Morgunblaðið - 03.02.2018, Page 52
LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 34. DAGUR ÁRSINS 2018
Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Hræðilegt og sársaukafullt
2. Hundar teknir af eigendum
3. Ég var farinn að trúa á álfa
4. Hættu við flugið vegna hótelleysis
Hanna Dóra Sturludóttir messó-
sópran og Snorri Sigfús Birgisson pí-
anóleikari halda í 15:15-tónleikaröð-
inni á morgun kl. 15.15 í Norræna
húsinu tónleika sem nefnast Döggin
á grasinu. Á efnisskránni verða þjóð-
lagaútsetningar eftir Béla Bartók,
Zoltán Kodály og Snorra Sigfús og
munu Hanna og Snorri einnig flytja
Fjögur lög eftir Þorkel Sigurbjörns-
son og söngverkið Pastorale eftir
Stravinsky. Viðamesta tónverkið á
efnisskránni er Lieder eines fahrend-
en Gesellen eftir Gustav Mahler.
Döggin á grasinu
Myndlistarmað-
urinn Jón B.K.
Ransu opnar sýn-
inguna Djöggl í
Kompunni í Al-
þýðuhúsinu á
Siglufirði í dag kl.
15. Á sýningunni
dregur hann mál-
aralist og fjölleika
saman í samtal á ný þar sem hring-
formið leikur aðalhlutverk í rýmis-
listaverki í Kompunni. Listaverk
Ransu byggjast alla jafna á endur-
skoðun listaverka eða liststefna.
Djöggl í Kompunni
Hljómsveitin Legend heldur út-
gáfutónleika á Gauknum á miðnætti í
kvöld í tilefni af útgáfu annarrar
breiðskífu sinnar, Midnight Cham-
pion, sem kom út í fyrra. Legend
skipa þeir Krummi Björgvinsson og
Halldór Á. Björnsson og með þeim á
tónleikunum
verða Frosti
Jón Runólfs-
son, Bjarni
Sigurð-
arson og
Hálfdán
Árna-
son.
Legend heldur
útgáfutónleika
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Úrkomulítið vestan til. Frost 0 til 10 stig í kvöld, kaldast í inn-
sveitum norðanlands.
Á sunnudag Gengur í sunnan 18-25 m/s á norðanverðu landinu, annars hægari. Víða
mikil rigning, einkum vestanlands, en úrkomulítið norðaustan til. Hiti 5 til 10 stig.
Á mánudag Suðvestan 10-18 m/s og éljahryðjur á vestanverðu landinu, en heldur hæg-
ari austantil og léttskýjað. Kólnandi, frost 3-10 stig um kvöldið.
„Í vikunni virtist hinsvegar
sem Brady væri breyttur mað-
ur og í viðtölum við fréttafólk
hefur hann verið mjög opin-
skár og sýnt á sér aðra hlið.
Hefur í raun sýnt mörgum að
hann hefur sínar ástæður til að
vera ekki mikið í sviðsljósinu
og hefur sínar mannlegu hliðar
eins og hver annar.“ Þetta
skrifar Gunnar Valgeirsson
m.a. um Tom Brady og Ofur-
skálina, úrslitaleik NFL. »4
Brady virtist
breyttur maður
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Margrét Tómasdóttir, hjúkrunarfræðingur og
lögfræðingur, hefur brotið ísinn á þremur mis-
munandi stöðum, alls staðar þurft að hafa fyrir
sínu og er stolt af árangrinum.
Að loknu námi í Bandaríkjunum flutti Margrét
aftur heim og hóf störf sem hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri á Borgarspítalanum 1985. Hún er
nú verkefnastjóri á gæðadeild Landspítalans og
talsmaður sjúklinga, tekur við ábendingum
þeirra og leiðbeinir þeim varðandi réttindi sín.
„Ég tek við ábendingum sjúklinga í sambandi við
þjónustu og kem þeim til skila til starfsfólksins
auk þess sem ég leiðbeini sjúklingum og fjöl-
skyldum þeirra varðandi réttindi sín, en kerfið
getur verið svolítill frumskógur fyrir þá sem
ekki þekkja,“ segir hún.
Margrét segir að víða sé pottur brotinn í heil-
brigðisþjónustunni og skýrari stefnumótunar sé
þörf. Í nágrannalöndunum séu sjúklingar t.d.
með í þeirri vinnu og jafnvel rekstri heilbrigðis-
kerfisins. „Það var margt mjög gott í heilbrigðis-
þjónustunni, en eftir sameiningu Landspítalans
gamla og Sjúkrahúss Reykjavíkur hefur sjúkra-
húsþjónusta versnað vegna endalauss sparnaðar
og skipulagsgalla. Það er þyngra en tárum taki
að sjúklingar fái ekki þá þjónustu sem þeir þurfa
og eiga rétt á. Það sem byggt var upp fyrir alda-
mót var hægt og rólega rifið niður eftir aldamót.
