Morgunblaðið - 26.01.2018, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 26.01.2018, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2018 Reykjavík Þessar eyrnaskjólsklæddu stallsystur áttu leið með síma og brúsa framhjá tónlistarhúsinu Hörpu á dögunum. Nýbyggingar miðborgarinnar lúrðu í bakgrunni. Eggert Í dag lýkur fjög- urra daga árlegu Al- þjóðlegu efnahags- þingi í Davos, um 11.000 manna fjallabæ í tæplega 1.600 m hæð í suð- austurhluta sviss- nesku Alpanna. Áður fyrr leituðu berkla- sjúklingar lækninga í sólbjörtu fjallaloft- inu í Davos. Nú beinist athygli heims þangað vegna efnahags- þingsins. Fundardaga World Economic Forum (WEF) – Alþjóða efnahags- þingsins – fjölgar þeim sem dvelj- ast í Davos í um 30.000. Þar eru um 1.500 forstjórar stærstu fyrir- tækja heims, 70 þjóðar- og stjórn- arleiðtogar, 900 fræðimenn og áhrifamenn á sviði lista og menn- ingar auk 500 blaðamanna, þús- unda öryggisvarða og fylgdarfólks. Þjóðverjinn Klaus Schwab, þá 33 ára prófessor í stjórnun við Genfarháskóla, valdi Davos sumar- ið 1971 fyrir evrópska ráðstefnu um stjórnun. Hann vildi einangr- aðan stað til að fundarmenn kæm- ust ekki á brott í fundarhléi. Árið 1974 ákvað Schwab að bjóða stjórnmálamönnum að taka þátt og færa fundartímann til jan- úar. Nú er 48. þingið haldið í Da- vos og dregur að sér þátttakendur úr öllum heimshornum. Í janúar 2009, eftir hrunárið 2008, sagði Schwab: „Í ár verður Davos heilsuhæli fyrir heimsbú- skapinn. Við ætlum að móta heim- inn eftir hrun.“ Þetta var fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Lehman Brothers-bankans. Áhættutímar Vegna 48. Davos- þingsins gerði KPMG, alþjóðlega endurskoð- unar- og ráðgjafarfyrir- tækið, könnun meðal um 1.300 stjórnenda og spurði hvað þeim væri efst í huga. Flestir nefndu „geópólitíska áhættu“, með öðrum orðum stöðuna í heims- málum og óvissuna sem þar ríkir. Leiða þessar áhyggjur til þess að fleiri hafa haft áhuga á að fara til Davos að þessu sinni en oft áður. Í dag flytur Donald Trump Bandaríkjaforseti lokaræðuna í Davos. Hvort hún verður til að auka óvissu í heimsmálum eða draga úr henni kemur í ljós. Mikill viðbúnaður er vegna komu Trumps og í byrjun vikunnar bönnuðu yfir- völd mótmælaaðgerðir gegn honum í skíðabænum vegna mikillar snjó- komu og hættu á snjóflóðum. Fordómar Frakka hverfa Blaðamaður franska blaðsins Le Figaro segir að Frökkum hafi þótt Davos-uppistandið gervilegt þrátt fyrir að Þjóðverji stæði þar að baki. Þetta viðhorf gefi þó ekki rétta mynd af því sem þar gerist. Í Davos hafi fjandvinir oft hist og ráðið ráðum sínum. Í janúar 1988 skrifuðu fulltrúar Grikkja og Tyrkja undir „Davos-yfirlýsing- una“ um að minnka spennu í sam- skiptum sínum. Í janúar 1992 tók- ust Frederik de Klerk, forseti S-Afríku, og Nelson Mandela í hendur í ráðstefnumiðstöðinni í Davos. Árið 1994 voru Ísraelinn Shimon Peres og Palestínumaður- inn Yasser Arafat í Davos og rit- uðu undir samkomulag um Gaza og Jeríkó. Þegar Jacques Chirac hafði ver- ið forseti Frakklands í 10 ár braut hann loks odd af oflæti sínu og samþykkti árið 2005 að flytja ræðu í Davos. Þetta var umdeild ákvörð- un vegna þess að Frakkar töldu hann með þessu ganga í „musteri frjálslyndrar hnattvæðingar og kapítalisma“. Enginn forveri hans, hvorki sem forseti né forsætisráð- herra, hafði farið í pílagrímsferð í fjallaþorpið. Veður hindraði að Chirac kæmist til Davos en hann ávarpaði fundarmenn um fjar- fundarbúnað. Eftir þetta hafa arftakar Chiracs sótt fundi í Davos og flutt þar ræð- ur, nú síðast Emmanuel Macron sem er hagvanur meðal fastagest- anna frá því að hann var