Morgunblaðið - 26.01.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2018
Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is
Sími: 535 9000 | bilanaust.is
Gæði, reynsla og gott verð
Vottaðir hágæða
VARAHLUTIR
í flestar gerðir bifreiða
Siðan 1962
Bílanaust er einnig í Kópavogi – Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum
Það er huggunarríkt hvaðhelstu stórmenni heims-
viðskiptanna ganga í góðum takti
við þær skoðanir sem hæst ber
hverju sinni. Þau hafa öll jákvæð-
ar tilfinningar til metoo-hreyfiafls-
ins mikla
sem rekja
má til frétta
af falli fé-
laga Har-
vey Wein-
steins og
allra hinna
sem hrösuðu í kjölfarið, sumir allt
að því fjörutíu ár aftur í tímann.
Lengi hefur verið rík og mynd-arleg samstaða meðal allra á
fundum í skíðabænum Davos í
Sviss um að alls ekki skuli efast í
neinu um vísindalegar kenningar
um hlýnun andrúmslofts af
mannavöldum og því síður draga í
efa ákvörðun á 40 þúsund manna
fundi í París, þar sem algjör sam-
staða ríkti.
Þeir munu ítreka þá afstöðusína á fundinum í Davos að
hlýnun andrúmslofts sé hitamál.
Þangað komu þeir á rétt rúm-lega 1.000 einkaþotum sínum
sem standa svo prúðmannlega í
röð á flugvellinum í Zürich. Jafn-
vel þeir sem eiga tvær einkaþotur
létu sér nægja að koma á einni.
Og það sýnir staðfestuna að ekki
nærri allir þeirra fóru á þyrlum
þaðan og upp í Davos en hoss-
uðust í Bensum um beygjurnar.
Hefur það glatt umhverfisverndar-
sinna við vegkantinn og þá sem
fylgdust með útsendingum sjón-
varps.
Enn hefur ekkert fyrirmennihent plastpoka og ekki verð-
ur betur heyrt en að flestar ræður
sem fluttar hafa verið séu endur-
unnar, sem er til mikillar fyrir-
myndar. Mannkynið á því enn þá
von.
Fljúgandi fordæmi
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 25.1., kl. 18.00
Reykjavík -5 skýjað
Bolungarvík -6 léttskýjað
Akureyri -4 skýjað
Nuuk -6 léttskýjað
Þórshöfn 3 heiðskírt
Ósló 4 heiðskírt
Kaupmannahöfn 5 skýjað
Stokkhólmur 5 skýjað
Helsinki 4 skýjað
Lúxemborg 7 rigning
Brussel 8 skúrir
Dublin 7 léttskýjað
Glasgow 7 rigning
London 9 skúrir
París 8 skýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 8 skýjað
Berlín 8 skýjað
Vín 3 skýjað
Moskva -6 heiðskírt
Algarve 14 léttskýjað
Madríd 6 súld
Barcelona 13 skýjað
Mallorca 14 léttskýjað
Róm 13 heiðskírt
Aþena 6 léttskýjað
Winnipeg -7 þoka
Montreal -14 léttskýjað
New York -4 heiðskírt
Chicago -1 þoka
Orlando 16 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:26 16:56
ÍSAFJÖRÐUR 10:50 16:41
SIGLUFJÖRÐUR 10:34 16:23
DJÚPIVOGUR 10:00 16:20
Ármann Kr.
Ólafsson bæjar-
stjóri skipar
efsta sætið á
framboðslista
sjálfstæðismanna
í Kópavogi í
bæjarstjórnar-
kosningum í vor.
Tillaga uppstill-
ingarnefndar að
skipan listans var
samþykkt á fundi fulltrúaráðs sjálf-
stæðismanna í Kópavogi í gær-
kvöldi.
Röð sjö efstu sætanna er hin sama
og var fyrir síðustu kosningar, það
er að 2. sæti skipar Margrét Frið-
riksdóttir, Karen Elísabet Halldórs-
dóttir er í því 3., Hjördís Ýr Johnson
í 4. sæti og 5. sæti skipar Guð-
mundur Gísli Geirdal. Í 6. sæti er
Jón Finnbogason og í 7. Andri
Steinn Hilmarsson, háskólanemi og
blaðamaður. Í 8. sæti listans er Júl-
íus Hafstein, fv. sendiherra og fyrr-
verandi borgarfulltrúi.
Ákveðið var í nóvember að valið
skyldi á framboðslista og var níu
manna nefnd falið að gera tillögu.
Auglýst var eftir framboðum, 22
gáfu kost ár sér. sbs@mbl.is
Ármann er
áfram efstur
í Kópavogi
Júlíus Hafstein er
í 8. sæti á listanum
Ármann Kr.
Ólafsson
Markmiðið var að rannsaka
mögulegt flæði stýrens úr frauð-
plastkössum í fersk þorsk- og karfa-
flök, sem geymd eru við dæmigert
hitastig í sjóflutningi á ferskum flök-
um frá Íslandi til Evrópu eða Am-
eríku. Amerískir kaupendur óska
eftir því að fiskflökum sé pakkað í
plastpoka fyrir pökkun í frauðplast-
kassa vegna mögulegrar stýren-
mengunar úr frauði í fisk, segir í
ágripi um tilraunina.
Meginniðurstaða tilraunar sem gerð
var í sumar í samstarfi Matís, Há-
skóla Íslands, Eurofins og Tempru
er að ekki er nauðsynlegt að pakka
ferskum fiskflökum í plastpoka fyrir
pökkun í frauðplastkassa sem
geyma og flytja á við kældar og ofur-
kældar aðstæður. Fjallað er um til-
raunina í skýrslu á heimasíðu Matís,
en fyrirhugað er að kynna niður-
stöðurnar, meðal annars í Banda-
ríkjunum.
Mælt var stýren í fiski sem
geymdur hafði verið í tiltekinn tíma
við tiltekið hitastig án plastpoka í
tólf frauðkössum og magn stýrens
borið saman við viðmið bandaríska
Matvæla- og lyfjaeftirlitsins (FDA).
Eitt sýni var tekið úr neðsta hluta
neðsta fiskflaks í hverjum kassanna
tólf og hafði þar með verið í beinni
snertingu við frauðplast. Sýnin voru
send til greiningar hjá Eurofins, al-
þjóðlegri rannsóknastofu í Þýska-
landi og sýna niðurstöðurnar að
magn stýrens, sem og annarra
óæskilegra efna eins og bensens og
tólúens, var undir 0,01 mg/kg fisks í
öllum tólf fisksýnunum.
Viðmið eða hámark FDA er 90 mg
af stýreni í hverju kg af fiski á ein-
stakling á dag, sem jafngildir sam-
kvæmt niðurstöðum þessarar til-
raunar að neytandi þurfi að neyta
daglega níu tonna af fiski til að nálg-
ast viðmið FDA. aij@mbl.is
Borða þyrfti níu tonn af fiski á dag
Spara má plastpoka við fiskútflutning Mengandi efni langt innan marka