Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Page 53
24.12. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Elf (2003) er sígild
grínjólamynd með Will
Ferrell í aðalhlutverki
sem álfurinn Buddy
sem er í raun og veru
ekki álfur. Í henni leikur
Edward Asner jóla-
sveininn sjálfan.
John Goodman leik-
ur jólasvein sem hefur
misst jólaandann og
ætlar ekki að afhenda
börnum gjafir á jóla-
nótt í The Year
Without a Santa
Claus (2006). Eins og
í fleiri jólamyndum er
það ungur drengur
sem hjálpar honum til
þess að átta sig á ný á
raunverulegum tilgangi
jólanna.
TÓNLIST Mariah Carey upplýsti í nýlegu viðtali að hárið á
henni hefði frosið þegar hún tók upp myndbandið við jólalag
sitt, „All I Want for Christmas Is You“. Lagið kom út í nóv-
ember árið 1994 og hefur notið mikilla vinsælda síðan og
fær Carey góðan jólabónus árlega vegna þessa en hún fær
greiddar ríflega 50 milljónir króna árlega í stefgjöld af lag-
inu. Í viðtali við Hello! sagði hún að hárið á henni hefði fros-
ið við tökur á myndbandinu, sem var tekið upp á Super-8 mm
filmu til að ná fram þeirri tilfinningu að þetta væri heima-
myndband. Hún var ennfremur að frjósa við tökurnar enda ekki
mikið klædd og leggur áherslu á að snjórinn hafi ekki verið tilbú-
inn, heldur alveg ekta. Hún segist hafa haft efasemdir um að taka
upp jólaplötu svona snemma á ferlinum en sér alls ekki eftir því
nú að hafa gert það.
Hárið á Carey fraus
Jólaplata hennar
kom út árið 1994.
FÓLK Leikkonan Hiep Thi Le er látin. Hún
er þekkt fyrir hlutverk sitt í mynd Olivers
Stone, Heaven & Earth frá 1994 þar sem hún
lék aðalhlutverk á móti Tommy Lee Jones.
Dánarorsök hennar var magakrabbamein.
Le, sem fæddist í Víetnam, var aðeins 46 ára.
Hún lék hlutverk mannvinarins Le Ly Hay-
slip í mynd Stone en þær urðu góðar vinkon-
ur utan hvíta tjaldsins. Le fékk mikið lof fyrir
leik sinn og og var ákveðinn frumkvöðull
meðal leikara af asískum uppruna í banda-
rískum kvikmyndum. Fyrir utan að vera leik-
kona var hún þekktur kokkur og rak tvo veit-
ingastaði í Kaliforníu.
Hiep Thi Le látin
Hiep Thi Le í hlutverki Le Ly Hayslip.