banka- maður og efnahagsmálaráðherra. Í Le Figaro er Macron meira að segja kallaður „Davos-drengur“. Á það má minna að Ólafur Ragnar Grímsson sótti nokkur Davos-þing í forsetatíð sinni. Viðvörun Whites Í tilefni af Davos 2018 birta fjöl- miðlar skoðanir áhrifamanna á ástandi og horfum í efnahags- og fjármálum. Mátti mánudaginn 22. janúar til dæmis lesa viðtal við William White eftir Ambrose Evans-Pitchard, viðskiptaritstjóra hjá The Telegraph í London, á samnefndri vefsíðu. Fyrirsögn við- talsins var: World finance now more dangerous than in 2008, warns central bank guru, eða: Varnaðarorð seðlabankagúrús: Staða heimsfjármálanna hættulegri núna en 2008. William White er fyrrverandi aðalhagfræðingur BIS, Alþjóða- greiðslumiðlunarbankans, í Basel. Evans-Pitchard segir að White búi í Sviss og gegni formennsku endurskoðunarnefndar OECD. Skoðun hans er í stuttu máli að stjórnvöld séu föst í gildru sem þau hönnuðu sjálf með því að auka peningamagn í umferð. Vegna þessa hafi fé til neyðaraðgerða ár- um saman „lekið“ til nýmarkaðs- landa án þess að tekið hafi verið á kerfislægum vanda. Þetta fé leki ekki endalaust. „Allar vísbendingar á mörkuðum líkjast mjög því sem við sáum fyrir Lehman-kreppuna en svo virðist sem menn hafi gleymt að draga lærdóm af henni,“ segir William White. Ávallt þegar innistæðulaus sveifla nái hámarki ríki smitandi bjartsýni, fólk blindist af góðu fréttunum og sannfæri sjálft sig um að áhætta minnki en einmitt á því stigi séu verstu mistökin gerð. Vísbendingar um ofviðrið séu jafn- litlar nú og árið 2007, rétt áður en stormurinn feykti öllu um koll. Að baki býr vandi vegna þess sem á ensku er nefnt quantitative easing, skammstafað QE. Einfald- ast er að skýra það með íslenska orðinu seðlaprentun, það er seðla- bankar auka peningamagn í um- ferð t. d. með því að kaupa ríkis- skuldabréf samhliða lækkun vaxta í von um að ýta undir hagvöxt. William White segir: „Seðlabankar hafa hellt olíu á eldinn. Eiga stjórnvöld nú að óska sjálfum sér til hamingju með þeim rökum að kerfið sé öruggara en áður? Enginn veit hvað gerist þeg- ar dregið verður úr QE. Á mörk- uðunum ættu menn að gæta sín vegna þess að margt er brothætt. Lyfjafyrirtæki verða lögum sam- kvæmt að gera tilraunir til að kanna að lyf hafi ekki óviljandi af- leiðingar áður en þau eru sett á markað en seðlabankar hefja viða- mikla félagslega tilraun með QE án þess að huga nægilega vel að hliðarverkunum.“ Ekki hefði verið staldrað sér- staklega við orð þessa ágæta Whites nema vegna þess sem sagði í grein eftir Hannes Hólmstein Gissurarson prófessor hér í blaðinu miðvikudaginn 17. janúar. Þar seg- ir að 31. júlí 2008 hafi kanadískur hagfræðingur, William White, heimsótt Ísland og Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóri, boðið honum til kvöldverðar í Perlunni. Hannes Hólmsteinn segir: „Þeir röbbuðu saman um ástand- ið á fjármálamörkuðum. White taldi mikla andstöðu við að bjarga bönkum með almannafé en það yrði samt að lokum gert: „Það er búið að ákveða að einn stór banki verður látinn fara á hausinn, það verða Lehman-bræður, og síðan eitt land og það verðið þið.“ Davíð spurði hissa: „Hvað ert þú búinn að fá þér marga gin og tonic?“ White svaraði: „Aðeins einn.““ Skyldu hafa verið lagðar við hlustir þegar White talaði í fjalla- loftinu í Davos? Eftir Björn Bjarnason » Flestir Davos-gesta nefndu „geópólitíska áhættu“, með öðrum orðum stöðuna í heimsmálum og óviss- una sem þar ríkir. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Ótti vegna áhættutíma á Davos-þingi 2018

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.