Morgunblaðið - 03.02.2018, Side 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2018
✝ Björn Ey-steinn Jó-
hannesson fædd-
ist í Felli í
Sléttuhlíð 29. nóv-
ember 1923. Hann
lést á Dval-
arheimilinu á
Sauðárkróki 16.
janúar 2018.
Foreldrar hans
voru Jóhannes
Skúlason, f. 16.11.
1893, d. 11.8. 1968, og Sig-
urlaug Guðný Jónsdóttir, f.
13.9. 1901, d. 8.3. 1936.
Systkini hans eru Guðni Ósk-
ar, f. 1925, látinn, Þuríður
Sveina, f. 1926, látin, Sigrún
Guðný, f. 1929, Steinþóra, f.
1931, Magnús Ingiberg, f.
1933, látinn, Unnur f. 1935.
Eiginkona Eysteins var
Hrefna Svanhvít Þiðranda-
dóttir frá Ólafsfirði, f. 5.11.
1930, d. 2.7. 2013. Eysteinn
og Hrefna giftust 13. septem-
ber 1955 í Keflavík. Þau eign-
uðust átta börn, 1) Guðmund-
ur Gísli Björnsson, f. 26.6.
1955, maki Ragnheiður Karls-
dóttir, f. 26.6. 1955, börn: a)
Karen Dagmar, f. 1978, maki
Þórarinn, þrjú börn. b) Ívar
Smári, f. 1980, sambýliskona
Þóra, eitt barn, c) Guð-
unnusti Jökull Þorri, f. 1996,
c) Þórey Líf, f. 1998, d) Mar-
vin Þór, f. 2002. 6) Unnur
Erla Björnsdóttir, f. 6.11.
1968, sambýlismaður Arnar
Magnús Friðriksson, hún á
tvö börn, a) Guðni Már, f.
1987, b) Vordís Elfa, f. 1989,
hún á fjögur börn. 7) Svan-
hvít Guðmundsdóttir, f. 14.12.
1972, maki Kjartan Elíasson,
f. 22.11. 1962, þrjú börn, a)
Hugljúf María, f. 1995, b) Sig-
mundur Elías, f. 2000, c)
Kjaran Jón, f. 2002. 8) Fjóla
Björnsdóttir, f. 3.3. 1976, tvö
börn, a) Magnús Freyr, f.
1995, b) Jón Páll, f. 2002.
Björn Eysteinn var alltaf
kallaður Eysteinn, hann var
bóndasonur á Geirmundarhóli
í Sléttuhlíð í Skagafirði
fyrstu árin. Fór ungur að
vinna ýmis störf, m.a. vöru-
bílstjóri, leigubílstjóri og
einnig vinnumaður á mjólk-
urbúinu Hóli á Siglufirði.
Þegar Eysteinn og Hrefna
hófu sambúð sína í Keflavík
flutti Guðný móðir Hrefnu til
þeirra þeim til halds og
trausts og til að hjálpa til
með börnin. Eysteinn og
Hrefna fluttu norður í Skaga-
fjörð haustið 1963, í Stokk-
hólma og voru með búskap og
voru þar til ársins 2000 er
þau fluttu í Varmahlíð og
þaðan á dvalarheimilið á
Sauðárkróki í mars 2013.
Útför Eysteins fer fram frá
Sauðárkrókskirkju í dag, 3.
febrúar 2018, klukkan 14.
mundur Karl, f.
1984, maki Lilie,
tvö börn. 2) Sig-
urlaug Jóhanna
Björnsdóttir, f.
24.6. 1956, maki
Finnbogi Elías-
son, f. 2.12. 1960,
börn Sigurlaugar
eru: a) Björn Ey-
steinn, f. 1972,
maki Inga Pála,
tvö börn. b)
Guðný Hrefna, f. 1974, maki
Haraldur Karl, fjögur börn
og tvö barnabörn, 3) Guðni
Björnsson, f. 20.8. 1957, maki
Katla Lóa Ketilsdóttir, f.
