Morgunblaðið - 19.02.2018, Page 15
AFP
Óskabarn Cyril Ramaphosa fyrir stefnuræðu sína þar sem hann boðaði nýja dögun fyrir Suður-Afríku. Á myndinni
með honum er Baleka Mbete, forseti suðurafríska þingsins. Almenningur í landinu bindur miklar vonir við hann.
Nýr forseti Suður-Afríku, Cyril Ra-
maphosa, sór embættiseið sem
fimmti forseti lýðveldisins í síðustu
viku í kjölfar afsagnar Jacobs Zuma.
Ramaphosa gegndi áður embætti
varaforseta Suð-
ur-Afríku, en í lok
síðasta árs var
hann kjörinn leið-
togi Afríska þjóð-
arráðsins (ANC).
Zuma hafði gegnt
embætti forseta
síðan árið 2009,
en forsetatíð hans
hefði undir eðli-
legum kringum-
stæðum átt að ljúka á næsta ári, því í
Suður-Afríku má forseti ekki sitja
lengur en tvö kjörtímabil. Zuma
sagði loks af sér eftir mikinn þrýst-
ing samflokksmanna sinna vegna
ásakana um spillingu.
Í fyrsta opinbera ávarpi sínu sem
forseti þjóðarinnar lofaði Rama-
phosa „nýrri dögun“ fyrir landið,
minnkuðu atvinnuleysi, innspýtingu
í efnahagskerfi landsins og að tekið
yrði á spillingu. Suðurafríska þjóðin
bíður þess nú að sjá hann standa við
stóru orðin, en sagt er að Ramap-
hosa sé sá maður sem Nelson Man-
dela hefði viljað sjá í stöðu leiðtoga
landsins, en þeir unnu saman gegn
aðskilnaðarstefnu Suður-Afríku á
sínum tíma og sat Ramaphosa meðal
annars í fangelsi vegna þess. Í kjöl-
far ósigurs gegn Thabo Mbeki um
það hver ætti að taka við af Mandela
sem forseti árið 1997 sneri Ramap-
hosa sér hins vegar að viðskiptum og
varð einn af ríkustu mönnum Afríku.
Þá gegndi hann stöðu aðalkjörræðis-
manns Íslands í Gauteng-héraði í
Suður-Afríku frá 1998 til 2014, þegar
hann tók við embætti varaforseta.
„Mér líst mjög vel á hann og ég
held að þetta sé svolítið skemmtilegt
fyrir Íslendinga,“ segir Ruth Gylfa-
dóttir, sem hefur verið búsett í
Suður-Afríku hálfa ævina og gegnir
stöðu ræðismanns í Vestur-Höfða-
héraði. Hún segir Ramaphosa aldrei
hafa komið til Íslands þó að hann
hafi verið ræðismaður allan þennan
tíma, en að hann eigi það vonandi
eftir.
Skapar von í brjósti fólks
„Það er ofboðslega mikil von í
brjósti fólks hérna, það voru allir
búnir að fá nóg af Zuma út af öllum
spillingarmálunum,“ segir Ruth. Þá
segir hún fólk líka hrifið af eiginkonu
hans, Tshepo Motsepe, því hún sé vel
menntuð og auðug á eigin forsend-
um.
„Þau eru flott hjón og hann þykir
mjög flinkur samningamaður. Hann
boðaði nýja dögun í stefnuræðu sinni
og fólk langar mjög mikið að trúa
honum.“
Nýr forseti S-Afríku
boðar nýja dögun
Cyril Ramaphosa var ræðismaður Íslands í sextán ár
Ruth Gylfadóttir
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2018
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is
„Veist þúað skilgreining
á sótthitabreytist eftir aldri?
Thermoscaneyrnahita-
mælirinnminnveit það.“
Braun Thermoscan
eyrnahitamælar fást í öllum
lyfjaverslunum
ThermoScan® 7
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Þjóðaröryggisráðgjafi Donalds
Trump Bandaríkjaforseta, H.R.
McMaster, segir óumdeilanlegt að
Rússar hafi reynt að hafa áhrif á for-
setakosningarnar árið 2016. Þessi
ummæli lét hann falla á öryggis-
ráðstefnu í München á laugardag í
kjölfar þess að Robert Mueller, sér-
stakur saksóknari í rannsókn Banda-
ríkjanna á afskiptum Rússa af kosn-
ingunum, ákærði þrettán Rússa sem
grunaðir eru um að hafa rekið leyni-
lega kosningabaráttu til að hafa áhrif
á úrslitin. „Sönnunargögnin eru nú
óumdeilanleg og aðgengileg almenn-
ingi,“ sagði hann.
