Morgunblaðið - 03.02.2018, Page 10

Morgunblaðið - 03.02.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2018 H a u ku r 0 1 .1 6 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is • Arðsamt fyrirtæki með langa reynslu sem flytur inn og selur véltæknibúnað aðallega tengdum sjávarútvegi, fiskeldi, en einnig öðrum iðnaði. Velta undanfarin ár hefur verið á bilinu 150-200 mkr. og EBITDA 25-40 mkr. • Þekkt verslun með tölvur, síma og fylgihluti á frábærum stað. Velta yfir 300 mkr. • Vel innréttað kaffihús í miðbæ Reykjavíkur. Tækifæri fyrir öfluga aðila að byggja enn frekar upp. • Fjölskyldufyrirtæki sem vinnur að hönnun, prentun og framleiðslu vara og lausna til fyrirtækja. Velta um 70 mkr. og hátt hagnaðarhlutfall. • Gott hótel miðsvæðis á Suðurlandi sem býður upp á mikla möguleika fyrir áhugasaman, nýjan eiganda. • Sérhæfð fiskvinnsla í vönduðu 350 fm. leiguhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Velta um 260 mkr. Hagnaður af rekstri. • Verslun sem byggir á erlendri skartgripalínu með tvær verslanir í borginni. Stöðugur rekstur og góð afkoma. • Gott fyrirtæki með áratuga sögu sem sérhæfir sig í vélaviðgerðum og sölu varahluta sem það flytur sjálft inn. Velta nokkuð stöðug undanfarin ár og jákvæð afkoma. • Nýtt, lítið og sérlega fallegt hótel í Reykjanesbæ. Fær mjög góða dóma á bókunarsíðum. Yfir 90% nýting. • Hótelfasteign á Norðausturlandi. Um er að ræða 17 herbergja hótel á stórri lóð með mikla stækkunarmöguleika. Herbergi hafa nýlega verið endurnýjuð. Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Þórarinn Arnar Sævarsson fasteignaráðgjafi, thorarinn@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hæstaréttarlögmaður, sigurdur@kontakt.is Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Söngur er skemmtilegur og við vilj- um fá fólk með í þá gleði. Það á ekki síst við um yngra fólk sem er ekki vant sömu sönghefð og hinir eldri, þó auðvitað sé oft sungið í partíum og útilegum. Á söngstundinni í Hannesarholti um helgina veljum við nokkur skemmtileg lög, vörpum textunum á tjald og svo taka allir undir og syngja með,“ segir Jóhann Vilhjálmsson söngvari. Á morgun, sunnudaginn 4. febrúar kl. 14, verð- ur í Hannesarholti við Grundarstíg í Reykjavík söngstund sem Jóhann og Gunnar Kr. Sigurjónsson stýra. En tökum fyrst forspil og ætt- fræði. Jóhann er sonur Vilhjálms heitins Vilhjálmssonar flugmanns og söngvara sem er föðurbróðir Gunn- ars. Faðir Gunnars er Sigurjón Vil- hjálmsson flugvirki, nú 93ja ára, og föðursystir þeirra Jóhanns og Gunn- ars er söngkonan Elly heitin Vil- hjálms – sem um er söngleikurinn sem gengið hefur fyrir fullu hús í Borgarleikhúsinu síðasta árið eða svo. Þessi þrjú systkini, og tveir bræður til viðbótar, voru frá Merki- nesi í Höfnum á Reykjanesskaga. Í tónlist alla sína tíð „Sum þeirra laga sem við ætlum að flytja söng pabbi á sínum tíma og hafa lifað með þjóðinni í áratugi. En þarna verða reyndar fleiri lög tekin eins og eftir KK, Magnús Eiríksson og fleiri og til dæmis Barn – lagið fallega sem Ragnar Bjarnason samdi við ljóð Steins Steinars,“ segir Jóhann Vilhjálmsson sem hefur ver- ið viðloðandi söng og tónlist alla sína tíð. Hann byrjaði ungur í kór við Breiðholtsskóla í Reykjavík, var seinna í Kór Menntaskólans við Hamrahlíð, Mótettukór Hallgríms- kirkju og svo mætti áfram telja. Á síðasta ári gekk Jóhann