28.8. 1960, börn: a) Edda Þór-
ey, f. 1976, tvö börn, eitt
barnabarn, b) Heiða Þor-
valdsdóttir, f. 1979, d. 2015,
hún lætur eftir sig eitt barn,
c) Jóhannes Skúli, f. 1983,
þrjú börn. d) Stefán Rúnar, f.
1985, eitt barn. 4) Sigríður
Björnsdóttir, f. 21.9. 1962,
tvö börn, a) Þorsteinn Ragn-
ar, f. 1981, b) Halldór Valur,
f. 1984. 5) Eyrún Björns-
dóttir, f. 2.12. 1966, maki Jó-
hann Steinþór Sigurðsson, f.
17.5. 1965, fjögur börn, a)
Viðar Logi f. 1987, maki
Hulda Guðbjörg, f. 1990, þrjú
börn. b) Ólöf María, f. 1996,
Í dag kveðjum við þig með
söknuði, elsku afi.
Við viljum þakka þér fyrir
öll góðu árin sem við fengum
að hafa þig hjá okkur. Stund-
irnar sem við áttum með ykkur
ömmu eru orðnar að minning-
um. Heimsóknirnar í Varma-
hlíð voru alltaf góðar, enda var
alltaf vel tekið á móti okkur.
Við gleymum aldrei ferðunum í
Lödunni niður í hænsnakofann
í Lauftúni, þær voru alltaf
skrautlegar og skemmtilegar.
Stundirnar sem við áttum sam-
an voru alltaf yndislegar og
gott var að koma í heimsókn til
þín, elsku afi.
Nú ertu kominn á betri stað,
staðinn sem er alltaf gott að
vera á. Okkur langar að kveðja
þig með þessu ljóði sem segir
hug okkar allra:
Á litlum skóm ég læðist inn
og leita að þér, afi minn.
Ég vildi að þú værir hér
og vært þú kúrðir hjá mér.
Ég veit að þú hjá englum ert
og ekkert getur að því gert.
Í anda ert mér alltaf hjá
og ekki ferð mér frá.
Ég veit þú lýsir mína leið
svo leiðin verði björt og greið.
Á sorgarstund í sérhvert sinn
ég strauminn frá þér finn.
Ég Guð nú bið að gæta þín
og græða djúpu sárin mín.
Í bæn ég bið þig sofa rótt
og býð þér góða nótt.
(S.P.Þ.)
Minning þín lifir í hjörtum
okkar.
Þín barnabörn,
Ólöf María, Þórey Líf og
Marvin Þór.
Aldraður nágranni og vinur
hefur kvatt. Hvíldin var honum
kær. Langur vinnudagur að
baki. Kaflaskipti urðu í lífi
þeirra hjóna er þau hættu bú-
skap í Stokkhólma og fluttu í
Varmahlíð. Þessum breyttu að-
stæðum tók Eysteinn vel. Nú
átti hann sinn tíma sjálfur. Þá
hófust okkar kynni. Það var
lærdómsríkt að kynnast Ey-
steini og heyra sögu hans, fyrir
það er ég þakklát.
Hann lærði á unglingsárum
að spila brids og hafði nýtt vel
þau tækifæri er hann fékk til
þess í amstri daganna. Hér
sótti hann spiladaga hjá Félagi
eldri borgara og var fastagest-
ur á Löngumýri. Eysteinn
naut þessa félagsskapar og
margir voru tilbúnir að greiða
götu hans þegar hann hætti að
keyra. Fyrir það má þakka.
Segja má að Lauftún, hjá
Indu og Villa, hafi um tíma
verið hans annað heimili. Þar
hafði hann aðstöðu fyrir smá
hænsnabú. Þau hjón reyndust
honum mjög vel og Inda send-
ir sínar bestu kveðjur og þakk-
ir fyrir allar góðu stundirnar.
