Morgunblaðið - 03.02.2018, Page 1

Morgunblaðið - 03.02.2018, Page 1
Er tími fyrir bækur? Í sæluvímuá sviðinu Púður hefur nú verið sett í að auka lestraráhuga barna og unglinga en samkeppni um athygli þeirra hefur aldrei verið meiri. Sérfræðingar eru þó bjartsýnir á að bókin muni áfram lifa blómlegu lífi meðal bókaþjóðarinnar 14 4. FEBRÚAR 2018SUNNUDAGUR sa keppir íkíðagöngu á ÓL El s Njóta sín fyrir norðanMexíkósku fótboltakonurnar Stephany og Bianca í Þór/KA gætu vel hugsað sér að setjast að á Akureyri 16 Fyrsta konan fyrir Íslandshönd í sinni grein 24 Jónsi í Svörtumfötum segirþá félaga íhljómsveitinnihafa mótastmeð sígandilukku 2 L A U G A R D A G U R 3. F E B R Ú A R 2 0 1 8 Stofnað 1913  29. tölublað  106. árgangur  #égætla að fara í göngutúra 21.995 GARMIN VIVOSMART 3 0100175500 FRÁ ELD- SPÝTUM TIL AUÐLEGÐAR GÖTUSALA Í HRÖÐUM VEXTI BORGARBRAGUR VIÐSKIPTAJÖFUR 12 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samanlagt voru um 6.550 börn með erlent móðurmál í íslenskum leik- skólum og grunnskólum árið 2016. Það eru fleiri börn en nokkru sinni. Þessi fjöldi samsvarar því að átt- unda hvert leikskólabarn og ellefta hvert grunnskólabarn hafi verið með erlent móðurmál árið 2016. Tölur fyrir 2017 liggja ekki fyrir. Kristrún Sigurjónsdóttir, kennsluráðgjafi fjölmenningar í Hafnarfirði, segir nemendum með erlent móðurmál hafa fjölgað í fyrra. Koma jafnvel án fylgdar „Hingað eru að koma börn lengra að sem flóttamenn, eða eftir hælis- meðferð. Þau koma jafnvel fylgdar- laus. Sum börnin hafa jafnvel aldrei verið í skóla. Námslegur og menn- ingarlegur bakgrunnur er ólíkur. Við þurfum að nálgast viðfangsefnið á annan hátt og veita þeim meiri stuðning til lengri tíma. Hér í Hafnarfirði hefur verið staðið ágæt- lega að þessu. Það hafa verið ákveðnar úthlutunarreglur varðandi erlenda nemendur en fjölgun nem- enda kallar á meira umfang og auk- inn stuðning til framtíðar.“ »10 Börnin aldrei fleiri  Metfjöldi barna með erlent móðurmál Morgunblaðið/Sigurður Bogi Í skóla Erlend börn í íslenskum skólum hafa aldrei verið fleiri.  „Á fyrstu árum þessarar aldar var niðursveifla en síðan er eins og botninum hafi verið náð og leiðin liggi upp á við á ný; að minnsta kosti ef marka má tvær síðustu mælingar 2011 og 2015. Aukningin er svo sem ekki gríðarleg en nóg til þess að við getum ályktað sem svo að börn og unglinga langi ennþá til að lesa.“ Þetta segir Brynhildur Þórarins- dóttir, rithöfundur og dósent við kennaradeild Háskólans á Akureyri í umfjöllun í Sunnudagsmogganum um lestraráhuga íslenskra barna og unglinga. Þykir Brynhildi, sem leiðir starfsemi Barnabókaseturs, full ástæða til bjartsýni í þessum efnum. Undir það tekur Ævar Þór Benediktsson, rithöfundur og leik- ari, en hann hefur undanfarin miss- eri staðið fyrir lestrarátaki Ævars vísindamanns í grunnskólum. „Ef marka má nýjustu kannanir og þau viðbrögð sem ég fæ þegar ég mæti í skólana og spjalla við börnin þá virðist stór hluti þeirra vera að lesa. Og það sem meira er, þau eru að lesa sér til ánægju en ekki bara vegna þess að þau eiga að gera það í skólanum. Þannig viljum við auðvitað hafa það – bókaorma úti um allt,“ segir Ævar Þór. Lestraráhugi barna að aukast á nýjan leik Morgunblaðið/Ásdís Bjartsýnn Ævar Þór Benediktsson segir íslensk börn vera að lesa sér til ánægju. Þorsteinn R. Hermannsson, samgöngustjóri Reykja- víkur, segir hugmyndir um að byggja bílastæðahús á Ártúnshöfða fyrir farþega borgarlínu. Slík hús séu vel þekkt erlendis. Þau tengi umferð í úthverfum við miðborgir með hágæðakerfi almenningssamgangna. „Þessar hugmyndir eru á frumstigi. Þetta hefur verið gert víða, t.d. í Strassborg í Frakklandi. Fólk sem er að koma lengra að getur þá lagt í bílastæða- hús við endastöð og farið með viðkomandi kerfi áfram. Það er þó ekki þannig að Ártúnsstöðin verði endastöð. Skipulag á Ártúnshöfðanum gerir ráð fyrir að þar geti komið bílastæðahús.