Morgunblaðið - 03.02.2018, Page 15

Morgunblaðið - 03.02.2018, Page 15
KRABBAMEINSFÉLAGIÐ SKORAR Á SVEITARSTJÓRNARFÓLK AÐ GEFA LÝÐHEILSU MEIRA VÆGI OG EFLA FORVARNIR GEGN KRABBAMEINUM, MEÐALANNARS MEÐ ÞVÍ AÐ: - banna reykingar á opinberum svæðum sveitarfélaga - hvetja til betri nýtingar svæða sem ætluð eru til hreyfingar og útivistar - hvetja til frekari hreyfingar hjá börnum með því að gefa hreyfingu meira vægi í skólastarfi - bjóða upp á hollan mat í leik- og grunnskólum - auðvelda einstaklingum sem búa við þröngan efnahag að stunda fjölbreytta hreyfingu KRABBAMEINSFÉLAGIÐ SKORAR EINNIG Á ÞINGMENN OG RÍKISSTJÓRN AÐ BEITA SÉR FYRIR BÆTTRI LÝÐHEILSU MEÐALANNARS MEÐ ÞVÍ AÐ: - halda áfram vinnu sem hafin var við krabbameinsáætlun og ljúka henni hið fyrsta - banna reykingar á almannafæri - setja skýra stefnu og aðgerðaáætlun í tóbaksvörnum og lög um rafrettur - hefja skimun fyrir ristilkrabbameini - tryggja að áfengisauglýsingar verði áfram bannaðar og koma í veg fyrir duldar áfengisauglýsingar Krabbameinsfélag Íslands skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir forvörnum sem felast meðal annars í hvatningu til heilbrigðra lífshátta MIKILVÆGT ER AÐ YFIRVÖLD SÝNI FRUMKVÆÐI OG STUÐLI ÞANNIG AÐ ÞVÍ AÐ FÆRRI GREINIST MEÐ KRABBAMEIN - SAMFÉLAGINU ÖLLU TIL HAGSBÓTA ÁSKORUN KRABBAMEINSFÉLAGS ÍSLANDS TIL STJÓRNVALDA Í T ILEFNI ALÞJÓÐLEGA KRABBAMEINSDAGSINS 4. FEBRÚAR 2018 UNDIRSKRIFTASÖFNUN Krabbameinsfélagið stendur fyrir undirskriftasöfnun þar sem skorað er á stjórnvöld að grípa til aðgerða og láta verkin tala. Hægt er að skrifa undir á heimasíðu félagsins www.krabb.is. OPIÐ HÚS Við bjóðum almenning velkominn í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík í tilefni af alþjóðlega krabbameinsdeginum sunnudaginn 4. febrúar kl. 13:00-15:00. Kynning á starfsemi í húsinu fer fram í Ráðgjafarþjónustu og á Leitarstöð þar sem meðal annars má skoða endurnýjaðan tækjabúnað til leitar að brjóstakrabbameini. Allir velkomnir. PERLAÐ AF KRAFTI Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur þeirra, fagnar deginum einnig með viðburði í Hörpu kl. 13:00-17:00 þar sem almenningi er boðið að taka þátt í lokahnykk fjáröflunarátaks félagsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.