Morgunblaðið - 15.01.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 2018
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,formaður Miðflokksins, lýsti
áformum um borgarlínu ágætlega í
viðtali á Bylgjunni í gær: „Þetta er í
rauninni bara galið.“
Þetta er hárréttlýsing á áform-
um um að þrengja
að eftir-
lætisferðamáta
borgarbúa og hægja
á umferð fyrir 100-
200 milljarða króna.
Auðvitað er það galið.
Sigmundur útskýrði afstöðu sínameðal annars þannig að þó að
það hefði sína kosti að þétta byggð,
þá þyrfti að líta á aðstæður á hverj-
um stað og eðli Reykjavíkur. Ekki
mætti einblína á stórborgir eins og
Lundúnir eða Kaupmannahöfn.
Sigmundur benti á að annaðhvortþyrfti að þétta byggð í kring-
um brottfararstöðvar borgarlínu
eða hafa sterka miðju eða kjarna
eins og í Lundúnum og Kaup-
mannahöfn.
Svo benti hann á að hvorugt afþessu væri til staðar hér, en
hér væru til menn sem tryðu því að
hægt væri að fjármagna borgarlínu
með innviðasköttum og dýrari íbúð-
um í nágrenni línunnar.
Um það segir Sigmundur: „Menneru ekki að fara að kaupa
íbúð hér af því að það sé stutt í
stoppistöð sem flytur þig niður á
Hlemm. Aðdráttarafl miðjunnar er
ekki til staðar og það er frekar ver-
ið að veikja miðborgina.“
Hvernig stendur á því að þessargölnu hugmyndir hafa náð
jafn langt og raun ber vitni?
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Galnar hugmyndir
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 14.1., kl. 18.00
Reykjavík -4 snjókoma
Bolungarvík -3 snjókoma
Akureyri -2 skýjað
Nuuk -16 skúrir
Þórshöfn 4 súld
Ósló -3 skýjað
Kaupmannahöfn -1 alskýjað
Stokkhólmur 0 skýjað
Helsinki -5 léttskýjað
Lúxemborg 2 heiðskírt
Brussel 4 heiðskírt
Dublin 8 skýjað
Glasgow 7 skýjað
London 5 skýjað
París 7 heiðskírt
Amsterdam 3 þoka
Hamborg 0 léttskýjað
Berlín -1 skýjað
Vín 0 alskýjað
Moskva -6 snjókoma
Algarve 15 léttskýjað
Madríd 5 skýjað
Barcelona 11 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 10 heiðskírt
Aþena 8 léttskýjað
Winnipeg -15 snjókoma
Montreal -23 skýjað
New York -7 heiðskírt
Chicago -11 heiðskírt
Orlando 11 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
15. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:55 16:20
ÍSAFJÖRÐUR 11:27 15:59
SIGLUFJÖRÐUR 11:11 15:40
DJÚPIVOGUR 10:31 15:43
flísar fyrir vandláta
PORCELANOSA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, vill að komið
verði á fót hverfislögreglustöð í
Breiðholti. Hann flutti tillögu um
það á fundi borgarráðs í síðustu viku
og lagði jafnframt til að borgin legði
lögreglunni til húsnæði fyrir þessa
starfsemi. Afgreiðslu tillögunnar var
frestað.
Fram kemur hjá Kjartani að lög-
reglan hafi lengi verið með stöð í
Breiðholti og hafi reynslan af því
verið góð. Stöð í hverfinu hafi hins
vegar verið lögð niður árið 2009
vegna sparnaðaraðgerða og ýmissa
skipulagsbreytinga. Í dag sinnir lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu Breið-
holtshverfinu frá Stöð 3 við Dalveg í
Kópavogi, en starfssvæði hennar er
það bæjarfélag og Breiðholt þar sem
nú búa 21.400 manns.
Fram kemur
hjá Kjartani að
mikil ánægja hafi
verið með starf-
semi hverfislög-
reglustöðv-
arinnar í Breið-
holti meðan hún
var starfrækt.
Þeir lögreglu-
þjónar sem þar
störfuðu hafi
myndað jákvæð tengsl við íbúa í
hverfinu og eignast vináttu margra
Breiðhyltinga, ekki síst af yngri
kynslóðinni. „Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni voru margfalt
fleiri afbrot í hverfinu upplýst eftir
stofnun stöðvarinnar á sínum tíma,
samanborið við það sem áður var,“
segir Kjartan. sbs@mbl.is
Vill fá lögreglustöð
aftur í Breiðholtið
Kjartan
Magnússon
Jákvæð tengsl við íbúana í hverfinu
Lögreglan á Suðurnesjum hafði í
nógu að snúast í liðinni viku vegna
ölvunar farþega í Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar. Í tilkynningu frá lög-
reglu kemur fram að erlend kona
gekk á einstefnuhlið og datt í sal
þar sem fólk sækir töskur sínar. Þá
var þrennt handtekið í Leifsstöð
sem missti af flugi eða fékk ekki að
fara um borð í flugvél sökum ölv-
unar.
Eins neyddist lögregla til að ferja
farþega sem millilenti í Keflavík
um flugstöðina í hjólastól. Mann-
inum var meinað að halda ferð sinni
áfram enda stóð hann ekki í fæt-
urna sökum ölvunar. Sama gegndi
um karlmann sem var á leið til Pól-
lands. Hann sofnaði ölvunarsvefni á
bekk og var svo handtekinn vegna
slæmrar hegðunar.
Þá var maður handtekinn eftir að
hann reiddist við innritun og lét öll-
um illum látum. Hann vildi ekki
greiða fyrir innritun tösku og
klæddi sig því í átta buxur og tíu
boli úr töskunni. Talið var að mað-
urinn gæti skapað hættu fyrir aðra
farþega.
Mikil ölvun meðal
farþega í Leifsstöð
Morgunblaðið/Ómar
Leifsstöð Annir hjá lögreglu.
Tveir ferjaðir ofurölvi í hjólastól