Morgunblaðið - 15.01.2018, Page 25

Morgunblaðið - 15.01.2018, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er gott og blessað að æfa skrokkinn og reyna að halda honum í sem bestu formi. Nú væri upplagt að undirbúa boð fyrir vinina um helgina. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú vilt hafa hlutina í röð og reglu en skalt varast að ganga of langt í þeim efn- um. Einhver vandræðagangur er á sam- skiptum þínum við aðra. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er ákaflega gefandi að rétta öðrum hjálparhönd. Mundu að einn góðan veðurdag kannt þú að vera í hans sporum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Samstarfsmaður, sem þú hefur svo sem ekki veitt neina athygli, leitar til þín með vandasamt mál. Nú er rétti tíminn til að setjast niður og ræða málin. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Fólk í umhverfi þínu er að ræna þig orkunni með einum eða öðrum hætti – sannkölluð sníkjudýr. Nú þarftu á einveru að halda til að hugsa málin í ró og næði. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Gættu þín í umgengni við aðra, einkum þá sem þú hefur ekki ástæðu til að telja á þínu bandi. Annars fer allt úr bönd- unum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefur hæfileika til að gæða gamla hluti nýju lífi og getur gert þér mat úr því með því að kaupa gamla hluti og gera þá upp. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú mátt ekki hunsa góðar til- lögur þótt þær komi frá öðrum og þá stundum mönnum sem þér er lítið um. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Gættu þess að stökkva ekki upp á nef þér af minnsta tilefni. Hafðu það hugfast, þegar þú hjálpar fólki, að sá sem er með sanni örlátur gefur fólki það sem það þarfnast. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þetta er ekki rétti tíminn til þess að vekja athygli á sjálfum sér. Að- stæður sem hafa verið erfiðar frá upphafi eiga líklega ekki eftir að batna. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú ert allur einhvern veginn út og suður og átt erfitt með að einbeita þér að því sem þú þarft að gera. Bjóddu vin- unum heim í kvöld og skemmtu þér. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það hefur ekkert upp á sig að vera með stöðuga eftirsjá og sjálfsgagnrýni. Hafðu allt þitt á hreinu. Þú færð stórtækar hugmyndir um breytingar á heimilinu í dag. Það liggur vel á Ólafi Stefánssyni:„Nú er orðin merkjanleg birtu- aukning og við göngum hlæjandi mót vorinu, er það ekki, Sigrún?: Nú birtir og bjartsýni vex, þá bindum ei hugann við rex. Í fylgsnum og leynum fækkar þeim meinum, sem tengjast við tröll eða hex.“ Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir um nýjustu tíðindi af lögreglunni: Um breiðtorg og stræti er bannað að spræna og bölva og meiða og ljúga og ræna, hórkörlum fækkar og heiðvirðum þjófum en harðsvíruð lögregla stelur frá bófum. „Góður!“ sagði Skírnir Garð- arsson og bætti við: „Hér í Vík er innangengt í bankann úr Vínbúð- inni. Ef ætlarðu í Arion bánka, að útvega dollar og fránka, í vínbúð þú lendir, þar verða menn kenndir, og væflast heim bak- meður -þánka. Auðvitað er þetta hönnunargalli, það ætti að vera öfug innangengni, nefnilega úr bankanum og inní vín- búðina, svona er arkitektúrinn á villigötum.