Morgunblaðið - 03.02.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2018
• Bindivír 1 mm U hankir og rúllur 1.4 mm
• Fjarlægðarstjörnur og steinar 20-50 mm
• Plastlistar á undirslegnar plötur,
einnig harðir
• U listar á ull eða plasteinangrun
• Járnstólalengjur, sterkir og góðir stólar
frá 50 mm
• Mótarör og kónar 10–50 mm
• Öryggishlífar á kambstál,
listar og sveppir
Járnabakkar
Járnabindingavörur
Erum með á lager
allar helstu gerðir af járnabökkum
Vír og lykkjur ehf
www.viroglykkjur.is - viroglykkjur@internet.is
772-3200/692-8027
Landsmenn hafa búið við óvenju-gott efnahagsástand á undan-
förnum misserum og gildir þá einu
hvort borið er saman við söguna
eða önnur ríki.
Þetta er afaránægjulegt,
en boginn hefur
verið spenntur
mjög og þess
vegna eru blikur
á lofti nú. Það er
ekki sjálfgefið að
hægt verði að
halda áfram á sömu braut og órói á
vinnumarkaði gæti meðal annars
orðið til að efnahagslífið beygði
verulega af leið.
Laun hafa hækkað mikið á síð-ustu árum og kaupmáttur og
velferð almennings með, en engu
að síður heyrast raddir um að allt
of skammt hafi verið gengið. Slíkt
óraunsæi getur skapað mikla
hættu. Ríkisvaldið getur stuðlað að
stöðugleika og stutt við atvinnulífið
í að halda uppi atvinnu og vexti,
ekki síst með skattalækkunum. Svo
virðist hins vegar sem stjórnmála-
menn hafi engar áhyggjur af
ástandinu eða áhuga á stóru mynd-
inni þegar kemur að þjóðarhag.
Dag eftir dag er þrasað á þingium mál sem löngu eru full-
rædd og hefur sú umræða engan
tilgang annan en að skapa uppnám
og óróa eins og fram hefur komið á
vef pírata og víðar að er tilgangur
herferðarinnar.
Ábyrgðarleysið er með öðrumorðum algert, en kominn er
tími til að þingmenn hætti einskis-
verðu upphlaupi og ræði raunveru-
leg hagsmunamál landsmanna.
Hafi þeir engan áhuga á þeimættu þeir að finna sér annan
starfa.
Forgangsröðun í
þágu þrassins
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 2.2., kl. 18.00
Reykjavík 3 skúrir
Bolungarvík 3 skýjað
Akureyri 3 skýjað
Nuuk -8 skýjað
Þórshöfn 3 skýjað
Ósló -7 léttskýjað
Kaupmannahöfn 2 rigning
Stokkhólmur -1 snjókoma
Helsinki 1 skýjað
Lúxemborg 2 skúrir
Brussel 3 léttskýjað
Dublin 6 skýjað
Glasgow 6 léttskýjað
London 6 skúrir
París 6 skúrir
Amsterdam 5 skúrir
Hamborg 3 súld
Berlín 4 rigning
Vín 4 skýjað
Moskva -2 snjóél
Algarve 14 heiðskírt
Madríd 6 léttskýjað
Barcelona 11 heiðskírt
Mallorca 9 léttskýjað
Róm 13 rigning
Aþena 14 léttskýjað
Winnipeg -20 snjókoma
Montreal -16 léttskýjað
New York -2 léttskýjað
Chicago -11 léttskýjað
Orlando 21 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
3. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:02 17:22
ÍSAFJÖRÐUR 10:22 17:12
SIGLUFJÖRÐUR 10:06 16:54
DJÚPIVOGUR 9:35 16:48
Umboðsmaður Alþingis hefur sent
bréf til 25 aðila innan stjórnsýslunn-
ar til að kanna hvernig staðið er að
upplýsingagjöf, leiðbeiningum og
túlkun vegna sístækkandi hóps út-
lendinga sem hér dvelja og tala ekki
íslensku.
