Morgunblaðið - 19.02.2018, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.02.2018, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2018 Flutningatækni Þessi litaglaði maður gekk upp Bankastræti með hvítan plastbala á höfði. En þá er spurningin: Hvað leynist í balanum? Eggert Nú kunna einhverjir lesendur Morgunblaðs- ins að hvá við. Hefur ekki einmitt verið sagt að nær ekkert hafi ver- ið byggt af nýju íbúðar- húsnæði á þéttbýlis- svæðum utan suð- vesturhornsins síðustu ár. Víst er það svo en heiti þessarar greinar minnar, sem er önnur af þremur sem ég rita um húsnæðismál á landsbyggðinni, vísar til þeirrar staðreyndar að margar þjóðir sem glímt hafa við sams konar vanda hafa fundið á hon- um lausnir. Ég ætla í þessari grein að fjalla um þær leiðir sem aðrar þjóðir hafa beitt og hvað sé til ráða þegar nýbygging íbúða hefur stöðvast á mörgum svæðum í dreifbýli þrátt fyrir að þau búi við fulla atvinnu og næga eftirspurn eftir húsnæði? Ýmiss konar inngrip stjórnvalda á húsnæðismarkaði og húsnæðisstuðn- ingur við almenning af fjárhags- legum toga tíðkast hvarvetna í hinum vestræna heimi. Hér á landi hefur stuðningur hins opinbera falist í lán- veitingum Íbúðalánasjóðs, í formi vaxtabóta, húsnæðisbóta og ýmiss konar skattaafslátta sem veittir eru fasteignaeigendum. Þessi niður- greiðsla á húsnæðiskostnaði er rétt- lætt með því að það sé hagur okkar allra að fólk hafi húsaskjól enda er húsnæði, rétt eins og fæði og klæði, ein af grunnþörfum mannsins. Raun- ar hafa sumar þjóðir gengið enn lengra síðustu ár og skilgreina nú að- gang að húsnæði sem grundvallar- mannréttindi. Eins og fram kom í grein minni hér á þessum sama stað 12. febrúar síðastliðinn hefur verið mikill hús- næðisskortur á landinu öllu undanfarin ár en einna alvarlegastur er vandinn þó á lands- byggðinni. Þrátt fyrir að íbúum þar hafi fjölg- að mikið hefur lítil upp- bygging átt sér stað síðustu árin. Á sumum landsvæðum, eins og á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra, hefur vart verið byggt síðan um alda- mótin og á Austurlandi hefur nær ekkert íbúðarhúsnæði verið byggt frá árinu 2008. Dæmi eru um að þessi skortur á íbúðarhúsnæði hafi hamlað atvinnutækifærum og að öflug fyrir- tæki í minni byggðum missi starfs- fólk einfaldlega vegna þess að nægi- lega hentugt húsnæði er ekki til staðar. Sams konar vandi er til staðar á dreifbýlum svæðum í Noregi. Í skýrslu norsku Byggðastofnunar- innar frá árinu 2014, sem fjallar um átak í húsnæðismálum sveitarfélaga, segir m.a. að húsnæðismarkaður í um helmingi sveitarfélaga í Noregi sé „lítill, ótryggur eða staðnaður“. Þessar aðstæður hafa á mörgum stöðum haft skaðleg áhrif á atvinnu- líf, enda getur fólk ekki flust þangað sem ekkert húsnæði er til staðar. Ástæðurnar eru sagðar vera eftir- farandi: Lágt markaðsvirði íbúða sem gerir það að verkum að erfitt er að fá fjármögnun, tiltrú á hagnað af sölu er lítill þar sem húsnæðismark- aður er staðnaður og verð eru lág og margar íbúðir eru tómar og nýttar sem frístundahúsnæði en ekki til leigu eða sölu á almennum markaði. Þá er leiguverð félagslegra íbúða yf- irleitt of lágt. Byggingaraðilar sjá þá ekki hag sinn í því að byggja íbúðir til útleigu á þessum stöðum. Það er áhugavert að skoða hvernig norska ríkið í samvinnu við sveitarfélögin hefur tekist á við þennan vanda sem minnir um margt á stöðuna hér á landi. Árið 2009 voru settar af stað þróunaráætlanir í húsnæðismálum sveitarfélaga í Noregi og leiddi norski Husbanken, sem er þarlend systurstofnun Íbúðalánasjóðs, sam- ræmingu þeirra. Husbanken hefur gert fjölmargar samvinnusamninga, sem meðal annars taka mið af stærð og mismunandi framboði húsnæðis innan sveitarfélaga. Á grundvelli þeirra eru sett af stað uppbygg- ingarverkefni