Morgunblaðið - 03.02.2018, Qupperneq 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2018
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
David Barreiro – Langa blokkin í Efra Breiðholti í Myndasal
Karl Jeppesen – Fornar verstöðvar á Vegg
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld
Spegill samfélagsins 1770
Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi.
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17.
Tekið á móti umsóknum um sumartónleika LSÓ
til og með 13. febrúar. Sjá www.lso.is
Ný sýning í Listasafni Íslands
KORRIRÓ OG DILLIDÓ 2.2. - 29.4.2018 - Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar
ANGE LECCIA - HAFIÐ/LA MER 2.11. - 4.2.2018 Síðasta sýningarhelgi
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR 7.4.2017 - 31.12.2019 - Valin verk úr safneign
ORKA 14.9. - 29.4.2018
Sýning á vídeóinnsetningunni Orka eftir Steinu í Vasulka-stofu
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TVEIR SAMHERJAR - ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON
21.10.2017 - 13.5.2018
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 1.3.2018
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Í undirbúningi er tónlistarsýning
sem setja á upp í Hörpu og segja á
tónlistarsögu Íslands. Aðstand-
endur sýningarinnar eru þeir Jón
Hrólfur Sigurjónsson og Bjarki
Sveinbjörnsson sem hafa báður
komið talsvert að tónlistarsögu-
rannsóknum og fræðslu; Jón er tón-
listarkennari og Bjarki tónlistar-
fræðingur og var forstöðumaður
Tónlistarsafns Íslands. Einnig
komu þeir á fót vefnum Musik.is
sem hrint var af stokkunum í upp-
hafi árs 1995.
Axel Hallkell Jóhannesson er
hönnuður sýningarinnar.
Jón segir að sagan verði sögð með
margmiðlunartækni til að ná að há-
marka upplifunina og þannig myndu
þeir meðal annars nýta nýjungar í
staðsetningartækni til að leiða gesti
um rýmið, en einnig sé stefnt að því
að sýningin standi að ýmsum sér-
Sýnd tónlistar-
saga Íslands
Teikning/Axel Hallkell Jóhannesson
Stafrænt Svona sér Axel Hallkell Jóhannesson hönnuður tónlistarsýningarinnar sýningarrrýmið í Hörpu fyrir sér.
viðburðum í samstarfi við Hörpu og
tónlistarfólk á Íslandi.
Að mestu stafræn sýning
Hann segir þá félaga horfa til
rýmis í tveimur neðstu rýmunum í
útbyggingu á austurhlið Hörpu, en
þar var meðal annars haldin sýndar-
veruleikasýningin Björk Digital á
síðasta ári.
„Þetta yrði að mestu stafræn sýn-
ing. Gestir myndu byrja ferðalag um
tónlistarsöguna á tímum landnáms á
neðri hæð sýningarinnar, en efri
hæðin yrði að mestu tileinkuð nú-
tímanum.
Við sjáum fyrir okkur að gestir fái
að upplifa söguleg augnablik úr tón-
listarsögunni með hljóðleiðsögn,
tónlist, grafík, ljósmyndum, kvik-
myndabrotum og gripum. Einnig
geti þeir tekið virkan þátt í sýning-
unni,“ segir Jón og bætir við að einn-
ig yrðu sýnileg bein og óbein tengsl
íslenskrar náttúru og íslenskrar tón-
listar og meðal annars standi til að
nýta útsýni til Esjunnar úr sýn-
ingarrými á völdum stöðum.
Ferðamenn fyrst og fremst
Að sögn Jóns yrði sýningin ætluð
Íslendingum ekki síður en ferða-
mönnum þó að síðarnefndi hópurinn
sé eðlilega markhópurinn og verði
fjölmennari. „Við gerum ráð fyrir að
það verði eðlilega mun meira af
ferðamönnum, en gerum líka ráð
fyrir því að Íslendingar hefðu gam-
an af að sjá og upplifa sýninguna,“
segir Jón og bætir við að þeir
félagar vinni nú hörðum höndum að
undirbúningi sýningarinnar og
stefni að því að ljúka fjármögnun
innan skamms.
