Morgunblaðið - 26.01.2018, Síða 17

Morgunblaðið - 26.01.2018, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2018 10% afsláttur 10% afsláttur af trúlofunar- og giftingarhringa- pörum CARAT Haukur gullsmiður | Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is Sendum frítt um allt land Skoðaðu úrvalið á carat.is BAKSVIÐ Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Ellefu Asíu- og Kyrrahafsríki hafa ákveðið að undirrita TPP-fríversl- unarsamninginn án Bandaríkjanna eftir að Donald Trump forseti ákvað að hafna honum og hótaði að segja upp NAFTA, fríverslunarsamningi Norður-Ameríkuríkja. Evrópuríki og lönd á borð við Kína halda áfram viðræðum um fleiri fríverslunar- samninga án Bandaríkjanna. Alls hafa 35 tvíhliða og fjölþjóð- legir viðskiptasamningar verið í deiglunni síðustu misseri, að sögn Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Bandaríkin eiga aðeins aðild að ein- um þessara mögulegu samninga, við Evrópusambandið, en samninga- viðræðurnar um hann hafa legið niðri eftir að Trump varð forseti. Bandaríkin eru enn stærsta hag- kerfi heimsins og ómissandi þáttur í frjálsum heimsviðskiptum þannig að án þeirra minnkar vægi fríversl- unarsamninganna stórlega. Þessi þróun gæti hins vegar aukið áhrif Kína, næststærsta hagkerfisins, og er talin geta skapað ný tækifæri fyr- ir kínversk fyrirtæki. Úr 40% í 13% Með Bandaríkjunum hefði TPP (e. Trans-Pacific Partnership) náð til um 40% af heildarviðskiptunum í heiminum. Án Bandaríkjanna nær hann til um það bil 13% af heims- viðskiptunum, að sögn fréttaveit- unnar AFP. Í upphaflega samningnum voru ákvæði sem bandarísk stjórnvöld höfðu beitt sér fyrir til að auka sam- keppnishæfni bandarískra fyrir- tækja gagnvart útflutningsfyrir- tækjum í löndum þar sem laun eru lægri. Markmið Bandaríkjamanna var að auka viðskiptin við helstu samstarfsríki þeirra í Asíu og þeir vildu halda Kína fyrir utan samning- inn til að koma í veg fyrir að þarlend stjórnvöld gætu ráðið skilmálum hans. Tímaritið The Economist segir að hugsanlega hefði Kína verið boðin aðild að TPP-samningnum síðar, en ekki fyrr en Bandaríkjamenn hefðu sett leikreglur frjálsu viðskiptanna, m.a. varðandi réttindi launþega. Trump hafnaði hins vegar samn- ingnum á þeirri forsendu að hann myndi skaða efnahag Bandaríkjanna og fækka störfum í landinu. Reynd- ar er talið ólíklegt að Bandaríkja- þing hefði fullgilt samninginn ef Trump hefði ekki verið kjörinn for- seti. Ástæðan er vaxandi andstaða við samninginn á þinginu, m.a. með- al demókrata. Hillary Clinton, for- setaefni demókrata, var hlynnt samningnum þegar hún var utan- ríkisráðherra en snerist gegn hon- um í kosningabaráttunni, eins og Bernie Sanders og fleiri vinstrimenn í Demókrataflokknum. Samningar um aukið frelsi í milliríkjavið- skiptum hafa hins vegar verið á meðal hornsteinanna í efnahags- stefnu Repúblikanaflokksins síðustu áratugi. ESB í samningaham Á meðal samninga sem gerðir hafa verið eftir að Trump varð for- seti er nýr viðskiptasamningur milli Evrópusambandsins og Japans sem var undirritaður í júlí. Evrópusam- bandið gerði einnig nýjan viðskipta- samning við Kanada á síðasta ári og stefnir að samningum við lönd á borð við Mexíkó og Chile um að lækka tolla og draga úr viðskipta- hindrunum. Sambandið hefur enn- fremur hafið viðræður um nýjan samning við Mercosur, viðskipta- bandalag Brasilíu, Argentínu, Úrú- gvæ og Paragvæ, að því er fram kemur í frétt The Wall Street Journal. Kínverjar í sókn Á sama tíma leggja Kínverjar kapp á að auka áhrif sín í heims- viðskiptum, meðal annars með asísk- um fjárfestingarbanka sem á að