Morgunblaðið - 03.02.2018, Page 45

Morgunblaðið - 03.02.2018, Page 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú þarft að hafa gætur á óþolin- mæðinni og finna þér eitthvað smálegt til dundurs. Vertu skorinorður og hlustaðu á rök andmælenda þinna. Ekki ýta þeim frá þér. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ættir að leita ráða hjá góðum vini varðandi krefjandi verkefni, sem þér hefur verið falið, en stendur aðeins í þér. Reyndu að finna tíma fyrir sjálfan þig líka. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Samræður við náungann eru svo sannarlega kraftmiklar og lifandi. Einnig er hugsanlegt að einhver bjóði þér í ferðalag. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert að velta fyrir þér nýjum fjár- öflunarleiðum. Heppnin er með þér núna, svo virðist sem tekjur þínar muni aukast á næstu sex vikum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Mundu að virða skoðanir annarra þótt þær komi ekki alveg heim og saman við það sem þér finnst. Vandaðu því orðaval þitt. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er hætt við því að samskipti þín við fjölskylduna gangi brösuglega í dag. Láttu lítið á þér bera og ekki búast við miklu í stöðu þar sem þú þarft að treysta á aðra. 23. sept. - 22. okt.  Vog Viðfangsefni sem eiga að vera góð fyr- ir heilsuna en eru ekki svo skemmtileg hamla velgengni þinni. Sýndu dirfsku og taktu málin í þínar hendur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er eitthvað sem ekki gengur upp í áætluninni. Láttu það ekki aftra þér. Ekki slaka á í kynningu á þeim málum sem þú berð fyrir brjósti. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Farðu þér hægt í fjármálum, kannaðu alla möguleika vandlega og mundu umfram allt að hafa öryggið í fyrir- rúmi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Að tala við sjálfan sig getur huggað mann jafnvel og mömmu knús. Ef fólk er trekkt í kringum þig, gæti nærvera þín verið ógnandi. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það getur reynst erfitt að snúa blaðinu við þegar deilur um viðkvæm mál- efni hafa farið úr böndunum. Ef allir leggj- ast á eitt og vinna saman gengur allt betur. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú þarft að gaumgæfa hvert skref áður en þú heldur áfram því þér hættir um of til þess að ana áfram að óathuguðu máli. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Inni í húsi yfirleitt. Á afli sleginn, brenndur. Einatt fer úr iðrum greitt. Er við drauga kenndur. Knútur Haukstein Ólafsson, eldri, sendir að gamni sínu ráðn- ingu á gátunni: Í húsinu stiga- hef ég gang, hestinum undir skeifnagang, en næstum fæ ég niðurgang af nýrri frétt um draugagang. Hér er skýring Guðmundar: Í húsi gjarnan gangur er. Gangur undir hesti. Niðurgang svo greini hér. Gangur drauga mesti. Þá er limra: Í lofti er ljúfur söngur, ég labbá á stíg, sem er þröngur, heiman frá bæ og held út með sæ, en er hættur að fara í göngur. Og síðan er ný gáta eftir Guð- mund: Rís ég minni rekkju frá, raula fyrir munni stef, glóru naumast greina má, en gátu nýja samið hef: Fullur af lofti er sá með sann. Svaladrykk þér miðla kann. Gikk þann sumir óttast æ. Óvinsæll í Mosfellsbæ. Lausnir eru vel þegnar og á að senda á netfang mitt. Þær þurfa að berast ekki síðar en á miðvikudags- kvöld. Káinn yrkir um manninn sem hann sá í speglinum: Hans er lundin ljúf og trygg, í lófunum þó hann hafi sigg; maðurinn líkist, helst ég hygg, hunda-dogg og svína-pigg. Káinn er hvergi smeykur: Engu kvíði ég eymdarkífi illa þó að sæki messu því heiðarlegu hundalífi hef ég lifað fram að þessu. Honum þykir þó rétt að skrifa niður sér til minnis: Prestinn mig fýsir að finna, fara ég ætla til messu, mundu nú eftir að minna mig á að gleyma ekki þessu. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Það hefur gang sem guð vill Í klípu „ÞÚ KEMUR MEÐ GÓÐ RÖK EN ÉG SÉ SAMT EKKI PUNKTINN.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „EKKI MYNDI ÉG BORGA FIMMHUNDRUÐKALL TIL ÞESS AÐ HORFA Á ÞIG!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að finnast allt vera mögulegt. „KÆRA SPYRJUM HUNDINN“… HRÓSAÐU HENNI! ÞÚ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ VERA GÓÐ AÐ KYSSA! ÉG ER SVO HRIFINN AF KONUNNI SEM SITUR VIÐ HLIÐINA Á MÉR! HVERNIG FÆ ÉG HANA TIL ÞESS AÐ LÍKA VIÐ MIG? OG NEI, ÞÚ ERT EKKI AÐ FARA TIL ÞESS AÐ KOMAST AÐ ÞVÍ „EF ÞÚ VÆRIR Á TUNGLINU, MYNDIR ÞÚ GÓLA Á JÖRÐINA?“ Ást Víkverja á bókasöfnum er mik-il. Það eru ótrúleg lífsgæði að hafa góð almenningsbókasöfn. Það er kannski ekki alltaf hægt að næla í nýjustu bækurnar strax en stundum er maður heppinn. Það sem er gam- an við bókasöfn eru uppstillingar starfsmanna. Þar er oft hægt að finna eitthvað sem kemur manni á óvart eins og nýjar bækur sem mað- ur vissi ekki um eða gamlar bækur sem maður hafði gleymt. Víkverji er algjör fíkill á norrænar glæpasögur og því er gagnlegt að þær eru jafnan flokkaðar sér. Besta ráðið er samt oft að gá hverju fólk er nýbúið að skila því vinsælustu bækurnar staldra ekki endilega nógu lengi við til að verða skilað í hillu. x x x Það er mjög gaman að heimsækjabókasöfn með börnum. Margir heimsækja söfnin með lítil börn enda oft leikkrókar á söfnunum þar sem þau geta leikið sér. Ekki má samt gleyma að heimsækja bókasöfnin með eldri börnum því þau þurfa ekki síður hjálp við að finna áhugaverðar bækur til að lesa. Þá þarf að passa að það séu skrifaðar nýjar bækur á Ís- landi sem höfði til barna og ung- menna og líka sé þýtt nóg af spenn- andi bókum. Börn munu augljóslega ekki lesa meira ef þeim finnst ekki nóg til af skemmtilegum bókum. x x x Ævar vísindamaður stendur núnafyrir lestrarátaki í fjórða sinn. Síðustu þrjú ár hafa samanlagt verið lesnar rúmlega 177 þúsund bækur í átakinu. Það munar um minna. Vík- verji hefur orðið þess var á heimilinu að átakið virkar sannarlega lestrar- hvetjandi því þeir sem skila inn miða geta fengið persónu nefnda eftir sér í ævintýralegri ofurhetjubók sem kemur út í vor, sem er um leið fjórða bókin í Bernskubrekum Ævars vís- indamanns. x x x Síðan má ekki gleyma því að bóka-söfn eru meira en bara söfn. Þetta eru lifandi staðir þar sem margt er að gerast enda kallast söfn- in í Reykjavík líka menningarhús. vikverji@mbl.is Víkverji Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina. Þú breiðir ljóma þinn yfir himininn. (Sálm: 8.2)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.