“ »14 Bílastæðahús við línuna Dæmi um borgar- línuvagna erlendis. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þessi vandi sem við er að etja er samfélagsvandi. Sú þjóð sem nær ekki að búa til kennara til að mennta börnin okkar, hún á auðvit- að í vanda,“ segir Lilja Alfreðs- dóttir menntamálaráðherra. Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær kynnti Lilja áform sín um átak til að sporna við fækkun menntaðra kennara hér. „Eins og staðan er núna þá erum við að horfa á tví- þættan vanda. Annars vegar að menntaðir kennarar eru ekki að bætast í hóp kennara heldur að finna sér annað starf. Hins vegar að þeir sem hefja kennslu að loknu námi hverfa oft á tíðum til annarra starfa. Þetta brotthvarf er tals- vert,“ segir Lilja sem hyggur á stofnun aðgerðahóps á vegum menntamálaráðuneytisins. Þar verði leitað eftir samstarfi við Kennarasambandið, Samband sveitarfélaga, menntavísindasvið HÍ og kennaranema. „Kennaraforystan og háskóla- samfélagið hafa áður fjallað um þennan bráðavanda, eins og ég vil kalla hann. Samráðshópur skilaði tillögum til ráðuneytisins um hvern- ig fjölga megi kennurum. Þar á með- al voru tillögur um hvernig búa megi til efnahagslega hvata í gegnum LÍN og um námsstyrki – það er einnig áskorun fyrir okkur að fá fleiri í kennaranám,“ segir Lilja sem vill ekki fara nánar út í hvernig slík- ar hugmyndir yrðu framkvæmdar. Af orðum hennar að dæma virðist þó að umræddir hvatar myndu einnig beinast að útskrifuðum kennurum. „Vinna við útfærslur og hug- myndir er ekki komin nógu langt til að ég geti útlistað þær nákvæmlega. Þær þurfa að vera margþættar, þær þurfa að snúa að náminu, þær þurfa að snúa að því að bæta aðbúnað þeirra sem eru í starfinu og að þeim sem horfið hafa úr stéttinni.“ „Efnahagslegir hvatar“ til að halda í kennara  Aðgerðahópur taki á „bráðavanda“ í kennarastétt  Mikið brotthvarf Harpa skartaði sínu fegursta í gærkvöldi, en á glerhjúpi hennar var af- hjúpað ljósaverkið Hjarta eftir Þórð Hans Baldursson og Halldór Eldjárn. Verkið er til komið vegna Hjartagöngunnar, samstarfsverkefnis Vetrar- hátíðar í Reykjavík og samtakanna GoRed. Gengið var frá Skólavörðuholti að Hörpu og með göngunni var vakin athygli á hjartasjúkdómum kvenna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Björt og fögur hjörtu prýddu glerhjúp Hörpu Vitundarvakning um hjartasjúkdóma kvenna  Nasa-salurinn svonefndi við Thorvaldsensstræti í Reykjavík verður rifinn á næstunni og síðan endurbyggður í upprunalegri mynd í samráði við sérfræðinga Minja- stofnunar. Byggingarfulltrúi borgarinnar hefur samþykkt að heimila niðurrifið, en eftir er að veita leyfi fyrir öðrum verkþáttum þannig að framkvæmdir hefjast ekki fyrr en í vor. Stefnt er að því að byggingin verði tilbúin til notk- unar á næsta ári. Nasa-salurinn, sem er viðbygg- ing frá 1942 við gamla timburhúsið frá 1878 við Thorvaldsensstræti 2, var friðlýstur af forsætisráðherra í desember 2013. Upphaflega stóð til að rífa bygginguna og var friðlýs- ingin viðbrögð við háværum mót- mælum. „Salurinn er mjög illa farinn, byggður úr lélegu efni árið 1942 og samkvæmt deiliskipulagi þarf að sökkva honum um það bil tvo metra niður í jörðina til að uppfylla hljóð- kröfur,“ segir Benedikt Ingi Tómasson verkfræðingur, verk- efnastjóri á Landssímareitnum. Endurbyggingin er hluti af fram- kvæmdum við nýtt hótel á vegum Icelandair á staðnum en það á einn- ig að vera tilbúið á næsta ári. »20 Nasa-salur rifinn og endurbyggður Tölvuteiknuð mynd Nasa Þannig verður salurinn eftir að honum verður komið í upprunalegt horf. 21

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.