Morgunblaðið - 26.01.2018, Síða 41

Morgunblaðið - 26.01.2018, Síða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2018 Söngvarinn, laga- og textahöfund- urinn Mark E. Smith, forsprakki hinnar goðsagnakenndu rokksveitar The Fall, er látinn, sextugur að aldri. The Fall er ein merkasta síðpönk- sveit bresku rokksenunnar. Hún var stofnuð í Manchester árið 1976 og kom fyrst fram á tónleikum í maí 1977. Fyrsta hljómplatan, hin rómaða Live at the Witch Trials kom út árið 1979. The Fall hefur verið starfrækt nær óslitið frá stofnun en tekið mikl- um breytingum; tæplega fimmtíu hljóðfæraleikarar hafa komið við þá sögu á rúmlega fjörutíu árum en eini fastinn í starfseminni hefur verið leið- toginn Smith sem hefur oft verið áberandi í tónlistarpressunni – og ekki síður vegna frétta af slarki, skrautlegu líferni og harðstjórn við reksur sveitarinnar en frétta af tón- listinni sjálfri. The Fall sendi frá sér 32 hljóm- plötur en auk þess hefur verið gefinn út fjöldi „sjóræningjaútgáfa“ af tón- leikum sveitarinnar. Þá var Smith alla tíð iðinn við tónleikahald ásamt félögum sínum. Lék oft á Íslandi Mark E. Smith hélt tónleika hér á landi með The Fall. Í fyrstu heimsókn hljómsveitarinnar árið 1981 kom hún fram á þrennum tónleikum, í Austur- bæjarbíói og á Hótel Borg og vöktu þeir mikla athygli í íslenska nýbylgju- vorinu, enda viðburður að hljómsveit í fremstu röð bresku senunnar kæmi til landsins. Félagarnir voru þá í viku hér á landi og hljóðrituðu nokkur lög í Hljóðrita í Hafnarfirði og komu þau árið eftir út á hljómplötunni Hex En- duction Hour sem margir telja með bestu plötum sveitarinnar. Ísland kemur við sögu í lögunum, eitt heitir „Iceland“, og í því syngur Smith um þá upplifun að verða útúrdrukkinn á Íslandi og hverfa þannig inn í hópinn. Þess má og geta að á umslagi plöt- unnar eru myndir frá Íslandi, þar á meðal mynd af Ásmundi Jónssyni, sem stóð að tónleikum sveitarinnar ásamt Einari Erni Benediktssyni. Árið 1983 hélt The Fall aftur tón- leika í Austurbæjarbíói, æði eftir- minnilega þeim sem voru viðstaddir, og sveitin þá strax í nokkuð breyttri mynd, með tvo trommara. Í nóvember 2004 var The Fall enn á ferðinni og kom í þriðja skipti fram í Austurbæ, eins og hið fyrrverandi bíó var þá kallað, og síðan á rómuðum tónleikum á Grand Rokki. Og síðustu tónleikar The Fall hér á landi voru síðan á hátíðinni All Tomorrow’s Parties á Ásbrú árið 2013. Rýnir Morgunblaðsins lýsti þeim með þess- um orðum: „Smith fór á kostum á sviðinu og ef hann var ekki í mjög annarlegu ástandi þá er hann mjög góður leikari. Á köflum var það þó orðið heldur pínlegt þegar hann var farinn að andskotast í hljóðfærum hljómsveitarmeðlima sinna við litla hrifningu þeirra en mikla kátínu tón- leikagesta. Sveitin komst þó vel frá sínu og lýðurinn var ánægður.“ Þess má geta að Mark E. Smith var gestur í einu laga Ghostigital, „Not Clean“, sem var gefið út 2005. Frumkvöðull fallinn  Mark E. Smith í The Fall látinn Morgunblaðið Rokkflæði Mark E. Smith ásamt félögum í The Fall á sviði Austurbæjarbíós árið 1983. Sveitin flutti þá aðallega ný lög í löngum og hráum útgáfum. Morgunblaðið/Sverrir Leiðtoginn Mark E. Smith á sviði Austurbæjarbíós með nýjum liðsmönnum The Fall árið 2004. Hann stjórnaði sveitinni ætíð með harðri hendi. Yfir 1.100 leikarar, leikstjórar og höfundar af báðum kynjum innan danska sviðslista- og kvikmynda- bransans hafa skrifað undir stefnu- yfirlýsingu þar sem þau heita því að uppræta kyn- ferðislega áreitni og ofbeldi í bransanum. Frá þessu greinir Politiken. Meðal þeirra sem skrifa undir