Morgunblaðið - 15.01.2018, Blaðsíða 14
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Í námi sínu og störfum öðlast stjórn-
endur sjaldan þá þekkingu sem þeir
þurfa til að leiðbeina starfsfólki sínu
í gegnum róttækar breytingar.
Fyrirtæki þurfa iðulega að breyta
um stefnu og starfsfólkið um leið að
tileinka sér ný vinnubrögð og nálg-
anir. Skilur þá oft á milli feigs og
ófeigs hvernig
stjórnandinn er í
stakk búinn að
styðja við og
styrkja þá sem
undir hann heyra
og fá þá til að
laga sig að
breyttum veru-
leika.
Þetta segir
danski markþjálf-
inn Flemming Christiansen en hann
verður á meðal fyrirlesara á mark-
þjálfunardegi ICF Iceland sem hald-
inn verður 25. janúar næstkomandi.
„Oft eru æðstu stjórnendur mjög
spenntir að kynna til sögunnar nýja
stefnu og ný markmið en svo virðast
þeir einfaldlega ætlast til þess að all-
ir geti lagað sig að allt öðrum vinnu-
brögðum og allt annarri hugsun,“
segir hann.
Flemming er svokallaður
„eneagram“ markþjálfi, en slík
markþjálfun leggur m.a. áherslu á
að styrkja andlegar undirstöður
stjórnenda, auka skilning þeirra á
samskiptum við annað fólk og gera
þeim auðveldara að laga sig að hvers
kyns breytingum á eigin spýtur.
„Þetta er veganesti sem nýtist
einkar vel í flóknum fyrirtækjum
sem þurfa líka að vera sveigjanleg
og fær um að læra nýjar leiðir til að
gera hlutina.“
Erfitt að breyta til
Lesendum til glöggvunar nefnir
Flemming ímyndað dæmi um fyrir-
tæki sem hefur einbeitt sér að sínum
nærmarkaði en hyggst breyta um
stefnu og sigra allan heiminn. „Það
hljómar vel að ætla að „hugsa hnatt-
rænt“ og lætur æðstu stjórnendur
líta mjög vel út að vilja sýna svona
mikinn metnað en horfir ekki eins
við þeim sem hafa umsjón með dag-
legum rekstri. Hvað þýðir það t.d. að
þurfa að byrja að eiga í viðskiptum
við fólk frá öðrum menningar-
heimum? Þarf kannski að hlusta á
viðskiptavininn með öðrum hætti en
áður? Þarf að skrifa tölvupóst á
öðruvísi máli en áður? Oft virðist
ætlast til þess að starsfólkið leysi úr
þessum áskorunum eitt og ótstutt,“
segir Flemming.
„Eða hvað ef aðstæður kalla
skyndilega á að sölufólkið vinni sam-
an frekar en hvert í sínu lagi? Hvað
ef tæknifólkið þarf að taka að sér
hlutverk sölufólks? Hvað ef starfs-
mannahópurinn er skyndilega
dreifður um allan hnöttinn og stjórn-
andinn þarf að geta byggt upp góð
fagleg og tilfinningaleg tengsl við
starfsfólk sitt í gegnum forrit á borð
við Skype?“
Að mati Flemmings er lykilatriði
að stjórnandinn hafi sjálfur, með
réttri þjálfun, tileinkað sér að fylgj-
ast með eigin hegðan, að þróa sig
stöðugt og þroska og leita alltaf leiða
til að læra og vaxa. „Með þessa
þekkingu getur stjórnandi hjálpað
öðrum að gera slíkt hið sama, sem er
einmitt það sem breytingar kalla á.“
Vansæl og óörugg
Að gera þetta rétt, segir Flemm-
ing, hefur ekki bara áhrif á rekstur
fyrirtækja, heldur líka líðan starfs-
fólksins. Engum þyki gaman að vera
sett fyrir verkefni sem hann ekki
ræður við: „Það sýgur úr okkur
hamingjuna og sjálfstraustið. Öll
viljum við fást við verkefni sem við
getum leyst vel af hendi, en ef þekk-
inguna skortir er svar stjórnenda
allt of oft að þrýsta enn fastar á
starfsfólk sitt og hóta því öllu illu.
