Morgunblaðið - 26.01.2018, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 26.01.2018, Qupperneq 18
BAKSVIÐ Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is S amtökin ’78 og Reykja- víkurborg hafa gert með sér nýjan fræðslu- og þjónustusamning. Í fræðslusamningnum er kveðið á um að Samtökin ’78 sinni hinsegin fræðslu í öllum grunn- skólum Reykjavíkurborgar eins og samið var um árið 2014. Til viðbótar var samið um sérstaka hinsegin fræðslu til starfsfólks leikskóla höfuðborgarinnar. Frá þessu segir í tilkynningu frá Samtökunum ’78 og á vefsíðu samtakanna. „Í nýjum samningi við Hafnar- fjörð, en þetta er í annað skipti sem við semjum við bæinn, er nú kveðið á um að starfsfólk leikskóla geti fengið fræðslu frá Samtökunum ’78. Í nýj- um samningi við Reykjavíkurborg er þessi möguleiki einnig til staðar, þ.e. að allt starfsfólk í leikskólum Reykjavíkurborgar geti sótt fræðslu til okkar. Markmiðið er að fræða um fjölbreytt fjölskylduform, kynvitund og kyntjáningu og búa leikskóla- kennara undir að börn geti verið með allskonar í kyntjáningu og kunni í framhaldinu að skapa börn- unum svigrúm til að tjá kyn sitt og persónuleika. Það er til að það sé ekki verið að setja börnin í einhver mót strax,“ segir Daníel E. Arnars- son, framkvæmdastjóri Samtakanna ’78, í samtali við Morgunblaðið. „Þetta snýst um hvernig við komum fram við einstaklingana. Við höfum t.d. fengið símtöl frá starfs- mönnum leikskóla um hvað á að gera þegar börn sýna ákveðna kyn- tjáningu eða kynvitund. Við erum bara föst sem samfélag í tvíhyggju um að karlar eigi að sýna karllæga hegðun og konur kvenlæga hegðun. En þetta snýst um að leyfa öllum að vera eins og þeir eru, að fólki líði vel í eigin skinni, börnum og full- orðnum.“ Hinsegin félagsmiðstöð Í fyrsta sinn er búið að tryggja hinsegin félagsmiðstöð, samstarfs- verkefni Samtakanna ’78 og frí- stundamiðstöðvarinnar Tjarnar- innar, rekstrarfé út árið 2020. Meðfram fræðslusamningnum var undirritaður þjónustusamningur um ráðgjöf til borgarbúa hjá Samtök- unum sér að kostnaðarlausu, starf- rækslu ráðgjafar fyrir unglinga og börn og að lokum að Samtökin ’78 geti sinnt daglegum rekstri sínum. Reykjavíkurborg leggur nú meira til reksturs Samtakanna ’78 en nokkur annar og er því stærsti þjónustukaupi Samtakanna ’78. „Hinsegin félagsmiðstöðin hef- ur nú verið rekin um tíma. Áður vor- um við með ungliðahreyfingu, en bjóðum nú unglingum upp á fé- lagsmiðstöð. Fyrir tveimur árum ákváðum við að setja unglingastarfið í faglegt ferli með því að semja við félagsmiðstöð í Reykjavík og feng- um nú loksins fjármagn til að reka hana almennilega,“ segir Daníel. Aukinheldur var samið um jafn- ingjafræðslu til nemenda grunn- skóla borgarinnar líkt og áður. Daníel segir hinsegin fræðslu halda áfram eins og verið hefur und- anfarin ár með jafningjafræðslu til nemenda 8. bekkjar, til kennara í grunnskólum og frístundaheim- ila. „Þetta er bara sams konar samningur og verið hefur, nema nýtt framlag til reksturs hinsegin félagsmiðstöðvar og svo leiðrétt- ing fyrir verðlagsbreytingum. Þessi þjónustusamningur hef- ur verið lengi í gildi,“ segir Anna Kristinsdóttir, mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar. Samið um hinsegin fræðslu í leikskólum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Glatt á hjalla Leikskólabörn í heimsókn í Ráðhúsi Reykjavíkurborgar. 18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Vandi íslenskaheilbrigðis-kerfisins er flókinn og marg- þættur. Krefjandi verkefni blasa við og það mun aðeins gera illt verra að ýta þeim á undan sér. Í umræðunni ber alla jafna hæst að setja þurfi meiri pen- inga í heilbrigðismálin, en minna fer fyrir því að rétt sé hvernig nýta eigi fjárveitingar. Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala og formaður Félags íslenskra lyflækna, og Runólfur Pálsson, yfirlæknir nýrnalækninga á Landspítala (í leyfi) og forseti Evrópusamtaka lyflækna, hafa lagt sín lóð á vogarskálarnar í tveimur greinum í Morgun- blaðinu. Í fyrri grein sinni gerðu þeir grein fyrir stöðu heilbrigðiskerfisins og í þeirri síðari greindu þeir brýnustu verkefnin. Davíð og Runólfur segja að meginvandamálin séu tvö: „Mikil fjölgun aldraðra, sem margir hverjir stríða við fjöl- þætta sjúkdóma og/eða færni- skerðingu, er risavaxið verk- efni. Enn fremur hefur orðið geysileg framþróun í greiningu og meðferð margra sjúkdóma á undanförnum áratugum sem m.a. hefur leitt til þess að sjúklingar með erfiða sjúk- dóma lifa lengur en áður. Á hinn bóginn hefur auknu fram- boði meðferðarúrræða fylgt ört vaxandi kostnaður og er skýrasta dæmið geysileg út- gjaldaaukning vegna nýrra lyfja undanfarin ár.“ Þeir segja að þessari þróun hafi ekki verið mætt með skipulegum hætti og benda á að af því leiði ómark- viss nýting úrræða sem m.a. endurspeglist í „þeim fjölda aldraðra sem dvelja að jafnaði í bráðalegurými Landspítala“. Framundan er viðamikið verkefni í heilbrigðisþjónust- unni. Davíð og Runólfur draga ekki dul á að auka þurfi fjár- veitingar til heilbrigðismála, en jafnframt þurfi að skipu- leggja notkun peninga betur. Margt af því sem þeir segja er augljóst. Álag á bráðadeild myndi minnka ef færri kæmu þangað, sem í raun ættu að leita annað. Með hollum lifn- aðarháttum er hægt að efla heilsu. Þeir vilja efla framhalds- menntun í heilbrigðisvísindum, meðal annars til að nýta vinnu- framlag námslækna. Einnig segja þeir að ekki megi gleyma sóknarfærum og nefna þar nýtingu erfðupplýsinga. Davíð og Runólfur setja fram tillögur í fjórtán liðum, sem miða að því að koma ís- lenska heilbrigðiskerfinu í fremstu röð. Davíð og Run- ólfur horfa í greinum sínum yf- ir allt sviðið og ákvörðun þeirra að kveðja sér hljóðs með þessum hætti verður vonandi til að ýta undir aðgerðir í heilbrigðismálum. Heildarsýn á vand- ann í heilbrigðis- málum} Brýn verkefni Í gær hélt DonaldTrump til Da- vos. Riddarar alþjóðavæðingar- innar sitja þar við öll hringborð í lok- uðum fjalladal. Margir kjörnir leið- togar telja nokkra upphefð í því að sjást á þessum fundi. Þeir áhrifamestu flytja sjálfstæðar ræður en aðrir sitja í pallborði. Svo skiptast menn niður á „lok- uð boð“ í vertshúsum og skíða- skálum af skárri gerðinni. Þar er blanda af stórforstjórum, stórstirnum fjölmiðla og fræði- mönnum um peningamál. Síðustu 2 áratugi hefur Davos ekki tekist að lokka for- seta Bandaríkjanna á fundinn. Hvorki Bush yngri né Obama eftirmanni hans á forsetastóli þótti ómaksins vert að fara þangað. Það kom á óvart að Trump skyldi skella sér þangað. Þótt þarna séu margir ríkustu menn veraldar er ekki marga aðdáendur Trumps þar að finna. Hann þykir hafa móðgað alþjóðavæðinguna. Það er dauðasynd í Davos. Oft er vitnað til orða Dimon, for- stjóra J.P. Morgan (sagður með tæpa 4 milljarða í árslaun auk bónusa): Í Da- vos koma millj- arðamæringar saman til að útskýra fyrir millj- ónamæringum hvernig milli- stétt heimsins hugsar. En eins og Niall Ferguson benti nýlega á þá er það einn milljarðamær- ingur sem örugglega veit hvernig millistéttin hugsar. Hann er með próf upp á það. Prófskírteinið sýndi fjölda kjör- manna í forsetakjöri í nóvem- ber 2016. En Trump rær ekki í takt við stórvesíra alþjóðavæðingar- innar um þessar mundir. Loforð hans um að horfa fyrst til hags- muna Bandaríkjanna áður en aðrir hagsmunir fengju athygli ruglar dæmið. Trump hafði aldrei áður verið boðinn til Davos. En þótt Trump rói ekki í takt á hann til að sýna takta. Það er þess virði að fylgjast með Donald í Davos og fram- haldinu. Mun aðall alþjóða- væðingarinnar flaðra upp um