Morgunblaðið - 03.02.2018, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.02.2018, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2018 Umræða um fram- tíðarstaðsetningu Landspítalans er há- vær þessa dagana og hefur reyndar verið það undanfarin ár. Töluvert er búið að teikna, spá og spek- úlera varðandi út- færslur á núverandi reit sem Landspítalinn starfar á. „Handjárnuð umræða um staðsetn- ingu“ er yfirskriftin á þessum grein- arstúf mínum því þannig upplifi ég stemninguna þessi dægrin. Það eru einhverjir búnir að ákveða að það megi ekki, eða borgi sig ekki, ræða um aðra möguleika, hversu skyn- samlegir sem þeir nú eru. Þeir vilja frekar byggja upp á núverandi stað, með tilheyrandi óþægindum fyrir daglega starfssemi meðan á fram- kvæmdum stendur. Rökin þurfa að vera mjög sterk fyrir óbreyttri stað- setningu, hræðsluáróður um að það að fara með spítalann annað tefji mál- ið um 10 ár finnst mér mjög lang- sóttur, svo ekki sé dýpra tekið í ár- inni. Eftir að hafa íhugað hvaða kostir eru í stöðunni þá trúi ég því ekki að það tefjist um áratug að fá nýtt þjóð- arsjúkrahús þó ákveðin verði ný stað- setning. Það eru svo ótalmargir kost- ir sem myndu hljótast af því að þora, eða vilja, að taka samtalið og síðan að taka af skarið varðandi það að færa aðalstarfs- stöð Landspítalans í út- jaðar höfuðborgarsvæð- isins, líkt og gert var þegar núverandi spítali var reistur. Þá var hann settur í útjaðar byggð- arinnar, ekki „troðið“ inn í miðborgina, með tilheyrandi óþægindum á allan hátt svo við töl- um nú ekki um umferð, bílastæði og áfram mætti telja. Það að hanna nýjan spítala á nýj- um stað skapar einnig ótrúlega dýr- mætt tækifæri til þess að hanna stofnunina út frá ýtrustu þörfum hverrar einingar frá grunni. Ný stað- setning eykur möguleika á faglegri nálgun og skapar tækifæri til hag- ræðingar í rekstri. Núverandi stefna, og staðsetning þar með, viðheldur óhagræði á allan hátt með því að vera að „klastra“ saman gömlu og nýju á spítalalóðinni með tilheyrandi óvissu varðandi það hve mikið fram- kvæmdir og endurbætur á eldra hús- næði komi til með að kosta þjóð- arbúið. Það þarf og verður að horfa á stað- setningu nýs þjóðarsjúkrahúss út frá þeim sem þurfa á þjónustunni að halda og einnig þeim sem sinna henni. Þar sem rætt er við fagfólk, bæði sem starfar á Landspítala, sem og þá sem sjá um sjúkraflutninga og læknisþjónustu úti á landi, virðast mjög margir vera sammála um að núverandi staðarval og staðsetning sé ekki eins góð og vera skyldi. Rétt er einnig að nefna að okkur íbúum þessa lands er stöðugt að fjölga, það verður að vera svigrúm til frekari stækkana í tímans rás þar sem spít- alinn verður settur niður, það pláss er ekki á því útnesi sem núverandi spítali stendur á, landrýmið í kring er afar takmarkað. Þorum að hugsa málið lengra, handjárnum ekki umræðuna, okkar frábæra fagfólk á spítalanum á betra skilið, umferðin á höfuðborgarsvæð- inu á betra skilið og þjóðfélagið á það skilið að það sé þorað að ræða hlutina út frá því hvað kemur sér best, fag- lega og rekstrarlega, til lengri tíma. Handjárnuð umræða um staðsetningu? Eftir Björn Bjarka Þorsteinsson Björn Bjarki