Ferðalag Tónlistarsöguspekingarnir Jón Hrólfur Sigurjónsson og Bjarki
Sveinbjörnsson leggja drög að tónlistarsögusýningu sem yrði í Hörpu.
Drög lögð að tónlistarsýningu
í Hörpu Ferðalag frá landnámi
Gjafir jarðar
Ljósmynd/Ólöf Erla
Gyðjuóður Seiðlæti samanstendur af Reyni Katrínar og Úní Arndísar.
lög bera nöfn eins og „Frigg“,
„Gná“ og „Gefjun“. Þeir feðgar
Bassi Ólafsson og Ólafur Þórar-
insson leggja gjörva hönd á heiðinn
plóg sem og ektamaðurinn Jón
Tryggvi. Karlakór Hveragerðis
kemur þá einnig við sögu. Bassi sá
um að hljóðrita, hljóðblanda og
hljómjafna en upptökustjórn var í
höndum Bassa og Seiðlætis.
Eins og nema má af umslagi
plötunnar, en ljósmyndina sem það
prýðir má og sjá í meðfylgjandi
kynningarmynd, er hvergi slegið
slöku við er undirstrika skal boð-
skapinn. Tónlistin er í senn seið- og
kynngimögnuð en umfram allt
þjóðleg þar sem trumbur, heiðinn
samsöngur og áhrifshljóð knýja á
upplifunina. Dulúðin dansar yfir
hverjum tóni en það næmi sem Úní
hefur borið á borð í eigin tónsköp-
un sveipar alla framfærslu og
vinnslu, eitthvað sem skilar áhrifa-
ríku, heilsteyptu verki.
»Reynir samdi ljóðtileinkuð gyðjunum
úr norrænu goðafræð-
inni og Úní hefur nú
samið tónlist við ljóðin
hans sem komu út á
plötunni Þagnarþulur
síðasta haust.
Seiðlæti er dúett þeirra
Úní Arndísar og Reyn-
is Katrínar en á plöt-
unni Þagnarþulur eru
gyðjur Fensala ákall-
aðar með tónlist og
ljóðum.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Unnur Arndísardóttir, eðaÚní, hefur nú um nokkrahríð gert út frá Stokkseyri
þar sem hún leggur stund á allra
handa andans starfsemi, með ríka
tengingu við náttúruna og móður
jörð. Unnur kennir jóga og heilar,
býður uppá einkatíma í tónaheilun,
spálestrum og blómadropum svo
fátt eitt sé nefnt. Úní er bæði seið-
og tónlistarkona og er alin upp við
andleg mál en móðir hennar Arndís
Sveina, nuddari, heilari og seið-
kona, hafði rík áhrif á hana og Úní
hefur ferðast víða um heim og num-
ið þar ýmsar andlegar leiðir. Hún
miðjar sig hins vegar í dag á Íslandi
og t.a.m. er hún ein upphafskvenna
Nordic Wisdom Circle sem er hópur
skandinavískra andlegra kennara
sem kenna norræna visku og and-
legar norrænar athafnir.
Úní sinnir jafnframt tónlistinni
af festu. Árið 2009 gaf hún út hina
stórgóðu sólóplötu Enchanted og
auk þess reka hún og eiginmaður
hennar Jón Tryggvi Unnarsson dú-
ettinn UniJon. Úní semur og syngur
en hún var í söngnámi í Reykjavík,
Englandi og Bandaríkjunum. Sein-
ustu fjórtán ár hefur hún unnið ná-
ið með Reyni Katrínar, heilara og
galdrakarli. Reynir samdi ljóð til-
einkuð gyðjunum úr norrænu goða-
fræðinni og Úní hefur nú samið tón-
list við ljóðin hans sem komu út á
plötunni Þagnarþulur síðasta
haust. Kalla þau sig Seiðlæti og
framkvæma þau saman heiðnar at-
hafnir þar sem sungið er til gyðj-
anna. Tónlist þeirra má nálgast á
www.seidlaeti.bandcamp.com en