Við erum stundum allt of lengi að greina fólk og
eftirfylgni vantar.“
Skátastarfið mótandi
Skátahöfðingjar á Íslandi voru sjálfkjörnir í 45
ár þar til Margrét var kjörin skátahöfðingi 2004,
fyrst kvenna, en þrjú voru í framboði. „Það kom
mér og ýmsum öðrum á óvart með jafnréttisbar-
áttuna í huga að hluti „ungra/miðaldra“ skáta
studdi frekar karl og sama var uppi á teningnum
þegar núverandi skátahöfðingi var kosinn,“ segir
hún. „Ég var alin upp á skátaheimili,“ heldur
hún áfram og bendir á að hún hafi alla tíð verið
virk í skátastarfinu. „Það kenndi mér að nálgast
verkefni af ákveðinni bjartsýni og yfirvegun
þannig að það væri hægt að leysa þau.“ Hún
bætir við að þar hafi hún líka fengið góða þjálfun
í að vinna með fólki, sem hafi nýst henni í öllum
stjórnunarstörfum. „Ég hef alltaf fengið gott fólk
með mér og mér hefur tekist, allavega hef ég
reynt, að virkja það besta í öllum með það að
leiðarljósi að fólk noti styrkleika sína.“
Í tíð Margrétar í embætti skátahöfðingja var
leigusamningur á landi við Úlfljótsvatn að renna
út og Orkuveitan hafði skipulagt mikla sumar-
húsabyggð á landinu. „Guðlaugur Þór Þórðarson
var stjórnarformaður Orkuveitunnar og ég tók af
honum loforð um að hann hætti ekki fyrr en
samningurinn hefði verið endurnýjaður og það
var hans síðasta verk sem formanns,“ rifjar hún
upp. „Ég er honum ævinlega þakklát fyrir það
en vegna langs samnings hafði enginn áhuga á
því að kaupa landið með skátana innanborðs og í
kjölfarið var það selt Skógræktarfélagi Íslands
og okkur skátunum eftir að ég hætti.“
Elítan á móti
Um fimm mánuðum áður en Háskólinn á
Akureyri tók til starfa haustið 1987 var Margrét
ráðin fyrsti starfsmaðurinn. Verkefnið var að
setja upp og stýra námsbraut í hjúkrunarfræði.
Hún var í fríi í Bandaríkjunum, þegar hún fékk
símtalið, sem varð til þess að hún fór norður.
„Þetta var mikill barningur því öll háskóla-
elítan fyrir sunnan var á móti nýjum háskóla,“
segir hún. „Háskólinn á Akureyri hefði ekki farið
af stað nema vegna dirfsku Sverris Her-
mannssonar menntamálaráðherra, stuðnings
Halldórs Blöndal, þáverandi alþingismanns, svo
og allra Akureyringa,“ leggur hún áherslu á.
„Kerfið var á öllum póstum neikvætt og starfs-
menn stjórnsýslunnar ætluðu að kæfa málið í
fæðingu. Í dag hefur Háskólinn á Akureyri sann-
að gildi sitt og er erfitt að hugsa sér Akureyri án
hans.“
Margrét segir ánægjulegt að hafa átt þátt í að
koma góðum málum áleiðis. „Ég hef haft trú á
öllum þessum verkefnum og þakka ekki síst
þjálfun og uppeldi í skátastarfinu árangurinn.“
Margrét ryður brautina
Morgunblaðið/Hari
Talsmaður sjúklinga Margrét Tómasdóttir, hjúkrunarfræðingur og lögfræðingur.
Hún er talsmaður sjúklinga Var kjörin skátahöfðingi, fyrst kvenna
„Það er búið að gera stórt mál úr
þessu hérna. Ég hef fengið mjög mik-
inn stuðning og fullt af skilaboðum,
og það eru allir í skólanum mjög
spenntir,“ segir Freydís Halla Ein-
arsdóttir, eini fulltrúi Plymouth
State-háskólans á Vetrarólympíuleik-
unum og fulltrúi Íslands í alpagrein-
um kvenna á leikunum. » 1
Skólasystkinin fylgjast
öll spennt með
„Félagaskiptaglugganum hefur verið
lokað fyrir fullt og allt þetta tímabilið.
Það er ljóst að helmingurinn af liðunum
í deildinni ætlar að spila með tvo Kana
það sem eftir er af vetri og láta þá deila
mínútum. Það má kalla þessa ráð-
stöfun mikið bruðl en ef félögin hafa
efni á þessu þá er það gott mál,“ skrif-
ar Benedikt Guðmundsson, körfubolta-
sérfræðingur Morgunblaðsins. »2-3
Mikið bruðl en gott ef
félögin hafa efni á því