Morgunblaðið - 26.01.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2018
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Kamasa verkfæri
– þessi sterku
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
V
ið Lolli sátum að tafli
inni í Hörpu í vinnunni
og horfðum til fjalla,
dáðumst að fegurð Esj-
unnar sem skartaði sínu
fegursta þann daginn og töluðum
um að gaman væri að ganga á hana
og jafnvel taka þar skák til að
krydda gönguna. Við héldum svo á
fjallið síðastliðinn laugardag en það
kom Lolla þó nokkuð á óvart þegar
ég dró taflið upp úr bakpokanum
þegar við vorum komnir upp að
Steini,“ segir Grímur Grímsson,
sviðsstjóri hjá Sinfóníuhljómsveit
Íslands, sem tefldi þann janúardag
sína fyrstu skák á fjalli, á sjálfri Esj-
unni, við vinnufélaga sinn, ítalska
fiðluleikarann Nicola Lolli, en hann
er konsertmeistari í Sinfó ásamt
Sigrúnu Eðvaldsdóttur.
„Lolla þótti kuldinn og vindur-
inn heldur mikill til tafls, hann tefldi
langt undir getu þarna upp við Stein.
Við þurftum að taka af okkur vett-
lingana til að færa taflmennina og
urðum fljótt krókloppnir. Það var
skafrenningur yfir skákborðið og
mynduðust litlir skaflar við tafl-
mennina, sem var mjög fallegt. Lolli
lenti í smá vandræðum með drottn-
inguna, hún lenti á hálum ís, bæði í
bókstaflegri merkingu og skáklegri.
Og Esjan blés hrókspeði út af borð-
inu,“ segir Grímur sem vann þessa
vindasömu vetrarskák, en bætir við
að Lolli hafi hefnt sín með því að
vinna hann í blindskák á leiðinni nið-
ur Esjuhlíðar.
„Ég náði að vinna tvær slíkar á
leiðinni upp,“ segir Grímur og bætir
við að það sé ekki eins erfitt og það
Drottningin lenti á
hálum ís á Esjunni
Að tefla þarf ekki að vera bundið við að sitja kyrr inni við allan tímann. Grímur
Grímsson skákmaður segir að hægt sé að krydda skákina með ýmsum hætti og þar
lætur hann verkin tala. Hann langar til að blanda saman boxi og skák þar sem
spennan fælist í því að komast að því hvort maður er rotaður eða mátaður.
Ljósmynd/Nicola Lolli
Fjallaskák Grímur glaðbeittur við upphaf skákar undir Steini efst á Langa-
hrygg. Skafrenningur var eins og sjá má á taflborðinu, sem hefur gránað.
Húfan góða með merkinu FO, sem
stendur fyrir Fokk Ofbeldi, er nú
komin aftur í sölu á vegum UN Wom-
en á Íslandi, nú dimmblá að lit.
Í tilkynningu segir: „Byltingin gegn
kynbundnu ofbeldi er hafin. Ofbeldi
gegn konum og stúlkum er útbreidd-
asta mannréttindabrot í heiminum í
dag. Konur úr ólíkum stéttum hafa
stigið fram hér á landi og víða um
heim og lýst kynbundnu ofbeldi, kyn-
ferðislegri áreitni og misbeitingu
valds sem þær hafa upplifað. Kyn-
bundið ofbeldi er heimsfaraldur og
þrífst í öllum samfélögum heimsins
og innan allra stétta.
· Þriðja hver kona á Íslandi hefur
verið beitt líkamlegu eða kynferðis-
legu ofbeldi.
· Einni af hverjum tíu konum í
heiminum hefur verið nauðgað.
· Stúlka undir 18 ára aldri er gift á
tveggja sekúnda fresti.
· Helmingur kvenna innan Evrópu-
sambandsríkja hefur upplifað kyn-
ferðislega áreitni.
· 200 milljónir núlifandi kvenna
hafa þurft að þola limlestingu á kyn-
færum.
Með því að kaupa Fokk Ofbeldi húf-
una tekur fólk þátt í baráttunni gegn
ofbeldi gegn konum og stúlkum. Allur
ágóði rennur til verkefna UN Women
sem miða að afnámi ofbeldis gegn
konum og stúlkum.“
Húfan fæst í verslunum Vodafone
og á www.unwomen.is Saga Sig ljós-
myndari tók ljósmyndir fyrir átakið.
Ný Fokk Ofbeldi húfa komin í sölu
Gefum skít í ofbeldi
Skarta nýju húfunni Margrét Erla Maack, Steinunn Ása og Berglind Festival.
Fyrir alla Fanney Birna, Þorsteinn Bachmann, Diddú og Gísli Marteinn.
Blússveit Þollýjar heldur Tregatrúar-
tónlistarmessu eða svokallaða Blús-
messu sunnudaginn 28. janúar í
Óháða söfnuðinum við Háteigsveg.
Þar verður flutt tregafull blústónlist
með trúarlegum textum. Slík sam-
koma hefur verið árlegur viðburður í
kirkju Óháða safnaðarins allt frá því
Pétur Þorsteinsson, prestur safn-
aðarins, heyrði Blússveit Þollýjar
spila blús niðri í bæ, en þá stakk hann
upp á því við hljómsveitarmeðlimi að
gaman væri að bjóða upp á blús-
messu í Óháða söfnuðinum.
Blússveitin sérhæfir sig í að spila
gospelblús, þ.e. blústónlist þar sem
textarnir eru á trúarlegum nótum.
Blússveit Þollýjar er skipuð Þollý
Rósmunds söngkonu, Friðriki Karls-
syni á gítar, Sigurði Ingimarssyni á
ryþmagítar og munnhörpu en hann
syngur einnig, Jonni Richter á bassa
og Fúsa Óttars á trommum.
Í tregatrúartónlistarmessunni má
því búast við fjölbreyttri blústónlist,
ekki aðeins hugljúfri heldur líka
hressari og kröftugri.
Friðrik Karlsson ætlar að sjá um
predikunina og ætlar hann að miðla
reynslu sinni af trúarupplifun og
frelsun eftir að hafa stundað hug-
leiðslu í mörg ár.
Blússveit Þollýjar kemur fram hjá Óháða söfnuðinum
Ljósmynd/Ásta Magg
Gaman Friðrik og Þollý við æfingar í kirkjunni og gleðin er greinilega við völd.
Reynsluboltar spila í Blúsmessu