Segir á vef umboðsmanns að í mál-
um sem komið hafa til kasta embætt-
isins undanfarið hafi komið í ljós að
útlendingar eigi stundum í erfiðleik-
um með að fá svör og leiðbeiningar
frá stjórnvöldum á tungumáli sem
þeir skilja. Dæmi séu um að útlend-
ingar hafi orðið of seinir að leggja
fram stjórnsýslukæru þar eð kæru-
leiðbeiningar voru eingöngu á ís-
lensku.
Meðal þeirra sem umboðsmaður
óskar upplýsinga frá eru Vinnumála-
stofnun, Sjúkratryggingar Íslands,
Þjóðskrá, Útlendingastofnun, dóms-
málaráðuneytið, velferðarráðuneyt-
ið og yfirvöld velferðarmála og
skóla- og frístundamála hjá tiltekn-
um sveitarfélögum, til að mynda
Reykjavíkurborg, Reykjanesbæ og
Akureyrarbæ.
Umboðsmaður óskar eftir upplýs-
ingum um það hvernig brugðist er
við erindum sem berast á öðrum
tungumálum en íslensku og hvernig
brugðist er við óskum um að viðkom-
andi sé útvegaður túlkur eða óskum
um þýðingar.
Veittur er frestur til 16. febrúar til
svara en í kjölfarið mun umboðsmað-
ur meta hvort tilefni sé til frekari at-
hugunar á þessu málefni.
hdm@mbl.is
Kannar hvernig staðið er að
upplýsingagjöf og túlkun
Umboðsmaður Alþingis kannar stöðu útlendinga á Íslandi
Morgunblaðið/Hari
Húsbygging Kanna á upplýsinga-
gjöf fyrir útlendinga hér.
Alls voru 1.621 fiskiskip á skrá
hjá Samgöngustofu í lok árs 2017
og hafði þeim fækkað um 26 frá
árinu áður. Fiskiskip eru flokkuð
í þrjá flokka hjá Samgöngustofu,
opna báta, togara og vélskip.
Vélskip voru alls 735 og sam-
anlögð stærð þeirra var um
92.460 brúttótonn. Þeim fækkaði
um 12 á milli ára. Togarar voru
alls 44, einn bættist við á milli
ára, nokkur endurnýjun varð í
flotanum og voru sex nýir smíð-
aðir árið 2017. Heildarstærð tog-
araflotans var 61.841 brúttótonn í
árslok 2017 og hafði aukist um
9.425 tonn frá ársbyrjun. Opnir
fiskibátar voru alls 842 og
samanlögð stærð þeirra var 4.154
brúttótonn. Þeim fækkaði um 15
milli ára. Á síðustu fimm árum
hafa 70 ný skip bæst við fisk-
veiðiflotann, átta skuttogarar, 37
vélskip og 25 opnir bátar.
70 ný fiskiskip
síðustu fimm ár
Stjórn strætó bs. samþykkti á
stjórnarfundi fyrirtækisins í gær að
leyfa farþegum að taka gæludýr með
sér í strætó. Ekki liggur fyrir hve-
nær leyfið tekur gildi, en það mun til
að byrja með gilda í eitt ár.
Ráðuneyti umhverfis og auðlinda-
mála féllst fyrr í vikunni á að veita
Strætó undanþágu í ár frá banni við
því að dýr séu flutt í almennum far-
þegarýmum samgöngutækja að
undanskildum hjálparhundum.
„Næstu skref eru að uppfylla
ákveðin skilyrði sem ráðuneytið
setti fyrir okkur. Við þurfum að
setja ýmsar merkingar og skoða þrif
á vögnunum betur,“ sagði Guðmund-
ur Heiðar Helgason, markaðs- og
upplýsingafulltrúi Strætó, í samtali
við mbl.is í gær.
Leyfið nær til hunda, katta, nag-
dýra, fugla, kanína, froska, skraut-
fiska, skriðdýra og skordýra svo
framarlega sem dýrin eru leyfð hér-
lendis sem gæludýr.
Strætó sam-
þykkir gælu-
dýr í vagna