svo til liðs við Karlakórinn Fóstbræður í tengslum við aldarafmæli kórsins. „Að vera í kór er ekki bara að syngja; það er líka góður félags- skapur og samfélag við fólk,“ segir Jóhann. Hann er jafnframt í hópi Fóstbræðrafélaga sem nú hafa myndað með sér tólf manna sönghóp sem þeir nefna Fósturvísarnir, og hafa komið fram við ýmis tilefni að undanförnu og sungið ýmis lög af léttara taginu. Þá hefur Jóhann sungið einsöng með Fóstbræðrum, sem nú æfa fyrir sína árlegu vor- tónleika, Ameríkuferð og fleira, Ómögulegt að stíga í hans spor Þrátt fyrir að hafa verið syngjandi allt sitt líf hefur Jóhann lítið komið fram opinberlega einn og sjálfur. „Þetta voru örfá skipti fyrr á ár- um en fyrst lét ég til leiðast haustið 2008 þegar haldnir voru minning- artónleikar en þá voru 30 ár frá því faðir minn lést. Þá sungum við Jónsi saman lagið Lítill drengur – og svo komu nokkrir viðburðir eftir það svo sem tónleikar með Óskari Péturs- syni, Þuríði Sigurðardóttur, Friðriki Ómari og fleirum. Einnig stóð ég fyrir tónleikum á Rósenberg þar sem ég fékk til liðs við mig meðal annara gömlu félaga pabba; Pálma Gunnarsson, Gunnar Þórðarson og Magnús Kjartansson,“ segir Jóhann og heldur áfram. „Annars tel ég að þegar til staðar er sterk fyrirmynd einsog faðir minn sé ómögulegt að stíga í hans spor. Á fullorðinsárum hef ég sætt mig við það og stíg því fram sem ég sjálfur en ekki bara sem sonur Vilhjálms. Lögin sem hann söng tengjast lífi fólks á svo margan hátt og margir eiga um þau bæði minningar sem erfitt er fyrir aðra að stíga inn í.“ Söngstundin í Hannesarholti er sú þriðja sem Jóhann og Gunnar standa fyrir. Hinar tvær voru í fyrra og heppnuðust vel. Hafa nokkrar samkomur í svipuðum anda verið haldnar í Hannesarholti síðustu ár og undirtektir verið góðar. Frændur í Hannesarholti  Jóhann Vilhjálmsson og Gunnar Sigurjónsson leiða söng- stund  Músík frá Merkinesi  Lög Vilhjálms og Ellyar Morgunblaðið/Árni Sæberg Tónlist Gunnar K. Sigurjónsson og Jóhann Vilhjálmsson á æfingu í vikunni. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Um 4.150 grunnskólabörn á Íslandi voru með erlent móðurmál árið 2016. Að auki voru um 2.400 leikskólabörn með erlent móðurmál sama ár. Samanlagt voru um 6.550 skóla- börn með erlent móðurmál árið 2016, eða fleiri en nokkru sinni í sögunni. Hagstofan tekur saman gögn um þetta. Tölur fyrir árið í fyrra munu ekki birtast fyrr en seint á þessu ári. Til samanburðar voru alls 44.527 grunnskólabörn og 19.090 leikskóla- börn árið 2016. Hlutfall barna með erlent móðurmál var því 9,3% í grunnskólum og 12,6% í leikskólum. Metfjöldi innflytjenda Aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru um 7.900 fleiri en brott fluttir í fyrra, eða fleiri en nokkru sinni. Kristrún Sigurjónsdóttir, kennslu- ráðgjafi fjölmenningar í Hafnarfirði, segir börnum með erlent móðurmál hafa fjölgað töluvert í Hafnarfirði fyrra. „Þetta er stórt samfélagslegt verkefni. Inn- flytjendum er að fjölga og þeim mun fjölga áfram í framtíðinni. Nú eru börn innflytjenda um það bil 10% grunnskólabarna og 20% leikskóla- barna í Hafnarfirði. Þau eiga eftir að verða fleiri. Við þurfum að byggja þeirra grunn, nám og aðlögun vel upp til þess að þau eigi möguleika á því að skapa sér framtíð og standa jafnfætis öðrum börnum.