Þorsteinsson » Það eru svo ótal- margir kostir sem myndu hljótast af því að þora, eða vilja, að taka samtalið og síðan að taka af skarið varðandi staðsetningu... Höfundur er forseti sveitarstjórnar í Borgarbyggð. Kynbótanautið svarar loks háðsglósum grínist- anna með hoppi og hnykk og setur keng á kúna gamli fjósamaðurinn tannar hana umsvifalaust horfir svo íbygginn upp í garrann þarna dugði þrautaráðið að kitla eyrað á bolanum hlæi þeir nú! Kýrin eina í fjósi kotbóndans varð að fá fang. Þurfti því að sækja naut handa Ljómalind hve- nær sem hún krafðist. Og mikil var ánægjan þegar vel tókst til og jafnvel bakaðar lummur. Hér var líka hamingjan í húfi, að börnin ættu vísa mjólk að ári. En það var ekki alltaf gleðin. Því fengu fjölskyldurnar á Álfs- stöðum í Hrafnsfirði að kynnast veturinn 1903. Báðir fjölskyldu- feðurnir, ungir menn, urðu úti á Skorarheiði í óveðri. Voru þeir þá á heimleið, eftir að þeir höfðu skilað nauti í Furufjörð. Í mínum uppvexti þurfti víða á bæjum að leiða kýrnar, en ekki voru það langar bæjarleiðir. Þetta var áður en sæðingar urðu almennar og sérfræð- ingar komu snyrtilega klæddir á drossíum á bæina og höfðu hratt á hæli. Reyndar voru marg- ir sérfræðingar í þess- um efnum. Var betra að láta kúna snúa undan halla eða öfugt? Svo var um að gera að kýrin hellti ekki úr sér. Eldri karlarnir klipu þá oft í herðakamb kýrinnar og einn sá ég bíta til öryggis. Svo var gripið til ýmissa ráða ef bolinn var daufur. Það var ansi leiðinlegt að híma yfir þessu í nöpru veðri. Einu sinni leysti karl- inn sem hirti nautið þrautina með því að snerta örsnöggt eyrað á nautinu sem hoppaði þá og kláraði dæmið með sóma. Ég kom eitt sinn í gamla daga í fjósið hjá bónda sem þá bjó í Borgarfirði. Þar voru margar fal- legar kýr og myndarlegur ungur boli á innsta básnum. Bóndinn sagði mér þessa sögu: Ég vil helst halda naut en nú er ég að gefast upp á því að vera einn við þetta. Kálfurinn er orðinn svo mikill fyrir sér. Um daginn þurfti til dæmis að halda einni kúnni um kvöld í svartamyrkri. Ég hef þann hátt á að láta bol- ann elta kúna út og svo aftur inn þegar hann er búinn. Þetta hafði alltaf blessast en kálfgreyið var þó sífellt tregari að koma inn aftur en vildi bara leika sér. Ég gat þó allt- af látið hundinn koma honum inn. Svo var það þarna um daginn að bolinn kom ekki inn en hvarf út í myrkrið. Það var blíðuveður, hlýtt en blautt. Ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að fara út úr fjósinu en beið inni því ég heyrði að hundurinn var farinn að glíma við bolann. Heyrði ég í þeim ýmist hér upp við fjósið eða niður um allt tún. Þeir voru alltaf á fullri ferð og líka hér framhjá fjósdyrunum. Svo veit ég ekki fyrr en að bolinn kemur á mikilli ferð inn í fjós og beint á básinn sinn, blásandi móður. Hundurinn var hins vegar sigri hrósandi í dyrunum. Ég sparaði ekki við hann hrós og klapp og hann er rígmontinn síðan. Morguninn eftir sá ég að tún- brekkan var illa farin eftir rennsl- in á bolanum. það voru rispur um allt eins og plógför því orðið var nokkuð þítt ofan á klakanum.