Önnur kaflaskipti urðu í lífi
þeirra hjóna er þau fluttu á
Dvalarheimilið á Sauðárkróki.
Einnig þar var Eysteinn minn
sáttur og bar gæfu til þess að
taka þátt í starfinu þar. Vænst
þótti honum um stundirnar hjá
Stefáni Petersen. Þeirra naut
hann ríkulega.
Hversdagshetjan okkar hef-
ur lokið sínu dagsverki. Við
þökkum fyrir samfylgdina.
Sjáum hann líta yfir Vallhól-
mann. Þarna er Stokkhólmi,
baðaður í skagfirskri kvöldsól-
inni og fegurðin engu lík.
Hann þakkar fyrir sig.
Guð blessi minningu Ey-
steins. Fjölskyldu hans votta
ég samúð mína.
Helga Bjarnadóttir.
Drengurinn frá Geir-
mundarhóli í Hrolleifsdal er
genginn á vit feðra sinna.
Það var í byrjun stórhríðar
að Sigurlaug Jónsdóttir,
vinnukona að Felli í Sléttuhlíð,
kenndi sín. Er leið á vöku eln-
aði henni sóttin og fór svo að
Hólmfríður Sigtryggsdóttir
húsfreyja í Felli tók á móti
drengnum, þar sem ekki hafði
tekist að ná í Sigríði Halldórs-
dóttur ljósmóður. Litli snáðinn
dafnaði vel þrátt fyrir erfið
kjör foreldranna og þar kom
sögu að hann gekk til sinna
fyrstu starfa utan æskuheim-
ilis.
Það var haust, lyngmóarnir
og fjallshlíðarnar skörtuðu
sínum fegurstu haustlitum og
kyrrðin var dásamleg. Hann
rölti kunnar götur Sléttuhlíðar
að Reykjarhóli á Bökkum,
hugsaði til æskuáranna, sem
nú voru senn að baki en í huga
hans gætti jafnframt eftir-
væntingar um það, sem biði
hans í framtíðinni.
Eysteinn dvaldi ekki lengi í
heimabyggð og freistaði víða
gæfunnar eins og títt var og er
um marga unga menn. Hann
var áræðinn og fljótur að taka
ákvarðanir. Í fyrstu vann hann
við landbúnaðarstörf þar til
hann settist að í Keflavík
haustið 1953. Þar tóku á móti
honum menn, sem studdu hann
til verka bæði til lands og
sjávar. Í Keflavík stofnuðu þau
Hrefna Þiðrandadóttir heimili
sitt og dvöldu þar til vors 1963
að þau fluttu í Álfsnes á
Kjalarnesi og þaðan vorið 1964
að Stokkhólma í Skagafirði,
þar sem þau bjuggu til alda-
móta.
Sveitamaðurinn hafði alltaf
blundað í Eysteini og nú hafði
sá draumur ræst að verða
bóndi. Hann var góður fjár- og
hestamaður og stundaði tamn-
ingar til sjötugs. Þeim hjónum
búnaðist vel enda bæði bráð-
dugleg og ósérhlífin og orðið
verkkvíði var ekki til í þeirra
orðabók. Eysteinn var hjálp-
samur og leysti hvers manns
bón með vinsemd og gleði og
gat sér í hvívetna hið besta
orð. Batt þó ekki alltaf sína
bagga sömu hnútum og sam-
ferðamenn. Hann var sérstak-
ur skilamaður og var ekki í
rónni ef hann átti ógreiddan
reikning.
Eysteini leið vel í Stokk-
hólma og hvarf þaðan með
söknuð í sinni. Hann minntist
sérstaklega kvöldsólarinnar og
vornáttanna. Hvergi voru þær
fallegri en í Stokkhólma eða
ilmur vorsins betri. En aldur-
inn færðist yfir og hverfa varð
til nýrra heimkynna. Þau
Hrefna þurftu ekki að flytja
langt því þau fengu leigða íbúð
að Birkimel 8a í Varmahlíð.
