ segir Bubbi. Framhaldið sé hefðbundið. „Öll börnin koma til mín og náinn vin- ur, við borðum klukkan sex og svo byrjar stemmarinn hjá börnunum,“ segir Bubbi kíminn. Og jólin snúast ekki bara um menn heldur einnig málleysingja. „Ég sýð jólahrísgrjón handa hænunum svo þær fái nú líka jólamat. Þetta er uppáhaldsmaturinn þeirra og þær verða alsælar þegar mjúk hrísgrjón koma í kofann. Kötturinn fær eitt- hvað líka, eitthvað jólalegt og gott,“ segir dýravinurinn Bubbi. Kæfa eða kjúklingur verði á jólamatseðli kattarins. „Síðan á einhvers konar kraftaverk sér stað: að vera í faðmi fjölskyldunnar þar sem hlutirnir ná hinu rétta samhengi. Mér finnst það vera eitt af undrum lífs míns, ég skil- greini það sem kraftaverk og það hef- ur ekkert með frelsarann að gera.“ „Listin lætur gott af sér leiða,“ segir Bubbi Morthens sem hér sést á útgáfu- tónleikum sínum í Bæjarbíói 17. ágúst síðastliðinn, vegna plötunnar Túngumál. Morgunblaðið/Eggert Hænurnar fá jólahrísgrjón Bubbi Morthens heldur Þorláksmessutónleika í Eldborg og heimsækir að venju fanga á Litla- Hrauni á aðfangadag. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Zona Industrial da Mota • Apart. 136 - 3834-909 ILHAVO - Portugal • Telef. 234 326 560 / 1 • Fax 234 326 559 Liporfir - vinnsla og verzlun með íslenskan saltfisk í 20 ár. Fiskur frá okkur er í hæsta gæðaflokki. Við óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári Saltaður og þurrkaður þorskur - Gadus Morhua morhuaProdutos Alimentares, S.A. ARMAZENISTAS IMP. - EXP. Hátíðarkveðja ð m öllum, til sjávar og sveita, g eðjur, með þökk fyrir samstarfið ár Hátíðarkveðja Við sendum landsmönnum öllum, til sjávar og sveita, hugheilar jóla- og nýárskveðjur, með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.