keppa við Alþjóðabankann og áformum þeirra um að fjárfesta í „nýjum silkivegi“, þjóðvegum um Mið-Asíulönd, og nýjum siglinga- leiðum um Indlandshaf og Rauða- haf. Kínverjar hafa einnig beitt sér fyrir fríverslunarsamningum við Asíuríki, án aðildar Bandaríkjanna, og koma fram sem helstu málsvarar frjálsra heimsviðskipta þótt það hljómi kaldhæðnislega í ljósi ófrels- isins í viðskipta- og atvinnulífinu í Kína. Kínverjar hugsa sér enn fremur gott til glóðarinnar í Afríku og Róm- önsku Ameríku. The New York Times hefur eftir sendiherra Chile í Washington, að í allri sögu Róm- önsku Ameríku hafi ekkert sam- starfsríki verið eins viljugt til að taka tillit til þarfa heimshlutans og Kína hafi verið. „Bandaríkin eru enn og verða líklega næstu 10, 20 árin helsta viðskiptaríki Rómönsku Am- eríku,“ hefur blaðið eftir honum. „En þetta er að breytast. Breyting- arnar blasa við ef þetta heldur svona áfram.“ Að sögn The New York Times hafa bandarísk útflutningsfyrirtæki áhyggjur af þeirri þróun að önnur ríki geri fríverslunarsamninga án aðildar Bandaríkjanna. Til að mynda verði TPP-samningurinn til þess að stórbændur í Kanada og Ástralíu geti selt nautakjöt í Japan á lægra verði en bandarískir keppinautar þeirra sem þurfa að borga hærri tolla. Með því að hafna samningnum hafi bandarískir útflytjendur misst af tækifæri til að fá betri aðgang að mörkuðum sem fari stækkandi. Halda áfram án Bandaríkjanna  Ellefu Asíu- og Kyrrahafsríki ætla að undirrita fríverslunarsamning án aðildar Bandaríkjanna  Yfir 30 viðskiptasamningar í deiglunni  Kínverjar kappkosta að auka áhrif sín í heimsviðskiptum Ellefu Asíu- og Kyrrahafsríki ætla að undirrita samninginn án Bandaríkjanna eftir að Trump hafnaði honum TPP-fríverslunarsamningurinn Byggt á upplýsingum frá Alþjóðabankanum fyrir árið 2016 Íbúafjöldi í milljónum (Tölur SÞ) 36,62 Kanada Verg landsframleiðsla í milljörðum bandaríkjadala 1.529,76 $ 31 4.940,16 $ 16 127,48 Japan Víetnam 95,54 205,28 $ 94 Útflutn- ingur (% af lands- framleiðslu) 296,98 $ 172 5.71 Singapúr Brúnei 0,43 11,40 $ 50 296,54 $ 68 31,62 Malasía Heimildir: USTR/Alþjóðabankinn/Sameinuðu þjóðirnar Ástralía 24,45 1.204,62 $ 19 Nýja-Sjáland 4,71 184,97 $ 27 247,03 $ 29 18,06 Chile Perú 32,17 192,21 $ 22 1.046,92 $ 38 129,16 Mexíkó Hafa ekki hafið viðræður » Donald Trump segist vilja gera viðskiptasamninga sem verði betri fyrir bandarísk fyrir- tæki og starfsmenn þeirra. Viðræður um slíka samninga hafa þó ekki verið hafnar. » Bretar vilja tvíhliða við- skiptasamning við Bandaríkin en geta ekki hafið viðræðurnar fyrr en þeir ganga úr ESB. Jap- anar virðast tregir til að sam- þykkja tilboð Bandaríkjanna um tvíhliða viðskiptasamning. . Miklir vatnavextir hafa verið í Par- ís og nágrenni vegna úrhellisrign- inga síðustu vikurnar. Búist er við að vatnshæð Signu verði allt að 6,2 metrar á morgun, en í venjulegu ár- ferði er vatnshæð árinnar fjórum til fimm metrum lægri. Svo miklir vatnavextir hafa ekki verið í París frá árinu 1982. Úrkoman í norðaustanverðu Frakklandi nú í janúar og í desem- ber er sú þriðja mesta frá því að mælingar hófust, að sögn veður- stofu Frakklands. Á mörgum svæð- um er úrkoman tvöfalt meiri en í venjulegu árferði, meðal annars í París. Loka hefur þurft safndeildum í kjöllurum bygginga við Signu til að fjarlægja safngripi, meðal annars í Louvre-safninu. Vatnavextirnir hafa einnig orðið til þess að rottu- gangur hefur aukist á götum borgarinnar því að flætt hefur yfir rottubæli við Signu, að sögn frétta- veitunnar AFP. AFP Flóð valda usla í París

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.