Morgunblaðið - 03.02.2018, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2018
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Breskar konur fengu kosningarétt
fyrir hundrað árum eftir áratuga-
langa baráttu, meðal annars herferð
Súffragettanna svokölluðu sem
beittu róttækari aðferðum en aðrar
kvenréttindakonur.
Á þriðjudaginn kemur verður öld
liðin frá gildistöku breskra laga sem
veittu konum yfir þrítugu kosninga-
rétt, að uppfylltum ákveðnum skil-
yrðum. Um átta milljónir breskra
kvenna gátu þá kosið í fyrsta skipti
en það var ekki fyrr en tíu árum síð-
ar sem þær fengu sama kosninga-
rétt og karlmenn.
Sagnfræðingar eru ekki á einu
máli um hversu mikla þýðingu rót-
tækar aðferðir Súffragettanna
höfðu fyrir baráttu breskra kvenna
fyrir kosningarétti og kjörgengi.
Sumir þeirra telja að þáttur kvenna
í fyrri heimsstyrjöldinni á árunum
1914-18 hafi haft meiri áhrif á það að
konur fengu loks þennan rétt.
Tímaritið Time setti Emmeline
Pankhurst, stofnanda hreyfingar
Súffragettanna, á lista yfir hundrað
mikilvægustu menn 20. aldar árið
1999.
„Harðskeytt barátta [Súffragett-
anna] var algerlega nauðsynleg til
að flýta því að konur fengju kosn-
ingarétt,“ hefur fréttaveitan AFP
eftir Kristu Cowman, prófessor í
sagnfræði við Lincoln-háskóla í
Bretlandi. „Áður hafði verið háð
friðsamleg barátta í 50 ár og hún
hafði ekki borið neinn árangur.“
Íkveikjur og sprengjur
Á þessum tíma höfðu kvenrétt-
indakonur m.a. beitt þeirri aðferð að
kalla fram í fyrir körlum þegar þeir
fluttu ræður á framboðsfundum og
krefjast svara við því hvenær konur
fengju rétt til að kjósa. Súffragett-
urnar hófu baráttu sína árið 1903
með mótmælagöngum en tóku síðan
að hlekkja sig við grindverk og
fleira, brjóta rúður verslana, kveikja
í póstkössum og skera símalínur.
Þær kveiktu í mannlausum húsum
þekktra manna í samfélaginu og
sumar þeirra tóku að beita litlum
sprengjum árið 1913 án þess að
valda manntjóni. Ein sprengingin
olli skemmdum á bústað sem verið
var að reisa fyrir fjármálaráðherra
landsins, að því er fram kemur á
breska sagnfræðivefnum History
House.
Ein súffragettanna, Emily Davi-
son, kastaði sér fyrir hest konungs-
ins á árlegum veðreiðum í Derby í
júní 1913. Hún dó af meiðslum sín-
um nokkrum dögum síðar.
Margar súffragettur voru hneppt-
ar í fangelsi en þær héldu barátt-
unni áfram þar með því að neita að
borða. Matur var þá þvingaður ofan
í margar þeirra, stundum með svo
harkalegum hætti að þær biðu þess
aldrei bætur. Þessu ofbeldi var hætt
árið 1913 þegar sett voru lög sem
heimiluðu yfirvöldunum að láta
súffragettur lausar ef þær urðu
veikburða vegna mótmælasveltis en
fangelsa þær aftur þegar þær náðu
sér.
Pankhurst var handtekin ellefu
sinnum. Hún stöðvaði aðgerðirnar
þegar fyrri heimsstyrjöldin hófst ár-
ið 1914 til að styðja Bretland í stríð-
inu.
Súffragetturnar sem flýttu
fyrir kosningarétti kvenna
100 ár frá því að konur fengu kosningarétt í Bretlandi eftir langa baráttu
Árið sem konur fengu kosningarétt
Nokkur önnur lönd
Konur yfir þrítugu,
að uppfylltum ákveðnum
skilyrðum. Konur fengu
kosningarétt án
skilyrða árið 1928
Fyrstu löndin
Konur og kosningarétturinn
Heimild:Worldatlas
Bretland
Ástralía
Sádi-Arabía
Finnland*
Danmörk/Ísland Noregur
Nýja-
Sjáland
Barein
Óman
2005
Kúveit
Sameinuðu arabísku furstadæmin
Katar
2002
1994
2006
1998
2011
Frakkland
1944
19131915
1893
1906
1902
1918
*Stórfurstadæmið Finnland
Nýsjálendingar fyrstir
» Bretland var ekki fyrsta
landið sem veitti konum
kosningarétt. Nýja-Sjáland
reið á vaðið með það árið
1893 og síðan komu Ástralía
árið 1902, Finnland 1906 og
Noregur 1913.
» Íslenskar konur 40 ára
og eldri fengu kosningarétt
og kjörgengi til Alþingis
1915.
