Morgunblaðið - 26.01.2018, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 2 6. J A N Ú A R 2 0 1 8
Stofnað 1913 22. tölublað 106. árgangur
FERILL BIRGIS
VERIÐ MIKIL
RÚSSÍBANAFERÐ TEFLDU Á ESJUNNI
NÝTT STAÐAR-
TÓNSKÁLD
SINFÓNÍUNNAR
DAGLEGT LÍF 12-13 ANNA ÞORVALDSDÓTTIR 38ÍÞRÓTTIR 4
Daginn er nú farið vel að lengja og litbrigði dagsins verða þá
skörp. Þegar sólin sest verða rafljósin eftirtektarverð eins og
sjá mátti nú fyrr í vikunni þegar horft var úr Hlíðarhjalla í
Kópavogi til suðvesturs. Upplýstur turninn á Smáratorgi og
Smáralind blöstu við og í bakgrunni voru Keilir og fleiri fjöll
á Reykjanesinu, böðuð birtu blóðrauðs sólarlags. Þessa er
gaman að njóta og lífið er núna, eins og gjarnan er sagt, því
nú eru veðrabrigði í nánd og á suðvesturhorninu má búast við
hlýnandi veðri, slyddu og jafnvel rigningu.
Byggingar og fjöll böðuð í birtu blóðrauðs sólarlags
Morgunblaðið/Hari
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, segir
nauðsynlegt að sundurliða tillögur
nefndar um stöðu einkarekinna fjöl-
miðla á Íslandi og hefjast handa við
þau verkefni sem sátt er um.
„Nú er búið að ljúka þessari
vinnu, ég tek við skýrslunni og við
vinnum áfram úr henni. Það er
strax hægt að fara að huga að
virðisaukaskattinum. Annað þarf að
meta betur, bæði áhrifin og kostnað
fyrir ríkissjóð,“ segir Lilja en ráðu-
neytið mun kostnaðarmeta tillögur
nefndarinnar. Ekki voru allir fimm
meðlimir nefndarinnar sammála um
allar þær tillögur sem lagðar voru
til en nefndin sammæltist um að
sala og áskriftir dagblaða, tímarita
og landsmála- og héraðsfréttablaða,
hvort sem væri á prentuðu eða raf-
rænu formi, skattlegðist í sama
skattþrepi og félli í lægra skatthlut-
fall virðisaukaskatts, 11%. Segir
Lilja að virðisaukaskatturinn verði
endurskoðaður við undirbúning
ríkisfjármálaáætlunar og vonar ráð-
herra að slík vinna muni ganga
hratt og örugglega fyrir sig.
Meirihluti nefndarinnar leggur til
að Ríkisútvarpið fari hið fyrsta af
auglýsingamarkaði. Þar með verði
horfið frá samkeppnisrekstri ríkis-
ins í auglýsingasölu, bæði í sjón-
varpi og útvarpi. Bendir meirihlut-
inn á að auglýsingatekjur RÚV á
árinu 2016 voru 2,2 milljarðar
króna, sem felur í sér að RÚV sé
með um 20% hlutdeild á auglýs-
ingamarkaði og það skekkir sam-
keppnisstöðu íslenskra fjölmiðla
verulega. Elín Helga Sveinbjörns-
dóttir, formaður Sambands ís-
lenskra auglýsenda, sagði að það
yrði slæmt fyrir auglýsendur og
auglýsingastofur ef RÚV yrði tekið
af auglýsingamarkaði. Þá segir
Hjálmar Jónsson, formaður Blaða-
mannfélagsins, það skipta máli að
ríkisstjórnin hafi skýrsluna til hlið-
sjónar og styrki fjölmiðlakerfið í
landinu, því fjölmiðlar séu grund-
völlur lýðræðisins.
Ráðherra hefst strax
handa við breytingar
Samræming virðisaukaskatts á fjölmiðla sett í forgang
Fjölmiðlaskýrsla Nefndin rekur til-
lögur sínar ítarlega í skýrslunni.
MLeggja til miklar breytingar … »6
Íslensk erfðagreining birti niður-
stöður erfðarannsóknar sinnar í vís-
indatímaritinu Science í gær. Þar
var leitað svara við spurningunni um
hvort erfðabreytingar í þeim helm-
ingi erfðaefnis foreldranna sem ekki
fer til barnsins hafi áhrif á örlög
þess. Niðurstaðan er sú að svo er.
Kári Stefánsson, forstjóri ÍE,
segir í samtali við Morgunblaðið að
niðurstöður rannsóknarinnar, þar
sem stuðst var við erfðamengi þús-
unda Íslendinga sem fæddir eru á
árunum 1940 til 1983, sýni meðal
annars að með því að hlúa að börn-
um megi hafa áhrif á gáfur þeirra.
„Með umhverfi, uppeldi og að-
hlynningu er hægt að hafa töluvert
mikil áhrif á gáfur, það er að segja
að barnið fæðist ekki með einhverjar
ákveðnar gáfur sem ekki er hægt að
hafa áhrif á. Með öðrum orðum; við
getum haft mikil áhrif, ekki bara á
gæfu, heldur gjörvileika barna með
því að hlúa að þeim,“ segir Kári við
Morgunblaðið. »10
Morgunblaðið/Kristinn
ÍE Ný rannsókn var birt í gær í hinu virta vísindatímariti Science.
Uppeldið hefur
áhrif á gáfurnar
Ný erfðarannsókn ÍE birt í Science