Morgunblaðið - 26.01.2018, Page 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2018
Reykjavík Þessar eyrnaskjólsklæddu stallsystur áttu leið með síma og brúsa framhjá tónlistarhúsinu Hörpu á dögunum. Nýbyggingar miðborgarinnar lúrðu í bakgrunni.
Eggert
Í dag lýkur fjög-
urra daga árlegu Al-
þjóðlegu efnahags-
þingi í Davos, um
11.000 manna
fjallabæ í tæplega
1.600 m hæð í suð-
austurhluta sviss-
nesku Alpanna. Áður
fyrr leituðu berkla-
sjúklingar lækninga
í sólbjörtu fjallaloft-
inu í Davos. Nú beinist athygli
heims þangað vegna efnahags-
þingsins.
Fundardaga World Economic
Forum (WEF) – Alþjóða efnahags-
þingsins – fjölgar þeim sem dvelj-
ast í Davos í um 30.000. Þar eru
um 1.500 forstjórar stærstu fyrir-
tækja heims, 70 þjóðar- og stjórn-
arleiðtogar, 900 fræðimenn og
áhrifamenn á sviði lista og menn-
ingar auk 500 blaðamanna, þús-
unda öryggisvarða og fylgdarfólks.
Þjóðverjinn Klaus Schwab, þá 33
ára prófessor í stjórnun við
Genfarháskóla, valdi Davos sumar-
ið 1971 fyrir evrópska ráðstefnu
um stjórnun. Hann vildi einangr-
aðan stað til að fundarmenn kæm-
ust ekki á brott í fundarhléi.
Árið 1974 ákvað Schwab að
bjóða stjórnmálamönnum að taka
þátt og færa fundartímann til jan-
úar. Nú er 48. þingið haldið í Da-
vos og dregur að sér þátttakendur
úr öllum heimshornum.
Í janúar 2009, eftir hrunárið
2008, sagði Schwab: „Í ár verður
Davos heilsuhæli fyrir heimsbú-
skapinn. Við ætlum að móta heim-
inn eftir hrun.“ Þetta var fjórum
mánuðum eftir gjaldþrot Lehman
Brothers-bankans.
Áhættutímar
Vegna 48. Davos-
þingsins gerði KPMG,
alþjóðlega endurskoð-
unar- og ráðgjafarfyrir-
tækið, könnun meðal
um 1.300 stjórnenda og
spurði hvað þeim væri
efst í huga. Flestir
nefndu „geópólitíska
áhættu“, með öðrum
orðum stöðuna í heims-
málum og óvissuna sem
þar ríkir. Leiða þessar áhyggjur til
þess að fleiri hafa haft áhuga á að
fara til Davos að þessu sinni en oft
áður.
Í dag flytur Donald Trump
Bandaríkjaforseti lokaræðuna í
Davos. Hvort hún verður til að
auka óvissu í heimsmálum eða
draga úr henni kemur í ljós. Mikill
viðbúnaður er vegna komu Trumps
og í byrjun vikunnar bönnuðu yfir-
völd mótmælaaðgerðir gegn honum
í skíðabænum vegna mikillar snjó-
komu og hættu á snjóflóðum.
Fordómar Frakka hverfa
Blaðamaður franska blaðsins Le
Figaro segir að Frökkum hafi þótt
Davos-uppistandið gervilegt þrátt
fyrir að Þjóðverji stæði þar að
baki. Þetta viðhorf gefi þó ekki
rétta mynd af því sem þar gerist. Í
Davos hafi fjandvinir oft hist og
ráðið ráðum sínum. Í janúar 1988
skrifuðu fulltrúar Grikkja og
Tyrkja undir „Davos-yfirlýsing-
una“ um að minnka spennu í sam-
skiptum sínum. Í janúar 1992 tók-
ust Frederik de Klerk, forseti
S-Afríku, og Nelson Mandela í
hendur í ráðstefnumiðstöðinni í
Davos. Árið 1994 voru Ísraelinn
Shimon Peres og Palestínumaður-
inn Yasser Arafat í Davos og rit-
uðu undir samkomulag um Gaza og
Jeríkó.
Þegar Jacques Chirac hafði ver-
ið forseti Frakklands í 10 ár braut
hann loks odd af oflæti sínu og
samþykkti árið 2005 að flytja ræðu
í Davos. Þetta var umdeild ákvörð-
un vegna þess að Frakkar töldu
hann með þessu ganga í „musteri
frjálslyndrar hnattvæðingar og
kapítalisma“. Enginn forveri hans,
hvorki sem forseti né forsætisráð-
herra, hafði farið í pílagrímsferð í
fjallaþorpið. Veður hindraði að
Chirac kæmist til Davos en hann
ávarpaði fundarmenn um fjar-
fundarbúnað.