sem njóta hagkvæmr- ar lánafyrirgreiðslu. Sveitarfélagið Hamarøy tók fyrir nokkrum árum þátt í einu slíku verkefni. Mikill skortur var á íbúðarhúsnæði bæði fyrir almennan markað og fyrir skjólstæðinga félagsþjónustunnar í Hamarøy. Sveitarfélagið glímdi við slæma fjárhagsstöðu og gat því ekki staðið sjálft að uppbyggingunni en fékk byggingaraðila til liðs við sig á grundvelli útboðs. Niðurstaða þeirr- ar samvinnu var sú að jafnmargar íbúðir voru byggðar fyrir skjólstæð- inga félagsþjónustu sveitarfélagsins og fyrir almennan markað. Bygging- araðilinn fékk styrk frá Husbanken á grundvelli sérstaks landsbyggðar- verkefnis til byggingar á félagslegu íbúðunum og sveitarfélagið leigir þær íbúðir í a.m.k. 20 ár. Byggingar- aðilinn gat síðan sjálfur ákveðið hvernig hann ráðstafaði restinni af íbúðunum. Þremur og hálfu ári síðar höfðu rúmlega 100 íbúðir verið byggðar, án þess að sveitarfélagið hefði sjálft haft kostnað af byggingu íbúðanna. Annað sveitarfélag, Gilda- skål, seldi byggingaraðila gamla skólabyggingu sem breyta mátti í íbúðarhúsnæði. Byggingaraðilinn fékk styrk vegna leiguíbúðanna, en ekki vegna íbúðanna sem hann seldi á almennum markaði. Í báðum til- vikum varð fólksfjölgun í sveitar- félögunum, frekari uppbygging fór af stað og bjartsýni jókst á fasteigna- markaðnum sem áður var metinn ótryggur eða staðnaður. Þá eru í Noregi dæmi um að sveitarfélög hafi auglýst styrki og lán til standsetn- ingar á húsnæði, gegn því að eigandi húsnæðis flytji þangað sjálfur eða að húsnæðið sé leigt út til langs tíma. Þetta hefur gefið góða raun í sveitar- félögum þar sem mikið er af tómum íbúðum sem nýttar eru sem frí- stundahúsnæði um leið og mikill skortur er á leiguhúsnæði. Í Finnlandi hefur ARA, hin finnska systurstofnun Íbúðalána- sjóðs, veitt styrki til fólks í lands- byggðarsveitarfélögum til þess að breyta eldra húsnæði og gera það hentugra fyrir eldri borgara svo fólk geti búið lengur í húsum sínum og þurfi ekki að flytja um langan veg á elliheimili. Það er til að mynda hægt að fá styrki til þess að setja upp lyftu í eldri húsum og getur hámarks- styrkur numið 45% af kostnaði við framkvæmdina. Á árunum 1993-2016 hefur ARA veitt um 3.700 slík lyftu- lán sem hafa verið þó nokkur lyfti- stöng fyrir húsnæðisverð og nýtingu í dreifðari byggðum Finnlands. Í Svíþjóð eru veittir sérstakir styrkir til uppbyggingar leiguhús- næðis á svæðum þar sem mikil skort- ur er á húsnæði. Kerfið er ekki ósvip- að almenna íbúðakerfinu sem komið hefur verið á fót á Íslandi þar sem Íbúðalánasjóður og sveitarfélög veita stofnframlög til uppbyggingar leigu- heimila. Í Svíþjóð er jafnframt til skoðunar um þessar mundir að ríkið komi að því að lána til bygginga og endurbóta á húsnæði á svæðum þar sem framboð lánsfjár frá hefð- bundnum fjármálastofnunum er lítið. Samkvæmt upplýsingum frá þess- um helstu nágrannaþjóðum okkar hefur útlánatap verið í lágmarki vegna þessara sérstöku lána og stuðningsúrræða. Húsnæðisstuðn- ingur sem veittur er vegna markaðs- brests á ákveðnum svæðum er talinn hafa gefið góða raun. Þetta er hug- hreystandi að heyra en það er stað- reynd að íslensku landsbyggðirnar glíma nú við alvarlegan markaðs- brest á húsnæðismarkaði. Atvinnu- tækifærin eru til staðar, fólksfjölgun er mjög víða um land en uppbygging- aráform íbúðarhúsnæðis hafa engu að síður látið á sér standa. Allt þjóð- félagið geldur fyrir það þegar ójafn- vægi ríkir. Því þarf að bregðast við um leið og þess er að gætt að stuðla ekki að óhóflegum og óskynsam- legum fjárfestingum. Landsbyggðin hefur setið eftir í úrræðum stjórn- valda síðustu misseri. Unnið er að undirbúningi sérstakra úrræða til að örva íbúðaframkvæmdir utan suð- vesturhornsins. Nái þau fram að ganga og skili