Rússar þverneita
Hins vegar hefur Sergei Lavrov,
utanríkisráðherra Rússlands, sagt að
ákærurnar á hendur Rússunum
þrettán séu ekkert nema þvættingur.
Hann sagði að varaforseti Bandaríkj-
anna, Mike Pence, efaðist jafnvel um
rannsóknina. „Þannig að þangað til
við sjáum einhverjar staðreyndir er
allt annað bara þvættingur.“
Trump hefur sjálfur tjáð sig um
ákærurnar í röð ummæla á Twitter-
aðgangi sínum, þar sem hann bendir
meðal annars á að hvergi komi fram í
ákærunum að neinn Bandaríkjamað-
ur hafi komið nálægt þessari ólög-
legu starfsemi. Í öðru tísti sagðist
Trump „aldrei hafa sagt að Rússland
hafi ekki haft afskipti af kosning-
unum“. Hann hafi sagt að það gætu
hafa verið Rússar, Kínverjar eða
hvaða land eða hópur sem er, eða 400
punda snillingur sem sæti í rúminu
sínu og léki sér í tölvunni. Þá sagði
hann að ef markmið Rússa hefði ver-
ið að skapa ringulreið í Bandaríkj-
unum hefði þeim svo sannarlega tek-
ist það, og að líklega væru menn
hlæjandi í Moskvu um þessar
mundir.
Trump notaði einnig tækifærið til
að gagnrýna störf bandarísku alríkis-
lögreglunnar í máli Nikolas Cruz,
sem hefur játað að hafa orðið sautján
manns að bana í skotárás á nem-
endur í Florida á miðvikudag. „Það
er mjög sorglegt að FBI hafi misst af
þeim mörgu merkjum sem skóla-
skotárásarmaðurinn sendi frá sér.
Þetta er óásættanlegt. Þeir eyða of
miklum tíma í að reyna að sanna
samráð Rússa við Trump-kosninga-
baráttuna – það er ekkert samráð.
Farið að sinna starfi ykkar og gerið
okkur öll stolt!“
Afskipti Rússa
óumdeilanleg
Sergei Lavrov hafnar ákærunum
Farþegaflugvél
með 65 manns
innanborðs hrap-
aði í Íran í gær,
sunnudag, og tal-
ið er að allir um
borð hafi látist.
Flugvélin, sem er
í eigu Aseman
Airlines, var á
leið frá Teheran
til Yasuj þegar hún hrapaði til jarð-
ar í fjalllendi um 22 kílómetrum frá
áfangastað sínum í suðurhluta
landsins. Um borð voru 59 farþegar,
þar á meðal eitt barn, tveir öryggis-
verðir, tvær flugfreyjur og tveir
flugmenn.
Erfiðar aðstæður
Rauði krossinn í Íran sendi
mannskap á slysstað, en mjög erfitt
var að komast að flugvélinni. Fljót-
lega eftir slysið tilkynnti flugfélagið
að allir um borð hefðu látist, en
stuttu seinna gaf það út yfirlýsingu
þess efnis að það væri ekki víst enn
um sinn vegna erfiðra aðstæðna
björgunarfólks við að komast að vél-
inni. Þá sagði upphaflega tilkynn-
ingin einnig að 60 farþegar hefðu
verið um borð áður en í ljós kom að
einn farþeginn hafði misst af vélinni.
Slæm veðurskilyrði, þoka og
snjór, gerðu björgunarfólki erfitt
fyrir við að komast á slysstað. Í stað
þess að ferðast þangað á þyrlu
þurfti það að fara landleiðina.
Flugvélin sem um ræðir var af
gerðinni ATR-72 og er 25 ára göm-
ul, en vegna áralangs viðskipta-
banns hefur verið erfitt fyrir Íran
að kaupa aukahluti til þess að gera
við og endurnýja flugvélaflota
landsins.
Í gær var liðin vika síðan flugvél
hrapaði í Rússlandi með þeim afleið-
ingum að 71 lést.
Sextíu og fimm lét-
ust í flugslysi í Íran
Aðstæður til björgunar erfiðar
Aseman Airlines