Eftir þetta hafa arftakar Chiracs
sótt fundi í Davos og flutt þar ræð-
ur, nú síðast Emmanuel Macron
sem er hagvanur meðal fastagest-
anna frá því að hann var banka-
maður og efnahagsmálaráðherra. Í
Le Figaro er Macron meira að
segja kallaður „Davos-drengur“.
Á það má minna að Ólafur
Ragnar Grímsson sótti nokkur
Davos-þing í forsetatíð sinni.
Viðvörun Whites
Í tilefni af Davos 2018 birta fjöl-
miðlar skoðanir áhrifamanna á
ástandi og horfum í efnahags- og
fjármálum. Mátti mánudaginn 22.
janúar til dæmis lesa viðtal við
William White eftir Ambrose
Evans-Pitchard, viðskiptaritstjóra
hjá The Telegraph í London, á
samnefndri vefsíðu. Fyrirsögn við-
talsins var: World finance now
more dangerous than in 2008,
warns central bank guru, eða:
Varnaðarorð seðlabankagúrús:
Staða heimsfjármálanna hættulegri
núna en 2008.
William White er fyrrverandi
aðalhagfræðingur BIS, Alþjóða-
greiðslumiðlunarbankans, í Basel.
Evans-Pitchard segir að White búi
í Sviss og gegni formennsku
endurskoðunarnefndar OECD.
Skoðun hans er í stuttu máli að
stjórnvöld séu föst í gildru sem
þau hönnuðu sjálf með því að auka
peningamagn í umferð. Vegna
þessa hafi fé til neyðaraðgerða ár-
um saman „lekið“ til nýmarkaðs-
landa án þess að tekið hafi verið á
kerfislægum vanda. Þetta fé leki
ekki endalaust.
„Allar vísbendingar á mörkuðum
líkjast mjög því sem við sáum fyrir
Lehman-kreppuna en svo virðist
sem menn hafi gleymt að draga
lærdóm af henni,“ segir William
White. Ávallt þegar innistæðulaus
sveifla nái hámarki ríki smitandi
bjartsýni, fólk blindist af góðu
fréttunum og sannfæri sjálft sig
um að áhætta minnki en einmitt á
því stigi séu verstu mistökin gerð.
Vísbendingar um ofviðrið séu jafn-
litlar nú og árið 2007, rétt áður en
stormurinn feykti öllu um koll.
Að baki býr vandi vegna þess
sem á ensku er nefnt quantitative
easing, skammstafað QE. Einfald-
ast er að skýra það með íslenska
orðinu seðlaprentun, það er seðla-
bankar auka peningamagn í um-
ferð t. d. með því að kaupa ríkis-
skuldabréf samhliða lækkun vaxta
í von um að ýta undir hagvöxt.
William White segir:
„Seðlabankar hafa hellt olíu á
eldinn. Eiga stjórnvöld nú að óska
sjálfum sér til hamingju með þeim
rökum að kerfið sé öruggara en
áður? Enginn veit hvað gerist þeg-
ar dregið verður úr QE. Á mörk-
uðunum ættu menn að gæta sín
vegna þess að margt er brothætt.
Lyfjafyrirtæki verða lögum sam-
kvæmt að gera tilraunir til að
kanna að lyf hafi ekki óviljandi af-
leiðingar áður en þau eru sett á
markað en seðlabankar hefja viða-
mikla félagslega tilraun með QE
án þess að huga nægilega vel að
hliðarverkunum.“
Ekki hefði verið staldrað sér-
staklega við orð þessa ágæta
Whites nema vegna þess sem sagði
í grein eftir Hannes Hólmstein
Gissurarson prófessor hér í blaðinu
miðvikudaginn 17. janúar. Þar seg-
ir að 31. júlí 2008 hafi kanadískur
hagfræðingur, William White,
heimsótt Ísland og Davíð Oddsson,
þáverandi seðlabankastjóri, boðið
honum til kvöldverðar í Perlunni.
Hannes Hólmsteinn segir:
„Þeir röbbuðu saman um ástand-
ið á fjármálamörkuðum. White
taldi mikla andstöðu við að bjarga
bönkum með almannafé en það
yrði samt að lokum gert: „Það er
búið að ákveða að einn stór banki
verður látinn fara á hausinn, það
verða Lehman-bræður, og síðan
eitt land og það verðið þið.“ Davíð
spurði hissa: „Hvað ert þú búinn
að fá þér marga gin og tonic?“
White svaraði: „Aðeins einn.““
Skyldu hafa verið lagðar við
hlustir þegar White talaði í fjalla-
loftinu í Davos?
Eftir Björn
Bjarnason » Flestir Davos-gesta
nefndu „geópólitíska
áhættu“, með öðrum
orðum stöðuna í
heimsmálum og óviss-
una sem þar ríkir.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Ótti vegna áhættutíma á Davos-þingi 2018