“ Sigurlín Hermannsdóttir skrifar í Leirinn: „Að drekka eða drekka ekki, þar er efinn. Sumir eru bæði bindindismenn og drykkjuboltar,“ – og lætur þessi skemmtilegu og vel kveðnu sléttubönd fylgja: Kjurrum dögum frið í fann fráleitt þráir sopann. Þurrum mönnum edrú ann aldrei kneyfar dropann. Dropann kneyfar, aldrei ann edrú mönnum þurrum. Sopann þráir, fráleitt fann frið í dögum kjurrum. Gylfi Þorkelsson orti 7. janúar: Vætan er lárétt og lemjandi. Löðrandi stormurinn emjandi. Rigning og rok! Rennbleytufok! Blautlega söngvana semjandi. Ármann Þorgrímsson yrkir um „vanda hagkerfisins“: Mér finnst vandinn vera sá og vaxa hröðum skrefum að margir ekkert annað sjá en arð af hlutabréfum. Og enn segir hann að „bráðum fer dagur að lengjast“: Alltaf kemur aftur vor á eftir hverjum vetri, lengjast dagar, léttast spor og ljóðin verða betri. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Nú birtir, lögreglufréttir og vínbúð í Vík HÁVARÐAR VAR ALLTAF MINNST FYRIR ÞAÐ HVERNIG HANN VAR, EKKI HVER HANN VAR. „ÞEIR FORÐAST MIG SÍÐAN ÉG GAF ÞEIM SMÁ AF KÖKUNNI SEM KONAN MÍN BAKAÐI FYRIR MIG.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... upphafið að ferðalagi ykkar saman. ÞÚ LÍTUR VEL ÚT Í DAG, LÆKNIR EN INDÆLT AF ÞÉR OG ÞETTA ER INDÆL MYND… HÚN TALAR TIL MÍN ÞETTA ER TEIKNING AF MELTINGARFÆRUM KATTA TAKK FYRIR OG HÚN SEGIR: „GEFÐU MÉR MAT“ JÁ, ÉG SKAL FARA Á STEFNUMÓT MEÐ ÞÉR! ÉG FER ALDREI Á STEFNUMÓT MEÐ MÖNNUM SEM TALDIR ERU „HEFÐBUNDIÐ FALLEGIR“! HÚN GETUR EKKI GERT UPP HUG SINN! HEYRÐU… ÞÚ. HVERNIG HEFURÐU ÞAÐ? YNDISLEGA. FRÁBÆRT. GÆTI EKKI VERIÐ BETRI. Fjöldi ungra foreldra í Reykjavík erí vondum málum sakir þess hve erfitt er að koma börnum í vist hjá dagforeldrum. Um þetta voru miklar fréttir fyrir helgina, þar sem lýst var stöðu fólksins sem setur sig í sam- band við skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar í örvæntingu sinni. Dagforeldrum hefur fækkað, starfsfólk vantar á leikskólana og svo mætti áfram raunir rekja. Nú þekkir Víkverji ekki svo gjörla til aðstæðna ungs barnafólks í Reykjavík en finnst margt einkennilegt í máli þessu. Hvers vegna liggur nýbökuðum for- eldrum svona mikið á að komast út á vinnumarkaðinn? Hverju þarf að breyta ef þá einhverju? x x x Hvar eru amma og afi eða góðar ogvelviljaðar frænkur eða frændur eða vinafólk sem getur hlaupið undir bagga með barnapössun? Á mörgum vinnustöðum er sveigjanlegur vinnu- tími og skilningsríkir stjórnendur. Skólann er oft hægt að taka að hluta í fjarnámi. Auðvitað er myndin hér að framan mjög einfölduð en hér fer best á því að ræða málin í stóru sam- hengi og vekja athygli á þeirri mein- loku sem margir eru haldnir um að leita beri opinberrar aðstoðar í stóru sem smáu, svo sem barnagæslu. Vissulega hafa opinberar stofnanir ríkar skyldur þegar kemur að stuðn- ingi við fólk, en á slíku þarf að vera hóf. Samfélagið er í vondum málum ef sjálfsagðar og óskráðar skyldur okkar allra um að vera bakland vina og ættingja eru ríkisvæddar, en því miður er tilhneigingin talsvert í þá átt. x x x Gangverk samfélagsins ætti aðmiðast við að foreldrar og börn geti verið sem lengst og mest saman í stað þess að hlutirnir miðist við þarfir atvinnulífs og starfsframa uppanna. „En ég verð persónulega sorgmædd- ur þegar ég hugsa um þann tíma þeg- ar ég týndi mér í vinnu. Það skilar kannski árangri og tekjum að vinna út í eitt, en hvað situr eftir?“ sagði Pétur Einarsson járnkarl, kvik- myndagerðarmaður og áður banka- stjóri í viðtali við Morgunblaðið fyrir nokkrum dögum. vikverji@mbl.is Víkverji Því að hvar sem tveir eða þrír eru saman komnir í mínu nafni þar er ég mitt á meðal þeirra. (Matt: 18:20) Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI • Glerhandrið • Glerhurðir • Speglar • Glerveggir • Málað gler • Tvöfalt gler • Sturtuklefar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.