Morgunblaðið - 26.01.2018, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2018
Hágæða
umhverfisvænar
hreinsivörur
fyrir bílinn þinn
Glansandi
flottur
Fást í betri byggingavöruverslunum, matvöruverslunum og bensínstöðvum.
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Í borgarstjórnarkosningum í
Reykjavík og aðdraganda þeirra
beinist kastljósið gjarnan að odd-
vitum framboðslistanna og borg-
arstjóra hverju sinni. Leiðtogakjör
sjálfstæðismanna sem fram fer á
laugardaginn sýnir þetta glöggt.
Mikilvægast þykir að hafa foringja
með skýra sýn og stefnu sem höfðar
til kjósenda. Sigursæll oddviti á
möguleika á að hreppa embætti
borgarstjóra og ræður þá mestu um
málefni borgarinnar þótt hann hafi
ekki nema eitt atkvæði í borgar-
stjórn eins og aðrir borgarfulltrúar.
Borgarstjóraembættið í Reykja-
vík var stofnað 1908, fyrir 110 árum.
Heitið „borgarstjóri“ var notað þótt
áfram væri talað um bæjarstjórn
fram á sjötta áratuginn. Fyrstur til
að gegna embættinu var Páll Ein-
arsson. Hann var borgarstjóri til
1914 þegar hann sótti um og fékk
embætti sýslumanns í Eyjafjarð-
arsýslu og bæjarfógeta á Akureyri.
Bæjarstjórnin auglýsti þá embættið
laust til umsóknar og sóttu þrír um:
Knud Zimsen verkfræðingur og
bæjarfulltrúi, Sigurður Eggerz
sýslumaður og Vigfús Einarsson
fógetafulltrúi. Vigfús dró umsóknina
til baka áður en bæjarstjórnin kaus
um veitinguna. Við atkvæðagreiðsl-
una fékk Zimsen flest atkvæði, átta
(og sat þó hjá sjálfur) en Sigurður
Eggerz 5. Var Zimsen í kjölfarið ráð-
inn borgarstjóri til næstu sex ára.
Var samþykkt 1914
Á Alþingi höfðu þær raddir heyrst
að réttast væri að æðstu embætt-
ismenn ríkisins og sveitarfélaganna
væru kjörnir beinni kosningu. Til-
laga um að Reykvíkingar fengju að
kjósa borgarstjóra sinn kom fyrst
fram 1907 en var þá felld. Þingmenn
Reykvíkinga báru fram frumvarp
um beint kjör borgarstjóra snemma
árs 1911 við misjafnar undirtektir
bæjarfulltrúa Reykvíkinga. Hug-
myndin virðist hins vegar hafa átt
góðan hljómgrunn meðal bæjarbúa.
Frumvarpið náði ekki fram að
ganga, en var borið fram að nýju
sumarið 1914 og þá samþykkt. Hafði
bæjarstjórnin þá lýst yfir stuðningi
við málið. „Borgarstjóri skal kosinn
af atkvæðisbærum borgurum kaup-
staðarins til 6 ára í senn, enda hafi að
minnsta kosti 50 kjósendur mælt
með kosningu hans,“ sagði í lög-
unum. Ekki var gert ráð fyrir nein-
um breytingum á starfsemi bæjar-
stjórnarinnar; hér var eingöngu
verið að kjósa framkvæmdastjóra
fyrir bæinn.
Sex ár liðu frá því að Alþingi sam-
þykkti að borgarstjórinn í Reykjavík
skyldi kosinn beinni kosningu og þar
til kosningin fór fram. Í mars 1920
þegar leið að því að ráðningar-
tímabili Knud Zimsen lyki var emb-
ættið auglýst laust til umsóknar.
Tveir sóttu um, Knud Zimsen og
Sigurður Eggerz. Zimsen fannst
hann hafa náð góðum tökum á starf-
inu og vildi því vera áfram. Sigurður
hafði verið fjármálaráðherra í rík-
isstjórn Jóns Magnússonar fram í
febrúar þetta ár og þar á undan ráð-
herra Íslands og vildi gjarnan sitja
áfram í valdaembætti. Hann var þó
ekki sannfærðari en svo um sigur í
komandi kosningum að samtímis
sótti hann um embætti sýslumanns í
Eyjafjarðarsýslu.
Hápólitísk kosningabarátta
Knud Zimsen hafði reynst fram-
takssamur í embætti, en í lands-
málum var hann til hægri og lá undir
ásökunum um að hann skaraði eld að
sinni köku með því að beina við-
skiptum bæjarins til fyrirtækja sem
hann var tengdur eða átti hlut í. Sig-
urður Eggerz var frjálslyndari í
skoðunum og því ákvað Alþýðuflokk-
urinn, sem um þessar mundir var að
eflast sem stéttaflokkur, að styðja
hann til embættisins í stað þess að
tefla fram eigin frambjóðanda. Fyrir
vikið einkenndist kosningabaráttan
af skörpum pólitískum línum, hægri
og vinstri.