“ (Heimild: Eyjólfur Jónsson, Vestfirskir slysadagar, fyrra bindi, 1996.) Fyrir daga frjótæknanna Eftir Helga Kristjánsson »Hér var líka ham- ingjan í húfi, að börnin ættu vísa mjólk að ári. Helgi Kristjánsson Höfundur býr í Ólafsvík. Páll Vilhjálmsson moggabloggari birti einkar athyglisverðan pistil á bloggi sínu 15. janúar síðastliðinn undir heitinu „Löðrungur vek- ur Palestínumenn“. Þar lýsir hann í fáum en hnitmiðuðum orðum ástæðu þess að stans- laus úlfúð og ófriður er á milli arabanna sem lifa í Palestínu og Ísraels- manna. Eins og segir í pistlinum: „Ráðamenn í Palestínu lifa í vellyst- ingum praktuglega á erlendri þróunaraðstoð samtímis sem þeir kynda undir hatri á nágrönnum sín- um og efna til ofbeldisverka.“ Lög nr. 19 Lýsandi dæmi um þetta eru lög nr. 19, lög sem ríkisstjórn Palestínu- araba setti árið 2004 með viðbótum 2013, lög sem heita „Amended Palestinian Prisoners Law No. 19 (2004)“. Samkvæmt þessum lögum fær hver sá arabi sem ræðst á al- menna borgara í Ísrael með því t.d. að sprengja þá í loft upp, stinga þá með hníf, skjóta eða keyra niður á bíl laun fyrir viðvikið frá stjórnvöldum í Pal- estínu. Sem sagt hrein- ræktaðir blóðpeningar. Þetta eru ekki óskrifuð lög, eða munnlegt lof- orð, þetta er skrifaður og sam- þykktur lagabókstafur. Lögin segja að hver sá sem fremur svona glæp fái; ókeypis skólagöngu, ókeypis starfsþjálfun og auknar líkur á góðu starfi hjá yfirvöldum araba í Palestínu. Til viðbótar þessu þá fá þeir sem fremja glæpinn og þurfa að sitja í fangelsi greidda 400 dollara í laun á mánuði ef dómurinn er þyngri en fimm ár hjá körlum og þyngri en tvö ár hjá konum. Launin geta verið allt frá 400 dollurum á mánuði að 3.400 dollurum á mánuði og fer eftir eðli glæpsins. Þeim mun meiri mann- legum skaða sem glæpurinn veldur, þeim mun hærri er upphæðin sem sá sem framdi glæpinn fær. Maður spyr sig sí svona. Hvaða heilvita yfirvöldum dettur í hug að setja svona lagað inn í sína löggjöf. Friðelskandi yfirvöldum? Ekkert hálfkák Lög nr. 19 eru ekki dautt blek á blaði heldur virk lög. Framkvæmd þeirra er hjá sérstöku ráðuneyti sem heitir „Palestinian Ministry of Prison- ers“ og er áætlað að yfir 500 opinberir starfsmenn sjái um framkvæmd lag- anna. Fátækt er kúgunartæki Yfirvöld araba í Palestínu halda þegnum sínum í fátækt svo auðveld- ara sé að næra þá á hatri. Halda lög- um nr. 19 sérstaklega að ungu fólki, þó ekki sínum eigin börnum, til að vekja von hjá þeim um betri tíð ef þeir fremji nógu illan glæp. Það er sem sagt mjög arðsamt að fremja ill- virki og ná að drepa eða særa sem flesta. Þökk sé lögum nr. 19. Hvað ætli það séu margir hér á landi sem kunnugt er um þessi lög og framkvæmd þeirra? Palestínumenn – lög nr. 19 Eftir Magnús Ægi Magnússon »Maður spyr sig sí svona. Hvaða heil- vita yfirvöldum dettur í hug að setja svona lagað í sína löggjöf. Friðelsk- andi yfirvöldum? Magnús Ægir Magnússon Höfundur er rekstrarhagfræðingur og friðarsinni. Vöðva eða liðverkir? Voltaren Gel er bæði verkjastillandi og bólgueyðandi Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. 15% afsláttu r af 100g og 150 g Voltare n Gel www.apotekarinn.is - lægra verð Voltaren Gel - njótum þess að hreyfa okkur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.