Þar gekk Eysteinn oft út á
tröppurnar til að anda að sér
fersku lofti og líta til fjalla
Sléttuhlíðar. Í Varmahlíð lifðu
þau hjón kyrrlátu lífi og tóku
þátt í starfi eldri borgara af lífi
og sál.
Ævisól Eysteins, vinar okk-
ar, er gengin til viðar eftir
langa og oft erilsama daga, þar
sem skiptust á skin og skúrir.
Hann er nú horfinn til æðri til-
veru. Ég þakka honum góða
samfylgd og vináttu. Blessuð
sé minning drengsins frá Geir-
mundarhóli, Björns Eysteins
Jóhannessonar.
Sigtryggur Jón Björnsson
frá Framnesi.
Björn Eysteinn
Jóhannesson
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
FALLEGIR LEGSTEINAR
Í FEBRÚAR
af öllum legsteinum
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Afsláttur
Davíð
útfararstjóri
551 3485 - www.udo.is
Óli Pétur
útfararstjóri
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐBJÖRG PÁLMADÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
Borgartúni 30a,
lést föstudaginn 26. janúar á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Grund.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 6. febrúar
klukkan 13.
Hörður Gunnarsson
Bragi Gunnarsson Ásta Kristjánsdóttir
Anna Guðrún Gunnarsdóttir Páll Briem Magnússon
og barnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra
GARÐARS SVEINBJARNARSONAR,
Hlíðarhúsum 7, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Eirar, sem
kom að umönnun hans, fyrir einstaka
umönnun og hlýhug.
Kjartan Garðarsson Antonía Guðjónsdóttir
Guðbjörg Garðarsdóttir Stefán Laxdal Aðalsteinsson
Anna Birna Garðarsdóttir Jón Ingvar Sveinbjörnsson
Guðrún Þóra Garðarsdóttir Sigurjón Ársælsson
Sigríður Garðarsdóttir Stefán Þór Pálsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
BALDUR VIÐAR GUÐJÓNSSON,
Gullsmára 10, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
mánudaginn 29. janúar.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi miðvikudaginn
7. febrúar klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Hertha Sylvía Andersen
Guðjón Baldursson Guðrún Jónsdóttir
Hulda Margrét Baldursdóttir Guðmundur Ingi Kristinsson
Baldur Viðar Baldursson Guðlaug Rafnsdóttir
afa- og langafabörn
Móðir mín,
GUÐJÓNÍNA JÓHANNESDÓTTIR,
Nönnugötu 1,
lést á Landspítalanum, Fossvogi, þriðjudaginn 26. desember.
Útförin hefur farið fram.
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu samúð og hlýhug við fráfall
hennar.
Jóhannes Rúnar Sveinsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför móður okkar,
SVÖVU PÁLSDÓTTUR,
Hrafnkelsstöðum,
Hrunamannahreppi,
Árnessýslu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hjúkrunarheimilisins Ljósheima,
Heilbrigðisstofnun Suðurlands, fyrir umhyggju og hlýhug árin
öll.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Hrafnhildur Þorgeirsdóttir
Brynhildur Þorgeirsdóttir
Aðalsteinn Þorgeirsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
JÓN ÞORBERG EGGERTSSON
fyrverandi skólastjóri,
Barrholti 7, Mosfellsbæ,
lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum,
mánudaginn 29. janúar.
Hann verður jarðsunginn frá Grensáskirkju þriðjudaginn
6. febrúar klukkan 13.
Ólafur Ólafsson Alda Konráðsdóttir
Svala Haukdal Jónsdóttir Kjartan Oddur Þorbergsson
Þórdís Elva Jónsdóttir Hafsteinn Ágústsson
Guðríður Erna Jónsdóttir Ólafur Ágúst Gíslason
Jórunn Linda Jónsdóttir
og fjölskyldur