eru Ghita Nørby, Sofie Grå- bøl, Trine Dyr- holm, Iben Hjejle, Nikolaj Coster- Waldau, Nicolas Bro og Pilou As- bæk. Undirskriftalistinn, sem ber yfir- skriftina #Time’sUp, kemur í kjölfar þess að konur í danska sviðslista- og kvikmyndabransanum deildu í haust sín á milli um 500 reynslusögum í lokuðum Facebook-hóp, sem marg- ar hverjar voru lesnar upp á sviði í Kaupmannahöfn 10. desember. Í frétt Politiken er á það bent að viðbrögð fólks í danska sviðslista- og kvikmyndabransanum komi mun seinna en annars staðar á Norður- löndum. „Það er ekkert launungar- mál að ákveðið fum og ringulreið hefur einkennt bransann enda hefur fólk ekki verið sammála um hversu alvarlegt ástandið er,“ segir hand- ritshöfundurinn Søren Frellesen, einn þeirra sem skrifa undir listann. „Mikið hefur verið rætt um það eigi enn að vera pláss fyrir við- reynslu og það verður að vera. En þegar kemur að vinnuumhverfinu finnst mér einboðið að enginn má þukla á rassi annars eða reyna að fara í sleik við aðra. Sérstaklega ekki ef valda- hlutföllin eru ójöfn.“ Stefnuyfirlýs- ingin inniheldur áskorun til stjórnenda stofn- ana, skóla, leik- húsa, fram- leiðslufyrirtækja og sjónvarpsstöðva um að koma upp verklagsreglum til að sporna við kynferðislegri áreitni og ofbeldi. Kitte Wagner, leikhússtjóri og list- rænn stjórnandi hjá Þjóðleikhúsinu í Malmö, er ein þeirra sem skrifa und- ir yfirlýsinguna. Hún segir mjög mikilvægt fyrir vinnustaði að inn- leiða verklagsreglur. „Danmörk er aftarlega á merinni þegar kemur að þessu. Á mínum vinnustað í Svíþjóð er stefnan ljós og kveðið á um það í starfsmannahandbókinni hvernig skuli brugðast við kynferðislegri áreitni,“ segir Wagner og bendir á að þó það sé aldrei auðvelt fyrir stjórnendur að þurfa að taka á svona málum þá séu verkferlarnir skýrir. „Ég hef sjálf þurft að taka á svona máli. Fyrst fær viðkomandi áminn- ingu og við næsta brot uppsögn. Auðvitað þarf maður að setja sig vel inn í málin og ræða ítarlega við alla hlutaðeigendur.“ Yfir 1.100 undirrita stefnuyfirlýsingu Kitte Wagner Søren Frellesen Sífellt fleiri Hollywood-stjörnur sækjast nú eftir hlutverkum í sjónvarpsþáttum og hefur stór- leikkonan Meryl Streep nú bæst í hóp þeirra en hún mun fara með hlutverk í framhaldi þáttaraðar- innar Big Little Lies sem HBO- sjónvarpsstöðin framleiðir. Reese Witherspoon og Nicole Kidman snúa aftur í þáttaröðina en Streep mun fara með hlutverk Mary Louise Wright, móður Perry Wright sem Alexander Skarsgård lék í fyrstu þáttaröð- inni. Perry lést undir lok þátt- anna og móðir hans mun hafa áhyggjur af velferð barna hans en móður þeirra leikur Kidman. Mary Louise leitar svara við því hvernig andlát sonar hennar bar að og má því búast við mikilli dramatík. Þáttaröðin Big Little Lies hlaut átta Emmy-verðlaun og fern Golden Globe-verðlaun í vetur og þótti framleiðendum tilefni til að framleiða aðra þáttaröð. Sú fyrsta var byggð á skáld- sögu ástralska rithöfundarins Liane Moriarty en handritshöf- undar þurfa nú að skálda fram- haldið. Streep hefur hlotið 21 til- nefningu til Óskarsverðlauna, oft- ar en nokkur annar leikari eða leikkona og hlotið þau þrisvar. Hún hefur á ferli sínum sópað að sér verðlaunum og tilnefning- arnar skipta hundruðum. Streep leikur í framhaldi Big Little Lies Meryl Streep ICQC 2018-20 Miðasala og nánari upplýsingar 5% NÝ VIÐMIÐ Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR DOLBY ATMOS LUXURY · LASER Sýnd kl. 6, 9 Sýnd kl. 3.30, 5.50 Sýnd kl. 8, 10.15 Sýnd kl. 7.50, 10.30 Sýnd kl. 5 Sýnd kl. 3.30

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.