Morgunblaðið - 19.02.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2018
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Alvöru atvinnubíll
Dacia Dokker
Dacia Dokker er einn hagkvæmasti kosturinn sem í boði er fyrir þá sem leita að litlum sendibíl.
Dacia Dokker er með 1,5 l, 90 hestafla díslivél sem notar einungis 4,5 l í blönduðum akstri*. Dacia
bílarnir hafa komið einskalega vel út hvað varðar áreiðanleika í rekstri.
Verð: 2.340.000 kr. m. vsk.
Verð án vsk.:
1.887.000 kr.
*
V
ið
m
ið
u
n
a
rt
ö
lu
r
fr
a
m
le
ið
a
n
d
a
u
m
e
ld
s
n
e
y
ti
s
n
o
tk
u
n
í
b
lö
n
d
u
ð
u
m
a
k
s
tr
i.
/
B
ú
n
a
ð
u
r
b
íls
á
m
y
n
d
k
a
n
n
a
ð
ve
ra
fr
á
b
ru
g
ð
in
a
u
g
lý
s
tu
ve
rð
i
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
6
5
6
8
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Unnið er að undirbúningi þess að
koma upp lífsgæðasetri í húsnæði
St. Jósefsspítala í Hafnarfirði.
Bæjarráð hefur ákveðið að skipa
samstarfshóp og ráða verkefna-
stjóra til að framkvæma áformin. Á
næstunni verður auglýst eftir þátt-
takendum sem vilja koma með starf-
semi inn í húsið.
Rúmlega sex ár eru síðan rekstur
St. Jósefsspítala var aflagður. Á síð-
asta ári keypti Hafnarfjarðar-
kaupstaður húsnæði hans af ríkinu.
Skuldbatt bærinn sig til að reka þar
þjónustu við almenning án hagn-
aðarsjónarmiða.
Forvarnir og heilsuvernd
Starfshópur á vegum Hafnar-
fjarðarkaupstaðar skilaði í janúar
tillögum um útfærslu á hugmyndinni
um að koma upp lífsgæðasetri í hús-
næði spítalans. Bæjarráð hafði þá
valið þá hugmynd úr skýrslu um
framtíðarstefnu um notkun hús-
næðis St. Jósefsspítala sem skilað
var í október 2017.
Byggist tillagan á því að efla
Hafnarfjörð sem heilsubæ og halda
einnig í heiðri það fræðslustarf sem
systurnar á St. Jósefsspítala unnu
ötullega að alla tíð. Fjölbreytt starf-
semi á sviði heilsuverndar og sköp-
unar myndi veita fólki úrræði á
fyrstu stigum heilsubrests eða til
forvarnar og auka þannig lífsgæði
og stuðla að hamingjuvexti Hafn-
firðinga. Í húsinu verði samfélag
sem býður upp á forvarnir, heilsu-
vernd, snemmtæka íhlutun, fræðslu
og skapandi setur.
Brýnar viðgerðir
Áætlað hefur verið að það kosti yf-
ir 200 milljónir að gera við húsnæðið.
Sigríður Kristinsdóttir, sviðsstjóri
stjórnsýslusviðs og bæjarlögmaður
Hafnarfjarðarkaupstaðar, vann með
starfshópunum. Hún segir að
Hafnarfjarðarkaupstaður hafi varið
60 milljónum króna til viðgerða í ár.
Það fé fari í brýnar viðgerðir á hús-
inu að utan og innan en viðgerðir
innanhúss ráðist nokkuð af því
hvaða hlutar hússins verði teknir
fyrst í notkun og hvað þurfi að gera
þar.
Hún tekur fram að húsið verði
tekið í notkun í áföngum. Engar
tímasetningar hafa verið gefnar út
en Sigríður vonast til að einhver
starfsemi hefjist á þessu ári.
Myndlist í skurðstofum
Í skýrslu starfshópsins er farið yf-
ir húsið frá herbergi til herbergis og
settar fram hugmyndir um notkun.
Kapellan verður samkomustaður
hússins. Bent er á að hana megi nýta
í fjölbreytt mannamót, fyrir fundar-
sal, námskeið, létta leikfimi og fleira.
Hugmynd er um tilraunaeldhús í
eldhúsi og tengd rými í kjallara. Þar
mætti standa fyrir námskeiðum
fyrir hópa í fjölbreyttum tilgangi.
Sem dæmi eru nefndir einstaklingar
sem ekki hafi áður þurft að sjá um
mat en standa einir í lífinu, fólk sem
er að fóta sig á ný eftir endurhæf-
ingu og fólk sem þarf að breyta mat-
aræði. Þar gætu einnig sprota-
fyrirtæki í matvælaiðnaði fengið
aðstöðu til vöruþróunar.
Suðurhluti fyrstu hæðar er talinn
henta fyrir þjónustu við eldri borg-
ara sem taka þátt í heilsueflingu og/
eða einstaklinga með skerta hreyfi-
getu. Í norðurhluta hæðarinnar og
miðrýminu megi hafa kaffistofu,
skrifstofur, viðtalsherbergi og
fundarherbergi tengd heilsueflingu
og stjórnun hússins.
Á annarri hæðinni gæti verið
skapandi kjarni. Nefnt er að skurð-
stofurnar henti vel til myndlistar-
kennslu, bæði fyrir börn og unglinga
og fullorðna. Í sjúkrastofum og
skrifstofum í norðurhluta 2. hæðar
gæti verið aðstaða fyrir smærri ný-
sköpunarfyrirtæki. Nefnt er klasa-
samstarf á sviði lífsgæða, lýðheilsu,
heilbrigðistækni eða heilsu. Það
gæti nýst heildarstarfseminni í setr-
inu.
Lagt er til að vistarverur systr-
anna og skrifstofur í risi verði nýttar
fyrir fjölbreytta samtalsmeðferð, til
dæmis hjá sálfræðingum og fé-
lagsráðgjöfum, og einnig endurhæf-
ingu hjá sjúkraþjálfurum og iðju-
þjálfurum.
Aðstaðan verður leigð út og segir
Sigríður stefnt að því að rekstur
hússins verði sjálfbær þegar það
verður komið í fullan rekstur.
Aukin lífsgæði og meiri hamingja
Lífsgæðasetur Hafnfirðinga verður í St. Jósefsspítala Stefnt að sjálfbærum rekstri Auglýst
eftir leigutökum á sviði heilsuverndar og sköpunar Miklar viðgerðir innan dyra og utan fram undan
Morgunblaðið/Ófeigur
St. Jósefsspítali Gera þarf við hús spítalans til þess að þar verði hægt að koma upp lífsgæðasetri fyrir Hafnfirð-
inga. Vonast er til að starfsemi hefjist þar á árinu. Hún verður mjög fjölbreytt ef áætlanir ganga eftir.