þau sambærilegum ár- angri og náðst hefur í Noregi og víð- ar munu stjórnvöld hafa stigið mikil- vægt skref til að uppfylla skyldur sínar gagnvart því að tryggja hús- næðisöryggi allra landsmanna. Eftir Ásmund Einar Daðason »Unnið er að undir- búningi sérstakra úrræða til að örva íbúðaframkvæmdir utan suðvesturhornsins. Ásmundur Einar Daðason Höfundur er félagsmálaráðherra. Húsbyggingar á landsbyggðinni geta verið hagkvæmar Stórar fréttir fá oft enga athygli. Það er ekki á hverjum degi sem ríkissjóði áskotnast í einu vetfangi stórt og fjölbreytt eignasafn að verð- mæti nokkur hundruð milljarðar króna. Sú varð þó raunin árið 2016. Við uppgjör slitabúa fallinna fjár- málafyrirtækja afhentu þau ríkis- sjóði svokallað stöðugleikaframlag í skiptum fyrir að halda sínum er- lendu eignum utan innlendra fjár- magnshafta. Áætlað virði eignanna var á þeim tíma 384 milljarðar króna og innihélt eignasafnið allt frá lausu fé til stórra eignarhluta í innlendum fyrir- tækjum. Var ríkis- sjóður þannig í einnig svipan orðinn stór hlut- hafi í fyrirtækjum í ým- iss konar rekstri. Spannaði eignasafnið allt frá eignarhalds- félögum og fjárfest- ingarsjóðum til ferða- þjónustu og lyfjasölu. Utan um eignirnar var stofnað félagið Lindar- hvoll ehf. og fékk hið nýstofnaða félag það verkefni að „annast umsýslu, fullnustu og sölu eign- anna“. Frá upphafi var lagt upp með að eignirnar yrðu nýttar til niður- greiðslu skulda. Til þess að svo gæti orðið varð bæði að koma þeim í verð og fylgja því eftir að fjármunirnir rynnu sannarlega ekki til annarra verkefna. Það er engan veginn sjálf- gefið þegar slíkar eignir renna í ríkissjóð. Því ber að halda til haga og fagna sérstaklega. Það er því hvorki meira né minna en stórkostlegt að nú á dögunum, tæplega tveimur ár- um eftir stofnun Lindarhvols, hafi verið tilkynnt að verk- efninu sé lokið og starfsemi félagsins því sjálfhætt. Svona eiga sýslumenn að vera! Áætlað er að virði þeirra eigna sem runnu inn í Lindarhvol verði í árslok orðið 458 milljarðar króna. Hef- ur virði eignanna því vaxið um 74 milljarða á aðeins tveimur árum. Það eru gríðarlegir fjármunir í öllu sam- hengi. Til samanburðar er það áþekk fjárhæð og áætlað er að margumrædd borgarlína gæti kost- að þegar hún verður tilbúin árið 2040 og töluvert meira en 65 ma.kr. framlag ríkissjóðs til Landspítalans á þessu ári. Munar um minna og munu Íslendingar njóta þess til frambúðar í lægri vaxtagreiðslum og minna skuldsettum ríkissjóði. Það er rétt að hrósa stjórnvöldum fyrir staðfestu við úrlausn þessa verkefnis. Loforð um niðurgreiðslu skulda hefur til þessa staðið eins og stafur á bók, en af þeim 204 ma.kr. sem búið er að ráðstafa hefur 170 ma.kr. þegar verið varið til niður- greiðslu skulda ríkissjóðs og lækk- unar lífeyrisskuldbindinga. Þeir sem komu að málinu eiga að vera stoltir af sínu verki og er nú mikilvægt sem aldrei fyrr að hvergi verði hvikað frá fyrri stefnu við ráðstöfun þeirra 250 ma.kr. sem eftir standa. Skuldir ríkissjóðs eru enn mun meiri en þær voru fyrir hrun bankakerfisins og eina ábyrga stefnan er að nota ein- skiptistekjur sem þessar til þess að draga úr skuldum ríkissjóðs og styrkja þannig stöðu okkar sam- eiginlegu sjóða til framtíðar. Meira af þessum toga. Eftir Halldór Benjamín Þorbergsson » Það er rétt að hrósa stjórnvöldum fyrir staðfestu við úrlausn þessa verkefnis. Loforð um niðurgreiðslu skulda hefur til þessa staðið eins og stafur á bók. Halldór Benjamín Þorbergsson Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Kveðjum Lindarhvol ehf. með gleði í hjarta og þökk fyrir liðið Heildarvirði stöðugleikaeigna ríkisins Virði í milljörðum króna Heimildir: Fjármála- og efnahagsráðuneytið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.