“ Byrjað að fjölga á ný Kristrún segir nemendum með er- lent móðurmál hafa fjölgað töluvert á síðustu árum. Þá bæði í leikskólum og grunnskólum bæjarins. „Þeim hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu ár eftir lægð í kjölfar hrunsins. Skól- arnir eru að styrkja sig í að taka á móti nemendum á öllum aldri og hvaðanæva úr heiminum. Þetta er áskorun í öllum skólum og bæjar- félögum þar sem erlendum nemend- um fjölgar,“ segir Kristrún. Helst í hendur við stuðninginn Hún segist vera til ráðgjafar fyrir leik- og grunnskóla um málefni er- lendra barna. Hún segir námsárang- ur erlendu barnanna oftast haldast í hendur við stuðninginn sem þau fá. „Við reynum að tryggja að börnin fái góðan stuðning í náminu. Það þarf að auka þekkingu á málaflokkn- um og tryggja fjármagn til að börnin fái eins mikinn stuðning og þau þurfa. Þau þurfa töluvert mikinn stuðning, sérstaklega í byrjun. Við erum líka að fá breiðari nemenda- hóp,“ segir Kristrún. Aldrei fleiri börn verið með erlent móðurmál  Metfjöldi barna í grunnskólum og leikskólum árið 2016 Fjöldi barna í leikskólum 1998-2016*** *Með móðurmáli er átt við það tungumál sem barnið lærir fyrst, er því tamast og talað er á heimili þess, stundum aðeins af öðru foreldri. **Frá árinu 2008 eru tölur um ríkisfang byggðar á upplýsingum úr þjóðskrá en fram að þeim tíma á skýrslum skólanna. *** Börn í leikskólanum á Kárahnjúkum árin 2004-2006 ekki meðtalin. Heimild: Hagstofa Íslands. 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 Með erlent móðurmál* Höfuðborgarsvæði Landsbyggð Með erlent ríkisfang** Allt landið ’98 ’99 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 Samtals 2.410 Samtals 572 1. 20 6 1.608 802 15 9 192 380 Grunnskólanemendur með erlent móðurmál* 4.000 3.000 2.000 1.000 0 60% 50% 40% 30% 20% ’97 ’98 ’99 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 Samtals 4.148 Samtals 377 Höfuðborgarsvæði Landsbyggð** Hlutfall utan höfuðborgarsvæðis Fjöldi nemenda 1997-2016 *Með móðurmáli er átt við það tungumál sem barnið lærir fyrst, er því tamast og talað er á heimili þess, stundum aðeins af öðru foreldri. **Árin 2004-2006 voru auk þess 8-10 nemendur í Kárahnjúkaskóla. Heimild: Hagstofa Íslands. 48% 35% 1.469 180 2.679 197 Kristrún Sigurjónsdóttir „Söngskemmtanir í Hannesarholti, eru frábært framtak,“ segir Gunnar Kr. Sigurjónsson. „Íslendingum finnst almennt gaman að syngja, sér- staklega þessi gömlu, góðu lög sem allir kunna. Sjálfur er ég í hljómsveit- inni PRIMA, ásamt Guðmundi Pálssyni gítarleikara, og við spiluðum til dæmis á þorrablóti um síðustu helgi. Þar sungu allir hressilega með“ Gunnar nefnir að hann fór nýlega á sýninguna um Elly föðursystur sína í Borgarleikhúsinu, þar sem Raggi Bjarna kom inn í lokin og fékk áhorf- endur til að syngja. „Og allir tóku undir, rétt eins og gerist í Hannesar- holti,“ segir Gunnar sem leikur á hljómborð á skemmtuninni á morgun. Bætir við að hann komi af tónlistarheimili. Sigurjón faðir hans hafi leikið á harmoniku og mikil tónlist hafi verið á heimilinu. Gunnar starfar starfar við útlitshönnun og hefur stundað töfrabrögð frá 9 ára aldri. Er einn stofnfélaga Hins íslenska töframannagildis og er í erlendum félögum eins og The Magic Circle, sem er konunglegt bandalag töframanna með höfuðstöðvar í Bretlandi. Íslendingum finnst gaman að syngja TÖFRAMAÐURINN ÆTLAR AÐ SPILA Á HLJÓMBORÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.