Morgunblaðið - 03.02.2018, Page 21

Morgunblaðið - 03.02.2018, Page 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2018 tengslum við annan viðburð. Slík lest erlendis frá hefur eitt sinn komið til landsins. Fyrirspurnir hafa verið í gangi og innlendir sem og erlendir söluaðilar eru spenntir fyrir sumrinu.  Á svokölluðum „hverfa- svæðum“ sem eru svæðin utan við miðborgarkjarnann geta alls fimm Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Götu- og torgsala hefur vaxið hröð- um skrefum í höfuðborginni á undanförnum árum. Hún er sér- staklega öflug á fögrum sumar- dögum í miðborginni. Ný samþykkt um götu- og torgsölu tók gildi 6. desember 2017 og nú eru í boði sex kostir varðandi götu- og torgsölueyfi, samkvæmt upplýsingum frá Jóni Halldóri Jónassyni, upplýsingafulltrúa hjá Reykjavíkurborg. Framboð undanfarin ár hefur verið breytilegt og sama má segja um eftirspurn og því er ýmsum vandkvæðum bundið að bera sam- an árlegan fjölda söluaðila, segir Jón Halldór aðspurður. Nýir val- kostir verða boðnir nú í fyrsta sinn í sumar og eftirspurn eftir þeim því með öllu óþekkt. Fjöldi þeirra sem fengið hafa leyfi til torgsölu árlega undanfarin ár er sem hér segir:  Rúmlega 20 aðilar hafa ver- ið með ársleigu á nætur- og dag- sölusvæðum vegna matsölu, t.d. á Lækjartorgi.  40-50 aðilar hafa verið með markaðsleyfi – einyrkjar. Leigð hafa verið út svæði á Bernhöfts- torfu, Ingólfstorgi og Lækjartorgi, leigutímabil var áður minnst einn mánuður. Nú í ár var bætt við nýju svæði, Frakklandi (efst á Frakka- stíg), leigutímabil er nú minnst tveir mánuðir og starfsárið er frá 1. apríl til 1. nóvember ár hvert.  Þá var einnig bætt við nýj- um leyfisflokki til sölu í almenn- ingsgörðunum Klambratúni, Hljóm- skálagarði og í Laugardal. Sex aðilar geta sótt um leyfin sem ganga undir nafninu „Sumarsala“ og starfsárið er frá 15. maí til 15. september ár hvert.  Á stærri viðburðum, 17. júní, Reykjavík Pride og á Menn- ingarnótt, hafa verið veitt leyfi fyr- ir torgsölu. Rúmlega 10 leyfi hafa verið veitt á hverjum viðburði.  Í boði er að leigja land og halda svokallaðan „Stærri mark- aðsviðburð“ þar sem t.d. erlendir aðilar koma með óþekktan fjölda söluvagna og stilla upp á torgum og selja þar vörur sínar og þjón- ustu. Einnig geta innlendir aðilar tekið sig saman og haldið „Street food“-viðburð þar sem saman kem- ur óþekktur fjöldi söluvagna annað- hvort á sérstökum viðburði eða þá í söluaðilar leigt sér land til afnota á sama hverfasvæðinu. Enn sem komið er hafa svæðin ekki verið leigð út. Opnað verður fyrir úthlutun á nýjum leyfum fyrir götu- og torg- sölu þriðjudaginn 15. febrúar kl. 9 á vef Reykjavíkurborgar og þarf að vera með virkt aðgengi að „Mínum síðum“ í Rafrænu Reykjavík til að geta sótt um. Umsóknir verða afgreiddar í þeirri röð sem þær berast og ræð- ur það forgangi við úthlutun. Reglan „fyrstur kemur fyrstur fær“ er þannig í gildi. Umsóknir sem berast fyrir 15. febrúar eru ekki gildar. Götu- og torgsala hef- ur vaxið hratt Morgunblaðið/Ómar Lækjartorg Á fögrum sumardögum hópast áhugasamt fólk að sölubásum. Ferðamenn kunna að meta þjónustuna.  Sex valkostir í boði  Brátt opnað fyrir umsóknir um leyfi  Áhugi í útlöndum LífrænGrísk jógúrt Lífrænar mjólkurvörur m ag gi te ik na ri. is Góð beint úr dósinn i og í eftirrétti og sós ur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.