Það eru ekki skemmtilegir staðir að
vinna á og líklegt að starfsmenn
muni þá alltaf bera kala til yfir-
mannsins. En ef stjórnandinn hjálp-
ar starfsmönnum sínum að sjá heim-
inn í nýju ljósi og þróa með sér nýja
hæfileika er það stjórnandi sem fólki
mun alltaf þykja vænt um og starfs-
fólkið mun vera talsmenn fyrir-
tækisins löngu eftir að það hættir
þar störfum.“
Leiðsögn í stað hótana
AFP
Áskoranir Starfsmenn netverslunar í Kína önnum kafnir við skrifborð sín.
Viðskiptaheimurinn er síbreytilegur og mikils krafist af starfsfólki.
Þegar fyrirtæki boða nýja stefnu er ekki alltaf víst að starfsmenn viti hvað á
til bragðs að taka Stjórnendur þurfa að geta kennt þeim aðlögunarhæfni
Flemming
Christiansen
14 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 2018
kr. 99.900,-
49”
kr. 129.900,-
55”
Sería: 6100 • Tegund: UHD - 4K •
Stærð: 49” eða 123cm • Upplausn skjás:
3840x2160 (4K) - 8M pixlar • Tegund skjás:
LED • PQI: 1300 PQI (Picture Quality Index)
MU6175
7 KG. 1400 SN.
Eco Bubble
Verð áður: 64.900,-
Verð 59.900,-
TM
59.90
0,-
7 KG. barkarlaus þurrkari.
Varmadæla í stað elements.
Verð áður: 89.900,-
Verð nú: 76.415,-
januar
stormur
FULL BÚÐ AF TILBOÐSVÖrUM -
kæliskápar - Uppþvottavélar
- Þvottavélar - Þurrkarar -
Frystiskápar - Sjónvörp - Hljómtæki
SÍÐUmúla 9 · SÍmi 530 2900 samsungsetrid.islágmúla 8 - SÍmi 530 2800
● Fræðimanna-
samtökin European
Academy of Man-
agement (EURAM)
munu halda árlega
ráðstefnu sína í
Reykjavík í júní. Er
þetta í átjánda
skiptið sem ráð-
stefnan er haldin
en viðskiptafræði-
deild Háskóla Ís-
lands heldur utan um viðburðinn.
Ljóst er að mikill áhugi er á ráðstefn-
unni, og þegar innsendifrestur fræði-
greina rann út á miðvikudag reyndist
hafa verið slegið nýtt met. Bárust meira
en 2.000 greinar að þessu sinni sem er
nær tvöfalt meira en í fyrra þegar ráð-
stefnan var haldin í Glasgow, og 36%
meira en árið þar á undan þegar EURAM
hélt ráðstefnu sína í Parísarborg.
Dr. Eyþór Ívar Jónsson, ráð-
stefnustjóri og forstöðumaður Rann-
sóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við
HÍ, segir þetta frábæran árangur og af-
rakstur góðrar markaðssetningar.
„Þetta stefnir í að verða langstærsta
EURAM ráðstefna frá upphafi,“ segir
hann.
Eyþór bætir við að HÍ hafi viljað fá
ráðstefnuna hingað til lands til að auka
alþjóðlega samvinnu og rannsóknir.
„Jafnframt viljum við nýta ráðstefnuna
til þess að byggja upp aukna samvinnu
á milli akademíunnar og viðskiptalífs-
ins.“ ai@mbl.is
Stór viðskiptafræðiráð-
stefna haldin í Reykjavík
Dr. Eyþór Ívar
Jónsson
STUTT
Sheryl Sandberg, framkvæmda-
stjóri rekstrar hjá Facebook, og
Jack Dorsey forstjóri Twitter,
munu ekki gefa kost á sér til
áframhaldandi setu í stjórn Walt
Disney. Að sögn Reuters stafar
þetta af vaxandi hagsmuna-
árekstrum á milli bandaríska fjöl-
miðlarisans og tæknifyrirtækjanna
tveggja. Disney greindi frá þessu á
föstudag.
