Morgunblaðið - 15.01.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 2018
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Framtak-Blossi er umboðsaðili
fyrir VOLVO PENTA á Íslandi
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
Framtak-Blossi
kappkostar að bjóða
góða þjónustu og
sanngjarnt verð á
varahlutum.
Hafið samband við
Hafþór í síma 895-3144
eða hafthor@blossi.is
Vertu viðbúinn vetrinum
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Allt um sjávarútveg
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það eru nýir tímar. Aukin rafræn
skráning upplýsinga í nútímanum
gerir persónuupplýsingar fólks
miklu viðkvæmari en áður. Það er
full ástæða til að hnykkja á og
herða kröfur um
ábyrgð og skyld-
ur þeirra sem eru
að varðveita
þessi gögn. Þetta
er jákvæð þróun
fyrir almenning,“
segir Páll Matt-
híasson, forstjóri
Landspítalans.
Vinna hefur
staðið yfir frá því
í september á
Landspítalanum um það hvernig
mæta eigi nýrri Evrópureglugerð
um persónuvernd sem tekur gildi í
maí.
„Við hófum að skoða þetta mark-
visst í ágúst og settum í september
á fót stýrihóp til undirbúnings. Í
honum eru fulltrúar frá fram-
kvæmdastjóra lækninga, frá lög-
fræðideild, upplýsingatæknideild og
fjármálasviði. Þá eigum við í nánu
samstarfi við Persónuvernd og höf-
um líka fengið utanaðkomandi sér-
fræðiaðstoð. Stefnan er að vera
tilbúin að vinna samkvæmt þessari
nýju reglugerð þegar hún tekur
gildi í maí næstkomandi,“ segir
Páll.
Páll segir að ný Evrópureglugerð
um persónuvernd marki tímamót og
muni hafa áhrif víða.
„Það verða gerðar meiri kröfur
en áður. Hvað okkur á Landspít-
alanum varðar snýr þetta mest að
því að bæta eftirlit og utanumhald.
Við vinnum með mikið af viðkvæm-
um persónuupplýsingum, en jafnvel
varsla þeirra er flokkuð sem vinnsla
og við leggjum mikið upp úr öryggi
við geymslu gagna. Í nýju reglu-
gerðinni segir að vörsluaðilar gagna
haldi svokallaðan vinnslulista, að
þeir geti alltaf svarað því hvar er
verið að vinna með gögn einstak-
linga. Hægt sé að kalla eftir og fá
slíka yfirsýn öllum stundum.
Í öðru lagi snýr þetta að vísinda-
rannsóknum og vinnslu persónu-
upplýsinga í tengslum við þær. Það
er sett aukin ábyrgð á ábyrgðar-
aðila og vinnsluaðila.“
Má ekki gera ráð fyrir auknum
kostnaði og umstangi samfara
þessu?
„Jú, ég myndi gera ráð fyrir því.
Við höfum ekki enn fulla yfirsýn yf-
ir það hversu mikill kostnaður þetta
verður en hann verður allnokkur.“
Vel sótt málþing
Persónuvernd og Landspítali
héldu málþing fyrir fólk í heil-
brigðisgeiranum á föstudag þar sem
fjallað var um þessa nýju Evrópu-
reglugerð um persónuvernd. Meðal
þess sem rætt var á málþinginu var
hvernig heilbrigðisstofnanir eigi að
vinna eftir löggjöfinni.
Mikill áhugi var á þessu málþingi.
Vel á annað hundrað manns fylltu
salinn og um ellefu hundruð fylgd-
ust með streymi frá málþinginu á
netinu.
Bæta þarf eftirlit með
persónuupplýsingum
Auknar kröfur til Landspítala með nýrri Evrópureglugerð
Morgunblaðið/Eggert
Landspítali Bæta þarf utanumhald og eftirlit með persónuupplýsingum
með tilliti til nýrrar Evrópulöggjafar um persónuvernd.
Páll
Matthíasson
Ný löggjöf í maí
» Ný evrópsk persónuverndar-
löggjöf tekur gildi þann 25. maí
í Evrópu. Verður hún tekin upp
hér því vernd persónuupplýs-
inga er talin hluti af EES-
samningnum. Áður en hún
gengur í gildi þarf hún þó að
fara í gegnum Alþingi.
» Löggjöfin þykir marka tíma-
mót í sögu persónuverndar-
löggjafar í Evrópu. Þetta eru
umfangsmestu breytingar sem
gerðar hafa verið á löggjöfinni í
tvo áratugi.
Á vettvangi sveitarfélaganna er unn-
ið af fullum krafti að undirbúningi
fyrir gildistöku evrópsku persónu-
verndarreglnanna 25. maí skv. upp-
lýsingum Guðjóns Bragasonar,
sviðsstjóra lögfræðisviðs hjá Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga. Sveit-
arfélögin eru með mjög viðkvæma
persónulega þjónustu við borgarana
og því þarf að vanda vel til verka til
að mæta þeim kröfum sem gerðar
verða. Ef út af bregður við fram-
kvæmdina gætu viðurlögin numið
himinháum sektarfjárhæðum.
Verkefnið er mjög stórt og dýrt
en engar tölur hafa þó verið nefndar.
Boðað hefur verið til fundar í dóms-
málaráðuneytinu á morgun þar sem
m.a. á að fjalla um stöðu mála.
Stjórn Sambands íslenskra sveit-
arfélaga fjallaði um undirbúninginn
skömmu fyrir jól og þar var lagt
fram minnisblað um stöðuna. „Ný
persónuverndarlöggjöf er afar um-
fangsmikil og mun hafa gríðarlega
mikil áhrif á opinbera aðila sem og
einkaaðila,“ segir í bókun stjórnar-
innar. „Vegna þessa er brýnt að
kostnaðarmat við undirbúning sé
vandað enda ljóst að löggjöfin kallar
á mikinn kostnað þar sem í tilviki
sveitarfélaga þarf að kortleggja alla
vinnu persónuupplýsinga, þjálfa alla
starfsmenn, útbúa ferla og stöðluð
skjöl, gera nýja samninga við alla
vinnsluaðila og ráða persónuvernd-
arfulltrúa. Er þessi undirbúningur
gríðarlega mikilvægur í ljósi þess að
sveitarfélög fara með mikið af við-
kvæmum persónuupplýsingum. Þarf
kostnaðarmatið jafnframt að gera
ráð fyrir ófyrirséðum kostnaði og
því er mikilvægt að vakta kostn-
aðaráhrif löggjafarinnar og hvað
hún þýðir í reynd fyrir sveitar-
félögin.“
Dómsmálaráðherra hyggst koma
fram með frumvarp í janúar. „Und-
irbúningi miðar vel með hliðsjón af
umfangi verkefnisins og stefnt er að
því að frumvarp liggi fyrir í lok jan-
úar 2018,“ segir Laufey Rún Ketils-
dóttir, aðstoðarmaður dómsmála-
ráðherra, í svari við fyrirspurn.
„Björg Thorarensen prófessor
stýrir vinnu við gerð frumvarpsins í
samstarfi við sérfræðing dómsmála-
ráðuneytisins í persónuvernd, tvo
fulltrúa Persónuverndar og fulltrúa
rekstrarfélags stjórnarráðsins
vegna tæknimála. Því til viðbótar
verður leitað eftir samráði við sam-
tök í atvinnulífinu áður en endanlegt
frumvarp verður lagt fram til um-
sagnar á vef dómsmálaráðuneyt-
isins,“ segir hún.
„Mun hafa gríðar-
lega mikil áhrif“
Frumvarp ráðherra fyrir lok janúar