Í smágrein í Alþýðublaðinu í lok
apríl mátti lesa: „Heyrst hefur að
Knud Zimsen hafi meðal kaupmanna
og spekulanta þeirra sem honum
fylgja sagt að Sig. Eggerz styddu
tómir sócíalistar, en í KFUM að
hann styddu tómir guðleysingjar.“
Þarna var vísað til þess að Zimsen
var einn forystumönnum Kristilegs
félags ungra manna. Stofnandi og
leiðtogi KFUM, séra Friðrik Frið-
riksson, sem aldrei hafði skipt sér af
stjórnmálum, var mikill vinur Zim-
sens og skrifaði grein honum til
stuðnings í Vísi í byrjun maí Greinin
vakti mikla athygli enda var öll for-
síðan lögð undir hana. Annar áhrifa-
maður sem studdi Zimsen var Ólafur
Thors forstjóri útgerðarfyrirtæk-
isins Kveldúlfs, sem var einn helsti
vinnuveitandi bæjarins.. Hann talaði
ekki á fundum en „agiteraði stíft fyr-
ir Knúti“ segir hann í bréfi til skóla-
bróður síns í Kaupmannahöfn þá um
vorið eins og lesa má um í bókinni
Thorsararnir (2005). Í einni grein-
inni komst hann svo að orði: „Allir
viðurkenna, bæði meðhaldsmenn og
mótherjar Sigurðar Eggerz, að
borgastjóraembættið sé vandamikið
og erfitt starf. Einmitt þess vegna er
ástæða til, að berjast á móti því, að
Sigurði Eggerz verði falið það. Ef
borgarstjóraembættið væri um-
svifalítið starf og vandalítið, mundi
hr. Sigurður Eggerz eflaust mjög vel
fallinn til þess að gegna því, því mað-
urinn er einstaklega prúður í um-
gengni og dagfarsgóður talinn.“
Ólafur skammaðist sín svolítið fyrir
málflutning sinn gegn Sigurði í þess-
um greinum, þar sem gefið var í
skyn að hann væri latur og fram-
takslaus, og segir í bréfinu fyrr-
nefnda: „Ekki er þessi pólitík þrosk-
andi hvað siðgæði viðvíkur.“
Ásakanir um að Sigurður Eggerz
nyti helst stuðnings sósíalista urðu
til þess að 75 málsmetandi borgarar
birtu yfirlýsingu í Vísi honum til
stuðnings. Meðal þeirra voru Bene-
dikt Sveinsson og Guðrún Péturs-
dóttir frá Engey, Magnús Sigurðs-
son bankastjóri, Bjarni Jónsson frá
Vogi, Jakob Möller ritstjóri og Bríet
Bjarnhéðinsdóttir.
Rifist um Austurvöll
Annars voru deilumálin ekki öll
hápólitísk. Alþýðublaðið eyddi til
dæmis miklu púðri í að skammast út
í Knud Zimsen fyrir það hve Aust-
urvöllur væri í mikilli niðurníðslu;
borgarstjóri hefði vanrækt að láta
bera á hann með þeim afleiðingum
að völlurinn væri að verða að mold-
arflagi.
Gengið var til kosninga laug-
ardaginn 8. maí 1920. Mikil spenna
var í bænum og almælt að úrslitin
væru mjög tvísýn. Þegar talið var
upp úr kjörkössunum kom í ljós að
Knud Zimsen hafði haft betur. Fékk
hann 1760 atkvæði en Sigurður Eg-
gerz 1584. Alþýðublaðið sagði að
þessi 176 atkvæða munur væri í raun
mikill ósigur fyrir Zimsen og taldi að
það hefði haft mikið að segja að
trúarbrögðunum hefði verið blandað
inn í kosningabaráttuna „með því að
hefja Zimsen til skýjanna sem sann-
kristinn mann, en drótta öllu því
versta að Sigurði Eggerz í þeim efn-
um“. Eftir stæði að 1584 kjósendur
bæjarins væru reiðubúnir til þess
„að steypa Zimsen hvenær sem færi
gefst á næst, og með honum hags-
munaklíku þeirri, utan bæjar-
stjórnar og innan, sem liggur nú eins
og mara á Reykjavík,“ eins og kom-
ist var að orði.
Knud Zimsen átti hins vegar eftir
að sitja lengi enn á stóli bæjarstjóra,
en næstu árin ávallt kosinn af bæj-
arstjórninni því lagaákvæðið um
beina kosningu borgarstjóra var
fellt úr gildi. Var Zimsen borgar-
stjóri í Reykjavík samtals í 18 ár, til
1932. Endurminningar hans úr
borgarstjórastarfinu komu út í
tveimur bindum 1958 og 1952, Við
fjörð og vík og Úr bæ í borg. Geyma
þær mikinn fróðleik um sögu
Reykjavíkur á fyrri hluta síðustu
aldar.
Bein kosning borgarstjóra
Árið 1920 kusu Reykvíkingar borgarstjóra í beinni kosningu í fyrsta og eina sinn Alþingi ákvað
þá tilhögun Harðvítug kosningabarátta á milli Sigurðar Eggerz og Knud Zimsen sem náði kjöri
Borgarstjóri Knud Zimsen var röggsamur í embætti. Hér hefur hann tekið að sér umferðarstjórn á gatnamótum Austurstrætis og Pósthússtrætis sumarið
1925 þegar óvenjulega mikil umferð var, aðallega hesta og hestvagna, vegna þess að erlent skemmtiferðaskip var í höfn með fjölda farþega.
Frambjóðandi Sigurður Eggerz
vildi verða borgarstjóri 1920.
Kosning Baráttan um borgarstjórastólinn 1920 var hörð. Skipulega var
gengið til verka af hálfu frambjóðenda og ráku báðir kosningaskrifstofu.