Disney hefur sótt af auknum
krafti inn á internetið og leitar
nýrra leiða til að dreifa efni sínu
þar í ljósi minnkandi áhuga neyt-
enda á kapalsjónvarpsstöðvum. Á
sama tíma eru Facebook og Twitt-
er að reyna að auka hlut mynd-
banda í sínum
lykilvörum.
Auk Sandberg
og Dorsey mun
Orin Smith, fyrr-
um forstjóri
Starbucks, hætta
í stjórn Disney
fyrir aldurs sakir
og Robert Matsc-
hullat, fyrrum
stjórnarformað-
ur Seagram, hættir eftir að hafa
setið í stjórn Disney eins lengi og
leyfilegt er, eða í fimmtán ár.
Ný stjórn verður kjörin á aðal-
fundi Disney í mars næstkomandi.
ai@mbl.is
Sheryl Sandberg og Jack
Dorsey kveðja Disney
Sheryl
Sandberg
● Í kæru til Samkeppniseftirlitisins held-
ur Gray Line (Allrahanda GL ehf.) því
fram Isavia hyggist taka margfalt hærra
gjald af hópferðabílum en eðlilegt getur
talist og misnoti einokunaraðstöðu sína.
Isavia annast rekstur og viðhald allra
flugvalla landsins, auk flugumferðar-
stjórnar innanlands- og alþjóðaflugs. Ný-
lega tilkynnti Isavia að frá og með 1.
mars taki gildi töluverð hækkun á gjaldi
sem lagt er á rútur sem sækja farþega í
flugstöð Leifs Eiríkssonar og leggja í
svokölluð fjarstæði.
Í tilkynningu frá Gray Line kemur fram
að gjaldið fyrir stórar rútur verði 19.900
kr., sem er fimmfalt hærra en það gjald
sem tekið er af stórum hópferða-
bifreiðum sem koma til Heathrow-
flugvallar. Þá sé ekkert sambærilegt
gjald rukkað á flugvöllum i Kaupmanna-
höfn, Billund eða Stokkhólmi.
Gjaldtakan er til viðbótar við nýlegan
samning Isavia við tvö hópferðafyrirtæki
sem fá aðstöðu uppi við flugstöðina og
greiða fyrir það 33-42% af farmiðasölu
sinni til Isavia.
Gray Line biður Samkeppnisyfirlitið
að stöðva fyrirhugaða gjaldtöku Isavia til
bráðabirgða. ai@mbl.is
Gray Line kærir Isavia
Eins og greint var frá í lok síðustu
viku hefur samfélagsmiðillinn Face-
book ákveðið að breyta því hvernig
efni birtist notendum. Er ætlunin að
auka hlutdeild efnis frá vinum og
ættingjum en draga úr vægi efnis
frá auglýsendum og fréttaveitum.
Ef marka má þróun hlutabréfa-
verðs Facebook á föstudag eru fjár-
festar ekki hrifnir af breytingunni.
Facebook lækkaði um 4,5%, að sögn
Bloomberg, og varð það til þess að
Zuckerberg varð 3,3 milljörðum
dala fátækari eftir daginn. Við þetta
lækkaði Zuckerberg um eitt sæti á
milljarðamæringalista Bloomberg,
og fór niður í fimmta sæti listans en
Amancio Ortega, eigandi tískurisans
Inditex, færðist
upp í það fjórða.
Zuckerberg
getur þó ekki
kvartað, því áður
en hlutabréf
Facebook tóku að
lækka hafði
heildarvirði
hlutabréfaeignar
hans hækkað um
4,5 milljarða dala
frá áramótum. Eftir lækkun föstu-
dagsins er Zuckerberg því 1,2 millj-
örðum dala ríkari það sem af er jan-
úarmánuði. Heildarauðæfi
Zuckerbergs nema nú 74 milljörðum
dala. ai@mbl.is
Zuckerberg milljörðum fá-
tækari eftir breytta stefnu
Mark
Zuckerberg