Morgunblaðið - 19.02.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2018
Sterkir í stálinu
Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn
Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar
Svört- og ryðfrí rör og fittings
Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur
POM öxlar • PE plötur
Lokar af ýmsum gerðum
Opið virka daga kl. 8-17
Skútuvogi 4, Rvk
Rauðhellu 2, Hafnarfirði
Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Það hefur færst aukinn kraftur í
umræðuna um umferðaröryggi á
Kjalarnesi undanfarnar vikur og
Kjalnesingar ýta á úrbætur. Þess
vegna legg ég fram á morgun tillögu
sjálfstæðismanna í borgarstjórn um
úrbætur í vegamálum á Kjalarnesi,“
segir Kjartan Magnússon, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Kjartan segir að tillagan sé
hvatning til Alþingis um að sem
fyrst verði veitt fé til þess að ráðast
í úrbætur á Kjalarnesi í því skyni að
draga úr slysahættu því nýlegir at-
burðir hafa enn einu sinni sannað að
umræddur vegar-
kafli sé hættuleg-
ur og nauðsyn-
legt sé að breikka
veginn og að-
skilja akreinar á
honum. Borgin
verði á sama tíma
að tryggja skjóta
og vandaða með-
ferð varðandi
skipulagsmál
tengd úrbótunum.
Kjartan segir að það hafi legið
fyrir lengi að gera þurfi nauðsyn-
legar úrbætur á gatnamótum. Sér-
staklega þar sem hæg umferð komi
inn á hraða umferð þjóðvegarins.
„Það hafa orðið ótrúlegar breyt-
ingar til batnaðar og alvarlegum
slysum fækkað á þeim stöðum þar
sem búið er að leggja svokallaða
2+2 vegi eins og á Reykjanesbraut
og 2+1 veg á Suðurlandsvegi,“ segir
Kjartan, sem telur að nú megi ekki
bíða lengur eftir breytingum í sömu
veru á Vesturlandsvegi. Hann segir
að Reykjavíkurborg undir stjórn nú-
verandi meirihluta hafi ekki verið
nægjanlega dugleg að þrýsta á
ríkisvaldið vegna vegaframkvæmda
í og úr borginni. Kjartan vonast til
þess að með samþykkt tillögunnar
verði breyting þar á og meiri þrýst-
ingur um úrbætur verði settur á
ríkið.
Vilja þrýsta á ríkisvaldið
um vegaúrbætur á Kjalarnesi
Alvarlegum slysum fækkað mikið á 2+2 og 2+1 vegum
Kjartan
Magnússon
Sérfræðingur hjá einni undirstofnun
velferðarsviðs Reykjavíkurborgar
hefur verið kærður fyrir kynferð-
isbrot gegn fyrrverandi stjúpdóttur
sinni sem er á barnsaldri. Þetta
staðfestir Regína Ásvaldsdóttir,
sviðsstjóri velferðarsviðs, í samtali
við Morgunblaðið.
Samkvæmt frétt RÚV um málið
hafði maðurinn, sem er á sextugs-
aldri, verið kærður fyrir kynferðis-
brot gegn ungum pilti fyrir um
þremur árum, en það mál var látið
niður falla eftir rannsókn lögreglu.
Þá starfaði maðurinn hjá öðru
sveitarfélagi og var pilturinn skjól-
stæðingur hans. Hann hætti störfum
hjá sveitarfélaginu á meðan málið
var til rannsóknar hjá lögreglu.
Seinna var hann ráðinn í stöðu hjá
stofnun á vegum ríkisins, áður en
hann var svo ráðinn til Reykjavíkur-
borgar.
Regína segir að maðurinn hafi
ekki verið í beinum tengslum við
börn í starfi sínu. Þegar maðurinn
var kærður í desember hafi hann
verið færður til í starfi og nú sé hann
kominn í ótímabundið leyfi.