» Á árunum 1914-40 fengu
konur kosningarétt í nær 30
löndum, m.a. Sovétríkjunum
1917, Þýskalandi 1918 og
Bandaríkjunum 1920.
» Konur í Sviss fengu ekki
að taka þátt í kosningum til
þings landsins fyrr en árið
1971. Tuttugu árum síðar
voru konur komnar með
kosningarétt í öllum sveitar-
stjórnar- og kantónukosn-
ingum í landinu. Konur í
arabalöndum þurftu að bíða
enn lengur.
AFP
Jafnréttisbarátta Femínistar, klæddar sem Súffragettur, á mótmælagöngu
við þinghúsið í Lundúnum þegar þær mótmæltu kynjamisrétti.
The Wall Street Journal segir að
bandarískir leyniþjónustumenn hafi
fylgst með Carter Page, fyrrverandi
ráðgjafa Donalds Trumps, í a.m.k.
þrjú ár áður en alríkislögreglan FBI
óskaði eftir heimild sérstaks dóm-
stóls til að halda áfram eftirliti með
honum haustið 2016 þegar hann var
Trump til ráðgjafar í utanríkis-
málum.
Fjallað er um beiðni FBI og dóms-
málaráðuneytisins um eftirlitið í
minnisblaði sem Devin Nunes, for-
maður leyniþjónustunefndar fulltrúa-
deildar þingsins, skrifaði og birt var í
gær. Þar heldur Nunes því fram að
embættismenn FBI og ráðuneytisins
hafi blekkt dómara sem fjallaði um
beiðnina. Þeir hafi ekki sagt honum
að beiðnin byggðist m.a. á gögnum
sem hafi ekki verið staðfest. Nunes
skírskotar til upplýsinga frá fyrrver-
andi breskum leyniþjónustumanni,
Christopher Steele. Margir hafa
dregið þessar upplýsingar í efa og
skýrt hefur verið frá því að Steele
fékk greiðslur frá rannsóknafyrir-
tæki sem Hillary Clinton, forsetaefni
demókrata, hafði fengið til að afla
upplýsinga sem gætu skaðað Trump.
Staðfestu upplýsingarnar
Fréttaveitan Reuters hefur hins
vegar eftir ónafngreindum heimildar-
mönnum að minnisblað Nunes sé vill-
andi vegna þess að bandarískir leyni-
þjónustumenn hafi staðfest allar
upplýsingar sem fram hafi komið í út-
dráttum sem lagðir voru fyrir dóm-
arann.
The Wall Street Journal segir að
heimildin til eftirlitsins hafi byggst á
fleiri gögnum en þeim sem komu frá
Steele. Blaðið segir að bandarískir
gagnnjósnarar hafi byrjað að fylgjast
með Carter Page ekki síðar en árið
2013, tæpum þremur árum áður en
hann varð ráðgjafi Trumps.
Page bjó í Moskvu í þrjú ár frá
2004 og opnaði þar útibú fyrir fjár-
festingarbankann Merrill Lynch &
Co. Hann var einnig ráðgjafi í við-
skiptum sem tengdust rússneskum
ríkisfyrirtækjum, m.a. orkufyrirtæk-
inu Gazprom.
Page fór nokkrum sinnum til Rúss-
lands árið 2016 en neitar því að hann
hafi verið milligöngumaður milli að-
stoðarmanna Trumps og rússneskra
stjórnvalda. bogi@mbl.is
Höfðu fylgst með ráðgjafa
Trumps í minnst þrjú ár
Gera þurfti hlé á
síðustu réttar-
höldunum yfir
bandaríska lækn-
inum Larry
Nassar í gær eft-
ir að faðir
þriggja stúlkna,
sem Nasser hafði
beitt kynferðis-
legu ofbeldi,
réðst að honum í
réttarsalnum. Réttarhöldin héldu
áfram tuttugu mínútum síðar.
Nassar var læknir bandaríska
fimleikalandsliðsins og að minnsta
kosti 265 fimleikastúlkur hafa sak-
að hann um kynferðislegt ofbeldi,
þeirra á meðal nokkrar sem hafa
unnið til verðlauna á Ólympíu-
leikum. Hann fékk 40 til 175 ára
fangelsisdóm 24. janúar fyrir kyn-
ferðisbrot gegn stúlkum og á yfir
höfði sér 20-40 ára dóm til viðbótar
í réttarhöldunum sem standa nú
yfir. Áður var hann dæmdur í sex-
tíu ára fangelsi fyrir að eiga barna-
klám.
Um 35 stúlkur sögðu frá kyn-
ferðisbrotum læknisins fyrir rétti í
Charlotte í Michigan-ríki í gær og
30 á miðvikudag þegar réttarhöldin
hófust.
BANDARÍKIN
Réttað vegna kyn-
ferðisbrota læknis
gegn tugum stúlkna
Larry Nassar