Morgunblaðið - 19.02.2018, Síða 25

Morgunblaðið - 19.02.2018, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Búðu þig vandlega undir að taka ákvörðun í viðkvæmu máli. Settu krítar- kortin í frysti og gleymdu þeim í smá tíma. Heilsan er ekki sem best, farðu varlega með þig. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú situr uppi með of marga lausa enda og þarft því að setjast niður og gaum- gæfa mál þín. Taktu frá nokkra klukkutíma og svarið kemur til þín. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú setur ekki margar reglur í samböndum þínum, og þess vegna er auð- velt að vera vinur þinn. Tíminn stendur með þér, líka í peningamálum. Vertu óhrædd/ur því málin munu ganga upp. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Ekki gefast upp þótt þér finnist út- litið svart nú um stundir. Losaðu um stífl- aðar tilfinningar. Mundu að enginn er eldri en honum finnst hann vera hvað svo sem árunum líður. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert jákvæð/ur og því ganga sam- bönd þín sérstaklega vel þessa dagana. Láttu ekkert trufla þig í sjálfsvinnu þinni. Þú munt uppskera vel að lokum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Vinur eða kunningi lætur ekki vel að stjórn þessa dagana, sama hvað þú reynir. Þú ert með hjartað í buxunum yfir ein- hverju en það mun allt fara á besta veg. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér finnst þú eiga erfitt með að setja þér markmið í lífinu. Mundu samt að þau þurfa ekki að vera mörg eða flókin. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Forðastu rifrildi um peninga og eignir. Reyndu að njóta alls þess fallega og rómantíska sem gæti orðið á vegi þínum í dag. Þú hittir gamlan vin á förnum vegi. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Nýjar upplýsingar leiða til þess að þú átt erfitt með að taka ákvörðun. Ef þú vilt frið, skaltu biðja um hann hreint út. Félagslífið er í blóma. 22. des. - 19. janúar Steingeit Láttu eftir þér að lyfta þér upp með góðu fólki. Þú ert með hjartað á rétt- um stað og laðar allt það besta fram í fólki. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Nú er tíminn til þess að endur- nýja kynnin við góða félaga og endurlifa gamlar minningar. Ekki gefa höggstað á þér. 19. feb. - 20. mars Fiskar Umhverfi þitt hefur mikil áhrif á þig og þér mun því líða betur þegar allt er í röð og reglu. Verkefni þurfa ekki að klárast öll í einu. Til tilbreytingar raðaði ég bók-um og möppum í kringum mig og tók sitt lítið úr hverri til að fylla Vísnahornið. Hlymrek Jó- hanns S. Hannessonar lenti efst í bunkanum: Það er eitt sem ég aldrei fæ skilið ef ég ætla að ganga upp þilið losna iljarnar frá og fæturnir ná ekki að fylla að gagni upp í bilið. Þeir voru vildarvinir Jóhann og Kristján Karlsson og skiptust á limrum. Vafalaust er þessi limra Kristjáns svar við limru Jóhanns eða öfugt! „Víst er gaman að ganga upp þil,“ sagði Guðný og labbaði upp þil. „Eða fyndist þér gaman jafngreindum í framan að geta ekki labbað upp þil?“ „Að æfilokum“ er síðasta bindið af ævisögu Árna prófasts Þórarins- sonar. Þar segir: „Og þegar Friðrik huldulæknir hafði yfir með himneskri röddu þessa stöku gegnum Guðmund á Höfða: Vaki ég, og vaka mun ég. Velferð þín er einnig mín. Vaki ég og vaka mun ég, vaki meðan sólin skín – hefði ég þá átt að hrópa: Hættu þessu gargi! Þú ert Andskotinn?