Trump? Rétt er að útiloka ekkert} Donald í Davos S taða einkarekinna fjölmiðla er grafalvarleg hér á landi um leið og hlutverk þeirra sem fjórða valdið verður æ mikilvægara. Í glænýrri skýrslu nefndar um bætt rekstrarumhverfi einkarekinna fjöl- miðla sem barst þingheimi í gær koma fram tillögur að úrbótum sem ég vil gera að um- fjöllunarefni. Lögð er til endurgreiðsla á hluta kostn- aðar vegna framleiðslu á fréttum og frétta- tengdu efni. Þetta er fín tillaga enda er rekstur fréttastofu yfirleitt kostnaðarsamur vegna nauðsynlegs starfsmannafjölda. Í öðru lagi er lagt til að Ríkisútvarpið fari af auglýsingamarkaði. Ég er hlynnt þeirri að- gerð ef stjórnvöld tryggja að fjármagn komi á móti. Ef taka á Rúv af auglýsingamarkaði þarf að fjármagna starfsemina með öðrum hætti þar sem auglýsingatekjur Rúv eru þriðjungur tekna. Mætti skoða þá leið að útvarpsgjald, sem er það lægsta hér á landi samanborið við almannaútvarp í nágrannaríkjum, verði hækkað enda er áskriftin einungis rúmar 1.000 kr. á mán- uði fyrir dagskrá á þremur menningar- og fréttamiðlum, Rúv sjónvarpi, Rás 1 og Rás 2 sem allir hafa mikla sér- stöðu, auk hliðarrása og netmiðils. Mætti skoða að hækka útvarpsgjaldið upp í 2.500 kr. á mánuði og með því tryggja áframhaldandi starfsemi þrátt fyrir að Rúv hverfi af aug- lýsingamarkaði. Til samanburðar er áskriftargjald að Morgunblaðinu 6.597 kr. á mánuði og áskrift að Stöð 2 kr. 8.990 kr á mánuði. Þá er lagt til að virðisaukaskattur á sölu og áskriftum á rafrænu formi og af hljóð og mynd- efni eftir pöntun verði 11%. Ég tel nauðsynlegt að farið verði í könnun á því hvort gagnist litlum og meðalstórum fréttamiðlum betur, slík leið eða lækkun tryggingargjalds því eins og umhverfið er í dag er ekki um marga áskriftarmiðla að ræða. Í fjórða lagi er lagt til að áfengis- og tóbaks- auglýsingar verði heimilaðar, í fimmta og sjötta lagi er lögð til endurgreiðsla á hluta kostnaðar vegna textunar og talsetningar sem og undan- þáguheimild frá textun og talsetningu. Þarna eig- um við að gera miklu betur og endurgreiða að fullu kostnað vegna textunar og talsetningar. Þetta er grundvallarréttur heyrnarskertra og heyrnarlausra og íslenskt samfélag getur ekki leyft sér að veita ekki þessa sjálfsögðu þjónustu þó að hún sé fjárfrek. Er þá ótalin skylda okkar gagnvart tungumáli okkar. Að sama skapi lýsi ég áhyggj- um mínum yfir tillögum nefndar um að veittar verði undanþáguheimildir frá textun og talsetningu. Að lokum fagna ég tillögu um gagnsæi í kaupum hins opinbera á auglýsingum en legg til að horft verði bæði á auglýsingar hins opinbera og áskriftir því þar má sjá halla verulega á fjölmiðla þegar kemur að innkaupum ríkisins. Ég fagna einlæglega þessari skýrslugerð enda afar mikilvægt að efla stöðu einkarekinna fjölmiðla í lýðræðis- ríki. Helga Vala Helgadóttir Pistill Einkareknir fjölmiðlar Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. helguvolu@gmail.com STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Samningur Reykjavíkurborgar og Samtakanna ’78 er til þriggja ára og gildir til ársloka 2020. Annars vegar er um að ræða fræðslu í leik- og grunnskólum um samkynhneigt, tvíkynhneigt, pankynhneigt, asexual, intersex og transgender fólk auk reksturs hinsegin félagsmiðstöðvar. Greiðast 6 milljónir árlega til þess hluta samningsins. Hins vegar rekstur skrifstofu Samtakanna ’78, fræðslu til fag- fólks og stuðningshópa fyrir ungmenni og aðstand- endur hinsegin fólks og greiðast 2,7 milljónir ár- lega til þess hluta. Hækkun miðað við eldri samning sé vegna aukins rekstrarfjár til hinsegin frístunda- heimilis og verð- lagsleiðrétt- ingar. Samningur út árið 2020 AUKIÐ FÉ TIL REKSTURS FRÍSTUNDAHEIMILIS Borgarstjórinn í Gleðigöngu 2017.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.