„Hann er búinn að vera í sérverk-
efnum, en er núna alveg farinn frá
þessari viðkomandi stofnun,“ segir
Regína. Hún segist aðspurð fyrst
hafa heyrt af eldri kærunni á hendur
manninum fyrir um tveimur vikum
en maðurinn hafði þó greint sínum
næsta yfirmanni frá kærunni í kjöl-
far þess að hann var ráðinn til starfa
hjá borginni.
Regína segist hafa kallað eftir öll-
um upplýsingum um málið og ráðn-
ingu mannsins. Það verði skoðað
nánar innan velferðarsviðs borgar-
innar. athi@mbl.is
Maðurinn
áður verið
kærður
Meint brot gegn
fyrrv. stjúpdóttur
Á aðalfundi Viðskiptaráðs Íslands í
síðustu viku var samþykkt að leiða
í lög ráðsins ákvæði um kynjakvóta
í stjórn. Framvegis verður því gerð
krafa um að hlutfall hvors kyns í
stjórn ráðsins sé ekki lægra en
40%. „Með breytingunni vill Við-
skiptaráð tryggja fjölbreytta sam-
setningu stjórnarinnar og sýna gott
fordæmi í íslensku viðskiptalífi,“
segir í fréttatilkynningu. Í nýkjör-
inni stjórn Viðskiptaráðs fyrir tíma-
bilið 2018 til 2020 eru kynjahlutföll
nánast jöfn, 47% konur og 53%
karlar.
Jafnt hlutfall kynja
í Viðskiptaráði
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
„Ef ég ætti heima á Húsavík tæki ég
allt brothætt niður úr hillum á með-
an þetta gengur yfir. Það kostar ekki
neitt, en það getur kostað helling ef
eitthvað gerist,“ segir Ármann
Höskuldsson eldfjallafræðingur um
skjálftahrinuna sem staðið hefur yfir
á Tjörnesbrotabeltinu síðustu daga.
„Þetta er náttúrlega svæði þar
sem við erum að bíða eftir stórum
skjálfta. Við erum búin að bíða í
meira en hundrað ár eftir honum,“
segir Ármann.
Skjálftahrinan í kringum Grímsey
hófst 14. febrúar en virtist mögulega
vera í rénun fyrripartinn í gær. Hins
vegar dró til tíðinda síðdegis og sex
skjálftar yfir þremur að stærð
mældust á milli klukkan 18 og 20 í
gærkvöldi, samkvæmt vef Veður-
stofunnar.
Ármann segir mögulegt að spenna
færist í aðrar sprungur á svæðinu í
kjölfar þessarar miklu hrinu.
„Þetta er einhvern veginn farið að
fara út um allt og hefur staðið svo
lengi yfir að það getur vel verið að
það sé að losna bara heilmikil spenna
þarna í skorpunni og þá vitum við
ekkert hvar það endar, í raun. Þetta
er farið að hrista upp í sprungunni á
Húsavík,“ segir Ármann.
„Þetta er bara mjög óvenjulegt.
Hún er búin að standa mjög lengi
þessi og vera mjög þétt. Þegar hrina
er búin að standa svona svakalega
lengi er verið að losa einhverja
svakalega spennu,“ segir Ármann og
bætir því við að það verði að koma í
ljós hvort spennan færist yfir í aðrar
sprungur.
Mikil spennulosun nyrðra
Nær linnulaus hristingur í grennd við Grímsey frá 14. febrúar Eldfjallafræð-
ingur mælir með því að Húsvíkingar tryggi brothætta muni Óvenjuleg hrina
Gleðin var við völd á Arnarhóli þegar ljósmynd-
ara Morgunblaðsins bar að garði á dögunum.
Þótt snjórinn leggist misvel í borgarbúa, með til-
heyrandi umferðartöfum og hálku, virtust ferða-
mennirnir ekki sviknir. Skyldi engan undra enda
kuldinn og snjórinn ómissandi þáttur Íslands-
dvalar fyrir margan ferðamanninn. Í bakgrunni
sést hálfbyggt Hafnartorgið sem gert er ráð fyr-
ir að verði tilbúið innan nokkurra mánaða.
Snjóþungt í Reykjavík
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Brugðið á leik í snjónum