“ Magnús í Magnússkógum orti rímur af Gríshildi góðu. Þessi stuðlaföll eru úr 2. rímu: Veit ég það er vani heimsins sona neina ei vilja nistisbrík nema þá sem nógu er rík. Sína þá með sveina áfram heldur jöfur lands og jómfrúrnar, járnin tróðu gæðingar. Halldór Laxness leitaði víða fanga. Hinn svarti þjófur Jón Hreggviðsson var sestur tvívega upp á þekjuna með fæturna fram af gaflinum og kvað Pontusrímur eldri: Ei mun sjóli armi digrum kjósa netta að spenna nistisbrík – nema hún sé úng og rík. Og enn kvað hann: Áfram meður sveinum geisar sínum jöfur lands og jómfrúrnar, – járnmél bruddu graðhestar. Þannig öðlast vel kveðnar vísur nýtt líf – ef þær eru nógu vel kveðnar! Guðmundur Guðmundsson, bók- sali á Eyrarbakka, orti: Hvernig skyldi hinumegin vera? Ef í nefið ei þar fæst ekki eru vistaskiptin glæst. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Kveðlingar héðan og þaðan „OG ÞETTA ER EMMA DÓTTIR MÍN – FRÁ FYRSTA VEÐRÉTTI MÍNUM.“ „HAFIÐ ÞIÐ SÉÐ PAR AF BRÚNUM HÖNSKUM?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... besta gjöfin. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann KLIKK ÉG HEF ALDREI NÁÐ ÞVÍ AÐ TAKA VEL HEPPNAÐA SJÁLFU ÉG HATA ÞENNAN STRANDKOFA! GEFÐU ÞESSU MEIRI TÍMA! ÞAÐ HLÝTUR AÐ KOMA FJARA BRÁTT! Fjölgun fólks með háskólamenntuner ein af ástæðunum þess hve margir úr þeim hópi eru á atvinnu- leysisskrá. Velsældin hefur ekki skilað sér til allra og nú eru fimmtíu viðskiptafræðingar í atvinnuleit, 54 lögfræðingar, átján verk- og tækni- fræðingar og nærri 900 manns með aðra háskólamenntun eru á skrá yfir fólk sem vantar vinnu, samkvæmt því sem kom fram í fréttum í fyrri viku. Allt er þetta þó lúxusvandi; fólk verður einfaldlega að grípa þá vinnu sem býðst og leita þaðan að drauma- starfi, eins og Gissur Pétursson, for- stjóri Vinnumálastofnunar, lýsir í viðtali við Mbl.is. Nær væri að hvetja ungt fólk til þess að leggja fyrir sig iðnnám eða afla sér hag- nýtrar menntunar sem nýtist vel í al- mennum verklegum störfum. Nám í háskóla er ekki fyrir alla og akadem- ísk prófgráða getur aldrei orðið töfrasproti sem opnar fólki allar dyr. x x x Í merkilegu viðtali í þættinum Sam-félagið á Rás 1 Ríkisútvarpinu síð- ustu viku sagði Sigurður Jónsson, lögregluþjónn í Borgarnesi, frá starfi sínu og áskorunum sem því fylgja. Hann er gjarnan einn á vakt á víðfeðmu svæði og þarf því að geta sinnt öllum málum sem upp koma. Sinnt almennri löggæslu en einnig verið sérsveitarmaður, læknir, hjúkka, prestur og sálfræðingur, eins og hann lýsti. Og þegar Sig- urður er á frívakt hringir fólk heim til hans og óskar eftir lögreglu- aðstoð. Nú er það svo að helst á ekki að hringja heim í fólk vegna vinnu þess, en í þessu felst samt hrós frá Borgfirðingum og öðrum þeim sem stóla á og leggja allt sitt traust á þennan laganna vörð. Sigurður er greinilega einstakur gæfumaður. x x x Viðfangsefnum fólks í dag ergjarnan lýst sem svo að þau séu metnaðarfull. Þetta er hallærisleg lýsing. Almennt reynir fólk nú að skila sínu sómasamlega og af heið- arleika. En að lýsa slíku sem metn- aðarmáli hljómar eins og strákar í 6. flokki í fótbolta séu að keppast um að fá verðlaun fyrir „framför og ástundun“ eins og slíkt er kallað. vik- verji@mbl.is Víkverji En öllum þeim sem tóku við honum gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim sem trúa á nafn hans. (Jóh: 1.12) Nýlöguð humarsúpa Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00 Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Glæný lúða Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim Ný línuýsa Klaustur- bleikja

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.