Morgunblaðið - 15.01.2018, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.01.2018, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 2018 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is GÓÐ HEYRN GLÆÐIR SAMSKIPTI! Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel vegna þess að þau þekkja tal betur en önnur tæki. Tæknin sem þekkir tal Nýju ReSound LiNX 3D eru framúrskarandi heyrnartæki ReSound LiNX3 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við búum á köldu svæði og erum því mjög háð raforku. Það væri óábyrgt annað en að sveitarfélagið skoðaði alla þá möguleika sem eru fyrir hendi. Vindorkan er spennandi kost- ur og það eru sífellt fleiri að skoða nýtingu hennar,“ segir Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ. Snæfellsbær hefur auglýst tillögu að nýju aðalskipulagi bæjarins 2015- 2031. Í tillögunni er meðal annars að finna fimmtíu blaðsíðna úttekt frá verkfræðistof- unni Eflu um for- athugun og stefnumótun vindorku í bæjar- félaginu. Augljóst er því að horft er til vindorku í framtíðarplönum bæjarfélagsins. „Raforkan er okkur svo dýr. Kostnaður við raforku er stórmál fyrir heimilin hér og við erum alltaf að hugsa um raforku og raforkuverð. Í þessum geira dugar ekki að horfa fimm ár fram í tímann, við verðum að horfa lengra,“ segir Kristinn sem ítrekar að engar ákvarðanir hafi ver- ið teknar um vindorkunýtingu. Ekki verði reistar vindmyllur í bænum al- veg á næstunni. Nóg af vindi í Snæfellsbæ Kristinn segir að margir kostir séu við nýtingu vindorku og talið hafi verið sjálfsagt að hafa möguleika á nýtingu hennar inni á aðalskipulagi fyrst vinna við það var fyrir höndum. „Við teljum að raforka verði mjög dýr gæði þegar fram líða stundir. Það vita það nú flestir að Snæfells- nes er ekki auðugt að möguleikum til að virkja vatnsafl. Vindur er hins vegar þekkt fyrirbæri á Snæfellsnesi og vindorka er mjög umhverfisvænn orkugjafi og við höfum reynt að vera í forystu í umhverfismálum,“ segir bæjarstjórinn. Í skýrslu verkfræðistofunnar Eflu um forathugun á virkjunarkostum kemur fram að alls hafi fjögur svæði verið skoðuð. Upphaflega voru þau tvö, annars vegar við Gufuskála og hins vegar norðaustan við Gufuskála í átt að Brimnesi og Hellissandi. „Helsti munurinn á þessum svæð- um er hugsanleg hljóðmengun og ásýnd annars vegar frá Hellissandi og hins vegar frá þjóðgarðinum. Austari reiturinn er utan þjóðgarðs en hinn er innan hans. Óskað var eft- ir að bæði svæði yrðu metin til jafns þrátt fyrir að annað þeirra lægi inn- an þjóðgarðsins. Þriðja svæðinu var bætt við á seinni stigum endurskoð- unar aðalskipulags og liggur það á milli Hellissands og Rifs,“ segir í skýrslunni en fjórða svæðið bættist við á lokametrum vinnu stofunnar. Það er á sunnanverðu Snæfellsnesi, í grennd við bæinn Elliða. Rísi við mörk þjóðgarðsins Kristinn bæjarstjóri segir að í Snæfellsbæ séu fáir staðir heppilegir fyrir vindmyllur vegna frákasts frá fjöllum. Vindhviður verði of sterkar. „Það var nú Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur sem vakti athygli okkar á því fyrir nokkru að við Gufu- skála kynni að vera mögulegt að setja upp vindmyllur. Þar hafa verið mælingar í áratugi og landsvæðið frá náttúrunnar hendi er afskaplega hentugt. Mér skilst að vindorka við Gufuskála fari nánast aldrei undir 8- 10 metra á sumrin og hámarksvind- ur nær aldrei yfir 24 metra. Þetta þykir ákjósanlegt,“ segir Kristinn. Athygli vekur að í þessum athug- unum er gert ráð fyrir því að vind- myllur verði reistar alveg við mörk þjóðgarðsins Snæfellsjökuls og jafn- vel innan hans. „Já, það finnst mörgum skrítið. Ég hef alveg þurft að sannfæra fólk. Margir telja að það verði að þeim sjónmengun. En víða erlendis er það talið til tekna að menn séu með vind- myllur inni í þjóðgörðum. Það þykir kostur að nýta náttúruna og þá kosti sem hún býður. Þetta fer einmitt vel saman við það að verja náttúruna, þetta kemur í veg fyrir að leggja þurfi stórar línur um allt Snæfells- nesið.“ Kristinn segir að enn hafi engin ákvörðun verið tekin um það hvenær eða hvort verði ráðist í að koma upp vindmyllum á Snæfellsnesi. Þaðan af síður hvort sveitarfélagið myndi sjálft ráðast í slíka framkvæmd eða leita eftir samstarfsaðilum. „Það hefur ekkert verið ákveðið. Framtíðin ræðst til dæmis af því hvernig þróun verður með raforku á Íslandi. Það eykur líkurnar ef verð rýkur upp úr öllu valdi. Annað sem spilar inn í er að orkunýtingin í vind- myllunum er að verða meiri og meiri. Tæknibúnaðinum fer fram. Þær fara að nálgast það að vera valkostur við dýrar vatnsaflsvirkjanir,“ segir Kristinn bæjarstjóri. „Vindorkan er spennandi kostur“  Horft til nýtingar vindorku í nýju að- alskipulagi Snæfellsbæjar  Vindmyll- ur rísi við Gufuskála, við þjóðgarðinn Morgunblaðið/Árni Sæberg Vindmyllur Í Þykkvabænum hafa menn prófað sig áfram með vindmyllur. Nú er þetta kannað á Snæfellsnesi. Kristinn Jónasson Búist er við því að starfshópur sem umhverfisráðherra skipaði skili tillögum til ráðherra í næsta mánuði. Starfshópurinn hefur meðal annars látið greina lagaumhverfi vindorkuvera og mun koma með tillögur um þau atriði sem þarf að laga. Fleiri sveitarfélög en Snæ- fellsbær horfa til nýtingar vind- orku. Þannig var greint frá því í Morgunblaðinu á fimmtudag að sveitarélagið Rangárþing ytra ynni að gerð aðalskipulags og stefnumótunar um byggingu vindmyllna í sveitarfélaginu. Þessi málefni voru rædd á stjórnarfundi Sambands ís- lenskra sveitarfélaga fyrir helgi. Þar var meðal annars far- ið yfir vinnu áðurnefnds starfs- hóps og skattlagningu vind- orkuvera. Starfshópur skilar af sér LAGAUMHVERFI SKOÐAÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.